Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1995, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1995
25
Fréttir
Leikhús
MiöáíDölum:
Vaðandi
laxagöngur
„Viö fengum 11 laxa og 26 bleikjur,
stærsti laxinn hjá okkur var 18 pund
og það er sá stærsti í sumar sem
veiöst hefur í ánni,“ sagði Árni Sig-
urpálsson í samtali við DV en hann
var að koma úr Miðá í Dölum. En
laxinn og silungurinn er að hellast í .
ána síðustu dagana sem má veiða á
þessu sumri í ánni.
„Þessi stóri fiskur, 18 pund, veidd-
ist í hylnum fyrir neðan Selfoss og
ég var klukkutíma að landa honum.
Veiðivon
Gunnar Bender
Veiðistaðurinn er erfiður þarna efst
í ánni. Það var maðkurinn sem gaf
þennan fisk. Það var hellingur af
fiski á leið í ána, vaöandi göngur
neðarlega í ánni. Ég fór að kíkja síð-
asta kvöldið sem við vorum og fiskur
var á flestum stöðum og mikið sums
staðar. Áin hefur gefið 60 laxa og
kringum 700 bleikjur. Það eru til
feiknavænar bleikjur í ánni og þær
stærstu kringum 6-7 pundin," sagði
Árni lokin.
333laxar á land
úr Stóru Laxá í Hreppum
í Norðurá í Borgarfirði endaði
veiöiskapurinn í gær og veiddust um
1650 laxar í ánni þetta áriö. Stóra
Laxá í Hreppum hefur gefið 333 laxa
og svæði eitt hefur gefið langbest eða
220 laxa. Veiðin hefur verið að
glæðast á svæði fjögur og eru komn-
Árni Sigurpálsson með stærsta lax-
inn úr Miðá í Dölum, 18 punda fisk
sem hann veiddi í Selfossi eftir
klukkutíma baráttu. Áin hefur gefið
60 laxa og 700 bleikjur.
DV-mynd FER
ir 66 laxar á land. Hítará á Mýrum
hefur gefið næstum 400 laxa.
-G.Bender
Karl Björnsson, bæjarstjóri á Selfossi, til vinstri, með 18 punda lax sem
hann veiddi í Hvitá i félagsskap föður sins, Björns Þórhallssonar, fyrrver-
andi verkalýðsleiðtoga. DV-mynd KE Selfossi
Bæjarstjórinn
náði þeim stóra
Kristján Einarsson, DV, Selfossi:
Karl Björnsson, bæjarstjóri á Sel-
fossi, tók sér frí frá störfum um dag-
inn og brá sér í veiðitúr með föður
sínum, Birni Þórhallssyni, fyrrver-
andi varaformanni Alþýðusambands
íslands.
í þessari veiðiferð gerði hann sér
lítið fyrir og landaði 18 punda laxi
eftir stutta en snarpa viðureign. Þeir
feðgar veiddu fiskinn við Iðubrú í
Biskupstungum á stað þar sem
Stóra-Laxá og Hvítá mætast. Laxinn
tók spúninn Salamander.
„Þetta var skemmtileg viðureign,
laxinn tók verulega í og hann stökk
allur upp úr vatninu að minnsta
kosti þrisvar sinnum. Viðureignin
tók um það bil 20 mínútur. Þetta
bjargaði sumrinu hvað veiðiskap
varðar. Ég hef lítið getað stundað
veiðina og var orðinn hálfáhugalaus.
Pabbi, sem er mikill áhugamaður um
laxveiði, tók mig svo með í þessa
veiði og nú er áhuginn og veiðieðlið
komið í 100% aftur,“ sagði Karl og
bætti við: „Þaö mátti vart á milli sjá
hvor okkar var spenntari við að
landa ferlíkinu. Pabbi hafði nokkr-
um dögum áður veitt 20 punda lax á
sama stað sem tók flugu. Það er gam-
an að veiða svona fisk og að ég tali
ekki um að deila gleðinni í góðum
félagsskap,“ sagði Karl, bæjarstjóri á
Selfossi. Hann ætlar að láta reykja
fiskinn og gefa síðan samstarfsfólki
sínu á bæjarskrifstofunum að
smakka í einum kafíitímanum þar á
bæ.
