Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1995, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1995, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1995 27 r>v Fjölmiðlar Mogginn fór á kamarinn Morgunblaðiö og DV röktu ítar- lega í gær uppljóstranir um ís- lenska „njósnarann" Guðmund Ágústsson og aðra íslendinga í Þýskalandi í byrjun sjöunda ára- tugarins, sem komu fram í sjón- varpsþætti á sunnudagskvöldið, meðan Alþýðublaðið var enn í sigummu eftir ESB-samþykkt- ina á aukaílokksþinginu um helg- ina og Tíminn var íjarri góðu gamni. Efni sjónvarpsþáttarins i nafni sósíalismans var vissulega for- vitniiegt og greinilega full ástæða fyrir unga sagnfræðinga til að grafa betur í skjalasafni Þýska alþýðulýðveldisins og leita svara, meðal annars við því hver tengsl Íslendínga og Austur-Þjóðveija voru á þessum árum og upplýsa þátt Hjörleifs Guttormssonar og Svavars Gestssonar í málinu. DV birti langt og ítarlegt viðtal við Guðmund Águstsson þar sem hann rakti sögu sína og greindi frá því að hann væri róttækur vinstrimaður og alinn upp við það að hægriblöðin færu beínt á kamarinn. Morgtmblaðið sagðist hafa gert árangurslausar tilraun- ir til aö ná tali af Guðmundi og varla var tilviljun að það tókst ekki. Moggínn var í hátíðarskapi i leiðara í gær. Loksins kom í ljós að Morgunblaðið hafði rétt fyrir sér varðandi tengsl sósíalista á íslandi og kommúnista i Austur- Evrópu. Loksins neyddust ís- lenskir sósialistar til að viður- kenna að hafa átt náin tengsl við stjórnvöld í austurblokkinni. Moggaritstjórar hafa nú fengið uppreisn æru eftir linnulausar ásakanir um aö þeir færu með staðlausa stafi. Já, Mogginn hafði alltaf rétt fyrir sér. Guðrún Helga Sigurðardóttir Andlát Henrý Kr. Matthíasson símsmiður, Efstasundi 71, lést á heimili sínu 6. febrúar. Hólmfríður Jónsdóttir lést á heimili sínu sunnudaginn 5. febrúar. Guðrún Kristjana Guðmundsdóttir kennari, Ásvallagötu 17, Reykjavík, lést á heimih sínu 6. febrúar síðast- liðinn. Jaröarfarir Svavar Hjalti Guðmundsson vél- stjóri, Hrafnistu í Hafnaríirði, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 9. febrúar kl. 13.30. Ólafur S. Sigurgeirsson, Hæðargarði 4, verður jarðsunginn frá Bústaöa- kirkju á morgun, fimmtudaginn 9. febrúar, kl. 13.30. Útfór Sigríðar Zoega, Bankastræti 14, fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík fóstudaginn 10. febrúar kl. 13.30. ■tr- 5 SErs: s = J '•=5,=?: ” 'ssat 5S r.-T'xr? ^ 9 9*17*00 Verö aöeins 39,90 mín. Fótbolti Handbolti Körfubolti Enski boltinn ítalski boltinn Þýski boltinn Önnur úrslit NBA-deildin Lalli og Lína ©1994 by King Features Syndicate, Inc World nghis reserved. Ég er um það bil að skipta úr megrunarkökunni yfir í ostakök una. Slökkvilið-lögregla Reykjavík: Lögreglan sími 11166 og 0112, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Seltjarnarnes: Lögreglan s. 611166, slökkvilið og sjúkrabifreið s.11100. Kópavogur: Lögreglan sími 41200, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Hafnarijörður: Lögreglan sími 51166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 51LOO. Keflavík: Lögreglart s. 15500, slökkviliö s. 12222 og sjúkrabifreið s. 12221. Vestmannaeyjar: Lögreglan s. 11666, slökkvilið 12222, sjúkrahúsiö 11955. Akureyri: Lögreglan s. 23222, 23223 og 23224, slökkviliö og sjúkrabifreið s. 22222. ísafjörður: Slökkviliö s. 3300, brunas. og