Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1995, Side 30
42
MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 1995
Afmæli
Sturla Þórðarson
Sturla Þórðarson bifreiðastjóri,
Sunnubraut 19, Búðardal, er sjötug-
urídag.
Starfsferill
Sturla fæddist á Breiðabólstaö á
Fellsströnd í Dalasýslu og ólst þar
upp. Hann flutti til Reykjavíkur 1949
og átti þar heima til 1962 er hann
flutti í Búðardal þar sem hann hefur
áttheimasíðan.
Sturla hefur lengst af stundað
akstur. Hann ók rútubílum, stund-
aði leigubílaakstur á BSR um árabil
og hefur stundað vörubílaakstur hjá
Vegagerð ríkisins á Vesturlandi.
Hann hefur verið starfsmaður
Mjólkursamlags Búðardals í rúm
tuttugu ár auk þess sem hann hefur
verið með hópferðabíl og stundað
akstur fyrir Grunnskólann í Búð-
ardal.
Fjölskylda
Sturla kvæntist 28.10.1958 Þrúði
Kristjánsdóttur, f. 21.7.1938, skóla-
stjóra Grunnskólans i Búðardal.
Hún er dóttir Kristjáns Guðjónsson-
ar, smiðs á ísafirði, sem er látinn,
og Jóhönnu Jakobsdóttur húsmóð-
ur sem nú dvelur á Hlíf á ísafirði.
Börn Sturlu og Þrúðar eru Kristj-
án Sturluson, f. 11.8.1958, skrifstofu-
stjóri Rauða kross íslands, búsettur
í Reykjavík, kvæntur Sigrúnu Arn-
arsdóttur, gjaldkera á Hrafnistu;
Steinunn Sturludóttir, f. 14.9.1959,
húsmóðir og bankastarfsmaður á
Patreksfirði, giftSveini Ólafssyni
lögregluþjóni og eru börn þeirra Sif,
Ólafur og Una Hlín; Friðrik Guðjón
Sturluson, f. 4.4.1965, tónlistarmaö-
ur í Reykjavík, kvæntur Silju Rún
Gunnlaugsdóttur, starfsmanni við
Hótel Óðinsvé, og er sonur þeirra
Sturla; Hanna Dóra Sturludóttir, f.
30.5.1968, söngkona í Berlín.
Systkin Sturlu eru Ingibjörg Hall-
dóra Þórðardóttir, f. 29.5.1919, d.
31.8.1936; Friðjón Þórðarson, f. 5.2.
1923, fyrrv. ráðherra og alþm., bú-
settur í Reykjavík; Sigurbjörg Jó-
hanna Þórðardóttir, f. 5.2.1924,
fyrrv. kennari í Kópavogi; Guðbjörg
Þórðardóttir, f. 11.10.1920, húsmóðir
í Reykjavík; Halldór Þórðarson, f.
5.1.1938, b. og tónlistarkennari á
Breiðabólstað á Fellsströnd.
Foreldrar Sturlu voru Þórður
Kristjánsson, f. 26.3.1890, d. 19.5.
1967, b. og hreppstjóri á Breiðaból-
stað, og k.h., Steinunn Þorgilsdóttir,
f. 12.6.1892, d. 4.10.1984, húsfreyja
ogkennari.
Ætt
Systir Þórðar var Salóme, amma
Svavars Gestssonar alþm. Þórður
var sonur Kristjáns, b. á Breiðaból-
stað, Þórðarsonar, b. þar, Jónsson-
ar, b. þar, Jónssonar, b. þar, Ás-
geirssonar, sem bjó þar 1767. Móðir
Kristjáns var Jófríður Einarsdóttir
frá Hallsstöðum. Móðir Þórðar
hreppstjóra var Sigurbjörg, systir
Guðmundar, afa Péturs Guðmunds-
sonar körfuboltamanns. Sigurbjörg
var dóttir Jóns, húsmanns í Skóg-
um, Jónssonar.
Meðal systkina Steinunnar eru
Helga skólastjóri, Þórhailur magist-
er, faðir Ólafs Gauks tónlistar-
manns, og Fríða, móðir Auðar Ey-
dal, forstöðumanns Kvikmyndaeft-
irlits ríkisins. Steinunn var dóttir
Þorgils, kennara og oddvita í Knarr-
arhöfn í Hvammssveit, Friðriksson-
ar, b. á Ormsstöðum, Þorgilssonar.
