Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1995, Blaðsíða 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995.
Afrnæli
Helga Bjömsdóttir húsmóðir,
Brunnavöllum í Suðursveit, er ní-
ræðídag.
Starfsferill
Helga fæddist að Bnmnum og hef-
ur átt þar heima og síðan á Brunna-
völliun aUa ævi. Hún lauk barna-
skólanámi í farskóla sveitarinnar
og prófi frá Ljósmæðraskóla íslands
1929.
Helga stundaði ljósmæðrastörf frá
1929-70 en síðast tók hún á móti
bami 1974. Auk þess sinnti hún oft
sjúklingum í heimahúsum.
Helga var heiðruð af sveitungum
sínum á fimmtugsafmælinu og aftur
er hún varð sjötug. Hún er heilsugóð
og mjög em og sinnir enn heimilis-
störfum af fullum krafti.
Fjölskylda
Helga giftist 14.6.1943 Sigfúsi
Jónssyni, f. 9.1.1904, d. 19.1.1970.
Foreldrar hans vom Jón Sigfússon,
b. að Snjóholti í Eiðaþinghá, og Þor-
gerður Einarsdóttir húsfreyja.
Böm Helgu og Sigfúsar era Bjöm,
f. 2.10.1943, vömbílstjóri á Bmnna-
völlum, í sambýli með Kristbjörgu
Eiríksdóttur en sonur Bjöms og Sig-
ríðar Magnúsdóttur frá Svínafelli
er Ásgeir, búsettur á Höfn; Sigríður
Jóhanna, f. 30.1.1945, deildarstjóri
við tannlæknadeild HÍ; Jón, f. 22.5.
1946, b. á Brunnavöllum, í sambýli
með Lindu Maríu Fredriksen og era
börn þeirra Helga, Sigfús og Emil
en dóttir Lindu er Inga Helga Bald-
ursdóttir.
Systkini Helgu: Björg Björnsdótt-
ir, f. 13.11.1896, d. 18.1.1983; Sigríður
Bjömsdóttir, f. 11.8.1898, d. 25.8.
1946, húsfreyja í Hestgerði; Jóhann
Klemens Björnsson, f. 29.8.1900, b.
á Brunnum; Jóhanna Dagmar
Bjömsdóttir, f. 25.11.1906, sauma-
konaíReykjavík.
Foreldrar Helgu voru Bjöm Klem-
ensson, f. 27.11.1869, d. 19.11.1911,
oddviti að Brunnum, og k.h., Jó-
hanna Jóhannsdóttir, f. 23.11.1863,
d. 14.4.1955, húsfreyja.
Ætt
Föðurbróðir Helgu var Klemens,
faðir Sigtryggs ráðuneytisstjóra.
Bjöm var sonur Klemensar, b. á
Geirbjamarstöðum, Jónssonar, b. á
Gnýstöðum á Vatnsnesi, Ólafsson-
ar, bróður Sigurðar, langafa Jakobs
skipstjóra, föður Jakobs fiskifræð-
ings. Móðir Klemensar var Una
Jónsdóttir, b. á Illugastöðum, Gísla-
sonar. Móðir Unu var Ingveldur frá
Holti í Svíndal, systir Þóra, móður
Helga í Gröf, fóður Þorbjargar, móð-
ur Guðmundar Bjömssonar land-
læknis. Þá var Helgi afi Jósefinu,
móður Sigurðar Nordals og Jóns
Eyþórssonar veðurfræðings. Ing-
veldur var dóttir Sigurðar Jónsson-
ar, af Eiðsstaðaætt.
Móðir Björns var Sigríður Péturs-
dóttir, í Brúnagerði, bróður Guð-
rúnar, langömmu Áma, alþm. frá
Múla, föður Jóns Múla og Jónasar
rithöfundar. Önnur systir Péturs
var Guðrún, amma Kristbjargar,
ömmu Bjarna Benediktssonar for-
sætisráðherra. Móðir Sigríðar var
Halldóra Pálsdóttir frá Brúnagerði,
systir Sigurbjargar, ömmu Jónasar
frá Hriflu.
