Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1995, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 1995
13
Fréttir
Quebec
Prince
Edwards-eyja
New Brunswick,
höfuöstöövar-.
Irving Oil °
Halifax
28" LITASJÓNVARP
* Hagœða Surround
Nicam-Stereo!
• Nicam Stereo
Surround-hljómgæði
• íslenskt
textavarp
• Super Planar
myndlampi
• og margt fleira...
ALLT ÞETTA
FYRIR AÐEINS
69.800
STGR.
SlÓNVARPSlVIIÐSTÖÐIN
SÍÐUMÚLA 2 - SÍMI 568 9090
Náttúruvænn
stubbastokkur
- fátt leiðinlegra en sígarettustubbar um allt
ÁTVR lét hanna stokk sem ætlaður
er undir vindlingastubba og tyggi-
gúmmí. Stokkurinn er úr plasti og
hefur verið framleiddur í nokkrum
litum. Hann er á stærð við ópalpakka
og er opnaður að ofan með því að
draga frá lok sem á honum er.'Við
opið er lítil stálfjöður sem hægt er
að nota til að drepa í vindlingum.
Vindlingastubbnum er síðan stungið
í stokkinn. Fátt er leiöinlegra en
vindlingastubbar og tyggjóklessur á
víð og dreif þegar gengið er um nátt-
úru íslands og því er stokkurinn til-
valinn til þess að taka við því arna.
ÁTVR bauð Æskulýðssambandi
íslands að koma stokknum á mark-
að. Honum var dreift í tilraunaskyni
á síðasta ári við mjög góðar undir-
tektir. íslandsbanki og Olíuverslun
íslands gerðust styrktaraðilar átaks-
ins og verður honum dreift hjá þeim
og hjá langferðabílastöðvum um land
aUt.
Stokkurinn er íslensk hönnun og
var framleiddur hjá Sigurplasti í
Mosfellsbæ. -SV
Oliuskip sem var í eigu Irving Oil:
Lyft af hafsbotni
vegna PCB-mengunar
- kanadísk stjómvöld borga brúsann
Á næstu vikum verður farið í það
að lyfta upp af hafsbotni í Saint
Lawrence-flóa við Kanada olíuskipi
sem var í eigu Irving Oil. Skipið, sem
nefnist Hvalurinn, sökk í fárviðri í
september árið 1970 við eyjuna
Prince Edward. Um borð voru um 3
þúsund tonn af hráolíu, þar af láku
um 200 tonn út í umhverflð. Tæplega
3 þúsund tonn af olíu eru því enn í
tönkum skipsins. PCB-mengun hefur
komið í ljós frá skipinu og hafa um-
hverfisverndarsinnar gagnrýnt
stjómvöld og ekki síst Irving Oil
mjög harðlega fyrir sinnuleysi.
Irving Oil hefur ekki viljað fjár-
magna björgun skipsins frá hafs-
botni þar sem það hafl sokkið á al-
þjóðlegu hafsvæði, utan lögsögu
Kanada. Fyrir nokkrum árum komst
svæðið undir yfirráð Kanadamanna
og nú eru það stjórnvöld sem ætla
að verja 600 milljónum króna í verk-
efnið. Reyndar em ekki allir á eitt
sáttir um björgun skipsins því hún
er talin stórvarasöm vegna mengaðr-
ar olíu í skipinu. Ef tekst að lyfta
skipinu upp í heilu lagi verður það
dregið til Halifax og olíunni dælt þar
út.
Þegar skipið sökk norður af Prince
Edwards-eyju olli það töiuverðri
umhverfismengun þótt ekki hefðu
lekið „nema“ 200 tonn út sem dreifð-
ust um 400 ferkílómetra svæði.
K.C. Irving, faðir Arthurs Irving
og afi þeirra Kenneths og Arthurs
yngri, sem nú eru aðalstjórnendur
Irving Oil, hélt því fram eftir að skip-
ið sökk að engin hætta stafaði af
þeirri olíu sem ekki lak út, hún
myndi á endanum frjósa í tönkunum
á hafsbotni.
í kanadískum dagblöðum kemur
fram að Irving Oil hafi sætt mikilli
gagnrýni fyrir sinnuleysi vegna
skipsins. Þess var krafist að félagið
kostaði sjálft björgun skipsins en Ir-
vingarnir harðneituðu, skipið hefði
farist á alþjóðlegu hafsvæði og
ábyrgðin væri ekki þeirra heldur
kanadískra stjórnvölda. í blöðunum
kemur jafnframt fram að Irving-
ættarveldið hafi haft stjórnmála-
menn „í vasanum“ og því hefði ekk-
ert gerst í björgun skipsins fyrr en
nú, 25 árum eftir að það sökk. Nú
hafa umhverfisráðherra Kanada,
Sheila Copps, og Brian Tobin sjávar-
útvegsráðherra beitt sér í málinu þar
sem þau telja lífríki og fiskimið í
Saint Lawrence-flóa í hættu vegna
skipsins: -bjb
^q....... ..h..
Hér sökk olíuskip
Irving Oil I fárviðri
í september 1970
Labrador
haf
KÆRKOMIN NÝJUNC A DISKINN ÞINN '
FLOKKS
NORÐLENSK
STA N ÁTTÚ RUAFURD
I FYRIRRÚMI