Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1995, Blaðsíða 17
16
ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1995
ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1995
17
íþróttir
Golf:
„Hvíti hákariinn"
enn langbestur
Tvennt er þaö sem vekur at-
hygli á nýjum llsta yfir bestu
kylfinga heims sem gerður var
opinber í gær. Annars vegar
miklir yfirburðir Gregs Normans
frá Ástralíu og hins vegar afar
slakar staðsetningar bandariskra
kylfinga á listanum.
Greg Norman, oft nefndur hvíti
hákarlinn, er í efsta sæti með
22,04 stig. Nick Price frá
Zimbabwe er annar með 16,76 stig
og Ernie Els frá Suður-Afríku
þriðji með 15,31 stig. Næstir á list-
anum eru Nick Faldo, Bemhard
Langer og Colkin Montgomerie,
allt Evrópubúar, og efsti banda-
ríski kylfingurinn á listanum er
Corey Pavin 1 7. sæti.
Tennis:
160milljönir
Andre Agassi og Pete Sampras
eru í tveimur efstu sætunum á
heimslistanum yfir tekjuhæstu
tennisleikarana í karlaflokki en
þeir félagar léku til úrslita á opna
bandaríska meistaramótinu um
helgina og þá hafði Sampras bet-
ur.
Andre Agassi hefur yfir vænsta
bankareikningnum aö ráða.
Hann hefur unnið sér inn 160
milljónir króna á yfirstandandi
tímabili. Sampras kemur
skammt á eftir með 152 miiljónir
króna. í þriðja sæti er Þjóðveij-
inn Thomas Muster með 133
milljónir. Tennisiþróttin getur
gefiö vel af sér. Svíinn Jonas
Björkman, sem er í 20. sæti á líst-
anum, hefur unnið til 40 milljóna
króna á keppnistímabilinu.
Golf-Ryder Cup:
Woosnamtekur
sæti Olazabals
Breytingar hafa verið gerðar á
Ryder-cup liði Evrópu sem mætir
liði Bandaríkjanna í næstu viku.
Spánverjinn Jose Maria Olazabal
getur ekki spilað vegna meiðsla á
fætí og hefur Bretinn Ian Wooss-
nam verið valinn i hans stað.
Woosnam hefur leikið í síðustu
sex keppnum með liöi Evrópu.
„Auðvitað er mjög slæmt að
missa Olazabal úr liðinu en
björtu hliðarnar eru þær að geta
valið einn stórmeistara í golfinu
þegar annar fellur út,“ sagði
Bernard Gallacher, fyrirliöi Evr-
ópuiiðsins, í gær.
Knattspyma:
Kristinn valdi
18stúlkurfyrir
Rússaleikinn
Kristinn Björnsson, landsliðs-
þjálfari kvenna í knattspymu,
hefur valið 18 leikmenn fyrir leik
íslands gegn Rússlandi næstkom-
andi sunnudag á Laugardalsvelli.
Liðið er þannig skipað:
SigríðurF. Pálsdóttir.........KR
Sigfríður Sophusdóttir
....................Breiðabliki
Guðlaug Jónsdóttir............KR
Ásgerður Ingibergsdóttir.....Val
Ragna Lóa Stefánsdóttir
.....................Stjömunni
Katrin Jónsdóttir....Stjömunni
Margrét Ólafsdóttír ....Breiðabliki
HelgaÓ. Hannesdóttir
...................Breiðabliki
Vanda Sigurgeirsd....Breiðabliki
Laufey Siguröardóttir.........íA
Guörún Sæmundsdóttir.........Val
Kristbjörg Ingadóttir........Val
Auður Skúladóttir....Sljörnunni
ÁsöaÉur Helgadóttir Breiðabliki
SigrúnOttarsdóttir ....Breiöabliki
Erla Hcndriksdóttir ...Breiðabliki
Jónína Víglundsdóttir.........ÍA
Ingibjörg H. Ólafsdóttir......tA
Iþróttir
Fyrri leikur Raith Rovers og ÍA1 Skotlandi í kvöld:
Spilar Nicholl sjálfur
gegn Skagamönnum?
