Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1995, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 31. JÚLf 1995
Fréttir
Ferðamenn í vandræðum í hvassviðrinu í gær:
Aldrei kynnst slíku veðri
- sagði bandarískur hjólreiðamaður sem kom til landsins 1 gær
„Ég hef aldrei kynnst slíku veðri,
snörpum vindhviðum og logni inn á
milli,“ sagði Peter Finn, hjólaferða-
langur frá Bandaríkjunum, sem var
að basla við að koma'upp tjaldi sínu
í sviptivindunum í gær á tjaldsvæð-
inu í Laugardal þegar blaðamann og
ljósmyndara DV bar að garði. Fjöl-
margir útlendingar voru að baksa
við að festa betur tjöld sín í veður-
hamnum sem geisaði í gær.
„Ég kom til íslands í dag með hjól-
iö mitt meðferðis og hjólaði frá Kefla-
víkurflugvelli og til Reykjavíkur. Það
var vægast sagt erfitt í rokinu og í
verstu vindhviðunum fauk ég marg-
sinnis út af Reykjanesbrautinni. Ég
verð hérna á íslandi í 18 daga og mér
líst ekki á blikuna ef veðrið verður
eitthvað í líkingu við þetta.
Mér er sagt að vindar geti verið
ansi hvassir uppi á hálendinu hér á
íslandi en ég hafði einmitt ætlað mér
aö hjóla upp á hálendið á stuttri dvöl
minni hérlendis. Ef veðrið er svona
slæmt í Reykjavík, hlýtur það að
vera miklu verra inni í landi,“ sagöi
Peter. Hann varð samt miklu rólegri
þegar blaðamaður fræddi hann um
að veður sem þetta heyrði fremur til
undantekninga en reglu.
Nokkrir af þeim útlendingum sem
blaöamaður ræddi við virtust þó alls
ekki neitt uppnæmir yfir veðrinu.
Antonio Boiifiglio frá Sikiley, einn
tjaldbúanna í Laugardal virtist hæst-
ánægður með veðrið. „Það er nóg af
sól og góðu veðri á Sikiley og því er
ég bara feginn ef ég get fengiö ein-
hvern kulda og smávegis rok skaðar
mig ekki,“ sagöi Antonio og var hinn
hressasti. -ÍS
Peter Finn, sem kom i gær til landsins frá Bandarikjunum, hjólaði í hávaðaroki frá Ketlavíkurflugvelli
ur og sviptivindarnir feyktu honum margsinnis út af Reykjanesbrautinni.
til Reykjavik-
DV-mynd JAK
Vandræði hjá Emerald Air:
Ekkert uppgjafarhljóð í okkur
- segir Karl Sigurhjartarson sem segir vandamálin tímabundin
„Viö erum búnir aö búa við það frá
upphafi flugs í ár að þurfa að vera
með skammtímalausnir á fluginu,"
sagði Karl Sigurhjartarson, fulltrúi
hjá Emerald Air, í samtali við DV. Á
fostudaginn varð rúmlega fjögurra
tíma seinkun á flugi félagsins þegar
flugfélagið var að leita að vél til leigu
í bókað flug sitt. Á endanum fékkst
leigð Fokker-vél hjá Flugleiðum sem
flaug með hópinn til írlands. í fram-
haldinu hafa verið uppi getgátur um
slæma stöðu Emerald Air, sérstak-
lega í ljósi þess að tvær íslenskar
ferðaskrifstofur kusu að hætta við-
skiptum sínum við félagiö.
„Það er ekkert uppgjafarhljóð í
okkur hjá Emerald Áir þó að við
höfum verið í vandræðum með flug
fram að þessu. Vandræðin eru til
komin vegna þess að Emerald Air
gerði í fyrra mjög hagstæðan samn-
ing við breska fyrirtækið European
Aviation um leigu á flugvél. En síðan
gerist það að markaðsverð á leigu á
vél þeirra hækkar mjög og þeir
ákváðu að rifta samningnum og
stungu af úr samstarfmu. European
Aviation er að sjálfsögðu stórlega
skaðabótaskylt vegna þessa samn-
ingsrofs og hefur þegar borgað tölu-
vert í bætur.
