Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1995, Blaðsíða 32
FRÉTTASKOTIÐ
562*2525
'Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast
7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIDSLA OG
ÁSKRIFT ER OPIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 563 2777
KL. 6-8 LAUGAROAGS- OG MÁNUOAGSMORGNA
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1995.
Láslasaðurútií
klukkustund eftir
fimm metrafall
Bílstjóri vikurflutningabíls var
fluttur alvarlega slasaður á Borgar-
'•* spítala eftir að hann féll af palli bíls-
ins í vikurnámum í Þorlákshöfn í
gærkvöld. Aö sögn Jóns Baldursson-
ar, læknis á Borgarspítalanum, hefur
maðurinn verið lagður inn. Hann er
talinn alvarlega slasaöur en þó ekki
í lífshættu.
Maöurinn stóö ofan á vikurfarmin-
um á palli bílsins og féll um fimm
metra. Hann lá í klukkutíma við hlið-
ina á bílnum áður en komiö var aö
honum en mjög kalt var í gærkvöld.
Aö sögn Jóns mun maðurinn hafa
verið mjög kaldur þegar hann fannst
en þó ekki ofkældur. -pp
Fengu loðnu í nótt:
" „Þettaerað
bresta á“
„Þetta er að bresta á. Hún er farin
að haga sér öðruvísi loðnan og það
er góðs viti,“ segir Sigurður Sigurðs-
son, skipstjóri á loðnuskipinu Erni
KE, í morgun.
Sigurður var þá á leið til Seyðis-
fjarðar með 730 tonn og var búinn
að fylla bátinn í annað sinn á tæpum
tveimur sólarhringum. Fleiri loðnu-
skip voru aö fá afla í nótt og voru
skipin að kasta í morgun.
Guðlaugur Jónsson á Keflvíkingi
var að kasta þegar DV ræddi við
hann. Hann sagðist vera kominn með
250 tonn og það væru nokkur skip
að fá loðnu. „Þetta er á öðrum stað
en verið hefur og hún er að grynna
á sér. Hún er komin inn fyrir Hval-
bakinn þannig að þetta hlýtur að
vera að koma,“ sagði Þorsteinn. -rt
Verkamannasambandiö:
Félöginaflisér
verkfallsheimilda
„Þetta var ágætur fundur og menn
eru að þjappa sér saman. Það var
skorað á þau félög innan Verka-
mannasambandsins, sem ekki eru
búin að afla sér verkfallsheimilda,
að gera það nú þegar,“ sagði Björn
Grétar Sveinsson, formaður Verka-
mannasambandsins, eftir formanna-
fund sambandsins í gær.
Hann sagöi að menn væru að missa
þolinmæðina og ef ekkert gerðist á
allra næstu dögum þá mætti búast
við aðgerðum. í dag er boðaður
samningafundur hjá vinnuveitend-
um og samningamönnum Verka-
mannasambandsins,
„Við erum búnir að vera í samning-
um við Vinnuveitendasambandið í
meira en mánuð. Þess vegna erum
—-.við að missa þolinmæðina," sagði
Björn Grétar.
LOKI
Já, þeir eru þéttir á velli og
þéttir í lund, verkalýðs-
foringjarnir!
íslensk hjón á sjötugsaldri slösuðust í átökuni við ræningja á Kanaríeyjum:
Drógustmeð
bíl ræningjanna
1 1 / "I X • I / "I • I / ••*! 1 "I W • • /T» • 1 i V •
„Það var gerð tilraun til að stela sem það á. Þetta eru sannir Islend- um og mönnunum sem voru gripn- „Sem betur fer veit ég ekki dæmi
tösku konunnar sem var á gangi ingar,“ sagði Ingvar Herbertsson, ir af lögreglu skömmu síðar. í Ijós þess að ráðist hafi verið á íslend-
ásamt eiginmanni sinum. Tveir fararstjóri Úrvals-Útsýnar á Kan- kom að þeir höfðu veríð í þjófnað- inga með vopnum eða þess háttar.