Móðir Steinunnar var Halldóra Sig-
Sturla Þórðarson.
mundsdóttir, b. á Skarfsstöðum í
Hvammssveit, Grímssonar. Móðir
Sigmundar var Ingibjörg Ormsdótt-
ir, b. í Fremri-Langey, Sigurðsson-
ar. Móðir Halldóru var Steinunn,
systir Þórðar Jónssonar á Breiða-
bólstað.
Sturla tekur á móti gestum á
heimili sínu í kvöld, mándudaginn
31.7.
Kolbrún Halldórsdóttir
Kolbrún Kristjana Halldórsdóttir
leikstjóri, til heimilis að Fornhaga
21 í Reykjavík, er fertug í dag.
Starfsferill
Kolbrún fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún lauk landsprófi
frá Víghúsaskóla í Kópavogi 1971 og
verslunarprófi frá Verzlunarskóla
íslands árið 1973. Árið 1978 lauk
Kolbrún svo prófi frá Leiklistar-
skóla íslands sem þá var nýstofnað-
ur og hafði tekið yfir Leiklistarskóla
leikhúsanna en í honum hóf Kol-
brún nám.
Kolbrún hefur einnig sótt fjöldann
allan af námskeiðum svo sem nám-
skeið í förðun hjá Kaj Grönberg
1979, námskeið fyrir leikara hjá
Diane Parker árið 1980, námskeið í
leikstjórn hjá Leiklistarskóla ís-
lands 1981, söngnámskeið hjá R.
Fölhnger og námskeið hjá Orest
Kostlowsky, ballettmeistara og
hreyfiþjálfara árið 1983 og námskeið
í leikstjórn í Austur-Berlín árið 1989.
Árið 1975 hóf Kolbrún störf hjá
Þjóðleikhúsinu við hárkollu- og
förðunardeild og sinnti því starfi til
1976.1976-1979 starfaði hún sem
hvíslari og leikari hjá Leikfélagi
Reykjavíkur, við gerð og leikstjórn
barnaefnis í sjónvarpi 1979 og 1980
var hún fuUtrúi á skrifstofu Lista-
hátíðar. 1980-1982 vann Kolbrún hjá
Alþýðuhúsinu við leik og önnur
störf, árið 1981 hjá Kvikmyndafélág-
inu Óðni og Kvikmynd og árið eftir
sem fulltrúi hjá Leiklistarskóla ís-
lands og vann þar í eitt ár. Dag-
skrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpi
og-sjónvarpi 1983-1989. Árin 1984-
1985 var hún framkvæmdastjóri og
kennari í Kramhúsinu og 1986 að-
stoðarleikstjóri Rauðhóla-Rannsýj-
ar á vegum Hins leikhússins. 1988-
1993 var Kolbrún framkvæmda-
stjóri hjá Bandalagi íslenskra leikfé-
laga. Fyrir utan það sem hér er taUð
hefur Kolbrún samið og leikstýrt
íjölmörgum leikritum og þáttum.
Fjölskylda
Kolbrún giftist 1.5.1980Ágústi
Péturssyni, f. 12.5.1953, kennara í
Fellaskóla. Hann er sonur Péturs
Ágústssonar múrara og Guðrúnar
Kristjánsdóttur saumakonu.
Börn Kolbrúnar og Ágústs eru
Orri Huginn, f. 25.5.1980 og Alma,
f.26.4.1995.
Systkin Kolbrúnar eru Elín Huld,
f. 7.2.1961, fóstra; Sigrún Halla, f.
13.2.1965, frönskukennari; Pétur
Már, f. 20.4.1966, deildarstjóri. Sam-
feðra er VUhjálmur Örn, f. 8.8.1951.
Foreldrar Kolbrúnar eru Halldór
Viðar Pétursson, f. 29.9.1928, bryti
og k.h. Halldóra Sigrún Ólafsdóttir,
f. 14.5.1926, kennari, þau eru búsett
í Kópavogi.
Ætt
Halldór er sonur Péturs Sigurðs-
sonar, tónskálds frá Geirmundar-
stöðum, og Kristjönu Sigfúsdóttur
Kolbrun Kristjana Halldórsdóttir.
frá Brekku, Svarfaðardal.
Halldóra er dóttir Ólafs Sveins-
sonar, b. á Lambsvatni, Rauðasandi
og Halldóru G. Torfadóttur, f. í
Kollsvík, Rauðasandshr.