Þessi ákvörðun gerði það að verk-
um að í byijun júní stóðum við
frammi fyrir því að fara að fljúga
hingað til íslands, hafandi enga vél.
Við fundum vél í Frakklandi, Boeing
737-200, og gerðum samning um leigu
á henni og búist var við því að hún
yrði tilbúin til notkunar í byrjun júlí
í ár. En afhending hennar hefur
dregist endalaust. Við erum þegar
búnir að láta þjálfa allar áhafnir í
hana og vélin er komin til Bretlands.
Við bíðum nú einungis eftir stimpli
frá breskum flugmálayfirvöldum að
hún megi fljúga. Ég vonast eftir því
að hún verði komin hingað á þriðju-
dag og ég þori að veðja ansi miklu
um það að hún verði komin í gagnið
í síðasta lagi fóstudaginn 4. ágúst.
Þá verður málum loks kippt í lag hjá
okkur,“ sagði Karl. -ÍS
FáskrúðsQörður:
Þjóðverji velti
bílsínum
Þjóðveiji velti jeppabifreið inn-
an við Kleif nálægt Fáskrúðsfirði
í gærdag. Lítils háttar meiðsl
urðu á fólki en bíllinn var mjög
illa farinn, Ökumaðurinn missti
stjórn á bílnum í beygju þar sem
var nokkur lausamöl. Fólkið var
flutt á heilsugæslustöðina á Eg-
ilsstöðum. Að sögn lögreglunnar
á Fáskrúðsflrði er Þjóðveijinn
fjórði útlendingurinn á tveimur
vikum sem veltir bíl sínum í
umdæmi hennar.
Verslunarmannahelgin:
Fíkniefnagæsla
á útihátíðum
Tvö sýslumannsembætti, í Vík
og Vestmannaeyjum, hafa óskaö
eftir við lögreglustjórann í
Reykjavík að fá fikniefnagæslu á
útihátiðunum sem verða um
næstu helgi í umdæmum þeirra.
Ákveðið hefur veriö að verða viö
þeirri ósk og mun því fíkniefna-
deild lögreglunnar verða að störf-
um á þessum stöðum. Að sögn
Björns Halldórssonar, yfírmanns
fíkniefnadeildarinnar, verður
fylgst með öllum þeim stöðum
þar sem einhveijir hópar verða
um næstu helgi, eins og tíðkast
hefur árum saman um verslunar-
mannahelgi.
I dag mælir Dagfari
Myndin af Bjarna
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur
gegnt borgarstjórastöðu sinni í
rúmlega eitt ár. Ingibjörg hefur
komist klakklaust frá flestum mál-
um og sjálfstæðismennirnir í
minnihluta borgarstjórnar hafa átt
í mestu erfiðleikum með aö finna
á henni höggstað. Hún hefur kom-
ist upp með holræsaskatt og
mannaráðningar og henni hefur
jafnvel tekist að klína allri skulda-
súpunni hjá borginni á fyrrverandi
meirihluta.
Sjálfstæðismennirnir hafa reynt
að malda í móinn og Árni Sigfússon
hótaði um tíma að reka alla þá sem
Ingibjörg ræður til starfa hjá borg-
inni en hefur dregið í land með þá
hótun sína þegar almenningur fór
að hneykslast á hótuninni, sem
Árni sagði að hefði ekki verið hót-
un, heldur misskilin hótun, af þvi
hann hefði ekki verið að mótmæla
ráðningunum heldur aðferðunum
sem voru notaðar í ráðningamar.
Þannig fór um sjóferð þá og Ingi-
björg hefur staðið með pálmann í
höndunum og menn hafa beöið eft-
ir að hún gerði mistök sem hefðu
almennilega og alvarlega pólitíska
þýðingu.
Og svo kom að því. Borgarstjór-
inn hefur geflö fyrirmæli um aö
breyta húsakynnum í Höfða og al-
varlegasta framkvæmdin og sú
sem mun hafa mestu pólitísku af-
leiðingarnar er að búið er að taka
niður málverkið af dr. Bjarna
Benediktssyni. Málverkið af
Bjarna hékk uppi á vegg í sama
herbergi og þeir Reagan og Gorb-
atsjov sátu í þegar heimurinn
fylgdist með hurðarhúninum á því
herbergi, sællar minningar.
