Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1994, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTOBER 1994
5
Prófkjör hjá Alþýðuflokkniun á Vesturlandi:
Búist við fjörugum
slag um efsta sætið
- Gísli Einarsson alþingismaður hefur þegar tilkynnt um þátttöku
Kjördæmisráð Alþýðuflokksins i
Vesturlandskjördæmi ákvað á fundi
um síðustu helgi að prófkjör skuli
fara fram 19. nóvember næstkom-
andi um niðurröðun á lista flokksins
í komandi alþingiskosningum.
„Gísli Einarsson alþingismaður er
sá eini sem hefur tilkynnt opinber-
lega um þátttöku í prófkjörinu. Ég
tel hins vegar öruggt að það muni
fleiri keppa um efsta sætið á fistán-
um og að prófkjörið verði fjörugt,"
sagði Sigurjón Hannesson, formaður
prófkjörsnefndar, við DV.
Enda þótt Gísli sé sá eini sem til-
kynnt hefur um þátttöku er nær ör-
uggt að þeir Sveinn Hálfdánarson í
Borgarnesi og Sveinn Elenbergsson
í Ólafsvík muni gefa kost á sér og
keppa um efsta sætið. Þá eru hkur á
að Helgi Daníelsson rannsóknarlög-
reglumaður gefi kost á sér í 2. sæti
listans.
Nafn Finns Torfa Stefánssonar tón-
listarmanns hefur verið nefnt í sam-
bandi við prófkjörið. Finnur Torfi
býr í kjördæminu, að Tungufelfi í
Lundarreykjadaf. Finnur er bróðir
þingmannanna Gunnlaugs og Guð-
mundar Árna Stefánssona. Hann var
kjörinn á þing fyrir Alþýðuflokkinn
1978 en sat aðeins það stutta þing.
Engin kona hefur verið nefnd til
sögunnar enn sem komið er en þung
áhersla verður lögð á að fá konur til
að gefa kost á sér.
Gísh Einarsson hefur ákveðið for-
skot sem þingmaður en hann kom
inn á þing sem varamaður Eiðs
Guðnasonar. Gísh nýtur vinsælda á
Akranesi sem er stærsti byggða-
kjarni kjördæmisins.
Sveinn Hálfdánarson er fæddur og
uppalinn á Akranesi og er af gróinni
krataætt þar. Hann hefur búið í
Borgamesi í yfir 20 og verið þar í
forystusveit Alþýðuflokksins.
Sveinn Elenbergsson er foringi krata
í Ólafsvík og situr þar í bæjarstjórn
fyrir flokkinn. Hann sækir fylgi fyrst
og fremst á Snæfellsnesið.
Þingvallahátíðin:
Kostnaðurinn
fór 110 prósent
fram úr áætlun
Beinn kostnaður ríkisins við þjóð-
hátíðina á Þingvöllum í sumar var
hátt í 170 milljónir króna. í fjárlögum
var gert ráð fyrir að kostnaðurinn
yrði um 80 milljónir. Miðað við for-
sendur fjárlaga fór kostnaðurinn því
110 prósent fram úr áætlun. í frum-
varpi fjármálaráðherra til íjárauká-
laga er óskað eftir heimild til að sópa
þennan vanda upp.
Smíði þingpalla á Þingvöllum, leiga
á hátalarakerfi, gestamóttaka og
annað sem laut að fundi þingmanna
á lýðveldisafmælinu kallar nú á 15,5
mihjóna króna aukafjárveitingu til
Alþingis. Þá kostaði móttaka er-
lendra gesti 19 milljónir sem auka-
fjárveitingu þarf einnig fyrir.
Útgjöld forsætisráðueytisins fóm
einnig langt fram úr áætlunum í
tengslum við afmælisfagnaðinn á
Þingvöllum. Samkvæmt fjárlögum
áranna 1993 og 1994 gat ráðuneytið
ráöstafað 80 milljónum króna 111 há-
tíöahaldanna í ár. Þegar upp var
staðið kom í ljós að kostnaðurinn
hafði aukist um 53 milljónir. Ástæð-
an var meðal annars aukinn kostn-
aður vegna mannvirkjagerðar á
svæðinu, hreinlætisaðstöðunnar,
veitinga og löggæslu.
Loðnuaíli í september:
Samdráttur um
95 þúsund tonn
Það veiddust 7500 tonn af loðnu und tonn skv. bráðabirgöatölum
í september miðað við 102 þúsund Fiskistofu.
tonn í september í fyrra sem þýðir Enn er ekki fundin loðna í veið-
samdrátt í veiðunum upp á 95 þús- anlegu standi.
Lagfæringar hafa átt sér stað í mötuneyti nokkurra ríkisstofnana við Borgar-
tún 7 en mötuneytinu hefur litið verið haldið við síðustu 30 árin. Ákveðið
hefur verið að kaupa matarborð af islensku fyrirtæki og stóla frá ítölskum
framleiðanda gegnum danskt fyrirtæki þar sem ítalirnir fengust ekki til að
afgreiða stólana á tilteknu verði. DV-mynd BG
Breytingar á mötuneyti ríkisins viö Borgartún:
ítalskir stólar keyptir
gegnum danskt fyrirtæki
Ákveðið hefur verið að kaupa 80
ítalska stóla úr forspenntum viði í
mötuneyti ríkisstofnana við Borgar-
tún 7 í Reykjavík gegnum danskt
fyrirtæki þar sem ekki hefur tekist
að ná samkomulagi um kaupin gegn-
um íslensk fyrirtæki.