- er til taks 1 kvöld vegna veikinda Jim McInaUy
Víðir Sigurðsson, DV, Skotlandi:
Jimmy Nicholl, framkvæmdastjóri
skoska knattspyrnufélagsins Raith
Rovers, er tilbúinn aö taka fram
skóna og spila með liði sínu gegn
Skagamönnum í UEFA-bikarnum í
kvöld. Skoska blaðið Dundee Courier
skýrði frá þessu í morgun.
Nicholl er orðinn 38 ára og margir
muna eftir honum sem bakverði hjá
Manchester United og norðurírska
landsliðinu um árabil en hann spil-
aði einnig með Sunderland og
Glasgow Rangers. Nicholl lék 16 leiki
af 36 með Raith í 1. deildinni í fyrra
en hafði hugsað sér að hætta að spila
og einbeita sér að stjórnuninni.
Mclnally veikur
Ástæðan fyrir þessum hugleiðingum
Nicholls er sú að miðjumaðurinn Jim
Mclnally hefur átt við veikindi að
stríða og ólíklegt er aö hann geti leik-
ið gegn ÍA í kvöld. Mclnally er lykil-
maður á miðjunni hjá Raith og eini
leikmaður liðsins með reynslu úr
Evrópukeppni en hann lék þar mikið
með Dundee United, meðal annars
gegn FH fyrir fimm árum.
Mclnally er með vírussýkingu og
hefur lést um hálft íjórða kíló á
nokkrum dögum. Hann var tekinn
út af í hálfleik þegar Raith lék viö
Rangers í úrvalsdeildinni á laugar-
daginn. Fari svo að Mclnally geti
ekki leikið mun Nicholl spila á miðj-
unni í hans stað.
Dennis verður með
þráttfyrir brjósklos
Að öðru leyti mun Raith teíla fram
sínu sterkasta liði. Shaun Dennis,
besti vamarmaður Raith, spilar þrátt
fyrir að vera með brjósklos í baki.
„Ég finn ekkert fyrir þessu eins og
er en um leið og þetta fer aftur verð
ég skorinn upp og það kostar 12 vikna
fjarveru," sagði Dennis við Dundee
Courier.
Um lið ÍA sagði Dennis: „Akranes
er frambærilegt lið með mjög góðan
árangur á heimavelli í Evrópu-
keppni. Þess vegna er gífurlega mik-
ilvægt fyrir okkur að vinna heima-
leikinn, helst án þess að fá á okkur
mark. Við getum ekki leyft okkur
frammistöðu eins og í seinni leiknum
við GÍ í Færeyjum sem endaði 2-2.“
Akranes erfiðari
prófraun en GÍ
Jimmy Nicholl segir í samtali við
sama blað: „Þessi leikur er okkur
gífurlega mikilvægur og Akranes
verður okkur erfiðari prófraun en
GÍ. Við megum ekki hleypa íslenska
liðinu inn í leikinn og verðum að
kæfa allar aðgerðir þess í fæðingu."
Leikur Raith og ÍA fer fram á
Stark’s Park, heimavelli Raith, í
bænum Kirkcaldy í kvöld og hefst
klukkan 18.30 að íslenskum tíma.
Búist er við troðfullum velli en að-
eins 5.400 áhorfendur komast þar að
í Evrópukeppni.
Jason Williford mátaði Haukabúninginn i gær ásamt verðandi samherja í Hafnarfjarðarliðinu, Jóni Arnari Ingvars-
syni. DV-mynd S
MiMll liðsstyrkur til Hauka í körfuknattleik:
Kröftugur Kani
- kemur frá einu sterkasta háskólaliði Bandaríkjanna
Körfuknattleiksdeild Hauka í Hafn-
arfirði hefur samið við bandaríska
körfuknattleiksmanninn Jason Willi-
ford og mun hann leika með liðinu í
úrvalsdeildinni næsta vetur.
Jason þessi á óvenju glæsilegan fer-
il að baki. Hann kemur frá háskól-
anum í Virginíu sem telst vera með
eitt besta skólaliðið í keppni banda-
rísku háskóladeildarinnar. Lið Virgi-
níu leikur í ACC-riðlinum sem er sá
besti. í honum leika meðal annars lið
frá North Carolina og Duke.
