Þjóðviljinn - 22.03.1953, Blaðsíða 3
Sunnudagur 22. marz 1953 — ÞJÓÐVILJINN —(£
Heimilismaðui' bandarisku ílokhanna lalar:
© *
rar valda-
®*i
í Varðbergi sem /út kom í gær,
en aðstandendur þess ,-eru fyrst
og fremst traustir $jálfstæðis-
flokksmenn, svo og allmargir úr
hinum borgaraflokkunum, sem
finnst þeir hafa verið settir
skuggamegin við skiptingu ráns-
fengsins af striti íslenzkrar al-
þýðu. Það verður því ekki um
villzt að í Varðbergí tala ein-
ungis menn sem eru kunnugir
vel á heimilum bandarísku flokk
ianna. Þeir sögðu eftirfarandi
um njósnir í blaði sínu Varð-
bergi, undir fyrirsögninni:
„NJÓSNIR“.
„Búum við íslendingar þeg-
ar í lögregluríki? Því er veitt
eftirtekt, að á götum Reykja-
víkur halda sig iðjuleysingjar,
sem virðast hafa það eitt fyr-
ir stafni, að snuðra um um-
talsefni mamia. Þeir vikja sér
kumpánlega á tveggja manna
tal, leggja orð í belg, víkja
umtalsefninu inn á dægur-
mál, stjórnmál og persónur
til þess að heyra undirtektir
manna og kynnast skoðunum
þeirra. Þessum mönnum er
sérstök forvitni á að vita vh'
hverja menn tala, hvort þeir
hafa andlegt samneyti við
kommúnista eða aðra þá
menn, sem kunna að hafa hug
Neytendasamtök-
íiim S6m
99Fró«$legt ... sté vita undir hvaða gjaldpósta
rikisrekstursiu® vinnureikmugar og
kifreiéareikiiiugar falisr*
Þjóðviljinn heíur nokkrum sinnum skýrt nokkuð
írá njósnum stjórnarflokkanna og þá einnig njósnum
Bandaríkjamanna hér á landi, en þótt njósnakerfi
þessu sé öllu beint gegn alþýðu landsins og frjálsri
hugsun fólksins í landinu er það ærio margþætt í
ýmsum undirdeildum.
Einn úr hópi. njósnaflokkanna hefur nú talað, þar
sem honum er farin að blöskra uppvöðslusemi njósri-
aranna, svo og hve miklu fé er sóað til þessa fá-
nýta starfs.
Er einkum fróðlegt fyrir fylgjendur stjórnarflokk-
anna að lesa upplýsingar þessa heimilismanns”
bandarísku flokkanna á íslandi.
ga
sfoínað armað kvöld
Kínversk sfórmynd sýna í
kvöld á Þórsgöfy 1
fCvkmyndln •.lasSI fáiiÍHn á Tvú|kongftÍ£idi"
keliiE hvajveSna hlotið einréma lof
1 kvöld er tækifæri til aS sjá kínverska kvikmynd, er
tekin var fyrir tveimur árum og hlotið' einróma lof þar
sem hún hefur verSii sýnd. Mynd þsssi verSur sýnd aö
tilhlutun Kínanefndarinnar í salnum á Þórsgötu 1 í
kvöld cg hefst sýningin klukkan 9.
á að fara aðrar leiðir í skoð-
unum en valdhafarnir.
— Þessir menn eru njósnar-
ar valdaflokkanna, sem liggja
á hleri í þjóðfélaginu. —
Sérstök athygli er veitt
jeppabifreið einni hér í bæn-
um, sem eltir menn á röndum.
Óþarft mun að þreifa eftir
eyrnamörkum þessara manna.
En fróðlegt gæti orðið að vita
undir hvaða gjaldpósta ríkis-
rekstursins vinnureikningar
og bifreiðareikningar falla.“
Æ. F. II.
Málfundur verður í MÍR-
sa'num kl. 2 í dag. Umræðu
ef ni: Kosningarnar. Frum-
mælandi: Hörður Bergmann.
Þann, 26. .ian s. 1. boðuðu þau
Sveinn Ásgeirsson, Jónína Guð-
mundsdóttir og Jóhann Sæ-
mundsson til stofnfundar neyt-
endasamtaka og var þar lýst yfir
stofnun samtakdnna og þei,m
kjörin bráðabirgðastjórn. V,ar
stjórninni falið að semja upp-
kast að lögum og •starfsreglum
fyrir samtökin og boða til fram-
haldsstofnfundar, er markaði
nánar stefnu þeirra og starf.
