Þjóðviljinn - 17.06.1953, Blaðsíða 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 37. júní 1953
• i 1 dag er miðvikudagurliin 17.
^ Þjóðliátíðardagrur lslendinga.
167. dagur ársins.
Nýlega voru
gefin saman í
hjónaband á
Norðfirði af sr.
Inga Jónssyni
ungfrú Ilse Inge Wagner, frá
Torgau í Þýzkalandi, og Bjarni
Gunnarsson vélstjóri.
Synodusguðsþjón-
usta verður í dóm-
kirkjunni, föstud.
19. júní kl. 10.30
__ f.h. Fyrir altari
þjóna sr. Friðrik A. Friðriksson,
Húsavik,- og. sr. Björn Jónsson,
Keflavík. — Sr. Jón Auðuns dóm-
prófastur prédikar og lýsir vígslu.
Prestvígsla: Biskup vígir cand.
theol. Ingimar Ingimarsson til
Raufarhafnarprestakalls. Vigslu-
vottar prófessor Ásmundur Guð-
mundsson, sr. Jakob Jónsson, sr.
Birgir Snæbjörnsson og sr. Björn
Jónsson. Hinn nývágði prestur flyt
ur ræðu og guðsþjónustunni lýkur
Þetfa er oð lifa þjóSlifi
Kjörskrá fyrir Beykjavík ligg-
ur frammi í kosningaskrif-
stofu Sósíallstafiokksins, I>órs-
götu 1.
Ungbarnavernd I.íknar
Templarasundi 3 er opin þriðju-
daga kl. 315—4 og fimmtudaga kl.
I30—230.. — Á föstudögum er opið
fyrir kvefuð börn ki. 3“—4.
Beiðrétting
1 frásögn af opnun Vorsýningar-
innar í Listamannaskálanum í gær
misrituðust nöfn tveggja þátttak-
enda, þeirra Guðmunau Andrés-
dóttur og Ásmundar Sveinssonar,
Eru þau beðin velvirðingar á þeim
mistökum.
Helgidagslæknir
er Skúli Thoroddsen, Fjölnisvegi
14. — Sími 81619.
T.æknavaröstofan Austurbæjar-
skólanum. Sími 5030.
Það sem mest á ríður fyrir þann,
sem fulltrúi á að vera, er, að
hann hafj sanna, brennandi,
óhvikula föðurlandsást. Eg meina
ekk,i þá föðuriandsást, sem ekk-
ert vill sjá eða við kannast ann-
að enn það, sem við gengst á land
inu á þeirri tíð sem hann er á,
sem þykir allt fara bezt sem er,
og allar breytingar að öllu óþarf-
ar eða ómöguligar, en ef breyt-
língar eru gjörðar sem eru móti
hans geði, dregur sig óðar aptur-
úr og spáir að allt muni koll-
steypast; eg meina heldur ekki
þá föðuriandsást, sem vill gjöra
föðurlandi sínu , gott einsog,
ölmusumann;, sem einskis eigi
úrkösti, vill láta umliverfa öllu
og taka upp eitthvað það sem
liggur fyrir utan eðli landsins og
landsmanna, eða sem hann hefir
þókzt sjá annarsstaðar, vegna
þess hann sér ekki dýpra enn í
það, sem fyrir augum ber. Eg
meina þá föðmiandsást, sem
elskar land sitt EINSOG það er,
kannast við annmarka þess og
kosti, og vill ekki' spara sig til
að styrkja framför þess, hagnýta
kostina en bægja annmörkunum;
tónlist (pl.) 16.00 Barnasamkoma
þjóðhátíðardagsins (á Arnarhóli);
a) Lúðrasveitin Svanur lelkur. b)
Sr. Friðrik Friðriksson talar. c)
Telpnakór úr Melaskólanum syng-
þá föðurlandsást, sem ekki lætur ur- d) Gest,ur Þorgrímsson og
Baldur og Konni skemmta. e)
Anný Ólafsdóttir (12 ára) syngur.