Á síðasta leiktímabili komst lið
Virginíu alla leið í 8-liða úrslit þar sem
það tapaði naumlega fyrir liði Ark-
ansas sem varð meistari 1994. Lið
Virginíu lék gegn Arkansas án síns
besta leikmanns, Corys Alexander,
sem valinn var í fyrstu umferð há-
skólavalsins af San Antonio Spurs.
Hefur leikið alla leiki
Virginíu í þrjú ár
í þessu sterka liði Virginíu hefur Ja-
son Williford verið sterkur hlekkur.
Hann hefur leikið alla 96 leiki liðsins
síðustu þrjú árin og verið í byrjunarl-
iðinu í 83 þeirra. Hann er fyrst og
fremst þekktur fyrir frábæran varn-
arleik og þótti einn allra besti varnar-
leikmaður ACC-riðilsins. Þar þurfti
hann að gæta leikmanna eins og
Grant Hill og fleiri. Williford er mjög
sterkur í fráköstum og hefur verið
annar frákastahæsti leikmaður liðs-
ins síðustu tvö ár. Þá er hann talinn
mikilvægur hverju liði hvað það varð-
ar að hvetja menn áfram.
Býðst ekki svona leik-
maður á hverjum degi
„Williford hefur mætt á eina æfmgu
hjá okkur og mér líst mjög vel á hann.
Þaö er greinilegt að hér er mjög sterk-
ur leikmaður á ferð. Hann er 1,95
metrar og 100 kíló. Það er búið að
semja við hann. Það tók ekki langan
tíma enda ekki á hverjum degi sem
okkur býðst leikmaður erlendis frá
með álíka bakgrunn,” sagði Jón Arn-
ar Ingvarsson, leikmaður Hauka, í
samtali við DV í gær.
Breytt stefna
hjá Haukunum
- Þið hjá Haukum hafið greinilega
breytt um stefnu frá því í fyrra. Þá
lékuö þið án erlends leikmanns. Hvað
breyttist?
„Við settumst niður og ræddum
málin. Niðurstaðan varð sú að með
einum erlendum leikmanni myndum
við komast í fremstu röð og verða á
ný með í toppbaráttunni. Að öðrum
kosti hefði það eflaust tekið mun
lengri tíma,“ sagði Jón Arnar.
Logi Ólafsson, þjálfari ÍA:
Tel að við
getum sigrað
- mun sterkara liö en Shelboume
„Lið Raith Rovers er mun sterkara
en írska liðið Shelbourne sem við
sigruðum um daginn. En ef við spil-
um þann varnarleik sem við getum
hef ég ekki miklar áhyggjur, færin
munu koma og ég tel að við getum
sigrað ef við spilum af skynsemi og
krafti, þótt jafntefli yröi vissulega
mjög ásættanleg úrslit," sagði Logi
Ólafsson, þjálfari ÍA, viö DV í gær-
kvöldi.
Spilaðgegnog
undan brekku
Skagamenn hafa dvalið í Skotlandi
síðan á laugardag til að búa sig und-
ir leikinn við Raith Rovers í kvöld.
Þeir æfðu á velli Raith, Stark’s Park,
í gærkvöldi og Logi sagði að völlur-
inn sem slíkur væri mjög góöur en
stæði þó í merkilega miklum halla
þannig að menn lékju gegn brekku
annan hálfleikinn en undan henni
hinn!
„Ég sá Rangers vinna Raith, 4-0, í
úrvalsdeildinni á laugardaginn. Ra-
ith spilaði vel fyrstu 20-25 mínútum-
ar en átti síöan ekki svar við mönn-
um á borð við Paul Gascoigne, Brian
Laudrup og Oleg Salenko. En leik-
menn Raith sýndu virðingarverða
baráttu og reyndu að spila fótbolta
allan tímann," sagði Logi.
Hann hefur enn fremur skoðað
upptökur frá leik Raith við GÍ í Fær-
eyjum í forkeppninni og úrslitaleik
liðsins við Celtic í deildarbikar-
keppninni í fyrra, auk þess aö hafá
séö styttri glefsur úr leikj um liðsins.
