Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1994, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1994, Page 15
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÖBER 1994 15 Félagshyggju Kjallariim Finnur Ingóifsson alþingismaður Framsóknar- flokksins i Reykjavík „Ef marka má afstöðu Björns til sam- starfs og samvinnu okkar íslendinga innan NATO er alveg ljóst af þeim við- horfum að Björn er einn mesti félags- hyggjumaður á íslandi í dag.“ -Björn geta réttlætt samstarfið við kommana," segir Finnur m.a. í greininni. Á undanfómum vikum hefur Bjöm Bjarnason alþingismaður hrópað á aðstoð við að fræðast um félagshyggjuna. Hann hefur óskaö Uðsinnis míns og margra annarra í þeim efnum. Ástæðan fyrir því að hann kallar mig til er sú að í byrjun septemher skrifaði ég kjall- aragrein í DV sem bar yfirskriftina Brú íhalds og komma. Efni þeirrar greinar byggði ég á upplýsingum úr Morgunblaðinu um væntanlegt ríkisstjórnarscimstarf Sjálfstæðis- flokksins og Alþýðubandalagsins. í grein minni hélt ég því fram að þetta samstarf -væri líklegt og margt hefur síðan komið fram sem bendir til þess að svo sé, einkum það sem fram hefur komið í grein- um Bjöms. Það er einkum þrennt sem þar stendur upp úr. Hvað er félagshyggja? í fyrsta lagi; hann afneitar ekki samningum við Ólaf Ragnar Grímsson sl. sumar um myndun ríkisstjórnar Alþýðubandalags og Sjálfstæðisflokks að afloknum kosningum sem Sjálfstæðisflokk- urinn ætlaði að láta fara fram á þessu hausti. Björn telur þó að Morgunblaðsgreinin sé misskiln- ingur þar sem hún er byggð á göml- um hugmyndum hans frá þeim tíma er hann var á Morgunblaðinu. í öðru lagi ver hann formann Alþýðubandalagsins sem algjöran hreinlífismann í samskiptum við sovétkommanna. En kennir öðrum væntanlegum samstarfsmönnum í Alþýðubandalaginu um þjónkun við sovétkommanna. Hreinlífis- vottorð Björrís fyrir Ólaf á að duga sjálfstæðismönnum til að geta rétt- lætt samstarfið við kommana. í þriðja lagi iðar þingmaðurinn í skinninu yfir því að vita hvað fé- lagshyggja sé. Það kemur hins veg- ar á óvart að þeir félagar skuli ekki hafa verið lengra komnir en svo í brúarsmíði íhalds og komma að formaður Alþýðubandalagsins hafi ekki fengið tækifæri til að skýra hugtakið félagshyggja fyrir Birni. Það þarf ekki að fara í langar né flóknar útskýringar á því hvað sé félagshyggja því hún er ekki annað en jákvæð viðhorf til samvinnu við aðra. í sjálfu sér hefði Björn getað farið í orðabók Menningarsjóðs og fengið þessa sömu skýringu. Mesti félagshyggjumaður á íslandi I dag Nú ætla ég ekki að leggja mat á hversu jákvæð viðhorf Björn Bjarnason hefur til samvinnu við aðra. Hins vegar sýnist mér og það marka ég af störfum hans á Al- þingi að Björn sé samvinnumaður og um margt jákvæður. Nokkur dæmi um það gæti ég nefnt en tek hér til tvö. Við framsóknarmenn fluttum til- lögu til þingsályktunar um að taka upp viðræður viö Evrópusamband- ið um að breyta EES-samningnum í tvíhliða viðskiptasamning, þegar hinar EFTA-þjóðirnar væru famar inn í Evrópusambandið. Þessari til- lögu var vísað til utanríkismála- nefndar þar sem Björn er formað- ur. Björn hafði jákvæð viðhorf til samvinnu við aðra um þá samstöðu sem náðist í nefndinni um málið. Með þessu sýndi Björn hversu mik- ill félagshyggjumaður