Bráðabirgðastjórnin boðar nú
til framhaldsstofnfundarins ann
að kvöld og verður hann haldinn
í Tjarnarkaffi uppi. Verður þar
•gengið frá lögum félagsins og
stjórn kosin.
Bæjaipéstuf
Framhald af 4. síðu.
góða vöru lækkaða úr kr.
212.85 niður í kr. 170.60. —
Þakklát húsmóðir".
■k
KUNNUGUR skrifar: „Eg get
upplýst að liafnarstjóri fer
með alrangt mál þegap haan
lætur Bæjarpóstinn hafa það
eftir sér að olíuflutningaskip-
ið við Hæring sé aðeins venju
legt olíuflutningaskip óg
•flytji aldrei benzín. Mér er vel
kunnugt um að skipið flytur
aðeins flugvélabenzín að þessu
sinni og eköert aanað. Stund-
um er skipið notað til lier-
flutninga milli Keflavíkur og
Hvalfjarðar. Eg kann því illa
þegar opinberir embættismenn
gerast berir að því að gefa
rangar og villandi yf:rlýsing
ar og þessvegna bið ég Bæj-
arpóstinn fyrir þessar linur.
— Kunnugur.
Skemmtilegur
laudkysmingarfunáur á
Akrauesi
í dag kl. 4 e. h. heldur Ferða-
félag íslands landkyrmingarfund
í Bíóhöllinni á Akranesi.
Ferðafélag íslands hefur hald-
ið nokkra slíka landkynningar-
fundi á öðrum stöðum á land-
inu, og liafa þeir verið mjög
vinsælir og vel sóttir.
Á fundinum á Akranesi í dag
mun Jón Eyþórsson i-æða um
tilgang og starf Ferðafélagsins.
Þá skýrir Pálmi Hannesson rekt-
or litskuggamyndir er Páll Jóns-
son hefur tekið. Hallgrímur Jón-
asson, hinn vinsæli fararstjóri
iFei-ðafélagsins skýrir frá fyrir-
huguðum ferðum félagsins og að
lokum sýnir Guðmundur Einars-
son frá Miðdal kvikmynd er
hann nefnir Ferðaþættir.
Akurnesingar munu ekki sjá
eftir því að fara á landkvnning-
arfundinn í Bióhöllinni í dag;
hann verður bæði fróðlegur og
skemmtilegur.
Á fundi sem nýlega var
haldinn í Sikólafélagi Vélskól-
ans var samþykkt að gefa í
húsbyggingafsjóð Árnasafns
kr. 2500,00.
Ríkti mikill áhugi meðal
nemenda fyrir endurheimt
handritaana. Voru þeir á einu
máli um það, að söfnunin í
húsbyggingarsjóðinn yrði að
vera sem glæsilegust og sýna
þannig einhug þjóðarinnar í
handritamálinu. Er það von
nemenda að þessi litla gjöf
megi verða til þess að meiri
skriður komist á söfun þessa.
Vegna þess að eng.ar skýring-
ar á vesturlandamálum fylgja
myndinni, skal hér rakið í stuttu
•máli efni. hennar.
Árin kringum 1930 hafði rauði
herinn kínverskl náð á vald sitt
stórum landsvæðum í. Suður-
Kína. Myndin hefst á kynningu
fjölskyldu er heim.a á í þorpi
einu á þessum svæðum. Rauði
herinn hefur sigrazt á fjórðu
tortímingarherferð Kúomintang.
Herflokkur kemur heim í þorp-
ið. Foringi hans- segir fólkinu
að enn megi vænta árása og
hvetur menn til að ganga í her-
inn Forseti þorpsráðsins Sjang
Sjún-vang eggj.ar æskumenn
þorpsins til að gerast sjálfþoða-
liðar. Sonur hans, Sjan.g Meng-
tsú afræður að ganga í herinn
og honum fylgir þorri ungra
manna þorpsins.
Árið 1934 hefur rauði herinn
hina sögufrægu norðurgöngu, er
alþýðuhéruðin í Suður-Kína
urðu ekki lengur varin. Sjang
Meng-tsú er einn hermannanna
og hann lofar því að koma aftur
í þorpið sitt.
Eftir brottför rauða hersins
halda hersveitir Kúomíntang inn
í alþýðuhéruðin og svífast eins-
kis til hefnda á íbúunum. Er
gamli Sjang meðal þeirra sem
myrtir eru. Kona Sjang Meng-
tsú flýr í annað hérað og elur
þar upp barn sitt sem barn-
fóstra hjá ríkum landeiganda,
Feng. Hann er einn af mönnum
Kúomíntangs og beitir hinni
verstu harðstjóm. — Fjöldi
ungra manna flýr til fjalla og
hefja skæruhernað. Uppvíst verð
ur1 um aðsetur þeirra og er
■gerður leiðangur til að tortíma
þeim, en kona unga hermanns-
ins gerir þeim aðvart, svo þeim
tekst að sigrast á Kúomíntang-
4b
flokknum. Konan r.atar i miklar
raunir, gp. ekkert fær haggað
þeirri vissu hennar að rauði her-
inn og maðiir hfennar komi aft-
ur.