„Lið Raith er vel skipulagt með
ágæta vörn og hættulega menn
frammi, Crawford, Rougier og Gra-
ham. Við fórum varlega til að bypja
með, munum pressa þá hæfilega og
ekki hleypa þeim of nálægt okkar
marki og sjá hvar við stöndum.”
sagði Logi.
Þórður rúmfastur
allan tímann
Markvarslan er helsta áhyggjuefni
Loga því Þórður Þórðarson hefur leg-
ið veikur á hótelinu síðan Skaga-
menn komu til Skotlands. „Hann var
slappur í dag en þó á batavegi og
verður vonandi tilbúinn í slaginn,”
sagði þjálfarinn.
Bjarki Gunnlaugsson hefur verið
meiddur í læri en hefur æft eðlilega
með ÍA ytra og getur leikið með
þannig að Skagamenn munu stilla
upp sínu sterkasta liði í Kirkcaldy í
kvöld.
Slá Skagamenn
Raith út úr
Evrópukeppnínni?
Jimmy Nicholl, framkvæmda-
stjóri Raith Rovers, þekkir vel þá
Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni.
Þeir fóru fyrir nokkrum árum
með unglingaliöi Glasgow Rang-
ers á mót á Ítalíu og þá var Nic-
holl einmitt þjálfari unglingaliðs-
ins.
Eftir mótið mælti Nicholl meö
því við stjóm Rangers að félagið
semdi við tvíburana sem fyrst.
Þaö gekk ekki eftir og úr varð aö
þeir fóru til Feyenoord i Hollandi
í staðinn.
Þjálfaraskipti hjá
Skaganum og Val
- Vanda, Hinrik og Eiríkur endurráðin
Ingibjörg Hmriksdóttir skrifer:
Línur eru nú óðum að skýrast í þjálfara-
málum 1. deilar kvenna. Viðræður við
Vöndu Sigurgeirsdóttur, Breiðabliki, Hin-
rik Þórhallsson, ÍBA, og Eirík S. Sigfús-
son, Aftureldingu, munu vera á lokastigi
og allar líkur eru á að þessir þjálfarar
verði áfram hjá sínum liðum. Þá hefur
Sigurlás Þorleifsson verið orðaður við
ÍBV.
Ragnheiður fer utan
Ragnheiður Víkingsdóttir, Val, og Smári
Guðjónsson, Akranesi, hafa bæði lýst því
yfir að þau muni hætta þjálfun. Ragnheið-
ur er á leið til útlanda og Smári sagði í
samtali við DV að hann væri búinn að
þjálfa Skagastúlkur í 4 ár af síðustu 5 árum
og það væri kominn tími til að breyta til.
Óljóst hjá Stjörnunni og KR
Óljóst er um stöður þeirra Jóns Óttarrs
Karlssonar, Stjörnunni, og Einars Sveins
Árnasonar, KR, en samkvæmt heimildum
DV hafa báðir vilja til að halda áfram með
lið sín. Jón Óttarr sagði í samtali við DV
að hann væri heitur fyrir endurráðningu
en þó ekki að óbreyttu, Stjörnuliðiö vant-
aði t.d. frambærilega kantmenn.
England: Fyrstisigur- Tvöfalt hjá Reyni og írisi Grindavík sicaraði Hauka
inn hjáChelsea Chelsea vann í gærkvöld fyrsta sigur sinn i ensku úrvalsdeild- inni í knattspymu á þessu tíma- bili, 1-3 gegn West Ham á Upton Reynir Guðmundsson og íris Ellertsdóttir úr HSK sigruðu bæði tvöfalt'á fyrsta opna badmintonmótinu í haust sem fram fór í Hveragerði á sunnudag- inn. Reynir sigraði í einliðaleik í A-flokki og í tvíliðaleik með Óskari Braga- syni. íris sigraði í einliðaleik í B-flokki og í tvíliðaleik ásamt Tinnu Sæmunds- dóttur. Þá sigraði Hrafnkell Bjömsson, HSK, í einliöaleik karla í B-flokki. Grindavík er í ööra sæti Reykjanesmótsins í körfuknatt- leik að lokinni fyrri umferð eftir að hafa sigrað Hauka, 97-89, í Grindavík í gærkvöldi. Þegar
Park. John Spencer 2 og Dennis Wise skoi-uðu fyrir Chelsea en Óli bestur á Vífilsstaðavelli raotið er hálfnað er Keflavik með 6 stig, Grindavík 4, Haukar 2 en Niarðvík ekkert stig.