ÞJÓDLEIKHÚSID
Sími 551 1200
Stóra sviðið
ÞREK OG TÁR
ettir Ólaf Hauk Símonarson
Lýsing: Páll Ragnarsson
Leikmynd: Axel H. Jóhannesson
Búningar: Maria Ólafsdóttir
Tónlistarstjórn: Egill Ólafsson
Dansstjórn: Ástrós Gunnarsdóttir
Leikstjórn: Þórhallur Sigurósson
Leikendur: Hilmir Snær Guönason, Edda
Heiðrún Backman, Jóhann Sigurðarson,
Edda Arnijótsdóttir, Gunnar Eyjólfsson,
Anna Kristin Arngrímsdóttir, Bessi Bjarna-
son, Þóra Friðriksdóttir, örn Árnason, Vig-
dis Gunnarsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir, Stef-
án Jónsson, Egill Ólafsson, Magnús Ragn-
arsson, Sigriður Þorvaldsdóttir og Sveinn
Þórir Geirsson.
Undirleik annast Tamlabandiö: Jónas Þórir
Jónasson, Stefán S. Stefánsson, Björn Thor-
oddsen, Ásgeir Óskarsson, Eirikur Pálsson,
Gunnar Hrafnsson, Egill Ólafsson.
Frumsýning föstudaginn 22/9 kl. 20.00,2.
sýn. Id. 23/9,3. sýn. fid. 28/9,4. sýn. Id. 30/9.
Smiðaverkstæðið kl. 20.00
TAKTU LAGIÐ, LÓA!
eftir Jim Cartwright
Föstud. 15/9, Id. 16/9, fid. 21/9, föd. 22/9, Id.
23/9.
SALA ÁSKRIFTARKORTA
STENDUR YFIR
6 leiksýningar
Verð kr. 7.840
5 sýningar á stóra sviðinu
og 1 að eigin vali á litla sviðinu
eða smiðaverkstæðinu
EINNIG FÁST SÉRSTÖK KORT Á
LITLU SVIÐIN EINGÖNGU,
- 3 leiksýningar kr. 3.840.
Miöasalan er opin frá kl. 13-20.
Einnig simaþjónusta frá kl. 10 virka daga.
Greiöslukortaþjónusta.
Fax: 561 1200
Sími: 551 1200
VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ!
Tilkyrmingar
Tombóla
Nýlega héldu þessar stúlkur, sem heita
Bjarma Magnúsdóttir, Anna Lind
Björnsdóttir, Sunna Lilja Björnsdóttir og
Auður Viðarsdóttir tombólu til styrktar
Konum og bömum í neyð. Alls söfnuðu
þær 1.758 krónum.
Tímaritið Sumarhúsið
Út er komið 3. tbl. Tímaritsins Sumarhús-
ið. Ýmsar áhugaverðar upplýsingar er
að fmna þar fyrir sumarhúsaeigendur og
ber fyrst að nefna öryggismál og bmna-
varnir í sumarhúsum. Blaðið liggur
frammi í hinum ýmsu þjónustumiðstöðv-
um í grennd við sumarhúsabyggðir og
er sent fritt til allra sumarhúsaeigenda.
Þeir sem hafa áhuga á að nálgast blaðiö
geta haft samband við útgefanda í síma
588 9300. Útgefandi er Kostir ehf. og rit-
stjóri Páll Júlíusson.
Orða-Rummikub á íslensku
Komið er á markað á íslensku Rumm-
ikub, leikur að orðum. Er þetta alþjóðlegt
spil sem gengur út á það að mynda sem
lengst orð úr 7-14 bókstöfum. 1 stig er
gefið fyrir hvern staf. Til að gefa spilið
út á íslensku varð að auka plötufjöldann
í því úr 102 í 133.
Fjarðarfell gefur spilið út og er það
ætlað 2-4 leikmönnum, 6 ára og eldri.
Ný snyrtivöruverslun
að Laugavegi
Að Laugavegi 66, 2. hæð, hafa Heiðar
Jónsson og Bjarkey Magnúsdóttir opnað
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Sala aðgangskorta stendur yfir
til 30. september.
Fimm sýningar aðeins 7200 kr.
Stóra sviðið kl. 20.30
LÍNA LANGSOKKUR
eftir Astrid Lindgren
Þýöandi: Þórarinn Eldjárn
Tónlistarstjórn og hljóöfæraleikur: Siguró-
ur RúnarJónsson
Lýsing: Lárus Björnsson
Leikmynd og búningar: Hlín Gunnarsdóttir
Dansar og hreyfingar: Auður Bjarnadóttir
Leikstjori: Asdís Skúiadóttir
Leikarar: Margrét Vilhjálmsdóttir leikur
Línu. Aðrir leikarar: Ari Matthíasson, Árni
Pétur Guójónsson, Eggert Þorleifsson, Ell-
ert A. Ingimundarson, Helga Braga Jóns-
dóttir, Jakob Þór Einarsson, Jóhanna Jón-
as, Jón Hjartarson, Margrét Helga Jó-
hannsdóttir, Soffía Jakobsdóttir, Sóley El-
íasdóttir, Theódór Júliusson, Þröstur Leó
Gunnarsson.