Jóhanna var dóttir Jóhanns, b. í
Borgarhöfn, bróöur Torfa, fóður
Magnúsar sýslumanns og Richards,
afa Þórs þjóðminjavarðar. Annar
bróðir Jóhanns var Guðni í forsæti,
afiBrynjólfsBjamasonar,heim- '
spekings og ráðherra, og langafi
Ingibjargar, móður Davíðs forsætis-
ráðherra. Jóhann var sonur Magn-
úsar, prests í Eyvindarhólum, bróð-
ur Guðríðar, móður Torfhildar
Hólm skáldkonu. Móðir Jóhanns í
Helga Björnsdóttir.
Borgarhöfn var Guðrún Ingvars-
dóttir frá Skarði í Landsveit, systir
Kristínar, ömmu Kristínar, ömmu
Gunnars Thoroddsens forsætisráð-
herra.
Móðir Jóhönnu var Björg Björns-
dóttir, b. í Borgarhöfn, Jónssonar,
b. þar Björnssonar. Móðir Björns í
Borgarhöfn var Björg Steinsdóttir
afKálfafellsætt, systir Þórðar, lang-
afa meistara Þórbergs.
Helga tekur á móti gestum á heim-
ilisínuídag.
Menniiig_________________________________________
Endurskoðun ís-
lenskrar abstraktlist-
ar á Kjarvalsstöðum
Abstraktlistin kom fyrst fram hér á landi í verkum Finns Jónssonar á
þriðja áratug aldarinnar, en landinn var þá ekki enn reiðubúinn að með-
taka svo hraða þróun í innlendri list, enda var þá varla hægt að tala um
að menntaðir íslenskir listamenn hefðu starfað nema í um áratug. Það
var ekki fyrr en með Svavari
Guðnasyni um miðjan fimmta ára-
tuginn og síðan septembersýning-
unum í lok þess áratugar og í upp-
hafi þess sjötta að hægt er að tala
um að til sé íslensk abstraktlist.
Fagurfræðilegar forsendm- ab-
straktlistarinnar tóku svo algemm
stakkaskiptum með tilkomu hug-
myndalistar og naumhyggju á sjö-
imda áratugnum. Naumhyggjan
gerði þó í reynd ekki strandhögg
hér á landi fyrr en fyrir tæpum
áratug. Segja má aö Kristján Guð-
mundsson hafi öðmm fremur tengt
hugmyndalistina myndmáli naum-
hyggjunnar og er hann elstur fjórt-
án listamanna sem Kjarvalsstaðir
hafa nú boðið að sýna undir merkj-
um abstraktlistar í endurskoðun.
Tvenns konar forsendur
Gunnar B. Kvaran ritar ítarlega um sögu og forsendur alþjóðlegrar sem
innlendrar abstraktlistar í sýningarskrá. Hann kemst aö þeirri niður-
stöðu að með nokkurri einfoldun megi skipta sýnendum í tvennt; annars
vegar þá sem „vinna upprunalega út frá formrænum forsendum og tak-
ast á við efni, Út og formgerð", og hins vegar þá sem „ganga út frá skýr-
um, hugmyndafræðilegum eða táknfræðilegum forsendum þar sem mynd-
málið hefur vísanir handan við myndflötinn". í fyrmefnda hópnum eru
meðal annarra Svava Bjömsdóttir, sem hefur þróað pappírsverk frá líf-
rænum formum yfir í geómetrísk form sem hafa engar beinar skírskotan-
ir til hlutveruleikans. Erla Þórarinsdóttir er að mati Gunnars einnig
dæmi um slíkan listamann sem ekki vinnur út frá skýrum hugmynda-
fræðilegum forsendum. Nafngift þeirra verka sem hún sýnir að þessu
sinni kemur þó að mínu mati ekki alveg heim og saman við þá skilgrein-
ingu fremur en skúlptúrar listakonunnar sem reyndar em ekki á þess-
ari sýningu.