sem er enn án sigurs. Svíþjóð: JafnthjáÖrgryte Óli Laxdal úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar sigraði í keppni án for- gjafar á opna Diamondhead golfmótinu sem haldið var á Vífilsstaðavelli á sunnudaginn. Hann lék á 71 höggi en síðan komu Ingi Rúnar Gíslason, GKG, og Ottó Sigurðsson, GKG, báðir á 73 höggum. Sigurbjörn Kristjánsson, GKJ, sigraði í keppni með forgjöf á 63 höggum nettó. Stórsigrar hjá ÍRogKR
ogTrelleborg Rúnar Kristinsson og félagar í Örprvtfi eprftu 0-4) iafntefli á Hamburger vill fá Keegan ÍR vann Leikni, 111-63, og ÍS tapaði fyrir KR, 43-81, í opna Reykjavíkurmótinu í gærkvöldi. Þar er riðlakeppnin hálfnuð og í
heimavelli við Treíleborg í sænsku úrvalsdeildinni í knatt- - spymu í gærkvöldi. Öster og Hammarby skildu jöfn, 1-1. Ör- gryte er i 8. sæti með 24 stig. Þýska knattspyrnufélagið Hamburger SV vill fá Kevin Keegan, stjóra enska félagsins Newcastle, til að taka við stjórn liðsins. Hamburger hefur gengið afar illa og aðeins fengið þrjú stig í fyrstu fimm leikjunum í úrvalsdeild- inni. Keegan spilaði með Hamburger á árunum 1977-1980 og er félagið til- búið að greiða upp samning hans við Newcastle fyrir rúmar 300 milljónir króna. A-riöli er KR með 4 stig, ÍS 2 en Valur ekkert. í B-riðli er ÍR með 4 stig, Breiðablik 2 en Leiknir ekkert.
Kristinn Björnsson segist ekki ætla að fara ótroðnar slóðir með
kvennalandsliðið í Evrópuleikjunum framundan.
Kristinn Bjömsson, landsliðsþjálfari kvenna, um Evrópukeppnina framundan:
„Þurfum að mæta ákveðnum kröfum“
- tekst íslensku stúlkunum að fylgja eftir góðum árangri frá í fyrra?
Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar:
Evrópukeppni kvennalandsliða hefst
fyrir okkur íslendinga næstkomandi
sunnudag þegar íslenska liðið mætir
Rússum á Laugardalsvelli. íslenska
kvennalandsliðið stóð sig frábærlega í
fyrra þegar það fór alla leið í átta liða
úrslit en beið þar naumlega lægri hlut
fyrir Englendingum.
Nýr þjálfari tók viö liðinu sl. vetur,
Kristinn Björnsson sem síðari hluta
sumars hefur leitt Valsmenn á sigur-
braut í 1. deild karla. Kristinn til-
kynnti 18 manna hóp í gær en hvernig
líst honum á leikina framundan?
„Evrópukeppnin leggst vel í mig. Ég
hef enga ástæðu til að ætla að við eig-
um minni möguleika núna en í fyrra.
Riðillinn okkar núna er sterkari enda
er liðið hærra skrifað og er í 4. sæti á
Evrópulistanum. Ég og stelpurnar í
liðinu vitum að við þurfum að mæta
ákveðnum kröfum því nú vita leik-
menn annarra þjóða að við erum engir
aukvisar, ganga út frá því sem vísu að
við séum lið með einhvern slagkraft.
Þau lið sem við mætum verða betur
undirbúin þannig aö annað hvort vöx-
um við eða komum einhverju veik-
lyndi í dæmið og þá er ekki aö sökum
að spyrja.
