Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1995, Page 32
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í
slma 562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er
notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
•m í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
550 5000
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
Frjálst,oháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1995.
Skipulagsnefnd:
Glæsiferð
kostar milljón
segir Gunnar Jóhann
„Eg hef kostnaöinn ekki alveg á
hreinu en hann losar örugglega
milljónina. Þetta er glæsiferö og að
mínu mati eiga menn ekki að fara í
slíka ferð á vegum skattborgaranna.
Ferðin dæmir sig sjálf,“ sagði Gunn-
ar Jóhann Birgisson, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, um ferð skipu-
lagsnefndar Reykjavíkurborgar til
Bretlands. Þrír fulltrúar R-lista, einn
frá Sjálfstæðisflokki og fjórir emb-
ættismenn fóru í tíu daga ferð, flogið
til Glasgow og heim frá London.
Gunnar Jóhann lét bóka að honum
fyndist einkennilegt að verið væri aö
skipuleggja glæsiferðir af þessu tagi
á sama tíma og Sjálfstæðisflokkurinn
*væri gagnrýndur fyrir óábyrga fjár-
málastjórn. Hann ákvað að sitja
heima. -sv
Hjábankastjóra:
„Eg er með
skammbyssu“
„Mér brá ofsalega og vissi ekki á
hverju ég ætti von. Maðurinn kom
^ít frá bankastjóranum og spurði
' okkur, sem biöum, hvort við vissum
hvað hann væri með? Hann var að
vingsa einhverju sem ég sá ekki al-
veg hvað var en sagði að það væri
skammbyssa og bað okkur að skila
því til bankastjórans að hann væri
vopnaður," segir Sigrún Ásgeirsdótt-
ir leikskólakennari sem varð vitni
aö ofangreindri uppákomu í aðal-
banka Búnaöarbankans á dögunum.
„Mér datt fyrst í hug að færa mig
úr skotlínunni enda skíthrædd þótt
ég sæi ekki greimlega hvað maður-
inn var með í höndunum. Maður,
sem var þarna á biöstofunni, sagði
að okkur kæmi ekkert við hvað hann
væri með. Þá ranglaði maðurinn út
og hvarf," segir Sigrún. -GK
Friðriksmótið:
Hannes Hlífar
einn efstur
Hannes Hlífar vann Helga Áss í 8.
umferð Friðriksmótins í gær og er
nú einn efstur á ný því Margeir og
Helgi Ólafsson gerðu jafntefli. Jón
Loftur vann Larsen, Jóhann vann
Gligoric og Smyslov vann Þröst.
Jafntefli varð hjá Friðriki og Polgar.
Staðan: Hannes 6 v. Margeir 5 'A v.
Jóhann, Jón, og Polgar 4'A v. Helgi
Ól. og Smyslov 4 v. Larsen og Glig-
-OTÍc 3 'A v. Helgi Áss 3 v. Friðrik og
Þröstur 2A v.
LOKI
Þetta hlýturað vera
skipulögð skoðunarferð!
íslenskt hrossakjöt á Japansmarkaði:
Gerlar gætu
stefnt útf lutn
ingi í hættu
Gerlar gætu stefnt útfiutningi á
hrossakjöti til Japans í hættu.
Kvartaiúr hafa ítrekað borist frá
japönskum kaupendum um gerla í
kjötinu og hafa augu beinst að til-
teknum sláturhúsum í því sam-
bandi. Takist ekki að koma í veg
fyrir vandamálið mun Félag
hrossabænda fara þess á leit við
yfirdýralækni að viðkomandi slát-
urhús verði svipt siáturleyfi.
Gríðarlega núklir hagsmunir eru
í húfi fyrir bændur því gott verð
hefur fengist fyrir hrossakjöt á
mörkuðum í Japan. Á nýliðnu
verðlagsári voru flutt út um 260
tonn af hrossakjöti til Japans sem
selt var á 500 til 1.000 krónur kíló-
ið. Þetta er um 10 prósent hærra
skilaverð til bænda heldur en fæst
fyrir kjöt á innlendum markaði
þegar tekíð hefur verið tiilit tú ails
kostnaðar sem fellur á kíötið.
Að sögn Halldórs Gunnarssonar
í Holti, framkvæmdastjóra Félags
hrossabænda, er geriavandamáiið
litið mjög aivarlegum augum af
framleiðendum. Hann segir Japana
fylgjast náið með gæðum vörunnar
og því verði að gera ríkar kröfur
til þeirra sem vinna kjötið hér á
landi. Því verði ekki hjá því komist
að óska eftir inngripum yflrdýra-
læknis takist viðkomandi siátur-
húsum ekki að uppræta gerlana.