sjúkrabifreiö 3333, lögreglan 4222. Apótek Nætur- og helgidagaþjónusta apótekanna í Reykjavík 3. febrúar til 9. febrúai-, aö báðum dögum meðtöldum, verður í Borgarapóteki, Álftamýri 1-3, sími 568-1251. Auk þess veröur varsla í Reykjavíkurapóteki, Austurstræti 16, sími 551-1760, kl. 18 til 22 virka daga. Uppl. um læknaþjónustu eru gefnar í síma 18888. Mosfellsapótek: Opið virka daga frá kl. 9-18.30, laugardaga kl. 9-12. Apótek Garðabæjar: Opiö mánudaga- fóstudaga kl. 9-18.30 og laugardaga kl. 11-14. Sími 651321. Apótek Kópavogs: Opið virka daga frá kl. 8.30-19, laugardaga kl. 10-14. Hafnarflörður: Norðurbæjarapótek opið mánud. til fimmtud. kl. 9-18.30, Hafnarfjarðarapótek kl. 9-19. Bæði hafa opið fóstud. kl. 9-19 og laugard. kl. 10-14 og til skiptis helgidaga kl. 10-14. Upplýs- ingar í símsvara 51600 og 53966. Apótek Keflavíkur: Opið frá kl. 9-19 virka daga, aðra daga frá kl. 10-12 f.h. Nesapótek, Seltjarnarnesi: Opið virka daga kl. 9-19 nema laugardaga kl. 10-12. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga kl. 9-12.30 og 14-18. Lokað laugar- daga og sunnudaga. Akureyrarapótek og Stjörnuapótek, Akureyri: Á kvöldin er opið í þvi apó- teki sem sér um vörslun til kl. 19. Á helgidögum er opið kl. 11-12 og 20-21. Á öðrum tímum er lyfjafræðingur á bak- vakt. Upplýsingar í síma 22445. Heilsugæsla Slysavarðstofan: Sími 696600. Sjúkrabifreið: Reykjavík, Kópavogur og Seltjarnarnes, sími 11100, Hafnarfjörður, sími 51100, Keflavík, sími 20500, Yestmannaeyjar, sími 11955, Akureyri, sími 22222. Krabbamein - Upplýsingar fást hjá fé- lagsmálafulltrúa á miðvikudögum og fimmtudögum kl. 11-12 í sima 621414 Læknar Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn- arnes og Kópavog er í Heilsuverndar- stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á iaugardögum og helgidögum allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, símaráðleggingar og tímapantanir í sími 21230. Upplýsingar um lækna og lyfiaþjónustu í símsvara 18888. Borgarspítalinn: Vakt frá kl. 8-17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (s. 696600) en slysa- og sjúkravakt (slysa- deild) sinnir slösuðum og skyndiveik- um allan sólarhringinn (s. 696600). Vísirfyrir50 árum Miðvikud. 8. febrúar Mesta skemmdarverk viðsamgöngur Þjóð- verja í Noregi. Járnbrautarbrú 150 km norður af Þrándheimi sprengd í loft upp. Seltjarnarnes: Heilsugæslustöðin er opin virka daga kl. 8-17 og 20-21, laugar- daga kl. 10-11. Sími 612070. Hafnarfjörður, Garðabær, Álftanes: Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8 næsta morgun og um helgar, sími 51328. Keflavík: Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8 næsta morgun og um helgar. Vakthaf- andi læknir er í síma 20500 (sími Heilsu- gæslustöðvarinnar). Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna í síma 11966. Akureyri: Dagvakt frá kl. 8-17 á Heilsu- gæslustöðinni í síma 22311. Nætur- og helgidagavarsla frá kl. 17-8, sími (far- sími) vakthafandi læknis er 985-23221. Upplýsingar hjá lögreglunni í síma 23222, slökkviliðinu í síma 22222 og Akureyrarapóteki í síma 22445. Heimsóknartími Landakotsspítali: Alla daga frá kl. 15-16 og 18.30-19. Barnadeild kl. 14-18, aðrir en foreldar kl. 16-17 daglega. Gjör- gæsludeild eftir samkomulagi. Borgarspítalinn: Mánud.-fostud. kl. 18.30-19.30. Laugard.