Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1995, Page 36
SIMATORG DV 904 1700
FRÉTTASKOTIÐ
562*2525
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast
3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar
nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
RITSTJORN AUGLVSINOAP ASKRiFT - OREiFING. 563*2700
BLAÐAAFGREIBSLA OG
ÁSKRtFT ER OPIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLADA-
AFGREIÐSLU: 563 2777
KL 6-8 LAUGARDAGS 0G MÁNUDAGSMORGNA
Höfn, Homafirði:
Réðst á konu
og skallaði
Maður réðst á konu þar sem hún
var að ganga heim af skemmtistað á
Höfn í Hornaflrði aðfaranótt laugar-
dagsins og skallaði hana illa með
þeim afleiðingum að hún þurfti aö
leita lækningar. Saumuð voru sex
spor í augabrúnir konunnar. Árásin
var gjörsamlega tilefnislaus.
Konan var á heimleið ásamt sam-
býlismanni sínum þegar maður veitti
þeim eftirför. Til einhverra orða-
hnippinga kom sem enduðu þannig
að maðurinn réðst á konuna. Hún
hefur nú kært manninn og vinnur
lögreglan á Höfn aö rannsókn máls-
ins.
Þá slasaðist maður nokkuð þegar
hann réðst á spegil, braut hann og
hlaut sár. Var hann fluttur á slysa-
deild til aðhlynningar. Ekki kunni
lögreglan skýringar á háttalagi
mannsins en eflaust hefur honum
ekki líkað spegilmynd sín.
Umferðin
stöðvaðist í
tvo tíma
í Hvalfirði
- kona festist í bílflaki
Kona slasaðist illa í mjög hörðum
árekstri þriggja bifreiða í Hvalfirðin-
um á sjöunda tímanum í gær. Tækja-
bílar frá Reykjavík og Akranesi
komu á staðinn til að klippa konuna
úr bílnum og þurfti nánast að fjar-
lægja aðra hliðina úr bíl hennar. Hún
mun þó ekki lífshættulega slösuð.
Mildi þykir að ekki hafi fleiri slasast
en íjórtán manns voru í bílunum.
Allir voru þó fluttir á slysadeild
Borgarspítalans.
Að sögn lögreglu er ekki fyllilega
ljóst hvernig áreksturinn átti sér stað
en jeppabifreið sem var á leið norður
mætti öðrum fólksbílnum í beygju
austan við olíustöðina í Hvalfirði og
rákust þeir saman. Jeppinn snérist á
götunni og í veg fyrir annan bíl sem
kom á eftir fólksbílnum og lenti í
honum miðjum. Það var í þeim bíl
sem konan, sem var ökumaður, slas-
aðist. \
Þrír sjúkrabílar komu á staðinn
auk tækjabíla og lögreglu og stöðvað-
ist umferð, sem var allmikil, um
Hvalfjörð í um tvo tíma vegna þess.
Að sögn lögreglunnar voru sumir
bílstjórar orðnir talsvert pirraðir að
komast ekki leiðar sinnar. Mjög mik-
il umferð hefur verið um Hvalfjörð
og sagði lögreglan að það væri hrika-
legur glannaakstur á ökumönnum.
Hann vildi þó ekki segja að það hafi
átt við með þá bíla sem lentu í
árekstrinum.
Gæti upplýst
mörg innbrot
- imbrotsþjóforinn í gæsluvarðhald til 17. ágúst
Þýfi, hundraða þúsunda króna
virði, fannst á heimUi þekkts af-
brotamanns nánast fyrir tiMljun á
laugardag. Lögreglumenn voru að
sinna öðru erindi í nærliggjandi
húsi í vesturbænum. Þeir sáu þar
hvar útidyr stóðu upp á gátt og Utu
inn. Þar blöstu þá við þeim margir
Wutir sem ætla mætti að tengdust
innbrotum. í samtali við húsráð-
anda kom það á daginn.
Meðal þess sem við blasti voru
aUmargar tölvur, geisladiskar,
hijómflutningstæki, bíltæki, bor-
vélar og alls kyns dót sem tengist
innbrotum undanfarhma vikna og
mánaða.
RLR fékk máhð tii rannsóknar
og var maðurinn dæmdur í gæslu-
varðhald til 17. ágúst meðan sú
rannsókn fer frarn. Að sögn lög-
reglu er óskandi að þar upplýsist
mörg þeirra innbrotsmála sem ver-
ið hafa í rannsókn hjá RLR undan-
farið.