hann er. Ef marka má afstööu Björns til samstarfs og samvinnu okkar ís- lendinga innan NATO er alveg ljóst af þeim viðhorfum að Björn er einn mesti félagshyggjumaður á íslandi í dag. Ég vona að þessar útskýringar á félagshyggjunni nægi af minni hálfu þó ekki væri nema til þess að Björn sé betur í stakk búinn í brúarsmíðum með Ólafi Ragnari. Finnur Ingólfsson Að kjafta niður um sig Flokkurinn minn er að braggast; kominn með 19% fylgi samkvæmt skoðanakönnun DV. Þegar lesið er í töflu um niðurstöður samsvar- andi kannana undangengin miss- eri verður ljóst að fylgi flokksins er jafnan mest þegar formaður hans er erlendis meðan könnun er gerð og hafði þagað nokkra daga áður en hann hélt úr landi, en minnst þegar honum hefur tekist að troða sér inn í fjölmiðla meðan á könnun stendur; það er engu lík- ara en hann tali fylgi af flokknum, maðurinn. Siðferðisþögn Fyrir þessa síðustu könnun hafði formaðurinn, af skiljanlegum ástæðum, ekki lagt eitt einasta orð í belg siðvæðingarumræðunnar sem átt hefur sér stað að undan- fornu, ekki sagt orð um kjaramál og ekki reynt að bjarga lífi Natós með því að leita því nýrra verk- efna. Hann var erlendis, félags- hyggjumaðurinn, að kynna sér uppbyggingu auðhyggjunar í mið- stjórnar-Kína framsóknarmennsk- unnar og skrípiskommúnismans. Og áður en hann hélt í Kínafór var það á allra vitorði að hann væri að hætta formennsku og þess vegna ómarktækur leiðtogi flokks- ins míns í komandi kosningum, og komnar fram einlægar óskir þess efnis að hann viki úr forystusveit sem allra fyrst. Þjóðin sá fram á tvöfalda gleðitíð á nýju ári; aðra ríkisstjóm og Alþýðubandalag án Ólafs Ragnars, felldi stjórnina í KjaUarinn Úlfar Þormóðsson rithöfundur könnuninni og veitti flokknum minum fylgi sitt fyrir vikið. Ólafur endurborinn Það ku vera fallegt í Kína og það fannst Ólafi líka. Hann var yfir sig hrifinn. Hans innri maður, fram- sóknarmaður frjálshyggjunar, losnaði úr viðjum þar eystra; hon- um varð þegar ljóst hvað hafði vantað upp á fegurð kínverskrar náttúm frá örófi alda og hvers kín- versk þjóð þyrfti frekast við sér til lífs. í viðtali við Morgunblaðið þann 11. október sl. jafnar hann fegurð og framförum þar viö að verið sé að „byggja 50 Manhattan." Skýja- kljúfar þjóta allt upp í fjörutíu hæðir. Þeir sem byggja era „úrval stórfyrirtækja heimsins." Stjórn- völd „skaffa fólkið" til starfa fyrir þessa vini flokksræðisins; aðeins spurt: „Hvers konar eiginleika og menntun viljiö þið?“- „Slíkt stenst auðvitað ekkert ríki í Evrópu eöa Bandaríkjunum," segir hinn end- urborni. Hin ákveðna velvild Það var ekki aðeins sá bældi innri maður Ólafur sem naut góðs af ferðinni. Um árangur hennar segir hann orðrétt: „Við gátum opnað ákveðna velvild gagnvart fram- haldinu"! Nú veit ég ekki hvað þessi setning merkir. Hinn fomkínverski spek- ingur Laó Tse hefði líklega tahð að slíkt tungutak væri orðfæri hins óhæfa og fláráða stjómanda. Það er að sjálfsögðu helber vitleysa eins og best sést af glæstri sigurgöngu Ólafs í hérvistinni. í þrjósku minni er ég að reyna að skilja þessa dulmögnuðu setn- ingu og herma merkingu hennar upp á „framhaldið" hér heima, því orð spekinganna takmarkast ekki við landamæri. Helst hallast ég að þeirri skoðun að Ólafur æth sér að „opna ákveðna velvild