Þjóðviljinn - 24.12.1950, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 24.12.1950, Blaðsíða 6
þ J Ó Ð VI L JI N N Jólin 1950 sig upp aö eyranu á henni. ,,Mamma,“ segir hann. Unga konan lýtur höfði, og drengurinn: hvislar. einhverju að-, henni. ' i ';í' „Jæja, væni minn; farðu bara eitthvað. Farðu þarna á bak við styttuna," segir hún og bendir á Thorváld- sen. Drengurinn röitir af stað, cn snýr við aftur. „Mamma, cr hann líka skáld; lia, mamma?“ segir hann. „Æi nei, væni minn. Flýttu þér nú; við þurfum bráð- um að fara,“ segir imga konan án þess að líta upp. Drengurinn hverfur bak við Tliorvaldsen, cn ef 'hann hcfur ætlað að fela sig þar fyrir mcr, þá skjátlast hon- um hrapallega; cg veit allt um leyndarmálið. Haim kemur rétt strax aftur, og ég sé, að það hefur farið svolitið á aðra buxnaskálmina hans, en það gerir ckkert til, það þornar strax í sólskininu. DrengUrinn fer til móður sinnar og tyllir sér á bekkinn hjá hcnni. „Mamma,“ segir hann. „Stelpan sá mig ekki; var það rnamma?" Unga konan brýtur saman prógrammið og stingur þvi í véskið sitt. „Nei, nei, væni minn. Hún sá þig ekkert; það sá þig enginn," segir hún og lítur nú fyrst til min og brosir feimnislega, eins og ungar mæður brosa, þegar ókunnug- ir menn eru að hlusta 'á masið í bömunum þeirra. Svo hneppir hún að sér blússunni sinni og stendur upp. „Jæja, væni minn. Eigum við að koma í Bíó og sjá hann Iloy- Manstu, hvað það var gaman áð honum um daginn ?“ segir hún og’tekúr í hönd drengsins síns, Og þau leiðast út úr garðinum, þar sem andamæðumar kenna ungum sínum að fela sig í sefinu, og stjúpmæður cg túlipanar teygja sig móti sólinni, og skáld Islands horfir á litla telpu með rauðan borða í liárinu, eins og hún væri engill með húfu og rauðan skúf....... Prokofiefí-bðSlelf: Öskubuska rBOKOFIEFF, rússneska tónskáldiö heimsfræga, lvefnr samiö bailett sem liyggöur er á ævintýrinu um Öskuhusku. Uöfundur testans nefníst Voikoif. — Myndiu or af ungrl rússneskri dansmær, Kajsa Strúlcovn, í nðnlhlutvprkinii. una, bæði fyrir hönd drengsins og Jónasar Hallgríms- sonar; þeir ættu sannarlega skilið að vera kynntir betur. Og ég lít um öxl, hikandi, en það er óþarfi; konan tekur ekkert eftir mér. Hún hefur látið á sig sólgleraugu og er að lesa prógrammið fyrir fimmsýninguna í Gamla Bíó. Ég þekki það; ég var sjálfur með það í gær. Að baki mér skrjáfar í laufi, þegar þrösturinn skýst iéttfleygur milli trjánna, að vitum mínum leggur höfga angan frá blómum og grasi; og hægra megin við mig stendur Jónas Hallgrímsson, skáld. Drengurinn kcmur aftur og teymir bilinn sinn. Hann staðnæmist fyrir framan móður sina, og ég sé, að hann býr yfir nýrri spurningu. „Mamma," segir hann; „hvað er skáld? ha, rnamma?" Unga konan iítur ekki upp úr prógramminu. „Æi, væni minn, skáld eru menn, sem búa til vísur og kvæði,“ segir hún. Mér dettur í hug, hvort hún mundi segja æi, væni minn, ef ég ávarpaði hana, og ég lít á Jónas Hallgríms- son og brosi afsakandi eins og til þcss að gera. gott úr þessu öllu saman. Én nú hafa ný vandamál ásótt drcng- inn. Hann' tekur í blússuermi móður sinnar og teygir i I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.