Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1994, Side 3
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994
3
dv Fréttir
Bláa lónið
flutttil um
700 metra
Ægir Már Káiason, DV, Suöumesjum;
„Viö erum komnir með byggingar-
reit fyrir nýtt blátt lón. Þaö svæði
er alveg stórkostlegt í hrauninu. Við
eigum eftir að fá leyfi frá nokkrum
opinberum aðilum og verið er að
vinna að því að fá þau leyfi,“ sagði
Grímur Sæmundsen, læknir og
framkvæmdastjóri Heilsufélagsins
hf. við Bláa lónið, við DV.
Tekin hefur verið ákvörðun um að
flytja ekki Bláa lónið í átt að fjallinu
Þorbirni vegna of mikils kostnaðar
sem það hefði í fór með sér. En það
verður gert nýtt lón tæplega 700
metra frá núverandi lóni í norðvest-
ur frá orkuverinu og er það talinn
miklu ódýrari kostur því lónsvökv-
inn rennur sjálfkrafa í þessa átt frá
Hitaveitunni. Þetta framtíðarsvæði
þykir mjög fallegt í hrauninu.
Hitaveita Suðurnesja fór fram á að
lónið yrði flutt af landsvæði veitunn-
ar. Forráðamenn hennar telja að at-
vinnustarfsemi lónsins trufli báða
aðila. Talið er að kostnaður við nýtt
lón nemi 100 milljónum króna og að
fyrsti áfanginn verði tilbúinn eftir
tæp 3 ár. Mannvirki verða mun
glæsilegri en þau sem nú eru.
Heilsufélagiö var stofnað um mitt
ár 1992 og síðan hafa stjórnendur
unnið að því að finna lóninu framtíð-
arstað. Þeim hefur tekist að fjölga
gestum árlega stórlega.
Bláa lónið:
Aðsóknarmet-
ið stórbætt í ár
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
Aðsóknarmetið að Bláa lóninu
verður stórbætt í ár. Hefur reyndar
þegar verið bætt þó eftir sé að telja
desember meö. Um síðustu mánaöa-
mót voru 109 þúsund gestir búnir að
sækja lónið heim. Mest áður 108 þús-
und í fyrra.
Mikil breyting hefur verið gerð á
aðstöðunni sem er nú að skila sér.
Nú er verið að smíða 100 m2 skrif-
stofuhúsnæði, færanlegt, sem verður
komið fyrir við lónið í mars. Félagið
hefur haft leiguhúsnæði í verslun-
armiðstööinni í Grindavík sem skrif-
stofu, mjög dýrt að sögn Kristins
Benediktssonar, aðstoðarfram-
kvæmdastjóra Heilsufélagsins.
Hafnarflöröur:
10% hækkun
leikskólagjalda?
Búist er við að bæjarstjóm Hafnar-
ijarðar leggi fram tillögu um að ein-
falda vemlega og hækka gjaldskrá á
leikskólum í Hafnarfirði um leið og
fjárhagsáætlun bæjarsjóös verður
lögð fram á næstunni. Reiknað er
með að hækkunin geti numið allt að
tíu prósentum aö meðaltali.
Verið er aö kanna hvernig einfalda
megi gjaldskrá leikskóla og hækka
gjöldin til samræmis við önnur leik-
skólagjöld á höfuðborgarsvæðinu,
meðal annars er rætt að miða við
klukkustundataxta. Leikskólagjöld
eru mjög mismunandi í sveitarfélög-
unum á höfuðborgarsvæðinu. Tahð
er að gjaldskráin sé hæst í Kópavogi
eða um 20 prósentum hærri en gjald-
skráin í Hafnarfirði nú.
„Ég tel aö leikskólagjöld og fleiri
slík gjöld eigi að vera í sem mestri
samræmingu á höfuðborgarsvæð-
inu. Ég held að mesti munurinn nemi
20 prósentum og það er allt of mikið
stökk en það er ljóst að ýmsir gjald-
stofnar í Hafnarfirði þurfa leiðrétt-
ingu,“ segir Magnús Jón Árnason,
bæjárstjóri í Hafnarfiröi.
Búist er við að bæjarstjómarmeiri-
hlutinn í Hafnarfirði leggi fram íjár-
hagsáætlun á næstu dögum en stefht
er að því að afgreiða fjárhagsáætlun
fyrir áramót.
RAÐGREIÐSLUR
TELEFUNKEN
ÞÝSK HÁGÆÐASJÓNVARPSTÆKI
MEÐ SURROUND STEREO
Telefunken F-531 C STEREO NIC
er 28" sjónvarpstæki:
Black Matrix-flatur glampalaus
skjár • Surround-umhverfishljóm-
ur • PSI (Picture Signal Improve-
ment) • ICE (Intelligent Contrast
Electronic) • Pal, Secam og NTSC-
video • 59 stöðva minni • Sjálfvirk
stöðvaleit og -innsetning • Mögu-
leiki á 16:9 móttöku • íslenskt
textavarp • Tímarofi • 40W
magnari • A2-Stereo Nicam • 4
hátalarar • Tengi fyrir heyrnartól
og sjónvarpsmyndavél • Aðskilinn
styrkstillir fyrir heyrnartól • 2 Scart-
tengi o.m.
Verð 99.800,- kr. eða
89.900,-1
* Upphæðin er með vöxtum, lántökukostnaði og færslugjaldi.
Surround-hljómmögnun :
Þetta er sérstök hljóöblöndun, sem
eykur hljóminn og gefur möauleika á
hfjóöáhrifum líkt og í kvikmyndahúsum.
Mono útsending faer blae af stereo-
útsendingu og steneo-útsending gefur
aukin áhrif, jbannig aö áhorfandinn
faerist eins og inn í kvikmyndina.
Aöeins þarf aö stinga bakhátölurum í sam-
band viö sjónvarpiö til aö heyra muninn !
OG JAPANSKT MYNDBANDSTÆKI
MEÐ LONG PLAY, FRA FUNAI
FUNAI VCR-9004 er vandað japanskt myndbandstæki meb Long Play
• Tvær hraðastillingar: Long Play oq Standard Play • Sjáltvirk endurspólun frá enda
• Sjálfvirk skerpustiTling • 24 tíma kíukka • Hraðspólun meb mynd á tveimur hröbum
• 40 stöbva minni • Scart-tengi • 7 liba upptökuminni 1 árfram í tímann • Skyndiupptaka
• Þráblaus fjarstýring og margt fleira Verb abeins 35.900,- kr. eba
KUNAI
FROM JAPAN
MUNALÁN
TIL ALLT
AÐ 30
MÁNAÐA
SKIPHOLT119
SÍMI 29800
TIL ALLT AÐ 24 MÁIMAÐA