Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1995, Qupperneq 26
26
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1995
Afmæli
Guðmundur Guðjónsson
Guðmundur Guðjónsson rekstrar-
stjóri, VaUartröð 7, Kópavogi, verð-
ur sjötíu og íimm ára í dag.
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Rimhúsum
undir Eyjafjöllum en flutti með fjöl-
skyldu sinni til Vestmannaeyja.
Hann fór síðan tíu ára að Ytri-
Skógum undir Eyjafjöllum til Guð-
mundar Kjartanssonar og Margrét-
ar Bárðardóttur þar sem hann ólst
uppeftirþað.
Guðmyndur stundaði landbúnað-
arstörf, fiskverkun og bókband og
starfaði við Bókfellsútgáfuna og
Heildverslun Magnúsar Kjaran í
aldarfjórðung. Hann vann sem vall-
arvörður á Melavellinum í mörg ár,
var kirkjuvörður og meðhjálpari við
Kópavogskirkju, forstöðumaður
Vinnuskóla Kópavogs um tíma og í
nokkur ár umsjónarmaður í
Menntaskólanum í Kópavogi. Þá
var hann rekstrarstjóri hjá Kirkju-
görðum Reykjavíkur síðustu starfs-
árin.
Guðmundur var formaður
íþróttafélagsins Eyfelhngs. Hann
var einn af stofnendum og sat í
stjóm Verkalýðsfélags Austur-
Eyfellinga, einn af stofnendum og
sat í stjórn Slysavamadeildar Kópa-
vogs og var formaður sóknarnefnd-
ar Digranesprestakalls um skeið.
Guðmundur situr í stjórn Kirkju-
garða Reykjavíkur og var um árabil
í framkvæmdastjórn þeirra. Hann á
sæti í skipulagsnefnd kirkjugarða.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist þann 19.5.
1945 Ásu Gissurardóttur, f. 5.10.
1920, húsmóður. Foreldrar hennar
vom Gissur Jónsson, hreppstjóri í
Drangshlíð undir Austur-Eyjafjöll-
um, og Guðfinna ísleifsdóttir ljós-
móðir.
Böm Guðmundar og Ásu eru
Hrafnhildur, f. 18.1.1947, skrifstofu-
maöur, búsett í Reykjavík, gift Ólafi
Lárussyni íþróttakennara og eiga
þau tvö börn; Kolbrún, f. 12.9.1948,
skrifstofumaður í Reykjavík, gift
Jóhanni Þorsteinssyni deildarstjóra
og eiga þau þrjú börn; Gissur, f. 30.4.
1950, rannsóknarlögreglumaður í
Hafnarfirði, kvæntur Svanhildi Pét-
ursdóttur bankastarfsmanni og eiga
þau tvö börn; Jón, f. 2.7.1953, b. í
Drangshlíð undir Austur-Eyjafjöll-
um, kvæntur Oddnýju Björgu
Hólmbergsdóttur og eiga þau þrjú
börn.
Systkin Guðmundar voru niu en
nú eru sex á lífi. Systkin Guðmund-
ar: Jón Óskar, f. 26.6.1917, d. 25.4.
1940; Þórhallur, f. 8.2.1921, d., 4.5.
1921; Jóhanna, f. 5.6.1923, sjúkra-
hði; Guðbjörn, f. 14.4.1924, vélvirki;
Þorleifur, f. 23.6.1926, d. 24.11.1974,
skipstjóri; Magnús, f. 24.1.1929, bif-
reiðarstjóri; Þórhallur Ármann, f.
27.10.1931, verkstjóri; Lhja, f. 10.4.
1933, d. 3.1.1941; Haukur, f. 13.3.
1938, bifreiðarstjóri.
Foreldrar Guðmundar voru Guö-
jón Jónsson, f. 10.2.1892, d. 14.5.1967,
formaður á Reykjum í Vestmanna-
eyjum, og Bergþóra Jónsdóttir, f.
10.10.1894, d. 20.12.1989, húsmóöir.