Kolbrún tekur á móti gestum á
afmælisdaginn í Kaffileikhúsinu,
Hlaðvarpanum, milh kl. 16 og 19.
80 ára
Bergsvemn Jóhannsson,
Digranesheiði 12, Kópavogi.
Gísli Stefánsson,
Ysta-Koti, Vestur-Landeyjum.
Sólveig Þorsteinsdóttir,
BaughóU 26, Húsavík.
75 ára
Eiríkur Jónsson,
Berghyl, Hrunamannahreppi.
Svava Kristjansdóttir,
Lönguhlíð 23, Reykjavík.
JónG.
Halldörsson,
bifreiðasmíður.
Eiginkona
hans er
Margrét
Þorsteins-
dóttir
húsmóðirsem
veröursjötug
þann 17,8. n.k.
Þaueruerlend-
is umþessar
mundir.
Jóhanna Margrét Axelsdóttir,
Lundarbrekku 12, Kópavogi.
Rut Ingólfsdóttir,
Háuhlíö 14, Reykjavík.
Þorsteinn Björnsson,
Bergstaðastræti 8, Reykjavik.
Ragnheiður Margeirsdóttir,
Þverholti 18, Keflavík.
Magnea Guðrún Gunnarsdóttir,
Fögrukinn 8, Hafnarfirði.
Hjálmar Pálmason,
Bergsstöðum, Kirkjuhvamms-
hreppi.
Steinunn Sveinsdóttir,
Safamýri91, Reykjavík.
Elín Jóhannesdóttir,
Kringlumýri 20, Akureyri.
60ára
Hafsteinn Steindórsson,
Ólafur Ingibergsson, Hrísholti 18, Selfossi.
fyrrv. sjómaður, Agatha K. Kristjánsdóttir,
Smárabarði2b, * ...........
Hafharfirði.
Eigínkona hans
er Eyrún Hulda
Marinósdóttir
húsmóðir.
Þau eruaö
heiman á af-
mæludaginn MH t ____
Óskar Karelsson, Bragi Jóhannesson,
Miðtúni, Hvolhreppi. Geitastekk 8, Reykjavík.
Jón Óli Þorsteinsson,
Austurbergi30,Reykjavík. .... k'k:; ..'.i'.i "
; Guðrún Pálmadóttir, pa •
Aðalstræti22,Bolungarvík. OU qia
Ingiberg Hraundal Jónsson,
Hrísbraut 8, Höfn í Hornafirðl
LyngoreKKu t, nopavogi.
Þórunn K. Erlendsdóttir,
Látraströnd 7, Selljarnamesi.
Sigríður Guðný Jónsdóttir,
Tungubakka 14, Reykjavík.
Heiga Lúðviksdóttir,
Drekagili 28, Akureyri.
RutMagnússon,
Skinasiindi 77 Revkiavik
70 ára
Svana Ragnheiður Júlíusdóttir,
Barrholfilö, Mosfellsbæ.
Steinfríður Haraldsdóttir,
Lautasmára 51, Kópavogi.
Friðrik Már Jónsson,
Hafnargötu 24, Siglufirði.
Sigfús Haraldsson,
Dalseli 13, Reykjavík.
Bj örg vin Þórðar son,
Tjarnarmýri23, Seltjamarnesi.
Þorbjörg Helgadóttir,
Grenigrund 15, Akranesi.
Elínborg Margrét Vignisdóttir,
Hábergi 7, Reykjavík.
Kolbrún Björg Tobíasdóttir,
- Leynisbrún3,Gríndavík.
Stella Jónsdóttir,
Faxabraut 66, Keflavík.
ValdhnarH. Valdimarsson,
HörgshoIti27, Hafnarfirði.
Sviðsljós
Bob Kane, höfundur Batmans.
Maðurinn
sem bjó til
Batman
„Batman er enn þá eina súper-
hetjan sem er venjulegur maður
án yfirnáttúrulegra afla,“ segir Bob
Kane, maðurinn sem bjó til Batman
fyrir 56 árum.
Þá var Bob 18 ára og ætlaði sér
að búa til teiknimyndapersónu sem
væri jafningi Súpermanns. Á sjö-
unda áratugnum vora gerðir sjón-
varpsmyndaflokkar um Batman og
þá kynntist ný kynslóð hetjunni.
Nú þegar gerðar hafa verið þijár
kvikmyndir um Batman eru aðdá-
endurnir orðnir enn fleiri.