menn i bíl óku framhjá henni og aríeyjum, við DV en í fyrradag arhugleiðingum á tveimur stöðum Hér er mikið um smáþjófnaði. Þaö
hrifsuöu í töskuna. Taskan var fóst urðu íslensk hjón á sjötugsaldri illa sama morguninn. Grunur lék á að er verið að hrifsa veski og töskur
yfir öxlina á konunni þannig aö fyrir barðinu á spænskum þjófum þeir hefðu verið á stolnum bíl. af konum sem eru með þær dingl-
hún datt í götuna. Hún gat náttúr- á Ensku ströndinni. Að sögn Ingvars hefur talsvert andi utan á sér. Þá koma einhverj-
lega ekki sleppt takinu og maður- Hjónin voru flutt á sjúkrahús. verið um þjófnaði á töskum og ir gaurar í ránshug. Fólk verður
inn þjálpaði henni líka. Bíinum var Konan snerist á ökkla og brákaðist veskjum frá islenskum ferðalöng- að fara gætilega með peninga hérna
ekið áfram þannig aö þau drógust á öxl auk þess að fá skrámur og um á Kanaríeyjum að undanfómu. á Kanaríeyjum. Hér er mikið at-
eftir götunni nokkra metra. Annar andlegt áfall. Maðurinn er talinn Slikt hafi ætíð veriö til staðar í ein- vinnuleysi,yfir20%,ogtalsvertum
þjófanna sleppti takínu þegar hann rifbeinsbrotinn auk smávægilegra hverjum mæli en svo virðist sem eiturlyf, a.m.k. í Las Palmas.
var aö detta út úr bílnum. Ég dáist áverka. aukníng hafi oröið á allra síðustu
að kjarki í fólki að sleppa ekki því Hjónin gátu gefið lýsingu á bíln- vikum.
Sagt var eftir formannafund í Verkamannasambandinu i gær að verkalýðsfélögin væru að þjappa sér saman. Hér
sitja þeir saman, Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, Halldór Björnsson, varaformaður Dagsbrún-
ar, og Baldur Jónsson, formaður verkalýðsfélagsins í Borgarnesi.
Sigrún Magnúsdóttir:
Viltengja upp-
hæðina við laun
„Ég leyni því ekki að mér finnst 54
þúsund krónur ansi há upphæð fyrir
það að ganga inn á Félagsmálastofn-
un. Aðrir þurfa að vinna mikiö til
að fá þessa upphæð í hendurnar. Það
er til bóta að einfalda reglurnar en
ég hefði viljað binda fjárhæðina við
lágmarkslaun í landinu," segir Sig-
rún Magnúsdóttir borgarfulltrúi.
Borgarráð frestaði í gær staðfest-
ingu á samþykkt Félagsmálaráðs um
nýjar og hærri greiðslur til skjól-
stæðinga Félagsmálastofnunar.
Kastaðistá
staurogvalt
Samtals urðu sjö árekstrar í um-
dæmi lögreglunnar í Keflavík í gær.
Alvarlegasta óhappið varð á mótum
Garðsvegar og Reykjanesbrautar á
Miðnesheiði um klukkan 20.30. Þar
skullu jeppi og fólksbíll saman með
þeim afleiðingum að fólksbíllinn
kastaðist á ljósastaur og valt.
Ökumaður og farþegi í bílnum voru
fluttir í sjúkrahús Suðunesja en
reyndust minna slasaðir en ætla
máttiífyrstu. -pp
Veðriö á morgun:
Áf ram kalt
veður
Á morgun verður hæg austlæg
eða breytileg átt en síðdegis má
búast við strekkingi með suður-
ströndinni. Þurrt verður um land
allt og allvíða léttskýjað. Áfram
verður kalt í veðri, einkum í inn-
sveitum.
Veðrið í dag er á bls. 28
K I N G
LPTW
...alltaf á miðvikudögum