Ætt
Guðjón var sonur Jóns, b. í Rana-
koti, Filippussonar, b. á Gaddstöð-
um á Rangárvöllum, Jónssonar, b.
á Gaddstöðum, Sveinssonar. Móðir
Filippusar var Guðrún Jónsdóttir.
Móðir Jóns í Ranakoti var Þórey
Ámadóttir, b. í Hrífunesi í Skaftár-
tungu, Ámasonar.
Móðir Guðjóns var Guðbjörg Sig-
urðardóttir, b. í Brattholtshjáleigu,
Snæbjörnssonar, b. á Ásgautsstöð-
um, Sigurðssonar. Móðir Guðbjarg-
ar var Guðrún Jónsdóttir, b. á
Syðri-Sýrlæk, Gottsveinssonar og
Guðrúnar Jónsdóttur frá Syðri-Gröf
íFlóa.
Bergþóra var dóttir Jóns, b. í
Steinum undir Eyjafjöllum, Einars-
sonar, b. í Steinum, Jónssonar.
Móðir Jóns í Steinum var Þórunn
Sveinsdóttir, b. í Skógum, ísleifs-
Guðmundur Guðjónsson.
sonar og Sigríðar Nikulásdóttur frá
Hafnarfirði.
Móðir Bergþóru var Jóhanna
Magnúsdóttir, b. í Tungukoti í
Fljótshhð, Þorvaldssonar. Móðir
Magnúsar var Margrét Jónsdóttir,
vinnukona á Leirubakka á Landi.
Móðir Jóhönnu var Steinunn Gísla-
dóttir, b. í Miðkoti, Sveinssonar.
Guðmundur er að heiman á af-
mælisdaginn.
Til hamingju með afmælið 8. febrúar
gg 31*3 Bólstaöarhlíð 4, Reykjavik.
Elis Sveinbjörnsson, Fjarðarbraut 48, Stöðvarhreppi. 50ára
qa Maríubakká 28, Reykjavík. OU a»a ElínSieurðardóttir.
Margrét Helgadóttir, Fellsenda, Þingvahahreppi. Ingibjörg Hahgrúnsdóttir, Hólavegi26, Sauðárkróki. Sigrún Guðmundsdóttir, Fossheiði 46, Selfossi. FriðaSt. Eyfiörð, Víðihhð 14, Reykjavik. Sölvanesi, Lýtingsstaðahreppi. Soffia Einarsdóttir, Lýsubergi 7, Þorlákshöfn. Guðrún D. Karlsdóttir, Heiövangil4,Hehu. Bjami E. Thoroddsen, Fifuseh 36, Reykjavík. Hallbjörg Björnsdóttir, Víðimýri 13, Neskaupstað.
75 ára
40 ára
Vilhjálmur Emilsson, Laufási 7, Egilsstöðum. GuðniH. Bjamhéðinsson, Stekkuml7, Vesturbyggð. Jónatan Garðarsson,
70 ára Kvíholti 3, Hafnarfirði. Leifur Ársæll Leifsson,
Guðríður Petersen, Staðarhvammi 1, Hafnarfiröi. Sraáragötu 5, Vestmannaeyjum. Elisabet Guðfinna Eiríksdóttir, Heimagötu 30, Vestmannaeýjum.
Björn Gislason, Ránarslóð 4, Homafjaröarbæ. Borghhdur Guðmundsdóttir, Lynghaga 26, Reykjavík. Viktor Smári Sæmundsson, Bakkagerði 6, Reykjavík. Jónína Aðalhjörg Baldvinsdóttir, Hólabraut9, Hornaíjarðarbæ. Aðalheiður Björg Birgisdóttir, Reyrhaga 9, Selfossl Hrafnhiidur S. Þórarinsdóttir, Sólvöhum 5, Egilsstöðum.
60 ára
Benedlkt Guttormsson, Hlíöargötu 8, Neskaupstað. Svend Aage Malmberg, Móaflöt 33, Garðabæ. Anna María Paulsen, Lækjartúni 11, Mosfehsbæ. Benedikt Harðarson, Karlagötu 21, Reykjavík. Indriði Sigurðsson, Austurvegi 48, Grindavik.