Forsendur rýmisins og hugmyndalegar skírskotanir
Þeir listamenn sem tilheyra síðamefnda hópnum em t.d. Tumi Magnús-
son sem skírir verk sín afhjúpandi nöfnum líkt og Erla. Enn fremur er
þar um að ræða listamenn sem hugsa verk sín út frá forsendum rýmis-
ins líkt og Ráðhildur Ingadóttir gerir með því að vinna beint á vegginn
og Kees Visser og Haraldur Jónsson hafa gert á meira afgerandi hátt en
hér. Afstaða Daníels Þorkels Magnússonar og Ingu Þóreyjar Jóhannsdótt-
ur hefur vissulega hugmyndalega og jafnvel bókmenntalega skírskotun,
en nálgun þeirra er mnfram það húmorísk, líkt og hjá Tmna.
Áherslumunur sjötta og tíunda áratugar
Það er e.t.v. þessi kaldhæðni sem einkennir hin óhlutbundnu en þó
hlutveruleikavísandi verk þessara listamanna. Skilin á milli formrænna
forsendna og hugmyndalegra era oft óglögg eins og fyrr er getið, en þessi
sýning birtir á skýran hátt áherslumun á milli abstrakts sjötta áratugar-
ins og þess tíunda. Sá áherslumunur liggur ekki hvað síst í því að rýmið
er virkjað sem hluti verkanna, en einnig í því að í stað kaldrar fagur-
fræði formanna er komin húmorísk skírskotim til margræðs hlutveruleik-
ans. Annað mál er hvort ekki sé kominn tími til að víkka sjónhring gesta
safnsins með því að bjóða upp á sýningu á sjaldséðari verkum meiri
huldumanna en hér um ræðir.
Portrait eftir Daníel Þ. Magnússon.
MyndJist
Óiafur J. Engilbertsson
Magnús Þorláksson
Magnús Þorláksson húsgagna-
smiðameistari, Flókagötu 62,
Reykjavík, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Magnús fæddist að Ytra-Álandi 1
Þistilfirði en ólst upp á Svalbarði í
Þistilfirði. Hann stundaði nám við
Héraðsskólann á Laugarvatni, læröi
húsgagnasmíði hjá Ófeigi Ólafssyni,
lauk sveinsprófi í iðninni og prófi
frá Iðnskólanum í Reykjavik og öðl-
aðist síðan meistarabréf í greininni.
Fjölskylda
Böm Magnúsar eru ívar, f. 14.8.
1948, tæknifræðingur í Kópavogi,
kvæntur Amheiði Sigurðardóttur
hjúkrunarfræðingi og eiga þau tvö
börn, auk þess sem ívar á þrjú böm
frá fyrra hjónabandi; Margrét, f. 4.9.
1951, tölvuritari í Svíþjóð, en hún á
einn son, Magnús; Vilhjámur, f. 23.4.
1959, tæknifræðingur í Svíþjóð,
kvæntur Ann Marie Magnússon
gjaldkera.
Hálfsystur Magnúsar, sammæðra,
vora Sigríður, f. 2.3.1911, húsmóðir
í Reykjavík; Aðalbjörg, f. 26.11.1912,
d.9.11.1914.
Alsystkini Magnúsar: Jón Erling-
ur, f. 27.10.1926, tryggingafræðingur
í Kópavogi; Sigtryggur, f. 5.10.1926,
b. á Svalbarði; Stefán Þórarinn, f.
28.9.1930, búfræðikandidat og kenn-
ari við MÁ; Vilhjálmur, f. 27.7.1933,
byggingaverkfræðingur, búsettur í
Garðabæ.
Foreldrar Magnúsar voru Þorlák-
ur Stefánsson, f. 28.8.1892, d. 1969,
bóndi á Ytra-Álandi og Svalbarði,
og Þuríður Vilhjálmsdóttir, f. 21.5.
1889, d. 1981, húsfreyja og kennari.
Ætt
Þorlákur var sonur Stefáns, b. á
Efri-Hólum í Núpasveit, Þórarins-
sonar og Guðmundu Þorláksdóttur.
Þuríður var systir Aðalbjargar,
móðurömmu Steingríms J. Sigfús-
sonar, fyrrv. ráðherra. Þuríður var
dóttir Vilhjálms, b; á Skálum og í
Ytri-Brekkum á Langanesi, Guð-
mundssonar. Móðir Þuríðar var
Sigríður, systir Árna, langafa
Bjöms Teitssonar, skólameistara á
ísafirði, Ara Teitssonar, formanns
Bændasamtakanna, og Árna Harð-
arsonar söngstjóra. Sigríður var
dóttir Davíðs, b. á Heiði í Sauðanes-
hreppi, Jónssonar og Þuríðar, syst-
ur Jóns á Skútustöðum, langafa
Magnús Þorláksson.
