Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1995, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ1995
3
AUKAHLUTIR
STAÐGREIÐSLUKJOR
0 - 200.000 kr.
200.000 - 500.000 kr.
Allt yfir 500.000 kr.
8%
9%
10%
HÚSASMIÐJAN
Engin plastkort nauðsynleg.
Allir fjölskyldumeðlimir geta -
nýtt sér kosti reikningsins.
4% af afslættinum greiðist strax út,
afgangurinn er inneign í lok árs.
Aukin viðskipti bæta kjör þín.
Síðastliðin 10 ár hefur Húsasmiðjan tryggt viðskiptavinum stnum betri kjör með
Staðgreiðslureikningi heimilisins
Komdu í Húsasmiðjuna og nœldu þér í umsóknareyðublað
og við tryggjum þér betri kjör.
í kaupbœti er fyrsta flokks þjónusta, rnikið vöruúrval og sterk vörumerki.
Úttektarupphæð
Afsláttur
Fréttir
Hænurnar
hurfu
sporlaust
Guðfirmur Fiiuibogason, DV, Hólmavík:
15 hænur hjónanna á Staö í Stein-
grímsfirði hurfu á meöan fjölskyldan
dvaldi vikutíma í sumarhúsi og hefur
ekki sést af þeim svo mikið sem ein
íjöður. Sonur þeirra, sem var í vinnu
utan heimilis, tók eftir því á þriðja
kvöldi að óvenju fáar þeirra skiluðu
sér til kvöldverðar.
Ólíklegt er talið að þær hafi saknað
svo mikið húsbænda sinna að það
hafi orðið til þess að þær flúðu að
heiman.
Marta Sigvaldadóttir bóndi segir
ekki líklegt að minkur eigi hér sök,
hann sé ekki vanur að leifa þar sem
hann komist í hænsnahóp. Helst er
hallast aö því að flugvargur hafi ver-
ið á ferðinni en hann hefur ekkert
látið sjá sig síðan íjölskyldan kom
heim. Eru þó 6 hænur eftir sem dug-
að gætu honum í nokkrar máltíðir.
Laugardalslaugin:
Skápurinn
tæmdur
Dönsk kona sem baðaði sig í Laug-
ardalslauginni varð fyrir þeirri
óskemmtilegu lífsreynslu að þegar
hún ætlaði að ganga að eigum sínum
í fataskápi voru þær horfnar: föt,
gleraugu, veski, og hún kom að
skápnum læstum. Einhver virðist
því hafa fengið lykil sem passaði að
skáp hennar. -sv
Meðalaldur
bænda 51 ár
Um fjögur þúsund bændur lands-
ins eru aö meðaltali 51 árs gamlir.
Þetta er meðal þess fróðleiks sem
má lesa í Hagtölum landbúnaðarins
fyrir árið 1995. Fjöldi jarða á síðasta
ári var 3.777 og ábúendur voru ná-
kvæmlega 4.121 talsins.
Samkvæmt Hagtölunum eru
bændur yngstir í Eyjafirði og Vest-
ur-Húnaþingi. Þar er meðalaldurinn
49 ár. Elstu bændurnir eru í Gull-
bringu- og Kjósarsýslu með meðal-
aldurinn 58 ár. -bjb
radiomidun.
Grandagarði 9 • Sími 511 1010
Borgarstjóra stefnt fyrir héraðsdóm vegna hundamáls:
Borgairáð sakað um að
brjóta stjórnsýslulög
- Runólfur Oddsson krefst ógildingar og skaðabóta
Runólfur Oddsson hefur stefnt Ingi-
björgu Sólrúnu Gisladóttur borgar-
stjóra fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur
vegna afturköllunar borgarráðs á
leyfi Runólfs til hundahalds þann 18.
október 1994 og þeirri ákvörðun
borgarráðs að leyfissviptingin komi
til framkvæmda 1. júní 1995. Runólf-
ur krefst þess að þessi ákvörðun
verði ógilt og hann fái greiddar
skaðabætur.
Runólfur Oddsson var sviptur leyf-
inu vegna skriflegrar kvörtunar íbú-
anna að Álakvísl 128,130,132 og 136
til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. í
mótmælabréfinu kemur fram að
kæran sé vegna hundaskíts á sam-
eiginlegri lóð og einkalóð og af hund-
inum stafi hætta. Þá kom einnig fram
að hundeigandinn hefði veriö ósam-
vinnuþýður við aðra íbúa hússins.
I stefnu Runólfs kemur fram að
borgarráð er sakað um að hafa brot-
ið stjórnsýslulög þar sem hann hafi
ekki átt kost á að tjá sig um málið
áður en ákvörðunin var tekin.
Stefna Runólfs er studd sönnunar-
gögnum sem eru alls 31. Meðal þeirra
er grein í DV þar sem vitnað er í
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borg-
arstjóra.
Steingrímur Þormóðsson hdl. rek-
urmáliðfyrirhöndRunóIfs. -rt
siman