Óskað var eftir tilboðum í stólana
í sumar og var GKS hf. með lægsta
tilboðið upp á 700 þúsund krónur.
HG Vending hf., sem jafnframt er
umboðsaðih stólanna, var næstlægst
með eina milljón. Þriðja fyrirtækið
bauð annars konar stóla á 1,2 millj-
ónir króna. Ekki tókst að fá ítalska
framleiðandann til að afgreiða GKS
Bíró og var því ákveðið að kaupa
stólana frá Danmörku.
„Þetta lenti í veseni hjá ítalska
framleiðandanum því að þegar til
kastanna kom vildu þeir ekki af-
greiða GKS með stólana og við vild-
um ekki sætta okkur við verðmun
upp á 300 þúsund krónur á lægsta
og næstlægsta tilboöi. Við höfðum
fengið tilboð í aðra stóla upp á 1,2
milljónir og var verömunurinn þá
500 þúsund sem við töldum ekki á-
sættanlegt. Að sjálfsögðu reyndum
við til þrautar að ná samkomulagi
við íslensku fyrirtækin," segir Júhus
Sæberg Ólafsson, forstjóri Ríkis-
kaupa.
„Mér flnnst furðulegt að Ríkiskaup
skuh kaupa þessa stóla frá Dan-
mörku. Þegar ég fékk tilkynningu
um að hætt hefði verið við að kaupa
stólana kom flatt upp á okkur að til-
boð heíði komið frá öðrum aðila í
nákvæmlega sama stól frá sama
framleiðanda. Við erum umboðsaðih
fyrir þetta ítalska fyrirtæki og þess
vegna hringdi ég í framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins og spurði hann
um þetta,“ segir Gunnar Guðsveins-
son, framkvæmdastjóri HG Vending-
ar.
„Ég vil ekki gagnrýna þessa af-
greiðslu Ríkiskaupa því að þetta er
ekki dæmigert fyrir þeirra vinnu.
Við erum ahs ekki hlynntir því að
stólar séu keyptir gegnum erlend
fyrirtæki en þetta var eitt einstakt
og sérstakt mál sem var leyst á þenn-
an hátt,“ segir Rafn Rafnsson, fram-
kvæmdastjóri GKS hf.
Ekki er hægt að framleiða stóla úr
forspenntum viði hér á landi.
Fréttir
Guðfiimux Fmnbogason, DV, Hólmavflc
Tveir framboðslistar komu
fram í hinum nýja Súðavíkur-
hreppi sem eru sameinuð sveitar-
félög Reykjafjarðar-, Ögur- og
Súðavíkurhrepps og nær frá
botni ísafjarðar að Súðavikur-
hlið. Kosiö verður 12. nóvember.
Á F-lista umbótasinna eru 1.
Valsteinn Heiðar Guðbrandsson.
2. Sigm'jón Samúelsson. 3. Kristj-
án Garðarsson. 4. Jón Ragnars-
son og 5. Jón H. Karisson. Á S-
lista - sameiningarlista - eru 1.
Sigríður H. Elíasdóttir. 2. Sig-
mundur Sigmundsson. 3. Frið-
gerður Baldvinsdóttir 4. Salvar
Baldursson. 5. Guömundur Hall-
dórsson.
Vesturland:
Skoðana-
könnun hjá
Framsókn
Framsóknarmenn á Vestur-
landi funduðu um helgina um
framboðsmálin. Liggur ljóst fyrir
að viðhöfð verður skoðanakönn-
un í flokknum vegna næstu al-
þingiskosninga. Dagsetning hef-
ur ekki verið ákveðin en líkiegt
er að könnunin verði fram-
kvæmd um miðjan nóvember.
Vestfiröir:
Margir í
próf kjör hjá
Framsókn
Ákveðið var á kjördæmisþingi
Framsóknarflokksins á Vest-
fjörðum að haldið yrði prófkjör í
byrjun desember.
Pétur Bjarnason varaþingmað-
ur hefur einn lýst því yfir að hann
stefni að framboöi en þrír hafa
lýst áhuga á þátttöku í prófkjöri.
Að sögn Hahdórs Karls Her-
mannssonar, formanns kjördæ-
misráðsins, eru það Gunnlaugur
Sigmundsson framkvæmda-
stjóri, Sigmar B. Hauksson og
Sigurður Kristjánsson, fyTrum
kaupfélagsstjóri á Þingeyri.
Rækjuveið-
in byrjar
glæsilega í
■ ■ m mm m
Hunafloa
Guðfirmur Finhbogason, DV, Hólinavík;
Veiöar á innfjarðarrækju í
j Húnaflóa hófust i síöustu viku. Á
veiðitímabihnu, sem í hönd fer,
verður heimilt að veiða 70%
meira magn en á sfðasta ári eða
1700 tonn á móti 1000 tonnum þá.
Meira rækjumagn kom strax
fram i veiði bátanna nu ög ér
dæmi að bátur liafi fengið um 8
tonn í veíðiferð sem stendur í
hálfan sólarhring eða styttri tima
og er slíkt næsta fátítt.
Verksmiðjumar á Húnaflóa-
svæðinu eíga nú ekki lengur skil-
yrðislausan rétt til jiess afla sem
nú má veiða eins og verið hefur
frá upphafi rækiuveiðanna vegna
nálægðar við veiðisvæðið. Líklegt
þó að þær fái til vinnslu megin-
hluta sem veiða má - aö minnsta
kosti til aö byrja með.