GAGN LANDSINS eða ÞJOÐAR-
INNAR liverfa sér við neinar
freistíngar, fortölur né hótanir,
skimp né skútyrði; þá föðurlands-
ást, sem heimfærir allt það sem
hann sér, gott og illt, nytsamt og
óþarft, til samanburðar við þjóð
sína, og sér allt einsog í gegnum
skuggsjá hennar, heimfærir allt
henni til eptirdæmis eða viðvör-
unar. Þetta er að lifa þjóðlífi, og
það er augljóst og óbrigðult, að
sá sem þannig lifir, hann mun
ekki spara neitt ómak til að út-
vega sér hinn annarin kost, sem
verður að vera þessum fyrsttalda
samfara, ef hann á ekki að verða
tómt skrum og grundvallarlaus
og ávaxtarlaus liégómi, sem þýt-
ur útí loptið við minnsta vind-
blæ mótmælanna, eða slitnar
við minnstu áreynslu; þessi kost-
ur er: Kunnugleikj á landinu og
ástandi þess í öllu tilliti... —
(Jón Sigurðsson: ' Um alþíng,
1842).
Næturvarz.Ia i
teki. Sími 1760.
Reykjavíkurapó-
Veit þá engi . . .
Veit þá engi, lað eyian hvíta
iátt hefur daga, þá er fagur
frelsisröðull á fjöli og hálsa
fagurleiftriandi geislum steypti?
Veit þá engi, iað oss fyrir löngu
aldir stofnuðu bölið kalda,
frægðinni sviptu, framann
heftu,
svo föðurláð vort er orðið
að háði?
(Jónas Hallgrímsson).
Sósíalistar í Kópavogi
Kosningaskrifstofan er á Snæ-
landi, sími 80468, opin frá 3-6
e.h. Hafið samband við skrif-
stofuna, og Ijúkið söfnun upp-
lýsinga sem fyrst.
Kjósendur Sósíaistaflokksíns
i tvímenningskjördæmunum. — Ef
þið þurfið að kjósa fyrir kjördag
muni'ð þá að skrifa C (prent-C,
ekki skriftar-C) á kjörseðilinn.
★ Gefið kosningaskrifstofu Sósí-
alistaflokksins upplýsingar um
alla þá kjósendur flokksins,
sem eru á förum úr bænum
eða dvelja utanbæjar eða er-
lendis og þá hvar.
Félagar! Komið í skrifstofii
Sósíalistafélagsins og greið-
ið gjöld ykkar. Skrifstofan
er opin daglcga frá kl. 10-12
f.h. og 1-7 e.h.
Kl. 9.00 Morgunút-
varp. 10.10 Veður-
fregnir. 12.10 Há-
degisútvarp. 14.00
Útvarp frá þjóðhá-
tíð í Reykjavík: a) Guðsþjónusta
i Dómkirkjunni. Ásmundur Guð-
mundsson próf. prédikar. Dóm-
kirkjukórinn og Einar Kristjáns-
son óperusöngvari syngja. Páll ís-
ólfsson leikur á org-elið. b) 14.30
Hátíðahöldin við Austurvöll: For-
seti Islands leggur blómsveig að
fótstalli Jóns Sigurðssonar. Á-
varp Fjallkonunnar. Ræða forsæt-
isráðherra. — Lúðrasveitir ieika.
15.00 Miðdegistónleikar: Islenzk
1 . >>_.
f) Almennur söngur ofl. Sigfús
Halldórsson stýrir samkomunni.
17.30 Veðurfregnir. — Lýst iþrótta-
keppni í Reykjavík (Sigurður Sig-
urðsson). 19.25 Veðurfregnir 19.30
íslenzk lög. 19.45 Auglýsingar.
20.00 Fréttir. 20.20 Útvarp frá
þjóðhátíÖ í Reykjavík (hátíðahöld
á Arnarhóli: Lúðrasveit Reykja-
víkur leikur. Ávarp: Þór Sand-
holt form. þjóðhátíðarnefndar. —
Samsöngur: Karlakór Reykjavík-
ur og Karlakórinn Fóstbræður
syngja. Ræða: Gunnar Thorodd
sen. Einsöngur og ivísöngur: Óperu
söngvararnir Hjördis Schymberg,
Einar Kristjánsson og Guðmundur
Jónsson syngja. Þjóðkórinn syng-
ur. 22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.05 Danslög ofl. (útvarpað frá
skemmtunum á Lækjartorgi, Lækj
argötu og Austurstræti). Hljóm-
sveitir Aage Lorange, Bjarna
Böðvarssonar og Björns R. Ein-
arssonar leik. Dagskrárlok kl.
02.00.
