Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1994, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994
Það eru engar ýkjur að segja, að margt hafi drifið á daga dr. Karls Kortssonar.
Hann komst til þroska í Þýskalandi Hitlers, lauk þar námi í dýralœkningum og var
liðsforingi í dýralœkningasveitum þýska hersins 1940-45 á vígstöðvum víðsvegar í
Evrópu. Þar beið dauðinn við hvert fótmál, en þó gáfust tækifœri til að eiga
samskipti við hið veika kyn. Sagan af ástum dr. Karls og hinnar rússnesku Nínu er
ógleymanleg. Sjálfur segir dr. Karl: „Ég er vinur kvenna og dýra, því að þessar
lífverur þurfa mikla umhyggju og hlýju."
Árið 1950 fluttist dr. Karl til íslands ásamt
fjölskyldu sinni og var héraðsdýralœknir á Hellu í
35 ár við góðan orðstír.
„Æílar þú að drepa
mig, lögguhundur“
Nafn Óla Kr. Sigurðssonar komst á hvers manns varir árið 1986
þegar hann keypti öllum að óvörum Olíuverslun íslands. Hann varð
strax þekktur sem Óli í Olís og mjög umtalaður í íslensku samfélagi.
Þetta er sagan um prentarann og Þróttarann af Hagamelnum sem
gerði kaup aldarinnar og háði hatramma baráttu fyrir tilveru
fýrirtœkis síns og hafði sigur en féll sjálfur í valinn langt fyrir aldur
fram. Litríkur og œvintýralegur œviferill ofurhuga, allt frá bernsku til
dauðadags, byggður á viðtölum við fjölda ættingja, vina og
samstarfsmanna.
Margar sögur spunnust um þennan mikla athafnamann í
lifanda lífi. Hvað var satt og hvað var skáldskapur?
í nóvember árið 1991 lagði hópur félaga í Heimsklúbbi Ingólfs upp í ferð til
Suður-Afríku. Á ferðalaginu hreifst einn ferðafélagana, Margrét Margeirsdóttir, svo
af landi og þjóð að hún ákvað að veita fleirum hlutdeild í þessari ævintýraferð.
í þessari bók er að finna ferðasögu Margrétar að viðbættum sögulegum fróðleik
um þetta stórbrotna land sem við íslendingar höfum hingað til fengið allt of
einhliða mynd af í gegnum fjölmiðla. Aðrar myndir hafa fallið í skuggann, svo sem
hin mikla náttúrufegurð landsins, gróður og dýralíf sem vart á sér hliðstæðu
annars staðar á jörðinni. Þessi bók, með texta sínum og hundruðum litmynda, á
eftir að opna nýja sýn til Suður-Afríku.
| Skjaldborg^pp)
ARMULA 23
SÍMI 91-882400 «FAX 888994
AFGREIÐSLA Á AKUREYRI:
FURUVELLIR 13 - SÍMI 96-24024
Kristján Pétursson var einn þekktasti löggæslumaður landsins um árabil. Hér
segir hann m.a. frá nokkrum sakamálum, sem ekki hefur verið fjallað um
opinberlega áður. Kristján greinir einnig frá ýmsum spaugilegum og
eftirminnilegum atvikum, sem gerðust á Keflavíkurflugvelli, þegar hann starfaði
þar sem lögreglumaður og deildarstjóri í tollgæslunni. Síðast, en ekki síst, fjallar
Kristján um það, sem miður fór í dómskerfinu. Hann og samstarfsmenn hans
þóttu of duglegir við að upplýsa sakamál og vegna þess urðu þeir fyrir aðkasti af
hálfu dómsyfirvalda og ýmissa fjölmiðla.
Efíi yip.v'úlhun Uíííaya til llaihi
CJ