Á NÆSTA SÖLUSTAÐ
EÐA i ÁSKRIFT í SÍMA 563 2700
Ásgeir Jón Guðmundsson
Ásgeir Jón Guðmundsson, hús-
gagnasmiður og framkvæmdastjóri,
Hrauntungu 18, Kópavogi, verður
sextugur á morgun.
Starfsferill
Ásgeir fæddist í Hafnarfirði og ólst
þar upp. Hann útskrifaðist sem hús-
gagnasmiður 1955, stofnaði fyrir-
tækið Á. Guðmundsson hf. 1956 og
hefur starfrækt það síðan.
Ásgeir Jón hefur setið í stjóm
Meistarafélags húsgagnasmiöa og
stjóm Útflutningssamtaka hús-
gagnaframleiðenda. Þá hefur hann
gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
hestamannafélagið Gust.
Fjölskylda
Ásgeir Jón kvæntist 21.5.1955
Maríu Sigmundsdóttur, f. 3.12.1933,
skrifstofumanni. Hún er dóttir Sig-
mundar Sæmundssonar bifreiða-
stjóra sem lést 1936, og Þóra Ólafs-
dóttur húsmóður.
Börn Ásgeirs Jóns og Maríu eru
Sigmundur, f. 25.1.1956, húsgagna-
smiður á Álftanesi, en kona hans
er Kristín Ottesen skrifstofumaður
og eiga þau fjögur böm; Guðmund-
ur, f. 2.6.1958, húsgagnasmiður í
Kópavogi, en kona hans er Helga
Ólafsdóttir skrifstofumaður og eiga
þau tvö böm; Þóra, f. 26.4.1963, þjóð-
félagsfræðingur í Kópavogi, en mað-
ur hennar Þorvaldur Gíslason húsa-
smiður og eiga þau tvær dætur;
Ásgeir, f. 14.4.1972, tónlistarmaður
í Kópavogi.
Systkini Ásgeirs Jóns eru Hahdór
Guðmundsson, f. 13.10.1930, húsa-
smiður í Hafnarfiröi; Jónína Guð-
mundsdóttir, f. 19.4.1932, sjúkra-
þjálfari í Reykjavík; Sigríður Guð-
mundsdóttir, f. 17.2.1937, húsmóðir
í Hafnarfirði.
Foreldrar Ásgeirs Jóns voru Guð-
mundur Kristján Guðmundsson, f.
Ásgeir Jón Guðmundsson.
2.11.1898, d. 24.6.1971, bifreiðastjóri
í Hafnarfirði, og Matthildur Sigurð-
ardóttir, f. 30.7.1901, d. 18.1.1987,
húsmóðir.
Ásgeir Jón er í útlöndum um þess-
armundir.
Sviðsljós
ÞYRILL
Málfriður Þorkelsdóttir, forstöðumaður sambýlis fyrir fatlaða, tók við gjöf Kiwanismanna
DV-mynd Garðar Guðjónsson, Akranesi
Góð málefni styrkt
Kiwanisklúbburinn Þyrih á
Akranesi fagnaði 25 ára afmæh um
mánaðamótin og færði í því thefni
ýmsum aöilum gjafir sem forset-
inn, Ármann Ármannsson, afhenti.
Sambýh fjölfatlaðra á Vestur-
landi fékk 700 þús. kr. og á gjöfin
að vera til að fjármagna lyftu í bh
sambýlisins. Sumarbúðir fatlaðra
að Holti í Borgarfirði fengu 100
þúsund. Björgunarsveitin Hjálpin
GPS-staðsetningartæki að verð-
mæti 160 þúsund og sömu sögu er
að segja um Hjálparsveit skáta.
Dvalarheimilið Höfði fékk hljóð-
bylgjutæki að verðmæti 190 þús-
und. Þá gáfu Kiwanismenn Þjóti,
íþróttafélagi fatlaðra, 120 þús.
krónur th kaupa á búningum.