Útvarpið á morgun
Fastir liðir eins og venjulega. Kl.
20.00 Erindi: Hafnarfjörður á
tímamótum; I. (Ólafur Þorvalds-
son þingvörður). <20.50 Islenzk
tónlist: Ný lög eftir Skúla Hall-
dórsson (Höfundurinn leikur)
21.10 Vettvangur kvenna. Dagskrá
Kvenréttindafélags Islands í til-
efni minningardags kvenna 19.
júní. Ávarp, upplestur og lög eftir
íslenzkar konur. 22.10 Sinfónískir
tónleikar (pl.): a) Fiðlukonsert
nr. 5 í a-moll op. 37 eftir Vieux
temps (Jascha Heifetsz og Sinfón-
íuhljómsveit Lundúna leika; Sir
Malcolm Sargent stjórnar). b)
Sinfónía í f-moll eftir Vaughan
Williams (Sinfóníuhljómsv. brezka
útvarpsins leikur; höf. stjórnar).
Ileimilislíf á íþróttaöld: . . . áslandið er mjög hættulegt---------það
verður sífellt hættulega--------hvað verður úr þessu----------?
hófninní*
EIMSKIP:
Brúarfoss fór frá Rotterdam í
gær til Antverpen og Reykjavík-
ur. Dettifoss fór frá Reykjavik
í gær áleiðis til Belfast, Dublin,
Warnemiinde, Hamborgar, Ant-
verpen, Rotterdam og Hull. Goða-
foss fer frá Huil i dag áleiðis
til Reykjavíkur. Lagarfoss fór frá
Reykjavik á þriðjudag áleiðis til
New York. Reykjafoss fer frá Ak-
ureyri á morgun til Húsavikur og
þaðan til Finnlands. Selfoss fór
frá Gautaborg í gær áleiðis til
Austfjarða. Tröllafoss og Giinther
Hartman eru í Reykjavík. Dranga
jökull fer frá New York í dag á-
leiðis til Reykjavíkur.
Ríklsskip:
Hekla fer frá Osló í kvöld áleið-
is til Gautaborgar. Esja er á Aust-
fjörðum á norðurleið. Herðubreið
er á leið frá Austfjörðum til
Reykjavíkur. Skjaldbreið fór frá
Reykjavik vestur um land til
Akureyrar. Þyrill var á Akurevri
í gærkvöld. Skaftfellingur fór
frá Reykjavik í gærkvöld til Vest-
mannaeyja.
Sklpadeild S.Í.S.
Hvassafell fór frá Kotka 13. þm.
til Reykjavikur. Arnarfell fór frá
Þorlákshöfn 15. þm. til Álaþorg-
ar. Jökulfell er í New Yórk. Dís-
arfell átti að fara frá Hull í gær
áleiðis til Þorlákshafnar.
Krossgáta nr. 104
Áskrífendasími Landnemans er ★ Gjörið svo vel að gefa kosn-
Jónas ingaskrifstofunni upplýsingar
um kjósendur Sósíalistaflokks-
ins sem eru á förum úr bænum
7510 og 1373.
Árnason.
Kitstjóri
Lárétt: 1 dregur lpft 4 hvílt 5
þátíð 7 fraus 9 hreinsa 10 þvotta-
efni 11 brún 13 tímarit 15 bók-
stafir 16 rausnarlegur
Lóðrétt: 1 tenging 2 aflaði 3
kyrrð 4 karlmannsnafn 6 skálma
7 rís 8 hrós 12 trjátegund 14 elds-
neyti 15 skammst.
Lausn á nr. 103
Lárétt: 1 blástur 7 al 8 Dóra 9
kló 11 agg 12 tá 14 an 15 ætri
17 át 18 nam 20 Atlimár
Lóðrétt: 1 baka 2 111 3 sd 4 TÓA
5 urga 6 ragna 10 ótt 13 Árni 15
ætt 16 iam 17 áa 19 má
Eftir. skáldsöfu Clurles de Costers * Teiknínear eftir Helge Kúhn-Nielsen
66. dagur.
Vorið var bjart og fagurt, og þau undu
vel i húsi sínu: Satiína sat i birtunni við
gluggann, Klér raulaði vísu fyrir munni
sér við vinnu sína, en Ugluspegili háfði
sett dómarahúfu á koll Snata. Hann stóð
upp á endann einá og hann væri áð kveða
upp dóm, en hann var bara að reyna að
losna við húfuna.