Oft hefur það gerst að mönnum
sem teknir eru fyrir þjófnað er
sleppt um leið og þeir hafa játað
glæpinn og þá geta þeir haldið
áfram fyrri iðju. Margir munu
leika á kerflð þannig að best sé að
játa um leið og þar með séu þeir
sloppnir. Nokkur gagnrýni hefur
komið fram á dómskerfið vegna
þess að langur tími líður frá því
menn sleppa þar til þeir eru dæmd-
ir. Að sögn lögreglu, sem DV ræddi
við, væri best að maðurinn fengi
dóm strax að loknu gæsluvarð-
haldinu þannig að hann færi ekki
strax út í þjóðfélagið á nýjan leik
til að halda áfram innbrotum.
Umferð stöðvaðst í tvo tíma i Hvalfirði í gær vegna áreksturs þriggja bíla. Fjórtán voru í bílunum og þykir mildi að
ekkifór verr. DV-myndJAK
LOKI
Þeir eru bráðþroska, kaupa-
mennirnir!
Veðriðámorgun:
Skúrir um
landið
vestanvert
Á morgun er gert ráö fyrir suð-
vestan- og vestanátt. Sums staðar
verður strekkingur vestan til á
landinu. Skúrir verða um landið
suðvestan- og vestanvert en bjart
veður lengst af norðaustan- og
austanlands. Hitinn verður mest-
ur á því svæði eða 16 til 18 stig.
Á suðvesturhorninu verður 11 til
13 stiga hiti.
Veðrið í dag er á bls. 45.
Tólfárastrauk:
Tók gamla
og ók áleiðis
til Reykjavíkur
Tólf árá ökumaður á gömlum núm-
erslausum Rússajeppa reyndi að
komast undan lögreglunni á Blöndu-
ósi á nokkurri ferð um hádegið á
laugardag. Drengurinn hafði verið í
sveit á nálægum sveitabæ og var far-
ið að leiðast sveitastörfin og líklegast
með mikla heimþrá því hann ætlaði
ekki að láta lögregluna ná sér. Eftir
nokkra eftirför náði lögreglan að
stöðva bílinn en þá hljóp sá stutti á
fullum krafti yflr móa og mýrar áður
en yfivaldinu tókst að hafa hendur í
hári hans.
Stráksi, sem er búsettur í Reykja-
vík, hafði hugsað sér að komast heim
til sín. Að sögn lögreglu var merki-
legt hversu seigur sá stutti var í
akstrinum en heppinn að hafa slopp-
ið svo vel því þetta var mikill glæfra-
akstur. Strákurinn hafði vafalaust
fengið einhverja reynslu af akstri
dráttarvéla í sveitinni og taldi sig
fullnuma í ökufræðunum. Hann
reynir þó tæpast að strjúka úr sveit-
inni aftur akandi.
ísafjörður:
Maðurbeif mann
Maður réðst á annan mann og beit
hann illa í fingur á dansleik á ísafirði
aðfaranótt laugardagsins. Maðurinn
var fluttur á sjúkrahús þar sem gert
var að sárum hans. Önnur slagsmál
brutust út á sama balli því maður
var sleginn illa í andlit. Hann var
einnig fluttur á slysadeild, blóðugur
og með lausar tennur. Hvorugt fórn-
arlambið hafði þó lagt fram kæru í
málinu til lögreglunnar.
Sautján ung-
menni í gæslu
lögreglunnar
Um tvö þúsund manns voru í
miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt laug-
ardagsins og voru sautján unglingar
undir sextán ára aldri færðir í at-
hvarf lögreglunnar. Hringt var heim
til foreldra þeirra og beðið um að
unglingarnir yrðu sóttir. Þá var
allmiklu magni af áfengi hellt niður
sem tekið var af fólki undir tvítugu.
Að sögn lögreglu kemur þó einnig
fyrir að tekið sé áfengi af eldra fólki
ef það veifar flöskunum á almanna-
færi.
Aðfaranótt sunnudagsins voru á
milli tvö og þrjú þúsund manns í
miðbænum eftir að börum var lokað.
Ertu búinn að panta?
P 4 P
dagar til þjóðhátíðar
FLUGLEIÐIR
Innanlandssimi 5050 200
K I N G
L@TT*
alltaf á
Miövikudögriin