JVIagnús Óskarsson, fyrrum borg-
arlögmaður og varaborgarstjóri í
tíð Davíðs Oddssonar, hefur lýst
því hvemig hann fékk æðstu valda-
menn veraldar til að skilja þýöingu
þess aö málverkið af Bjarna Bene-
diktssyni héngi á veggnum aftan
við Ronald Reagan, þar sem Bjarni
gat horft yfir öxl hans og fylgst með
fundinum. Staðsetningin var sem
sagt þaulhugsuð strategía af hálfu
borgarlögmanns, enda þessum
tveim þjóðarleiðtogum ekki treyst-
andi fyrir fundahaldi nema andi
dr. Bjarna svifi þar yfir vötnunum.
Nú er þessum fundi löngu lokiö
og þeir Reagan og Gorbi sestir báð-
ir í helgan stein en Höfði er enn á
sínum stað og málverkiö af Bjarna
hefur áfram verið á sínum stað og
nú hefur Ingibjörg drýgt þá synd
að láta taka niður þetta sama mál-
Í5íxv»1»-
Hrt-a
a mywF
umnvern íeiotoga-
fundarins breytt
ywtiw
HÍN myná tcm %-nt út Idðtoítafuudlaum I októWr 'tML Máh-frkið
Hjnms öeacdMii.>uí *r i fyrtr amíi vn M Mur n6 vcrtó Hm-
ÍÍPgt ítf Hðfðímt{ «!U t ifHjvníÍM,
Andt
lujdm l>er
,-rfláte
verk.
Henni verður margt fyrirgefið í
stjóm borgarinnar, en aldrei, aldr-
ei mun minnihlutinn í borgarstjórn
sætta sig við þá lítilsvirðingu sem
Ingibjörg sýnir minningu dr.
Bjarna. Hvað þá borgarbúar al-
mennt, sem vilja að málverkið
verði á sínum stað og eru arfareið-
ir út í borgarstjórann fyrir þessa
smekkleysu.
í fyrstu mátti ætla að þetta hefði
verið gert í hugsunarleysi, en nú
hefur komið á daginn að Ingibjörg
tekur málverkið niður af pólitísk-
um ástæðum, af því að henni er
illa viö sjálfstæðismenn, lífs og
liðna, og sennilega líka illa við
Bjarna Benediktsson, þótt hann
hafi aldrei gert henni neitt svo vit-
að sé.
Ef Ingibjörg sér ekki að sér og
hengir málverkið aftur upp á sinn
stað, segir Dagfara svo hugur um
að hér sé risið það mál sem hæst
mun bera í næstu kosningabaráttu.
Ingibjörg má lemja á Árna Sigfús-
syni og minnihlutanum. Hún má
kýta við alla núlifandi sjálfstæðis-
menn eins og henni lystir. En hún
skal ekki komast upp með það að
taka málverkið af Bjarna Bene-
diktssyni niður af veggnum, þar
sem dr. Bjarni gat fylgst með fund-
inum hjá Reagan og Gorba, enda
er hann brátt einn til frásagnar af
því hvað þar fór fram. Þetta mál-
verk skal á vegginn aftur, jafnvel
þótt nýjar kosningar þurfi til.
Reykvískir kjósendur munu
standa með sínu málverki og sínum
manni og sínum vegg í Höfða og
ekki má gleyma því að Ronald
Reagan er enn á lífi og mun geta
blandaö sér í þessa hörðu deilu og
vitna um hversu góð áhrif það hafði
á hann að hafa dr. Bjarna að baki
sér.
Ingibjörg borgarstjóri mun fá til
tevatnsins ef hún setur ekki mál-
verkið á sinn stað. Pólitík er ekki
pólitík nema málverkin séu höfð á
þeim stað sem sjálfstæðismenn
hafa ákveðið að þau verði.
Dagfari