-sunnud. kl. 15-18. Heilsuverndarstöðin: Kl. 15-16 og 18.30-19.30. Fæðingardeild Landspítalans: Kl. 15-16 og 19.30-20.00. Sængurkvennadeild: Heimsóknartími frá kl. 15-16, feður kl. 19.30-20.30. Fæðingarheimili Reykjavíkur: kl. 15-16.30 Kleppsspítalinn: Kl. 15-16 og 18.30- 19.30. Flókadeild: Kl. 15.30-16.30. Grensásdeild: Kl. 16-19.30 virka daga og kl. 14-19.30 laugard. og sunnud. Hvítabandið: Frjáls heimsóknartími. Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15-17 á helgum dögum. Sólvangur, Hafnarfirði: Mánud.-laug- ard. kl. 15-16 og 19.30-20. Sunnudaga og aðra helgidaga kl. 15-16.30. Landspítalinn: Alla virka daga kl. 15-16 og 19-19.30. Barnaspítali Hringsins: Kl. 15-16. Sjúkrahúsið Akureyri: Kl. 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkrahúsið Vestmannaeyjum: Kl. 15-16 og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness: Kl. 15.30-16 og 19-19.30. Hafnarbúðir: Kl. 14-17 og 19-20. Vífilsstaðaspítali: Kl. 15-16 og 19.30-20. Geðdeild Landspítalans -Vífilsstaða- deild: Sunnudaga kl. 15.30-17. TiJkyriningar AA-samtökin. Eigir þú við áfengis- vandamál að stríða, þá er sími samtak- anna 16373, kl. 17-20 daglega. Blóðbankinn. Móttaka blóðgjafa er op- in mán.-miðv. kl. 8-15, fimmtud. 8-19 og föstud. 8-12. Sími 602020. Söfnin Ásmundarsafn við Sigtún. Opið dag- lega kl. 13-16. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74: Op- ið laugard og sunnud. kl. 13.30-16. Árbæjarsafn: Opið í júní, júlí og ágúst. Upplýsingar í síma 84412. Borgarbókasafn Reykjavíkur Aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s. 27155. Borgarbókasafniö í Gerðubergi 3-5, s. 79122. Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270. Sólheimasafn, Sólheimum 27, s. 36814. Ofangreind söfn eru opin sem hér segir: mánud.-fimmtud. kl. 9-21, fóstud. kl. 9- 19, laugard. kl. 13-16. Aðalsafn, lestrarsalur, s. 27029. Opið mánud.-laugard. kl. 13-19. Grandasafn, Grandavegi 47, s.27640. Opið mánud. kl. 11-19, þriðjud.-fóstud. kl. 15-19. Seljasafn, Hólmaseli 4-6, s. 683320. Bókabílar, s. 36270. Viðkomustaðir víðs vegar um borgina. Sögustundir fyrir börn: Aðalsafn, þriðjud. kl. 14-15. Borgar- bókasafnið í Gerðubergi, fimmtud. kl. 14-15. Bústaðasafn, miðvikud. kl. 10- 11. Sólheimar, miðvikud. kl. 11-12. Lokað á laugard. frá 1.5.-31.8. Kjarvalsstaðir: opið daglega kl. 11-18. Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi 7: er opið daglega nema mánud. kl. 12-18. Listasafn Einars Jónssonar. Opið laugard. og sunnud. kl. 13.30-16. Lokað í desember og janúar. Spakmæli Ég er ekki stjórmálamað- urog hegðun mín að öðru leyti ereinnigtil fyrirmyndar. Artemus Ward Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnesi er opið mánud.-fimmtud. kl. 20-22 og um helgar kl. 14-18. Kaffi- stofan opin á sama tíma. Náttúrugripasafnið við Hlemmtorg: Opið sunnud., þriðjud., fimmtud. og laugard. kl. 13.30-16. Norræna húsið við Hringbraut: Sýn- ingarsalir í kjallara: alla daga kl. 14-19. Bókasafn Norræna hússins: mánud. - laugardaga kl. 13-19. Sunnud. kl. 14-17. Sjóminjasafn íslands er opið daglega kl. 13—17 júní-sept. J. Hinriksson, Maritime Museum, Sjó- og vélsmiðjuminjasafn, Súðarvogi 4, S. 814677. Opið ki. 13-17 þriðjud. - laugard. Þjóðminjasafn íslands. Opið þriðjud, fimmtud, laugard. og sunnudaga kl. 12-17. Stofnun Árna Magnússonar: Hand- ritasýning í Árnagarði við Suðurgötu opin virka daga kl. 14-16. Lækningaminjasafnið í Nesstofu á Sel- tjarnarnesi: Opið kl. 12-16 