Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1995, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUÐAGUR 12. SEPTEMBER 1995
5
dv Fréttir
Helgi Sigurðsson, bóndi á Súluholti í Villingaholtshreppi, hefur leyft fyrirtaekjum og einstaklingum að keyra án endurgjalds gömul dekk, felgur og annað
drasl á urðunarstað í námum í landi Súluholts í trássi við heilbrigðiseftirlitið á Suðurlandi og blasir ófögnuðurinn við vegfarendum. Ruslið ætlar Helgi að
nota til uppfyllingar undir beitiland eða tún og segist hann keyra reglulega jarðveg ofan á ruslið. DV-mynd GVA
Fyrirtæki og einstaklingar keyra rusl til urðunar fyrir austan flall:
Ryðgað járn og dekk
notuð undir beitiland
- biðjum bondann að fjarlægja ruslið, segir heilbrigðisfulltrúinn á Suðurlandi
„Ég fer reglulega á þetta með trakt-
orsgröfu, keyri möl og jarðveg ofan
á ruslið og fylli upp í eins og gert er
á öðrum ruslahaugum. Ég hef leyft
þremur til fjórum aðilum, fyrirtækj-
um og einstaklingum, að koma með
rusl en ekki tekið greiðslu. Þetta er
aðallega til að fylla upp í gryfju sem
möl hefur verið tekin úr. Þetta verð-
ur sléttað út og sáð í jarðveginn. Þessi
staður verður svo bara beitiland eða
tún eða hvað sem vera skal. Jarðveg-
urinn ofan á þessu verður það þykk-
ur að það skiptir engu máh,“ segir
Helgi Sigurðsson, bóndi á Súluholti
í Villingaholtshreppi.
Undanfarin ár hafa bændur í Súlu-
holti leyft Vegagerðinni og fleiri aðil-
um að taka möl úr námum í landi
Súluholts og hafa nú komið upp urð-
unarstað fyrir fyrirtæki og einstakl-
inga, til dæmis af höfuðborgarsvæð-
inu, í djúpum gryfjum. Þegar keyrt
er fram hjá Súluholti má sjá ónýta
hjólbarða, ryðgaðar felgur, gaddavír,
spýtnarusl og annað drasl og blasir
ófógnuðurinn við vegfarendum.
Helgi segist ekki hafa fengið leyfi
fyrir urðuninni frá heilbrigðiseftir-
litinu á Suðurlandi enda sé langt síð-
an byijað var að fylla gryfjumar.
„Að hluta til er hægt að fylla upp
í gryfjumar með mold en þaö er
ágætt aö hafa svona dót þar sem
dýpst er. Þetta er búið að vera svona
í mörg ár en gengið hægt því að það
fellur svo lítið til héma. Ég hef ekk-
ert velt fyrir mér að fá leyfi fyrir
þessu. Mér skilst að reglugerð um
uröunarstaði sé nýtilkomin en það
er mjög langt síðan farið var að setja
þarna drasl,“ segir Helgi.
„Hann hefur ekki sótt um leyfi fýr-
ir urðun enda era bara tveir urðun-
arstaðir með slíkt leyfi á Suðurlandi.
Til að geyma úrgangsefni, brota-
málma og fleira á einkajörðum þarf
líka leyfi og hann hefur ekki sótt um
það. Ég ætla að skoða urðunarstað-
inn og fara fram á að hann fjarlægi
rashð. Ef hann gerir ekkert í þessu
þá gæti komið til þess að ég kærði
hann,“ segir Birgir Þórðarson, heil-
brigðisfuUtrúi á Suðurlandi.
„Sveitarfélagið er búið að auglýsa
að þaö taki á móti jámarasU í aðra
námu í Breiðholtslöndum og sjái um
að fjarlægja það eins og lög gera ráð
fyrir en við erum ekki tilbúnir til
þess að taka við rasU frá öðram sveit-
arfélögum. Okkur ber ekki skylda tU
að sjá um urðun á því,“ segir Bjarki
Reynisson, oddviti í ViUingaholts-
hreppi. -GHS
Gódit
bamaskór
St. 20-32
Verö frá 3590
Margar aörar geröír
smáskór
í biáu húsi við Fákafen
Sími 568 3919
ÞVOTTA
• Þvottamagn 1 til 5 kg.
• Regnúðakerfi
• 18 Þvottakerfi
• Ullarkerfi
• íslenskur leiðarvísir
• Dýpt frá 33 cm !
• Frí heimsending í Rvk.
og nágrenni
VISA - EURO - RAÐGREIÐSLUR
CXLg)C°l>^
RAFVORUR
1 ARMULI 5 • 108 RVK • SIMI 568 6411
Verslunin Ég og þú
er fíutt í rúmbetra
húsnæði að Laugavegi 66.
UncLrabrj óstahaldarar
aðeins kr. 1.490
Samfellur frá kr. 990
Ótal önnur frábær tilboð
í nokkra daga.
Ég og þú
Laugavegi 66 • Sími 551 2211
Sendum í póstkröfu.