gagnvart framhaldinu" með því að beita sér fyrir „hröðun“ landsfundar flokks- ins svo hægt sé að skipta um for- mann fyrir kosningarnar í vor. Loks muni hann sýna af sér um- framvelvild, draga sig út úr þrasi sijórnmála, hætta að kjafta niður um sig fylgi flokksins míns og setj- ast við skriftir og söfnun spekiorða sem hann hefur auðgað tungu feðr- anna með og sáldrað umhverfis sig á giftusamlegri starfsævi. Sannarlega yrði það fogur og „ákveðin velvild gagnvart fram- haldinu." Úlfar Þormóðsson „Fyrir þessa síðustu könnun hafði formaðurinn, af skiljanlegum ástæð- um, ekki lagt eitt einasta orð í belg sið- væðingarumræðunnar sem átt hefur sér stað að undanförnu, ekki sagt orð um kjaramál og ekki reynt að bjarga lífiNatós ... “ Yngvi Harðarson hag- frædingur. Hækkun skammtímavaxta Aukinlánsfjár- eftirspurn „Ég tel fimmóstæður hækkunar skammtíma- vaxta á verð- bréfamark- aði: 1. Aukin innlend eftir- spurn og væntanleg lánsfjáreftir- spurn á skammtímamarkaði. Eftirspurn fyrii’tækja eftir lánsfé verður meira áberandi á verðbréfamark- aði. 2. Vaxtamunur miöað viö út- lönd er krónunni i óhag frá sjón- arhóli fjárfesta. Meiru munar eft- ir því sem um er að ræða skemmri binditíma. Viöeigandi samanburður við útlönd er marktækastur ef nafnávöxtun er vegin miðað viö samsetnmgu gengisvísitölu krónunnar, þ.e. 76% ECU, 18% dohar og 6% jen. Erlend gengisáliætta er lágmörk- uð þegar fjárfest er i þessum hlut- fóllmn. 3. Um áramótin verða skamm- tímahreyfingar fiármagns til og frá landinu frjálsar eftir árattiga haftaskeiö. Opnunin út á við gæti reynt á gengi krónmmar. Það hefur sigið innan fráviksmarka Seðlabankans að undanfórnu og er nú 0,75% ofan við neðri frá- viksmörk. Við slíkar aðstæöur er ekki óeðlilegt að áhættuþóknun sé tekin inn í innlendu vextina. 4. Bent hefur verið á að gjald- eyrisþóknun lnndri fiármagns- hreyfmgar. Á móti þarf að taka viðskiptakostnað á innlendum veröbréfamarkaði meö í reikn- inginn. Hann getur verið allt að 0,25%. 5. Óhóflegrar bjartsýni hefur yfirleitt gætt um opinbera láns- fiáreftirspurn. Svo kann einnig að vera nú.“ Ekki lægri hér „Útláns- vextir banka- kerfisins eru : nú mjög háir og hafa ekki lækkaðneittí líkingu viðþá lækkun sem orðið hefur á | ríkisvixlum. ÞóríurMagnússon, p^ssir vextlr hamkvstj. Ijármálaavíðs eru jafnvel E,msklp,!' það háir í dag að hætta er á því að útlánastarfsemi bankanna færist í örrnur útlánaform utan bankakerfisins ef ekkert er að gert. Því er líklegt aö raunvextir víxil- og yfirdráttarlána fari lækkandi, enþeirerunúuml2%, Ekki veröur fallist á þá fullyrð- ingu aö raunvextir ríkisvixla séu lægx'i hér en í nágraimalöndun- um. Hér eru raunvextir þriggja mónaða ríkísvíxla nú um 4,5 pró- sent. í Bandaríkjunum og Þýska- landi eru þeir um 2 prósent. Þá er ekki líklegt að heimild til fiárfestinga í skammtimaverð- bréfum, sem leyfð verður frá næstuáramótum, hali mikil áhrif þar sem viðskiptakostnaður með gjaideyi-i er hár hér á landi en það dregur úr viöskiptnm með erlend skammtímaverðbróf. Jafnframt er ramigengi krón- unnar í sögulegu lágmarki. í stuttu máli eru frekar rök gegn hækkun skammtímavaxta htil fiárþörf ríkisins á marltaöi, lítil þensla, lítil fiárfesting, mikiö jöfhuöur.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.