þriðjud., fimmtud., laugard. og sunnudaga. Minjasafnið á Akureyri, Aðalstræti 58, sími 96-24162, fax. 96-12562. Opnunar- tími 1. júní-15. sept. alla daga frá 11 til 17.15. sept. til 1. júní sunnud. frá 14-16. Bilanir Rafmagn: Reykjavík, Kópavogur og Seltjarnarnes, sími 686230. Akureyri, sími 11390. Suðurnes, sími 13536. Hafn- arfjöröur, sími 652936. Vestmannaeyjar, sími 11321. Hitaveitubilanir: Reykjavík og Kópavogur, sími 27311, Seltjarnarnes, sími 615766, Suöurnes, sími 13536. Vatnsveitubilanir: Reykjavík sími 27311. Seltjarnarnes, sími 621180. Kópavogur, sími 985 - 28215. Adamson Akureyri, sími 23206. Keflavík, sími 11552, eftir lokun 11555. Vestmannaeyj- ar, símar 11322. Hafnarfjörður, sími 53445. Símabilanir: í Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarnesi, Akureyri, Keflavík og Vestmannaeyjum tilkynnist í 05. Bilanavakt borgarstofnana, sími 27311: Svarar alla virka daga frá kl. 17 síðdegis til 8 árdegis og á helgidögum er svarað allan sólarhringinn. Tekið er viö tilkynningum um biianir á veitukerfum borgarinnar og í öðrum tilfellum, sem borgarbúar telja sig þurfa að fá aðstoð borgarstofnana. Sljömuspá Spáin gildir fyrir fimmtudaginn 9. febrúar Vatnsberinn (20. jan.-18. febr.): Tilfmningar annarra eru viðkvæmar. Farðu því varlega í dómum þínum. Nýjar hugmyndir verða til þess að leysa gömul vandamál. Fiskarnir (19. febr.-20. mars.): Hlutimir gerast hratt í dag. Ef þú heldur ekki einbeitingunni er hætt við að þú missir af því sem er að gerast. Mikið verður að gerast í félagslífmu. Hrúturinn (21. mars-19. apríl): Áhersla er lögð á aukin tengsl milli manna. Láttu ekki eftir þeirri freistingu að fela tilfmningar þínar. Þá dregur úr möguleikum þínum. Nautið .(20. apríl-20. mai): Aðgerðir þínar og fyrirspumir fyrir nokkru fara nú að skila ár- angri. Töluverð framþróun verður í þínum málum. Gagn veröur að ferðalagi. Tviburarnir (21. maí-21. júni): Þú hefur ákveðnar hugmyndir en ekki er víst að nú sé rétti tíminn til þess að viðra þær. Aðrir eru bundnir yfir sínum málum og sinna lítt því sem þú hefur fram að færa. Krabbinn (22. júní-22. júlí): Dagurinn verður tæpast einn af þínum bestu. Líklegt er að þú missir af tækifæri. Það borgar sig ekki að hika. Happatölur eru 7, 23 og 34. Ljónið (23. júli-22. ágúst): Þú verður að treysta á reynslu þína og innsæi í samskiptum við aðra. Einhverjir reyna að draga úr sjálfstrausti þínu en það er óþarfi fyrir þig að efast. Meyjan (23. ágúst-22. sept.): Dagurinn lofar góðu fyrir þá sem vinna að skapandi verkefnum, einkum listrænum. Nýttu þér ímyndunarafl þitt. Farðu varlega í kvöld því menn era viðkvæmir. Vogin (23. sept.-23. okt.): Þú færð fréttir árla dags sem hafa mikil áhrif á gang mála síðdeg- is. Þú gætir þurft að breyta fyrri áætlun. Skráðu hjá þér það sem þarf að muna. Happatölur em 8, 24 og 30. Sporðdrekinn (24. okt.-21. nóv.): Óvissa og efi er úr sögunni. Aðstæður batna og samskipti milli manna aukast. Auðveldara verður að náigast upplýsingar. Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.): Þú hefur minni tíma aflögu en þú hélst. Þú verður því að byrja á því sem mestu máli skiptir. Ábyrgð verður létt af þér. ■s Steingeitin (22. des.-19. jan.): Þú hugar að þeim verkefnum sem bíða þín í náinni framtíð. Nú er rétti tíminn til þess að auka þekkingu sína og víkka sjóndeildar- hringinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.