Unglingar og börn: Andri örn Jónsson,
Árni Már Þrastarson, Ásdís Lúóvíksdóttir,
Guömundur Elías Knudsen, Ester ösp
Valdimarsdóttir, Fanney Vala Arnórsdóttir,
Jóhanna Guömundsdóttir og Sara Margrét
Mikaelsdóttir.
Laugard. 16/9 kl. 14, fáein sæti laus,
sunnud. 17/9 kl. 14 fáein sæti laus, og kl.
17, fáeinsæti laus.
Rokkoperan
Jesús Kristur
SUPERSTAR
eftir Tim Rice og Andrew
Lloyd Webber
Fimmtud. 14/9, föstud. 15/9, uppselt, laug-
ard. 16/9, fáeln sæti laus, fimmtud. 21/9.
Miðasalan verður opin alla daga frá
kl. 13-20 meðan á kortasölu stendur.
Tekið er á móti miðapöntunum í sima
568-8000 frá kl. 10-12 alla virka daga.
Greiðslukortaþjðnusta.
Ósóttar miðapantanir seldar
sýningardagana.
Gjafakortin okkar,
frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
snyrtivöruverslun. Boðið er upp á per-
sónulega þjónustu og leiðbeiningar við
val á snyrtivörum. Námskeið í litgrein-
injp, fatastil og framkomu, fórðun og
íleiru verður á staðnum, sem áður voru
á Vesturgötu 19. Eins er boðið upp á nám-
skeið fyrir hópa sem vilja ráða námsefn-
inu að einhveiju leyti. Heiöar heldur
áfram að halda fyrirlestra fyrir alla þá
sem áhuga hafa.
Tapað fundið
Hjólataska tapaðist
Gul og svört hjólataska tapaðist á fostu-
daginn sl. milli kl. 16.30 og 17.30 á leið frá
Síðumúla niður á Skúlagötu. Finnandi
vinsamlega hringi í s. 564 2064. Fundar-
laun.
Safnaðarstarf
Áskirkja: Opið hús fyrir alla aldurshópa
kl. 14-17.
Dómkirkjan: Mömmumorgunn í safnað-
arheimilmu Lækjargötu 14a kl. 10-12.
Hallgrímskirkja: Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Aftan-
söngur kl. 18.00. - Vesper. Opið hús fyrir
foreldra ungra barna á morgun, miöviku-
dag, kl. 10-12.
Seltj arnarneskirkj a: Foreldramorgunn
kl. 10-12.
Breiðholtskirkja: Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu í dag kl. 18. Bænaefnum
má koma til sóknarprests á viðtalstímum
hans.
Fella- og Hólakirkja: Mömmumorgunn
miðvikudag kl. 10.
Kópavogskirkja: Mömmumorgunn í dag
í safnaðarheimilinu Borgum kl. 10-12.
Útblástur bitnar verst
á börnunum
níiifi
ijlIflHl
904-1700
Verð aðeins 39,90 mín.
1[ Fótbolti
2 [ Handbolti
: 3 [ Körfuboiti
41 Enski boltinn
5 ítalski boitinn
6 [ Þýski boltinn
[7j Önnur úrslit
8j NBA-deildin
lj Vikutilboð
stórmarkaðanna
; 2] Uppskriftir
1[ Læknavaktin
: 2 [ Apótek
31 Gengi
• 1 [ Dagskrá Sjónvarps
2J Dagskrá Stöðvar 2
l 3 [ Dagskrá rásar 1
4[ Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
; 51 Myndbandagagnrýni
61 ísl. listinn
-topp 40
7 j Tónlistargagnrýni
. 8 [ Nýjustu myndböndin
mmtani
1[ Krár
21 Dansstaðir
3[ Leikhús
41 Leikhúsgagnrýni
_5j Bíó
J6j Kvikmyndagagnrýni
'ÆMMmm
mer
1\ Lottó
2 Víkingalottó
3l Getraunir
ijÍifÍM
904-1700
Verð aðeins 39,90 mín.