Og henni verður að trú sinni.
Sonur hennar vex úr .grasi og
r.auði herinn kernur suðureftir.
Kúgari héraðsins tekur með sér
mikið af varningi og neyðir
fjölda manna til að flýja með
sér upp á fjallið Tsújkong og
búast þar til varnar. Rauði her-
inn heldur áfram sigurför sinni
en skilur eftir hersveit til iað
taka Tsújkongfjallið, undir
sítjóm Sjang Mena-tsú. iHann
hafði komið í fæðingarbæ sinn,
en fundið heimili sitt í rústum.
Kona hans er ein þeirra sem
flutt hefur verið til fj.allsins.
Nótt eina segir hún syni sínum
ævisögu sína og sendir hann til
alþýðuhersins. Það kemst upp
og konunni er misþyrmt, en hún
hótar illlvirkjunum nálægri
hefnd.
Sonur hennar og Sjangs kemst
til aðalstöðva alþýðuhersins og
hittir þar föður sinn. Hann, flyt-
ur með sér upplýsingar frá
skæruliðunum og alþýðuherinn
sigrar í harðri orustu. Þegar
rauði fáninn blaktir á fjalls-
tindinum fagna þau endurfund-
um, Sjang, kona hans og sonur.
auglýsingaaðíerð
Fyrirspurn til þeirra
sem vita
Af hver.ju verður ekki úlvarp
að í dag ræðu Steins Dofra :
stúdentafundinum um liandrita-
málið?
Þorvaldur Þórarinsson.
Því verður tæplega mótmælt
að verzlanir hér í bæ hafi sýnt
nokkra tregðu i því að halda
fram innlendum iðnaðarvörum
til jafns við erlendar og ekki
minnist ég þess að hafa heyrt né
séð lauglýsingar frá smásölu-
verzlunum um ágæti innlendrar
framleiðslu, fyrr en nú síðustu
daga að Kron hefur byrjað að
auglýsa Sjafnar hreinlætisvörur'
í útvarpinu.
Vonandi ber að taka þetta
sem vott um vaxandi skilning
á innlenda iðnaðinum og ber því
að fagna, en óneitanlega hefði
ég talið betur fara á því >að
Kron, sem er samtök neytenda
í Reykjavík hefði valið til aug-
lýsinga vörur sem framleiddar eru
hér í bænum og á þann hátt
stuðlað að auknu atvinnulífi í
bænum.
Nú mun e'nhver segja að það
sé ekki nema eðlilegt að Kron
auglýsi þessar vörur umfram
aðrar því þær séu framleiddar
af „samivinnufcírintaaiki". Þetita
væru rök' ef framkoma þessara
„samvinnufyrirtækja“ gagnvart
réttmætum launakröfum starfs-
fólks síns hefði verið í anda
samvinnustefnun'ftar, en hún hef-
ur síður en svo verið til fyrir-
myndar. Það atriði getur ekki
verið einskisvert í augum neyt-
endafélags sem .að langmestu
leyti er myndað af launþegum
Björn Bjarnason.
Kyiming
skeiiimti-
krafta
Hafin er kyrning skemmti-
krafta í Þjóðleikhúskjallaran-
um á sunnudögum og verður
þriðja kynningin í dag klukk-
an 3.15.
Þar muQ Gestur Þorgrímsson.
herma eftir hljóðfærum og
söngvurum, m.a. nýjustu send-
ingunni frá Svíþjóð: Snoddas.
Tigulkvartettinn syngur. Þjóð-
dansaflokkur er Sigríður Val-
geirsdóttir stjórnar, sýnir en.
Moravek og Árni ísleifsson
leika. á milli atriða. Kaffi er
selt á hóflegu verði. Aðgangur
er 10 krónur.
Málarasveinafélag Reykjavíkur
25 ára afmælishóf
félagsins verð’ur haláið föstudaginn 27. marz í
Þ j óðleikhúskj allaranum.
Hófið hefst með borðhaldi kl. 6.30
Skemmtiatriði — Dans.
Aðgöngumiöar veröa seldir kl. 5—7 og eftir kl. 8
mánudaginn 23. marz í skrifstofu Sveinasam-
bandsins í Kirkjuhvoli.
Síðir kjólar, dökk föt.
Skemmtinefndin.