Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1995, Síða 16
16
MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 1995
Skrifstofuhúsnæði
Til leigu húsnæði á besta stað í Múlahverfi.
Húsnæðið er ca 50 m2 brúttó og skiptist niður
í tvö góð herbergi. í húsinu eru verkfræðistofur,
hugbúnaðarfyrirtæki og þ.h. starfsemi.
Boðið er upp á aðgang að Ijósritun, faxi og jafn-
vel kaffistofu.
Upplýsingar í síma 568-7317 á skrifstofutíma.
KENWOOD
kraftur.; gœði, ending
m lom a u
nrr?
9 0 4 * 1 7 0 0
kr. 39.90 min.
Don't.lose contact with the world.
Call 904-1700 and hear the latest in
world news in English or Danish.
m
WtlSum
904*1700
Lokað
__ í dag
Útsalan
hefst á morgun,
kl. 7.00
Toppskórinn
Veltusundi v/Ingólfstorg
Menning
Verk eftir Friederike Feldmann.
Umferðarniður
og yf irborð
-íNýlistasafninu
Ólíkar sýningar hafa löngum rúmast innan veggja
Nýlistasafnsins án þess aö þær taki athygli hver frá
annarri. Svo er einnig nú. Um helgina voru opnaöar
sýningar fimm ólíkra listamanna í sölum safnsins og
hefur hver um sig það nauðsynlega næöi sem þarf til
að heildin njóti sín.
í anddyri blasa við augum máluð míníteppi Friedrike
Feldmanns. Hér er um að ræða átta gróft og þykkt
málaðar smækkaðar eftirlíkingar persneskra mynstra
í teppum. Því til staðfestingar nefnir Friedrike sýningu
sína „Perser". Grófleiki verkanna er í skemmtilegri
Myndlist
Verk eftir Gunillu Bandolin.
Ólafur J. Engilbertsson
andstöðu við smæð þeirra og þó svo að mynstrin renni
út í úfið haf yfirborðsins í návígi virka þau samt sem
áður sannfærandi í fjarlægð. Frágang verkanna hefði
þó mátt vanda betur til að heildarmyndin yrði skilvirk-
ari og hefði afmörkuð svæðalýsing þar haft mikið að
segja.
Vannýttir útfærslumöguleikar
í gryfju gefur að líta innsýn í borgarinnsetningu
þeirra Franks Reitenspiess og Markusar Strieders.
Þeir hafa komið fyrir skýlum með hljóðupptöku- og
sendibúnaði undir þremur umferðarbrúm í Reykjavík
og tengt búnaðinn við þijú símtæki sem eru í gryfju
Nýhstasafnsins. Þegar gesturinn lyftir tólinu heyrir
hann þann umferðarnið sem er við eina hina tilteknu
brúa á sama augnabliki og tólið er tekið upp. Þessi
hugmynd um tengingu við heim borgarinnar utan
dyra er góðra gjalda verð, en það hefur verið talsvert
um slík verk á alþjóðlegum sýningum síðustu árin.
Þar er oft um að ræða tengingar landa á milh, ýmist
meö tilstyrk tækninnar eða með sýnishornaskiptum
af jarðvegi o.fl. Hér er hins vegar eins og listamennirn-
ir hafi hætt að þróa hugmynd sína í miðju kafi. Hug-
myndin gefur marga útfærslumöguleika í Nýhstasafn-
inu, eins og t.d. að hafa yfirhtsmynd frá hinni tilteknu
brú eða beina myndbandsupptöku. Eða hreinlega að
setja bíl inn í gryfjuna og láta niðinn heyrast í far-
síma! En hér er ekki sótt nógu djarflega fram í fram-
kvæmdinni og því nær uppsetningin ekki þeirri skil-
virkni sem hún hefur annars burði til aö ná.
Sköpun og hverfulleikl
Á palli og í Súm-sal sýnir Gunilla Bandohn verk sem
að hennar eigin sögn fjalla um mannlega þörf, „um
sköpunina og það að gera efnið undirgefið forminu".
Gunilla leggur áherslu á að hún sé ekki að fjalla um
handverk með verkum sínum, heldur hina frumstæðu
þörf að setja mark sitt á umheiminn. Á pallinum eru
sýndar htskyggnur af umhverfisverki hennar við
Norræna húsið á sýningunni Norrænir brunnar. Það
verk hefur vakið nokkra eftirtekt og byggist á hring-
formun túnþaka sem mynda skál í túnið. Verk Gun-
ihu í Súm-sal byggjast einnig á hringforminu. Þar er
um að ræða fimm gifssteypta hringi á veggjum sem
hafa formast af móti sem er fest í miöpunkt hringj-
anna. Á gólfi er svo sjötti og stærsti hringurinn sem
er einungis formaður úr mótatimbri. Hér er um að
ræða kraftmikla og útsjónarsama sýningu þar sem
sköpunin er vissulega rauður þráður.
Loks má benda á að í setustofu Nýhstasafnsins sýn-
ir um þessar mundir Harpa Ámadóttir þrjú gegnsæ
verk unnin úr plexigleri og fleiri efnum sem byggjast
á flögnun og „sem er okkur eitt órækasta vitniö um
hverfulleik allra hluta“, líkt og Eyjólfur Kjalar Emils-
son bendir á í sýningarskrá. Verk Hörpu koma þeirri
hugmynd til skila, en litlu þess utan.
Sýningamar í Nýhstasafninu standa til 13. ágúst.
Glæsileg veisla
Fjöldi samstarfsfólks, vina og vandamanna kom saman að heimili þeirra Rósu Guðbjartsdóttur fréttakonu og Jónas-
ar Sigurgeirssonar þegar þau giftu sig á laugardaginn. Þau slógu upp glæsilegu veislutjaldi í garðinum við heimili sitt
á Kirkjuvegi í Hafnarfirði og eins og sjá má nutu gestir gestrisni þeirra hjóna til fullnustu í rómantísku umhverfi
ásamtglæsilegmnveitingum. DV-myndVSJ