Liðið núna er góð blanda af ungum
og eldri stúlkum. Við erum með mjög
efnilegar stúlkur sem eiga framtíöina
fyrir sér og góða eldri leikmenn svó
það er gott jafnvægi innan liðsins.”
Er ekki ánægður
með alla hluti
Á sunnudaginn lék liðið æfingaleik við
úrvalslið Mizuno-deildarinnar og sigr-
aði nokkuð örugglega en annars hefur
verið hljótt um landsliðið.
„Já, mér fannst leikurinn lofa góðu.
Ég hef ekki haft tækifæri til þess aö
hafa neitt í gangi og ekki fengiö neina
leiki fyrir utan þessa tvo landsleiki
gegn Portúgölum í vor og þeir gáfu
ákveðinn tón. Síðan kom deildin og þar
voru ákveðnir hlutir að þróast. Sumir
leikmenn fóru upp og aðrir niður. Eg
setti upp ákveðið liö fyrir pressuleik-
inn þar sem nokkrir leikmenn eru
ekki með. Vanda (Sigurgeirsdóttir) var
meidd, Guðlaug (Jónsdóttir) er í
Bandaríkjunum og Ásthildur (Helga-
dóttir) var veik. Eg gat því ekki sett
upp þá mynd sem ég hefði helst viljað
sjá. Eg er ekki ánægður með alla hluti.
Eg hefði gjarnan viljað fá einn eða tvo
leiki í viðbót til að láta hugmyndina
smella saman. Ég lét leikinn rúlla svo-
lítið til að sjá ákveðnar konur í öðrum
stöðum og finna út það sem hentar
okkur best, svo við séum með góða og
fljóta vörn, trausta og góöa miðju og
svo verðum við að hafa einhvern hraða
í sókninni. En ég er ekki alveg farinn
að sjá hvernig þetta smellur saman.
Það er ljóst að liðið frá því í fyrra er
svolítið breytt. Olga, sem var lykillinn
í sóknaraðgerðum í fyrra að mörgu
leyti, hefur til dæmis ekki verið að
spila eins vel í sumar og hefur verið
að punktera eitthvað á sjálfri sér. Ég
er að reyna að finna einhverja sem er
heit í það verkefni og hef viku til að
að komast einhverri niðurstöðu.”
Veit ekkert um rússneska liðið
Hefur þú fengið einhveijar upplýs-
ingar um rússneska liðið?
„ Nei, ég hef engar upplýsingar feng-
ið um þetta rússneska lið. Veit ekkert
hvernig það leikur.hvort þær eru stór-
ar eða litlar, ungar eða gamlar. Það
væri betra að vita eitthvaö. Ef við höld-
um svipuðum gæðum og í fyrra ættum
við að eiga mjög góða möguleika en
þetta verður erfitt, landsleikir eru allt-
af erfiðir."
Alltaf mádeila um
einstaklinga
Hvernig gekk að velja landsliðshóp-
inn?
„Ég vissi hvernig landið lá, var búinn
að sjá allar stelpurnar spila og valdi
tiltölulega stóran hóp. Úrslitin úr
pressuleiknum sýna það að ég er ekki
langt frá sannleikanum þó að alltaf
megi deila um einstaklinga. Ég fer ekki
ótroðnar slóðir með landsliðið. Logi
lagði upp ákveðna hluti með kvenna-
landsliöinu þegar hann var með þaö
og ég ætla ekkert að fara að setja á fjór-
hjóladrifið til að koma mér út úr því.“
Sterk varnarvinna lykillinn
aðgóðum árangri
„Við erum ekki í þeirri stööu að fara
að spila einhvern glæfralegan sóknar-
leik. Lykillinn að góðum árangri í
fyrra var sá að það náðist að byggja
upp þokkalega sterka varnarvinnu í
liðinu og síðan voru menn duglegir að
nýta sér þau færi sem buðust," sagði
Kristinn Björnsson, kvennalandsliðs-
þjálfari.
Leikurinn gegn Rússum er á Laugar-
dalsvelli á sunnudag og hefst kl. 20.
Síðan er leikið heima gegn Frökkum
30. september og Hollendingum 7. okt-
óber en útileikirnir fara fram á næsta
ári.