Halldór segir markaðssetning-
una í Japan hafa gengið vel að öðru
leyti. Engin önnur kjöttegund gefl
eins núkið af sér í útflutningi.
Ýmis vandamál og nústök hafi þó
komið upp sem menn hafi lært af.
Til dænús hafi fyrir tveimur vikur
verið skipt um umbúðir sem ekki
stóðust kröfur. Kassarnir hafi
krumpast undan þyngslunum og
það hafi Japanar ekki sætt sig við.
„Þeir gera miklar kröfur og það
er okkar að koma tii móts viö þær.
Mistök geta alltaf skeð en af þeim
má læra. Þetta var tilfaliandi
vandamái með kassana sem við
höfum leyst. Gerlarnir eru hins
vegar mun alvarlegra mál,“ segir
Halldór. -kaa
Veiðihundurinn
hljóp fyrir björg
Jón Benediktsson, DV, Hvolsvelli:
Þau Hafdís Benediktsdóttir og Guð-
mundur Grettisson úr Kópavogi fóru
á gæsaskyttirí austur fyrir fjall í gær
og höfðu með sér heimilishundinn -
forláta tík af góðu veiðihundakyni.
Hundurinn, sem er þéttbýhshund-
ur, er venjulega í bandi með tak-
markað ferðafrelsi en var sleppt fyr-
ir austan. Frelsinu fegin var tíkin kát
og spretti úr spori. Þegar komið var
á gæsaslóðir hljóp hún um en gáði
ekki að sér. Galsinn var svo mikill
að hún hljóp fyrir björg og varð það
hennar bani.
Nú ríkir mikil sorg á Digranesveg-
inum og tíkarinnar er sárt saknað
af fjölskyldunni.
Heimilað að
flytja inn
kjúklinga
Bónus fékk í gær heimild til aö
leysa kjúklinga, sem verslunin flutti
til landsins frá Svíþjóð, út úr tolli.
Haföi yfirdýralæknir þá lokið athug-
un sinni á því hvort kjötið væri sýkt.
Svo reyndist ekki vera. Munu kjúkl-
ingarnir vera leystir út úr tolli er
Jóhannes í Bónusi kemur til landsins
enhannernúerlendis. -GJ
SVR-hækkunin:
Enn ein árásin
á fjölskyldufólk
- segir Arni Sigfússon
Bandariska borskipiö Sedco BB 271 liggur nú á Reykjavikurhöfn með bilað-
an bor. Skipið hefur verið við Grænland undanfarið og þar hafa menn ver-
ið að bora í botnlög og kanna þau. DV-mynd S
„Þetta er enn ein árásin á fjöl-
skyldufólk. Klósettskatturinn, 26
prósenta hækkun fasteignagjalda,
hefur veriö mest áberandi hingað til.
Nú kemur þessi hækkun þar sem 90
milljónir eru teknar beint úr vasa
notenda strætisvagna, aðallega ungl-
inga og aldraðra. Pólitísk samstaða
hefur veriö um að greiða niður far-
gjöldin. R-listaflokkarnir lögðu jafn-
an til lækkun en nú er blaðinu snúið
við,“ segir Árni Sigfússon borgarfull-
trúi.
Stjórn SVR hefur ákveðið að
hækka fargjöld frá 1. október og
hækka farmiðaspjöld aldraðra og
unglinga um 100 prósent, úr 500 í
1.000 krónur. Einstök fargjöld hækka
um 20 prósent og verða 120 krónur,
farmiðaspjöld fullorðinna hækka um
11 prósent og kosta 1.000 krónur,
Græna kortiö hækkar um 17 prósent
og kostar 3.400 krónur. Einstök far-
gjöld unglinga hækka um 20 prósent
og verða 60 krónur. Önnur fargjöld
verða óbreytt.
Fargjöld Almenningsvagna bs.
hækka frá 1. október. Græna kortið
kostar þá 3.400 krónur. Einstök far-
gjöld fullorðinna hækka úr 110 í 130
krónur, farmiðaspjöld hækka um 10
prósent og kosta 1.100 krónur. Enn
er óljóst hvort fargjöld aldraðra
hækka. -GHS
Veðrið á morgun:
Áfram
sæmilega
hlýtt
A morgun verður suðaustan-
kaldi eða stinningskaldi. Dálítil
rigning verður víða sunnanlands
og vestan- en þurrt og jafnvel létt-
skýjað norðan- og norðaustantil.
Áfram verður sæmilega hlýtt í
veðri.
Veðrið í dag er á bls. 28
I.ANDSSAMBAND
ÍSI.. RAI \ KRK I AKA
L*TT*
alltaf á
Miðvikudögum