Þórs Vilhjálmssonar, fyrrv. hæsta-
réttardómara, Jónasar Jónssonar,
fyrrv. búnaðarmálastjóra, og
Hjálmars Ragnarssonar tónskálds.
Þuríður var dóttir Áma, b. á Sveins-
strönd í Mývatnssveit, bróður
Kristjönu, móður Jóns Sigurðsson-
ar, alþm. á Gautlöndum, ættfóður
Gautlandaættarinnar.
Magnús tekur á móti gestum í
Komhlöðunni, laugardaginn 15.4.,
frákl. 16.00-18.00.
Vilhelxnína Sigurjónsdóttir,
Austurbrúnö, Reykjavík.
Kristrún Bjamadóttir,
Bröttukinn 13, Hafnarfirði.
Jón Þórarinn Sveinsson,
Smáraflöt 8, Garðabæ.
Miðtúni, Dalvík. Sigríður Kristófersdóttir,
Erna Bergþóra Einarsdóttir, Möðrufelli 5, Reykjavík.
Fannborg 3, Kópavogi. Hrefna Gunnsteinsdóttir,
Ástríður Arngrímsdóttir, Ketu, Skefilsstaðahreppi.
Sogavegi 174, Reykjavik. Jónas Hannesson,
Bergljót Jónatansdóttir, Skólatröö 5, Kópavogi.
Grundartanga, SkilmannahreppL Kristín Haraldsdóttir,
Margrét Sigfúsdóttir, Brekkugötu 5, Hafnarfirði.
Þórustöðum II, Eyjaíjarðarsveít. Sólrún Magnúsdóttir,-
Guðlaugur ÞórirNielsen, Ölduslóð 11, Hafnarfirði,
Viðimel 59, Reykjavík.
Ingveldur K. Karlsdóttir, _________________________________
Lindarholtil, Snæfellsbæ. 40 3
Unnur Jóhannesdóttir,
Eornósi 12, Sauðárkrókl.
Eiginraaður hennar erAxelJúlíus-
sonbifreiðarstjóri.
ítilefniaftnæl-
isinsogferm-
ingarsonarson-
ar, Ingimars
Axels Gunnars-
sonar,takaþau
á móti ættingj-
umogvinumá
HótelVarma-
hlíð sumardagu
nk.,eftirkl. 17.
Ingihj örg Kristí n
Borgarvegi24,Nj;
Amgrímur Krist
Ólafur Pétursson,
Kringlunni 23, Reykjavík.
Magnús Davíðsson,
Hábergi 8, Reykjavík.
Sólveig Jónasdóttir,
leiðbeinandi
viðfélagsstarf
aldraöra,
Tjamarlundi 12
E, Akureyri.
Sólveig verður
heimameð
heittákönn-
unni.
Jóhanna Árnudóttir,
Snorrabraut79, Reykjavík.
Hans Roland Löf,
Súlunesi 13, Garðabæ.
Guðný Gunnarsdóttir,
Álfheimum 48, Reykjavík.
Regína Guðrún Árngrimsdóttir,
Vallargerði 2. Kópavogi.
Rán Gísladóttir,
Reykjabraut 20, Þorlákshöfn.
Eiginmaður hennar er Halldór
Rafn Ottósson stýrimaður.
Þau taka á rnóti gestum í Kiwanis-
húsinu í Þorlákshöfn á morgun.
12.4.,eftirkl.20.
Jóhann Vilhjálnisson,
Hrísateigi3, Reykjavik.
Sigrún Pálsdóttir,
Einigrund 11, Akranesi.
Jón Gunnar Sigurðsson,
Svarthömrum 54, Reykjavík.
BjÖrg Friðjónsdóttir,
IijaUalundi 7 F, Akureyri.
Inga Ingólfsdóttir,
Langageröi 112, Reykjavík.