Allt í einu stökk Ugluspegill á fætur og
hentist yfir borð og stóla með hendur á
lofti. Hann ætlaði að handsama fuglsunga
er villzt háfði inn um gluggann; en nú
pipti hann og skrækti af angist, og flaug
alveg upp undir loftið og reyndi að fóta
sig á smákvisti.
Hversvegna læturðu svona, drengur? spurði
KJér reiðilega. — Eg ætla að taka þennan
unga, setja hann í búr og láta hann svo
syngja fyrir mig, svaraði Ugluspegill, En
fuglinn hélt áfram að flögra um í angist
sinni, og hann rak sig hvað eftir annað á
rúðuna, því hann hélt að þar væri opið út.
Klér lagði hramminn á öxl Ugluspegils:
Settu hann bara í búr, en þá skal ég lika
sétja þig í búr; og það skal vera traust-
lega gert, og þú skált svo sannarlega fá
að syngja þar eins og þig lystir. Þú skalt
raunar fá að lilaupa um — en aðeins inn-
an veggja búrsins!
Miðvikudagur 17. júní 1953 — ÞJÓÐVILJINN — (3
mm
• Menntaskólanum í Reykjavík var sagt upp í gær í 107. sinn
og fengu 130 stúdentar afhent skírteini sín, 81 úr máladeild
og 49 úr stærðfræðideild. Hæsta einkunn á stúdentsprófi hlaut
Gústa I. Sigurðardóttir, I. ágætiseinkunn, 9,18. Við skólaupp-
sögn fluttu fulltrúar 60, 50 og 25 ára stúdenta ávörp og færðu
skólanum gjafir.
1 upphafi skólaárs voru- í
skólanum alls 518 nemendur,
166 stúlkur og 352 piltar í 22
bekkjadeildum. Af þeim voru
394 Reykvíkingar, en 124 ut-
anbæjar. Undir árspróf gengu
404 nemendur, þar af 33 ut-
anskóla. Af þeim luku 375
prófi, 314 stóðust, en 61 féll
(flestir í 3. bekk). Ágætisein-
kunn hlutu 4, I. einkunn 97, II.
einkunn 149 og III. einkunn
64. Hæstu einkunnir á ársprófi
hlutu þessir nemendur: Þor-
steinn Sæmundsson, 5. X, ág.
9,29, Ketill Ingólfsson 3. B, ág.
9,14, Pálmi Lárusson 3. B, ág.
9,01 og Erlendur Lárusson 5. X
ág. 9,00. Undir stúdentspróf
gengu 132 nemendur og luku
130 prófi, 81 úr máladeild og
49 úr stærðfræðideild. Af þeim
voru 11 utanskóla, 6 í mála-
deild og 5 í stærðfræðideild.
Aldrei hafa brautskráðst svo
margir stúdentar áður. Af stúd-
entum hlaut 1 ágætiseinkunn,
68 I. einkunn, 59 II. einkunn
og 2 III, einkunn. Hæstu eink-
unn á stúdentsprófi hlutu þess-
ir riemendur;
Máladeild: Gústa I. Sigurð-
ardóttir, ág., 9.18, Gauti Arn-
þórsson, I. 8,84, Margrét Sig-
valdadóttir, I., 8,79 og Ingvi
M. Árnason, I., 8,63.
Stærðfræðideild: Sigurbjörn
Guðmundsson, I., 8,71, Hörður
Halldórsson, I., 8,65, Björn
Höskuldsson, I., 8,61 og Örn
Garðarsson, I., 8,57.
Úr verðlauna- og minninga-
sjóðum skólans hlutu þessir
nemendur verðlaun:
Legatssjóður Jóns Þorkels-
sonar rektors: Gústa I- Sigurð-
ardóttir, 6. A.
Verðlaunasjóður P. O. Christ-
ensens lyfsala og konu hans:
Lokatölur í ítölsku kosning-
unum urðu þær, að stjómar-
samsteypan fékk 13,488,813, en
andstæðingar hennar 13 598,788
eða 109,975 fleiri atkv. Kosn-
ingabrella De Gasperis er þá
endanlega úr sögunni. Vinstri-
flokkarnir tveir fengu 10,080,
002 atkv., þaraf kommúnistar
6,122,638, og bættu við sig
tæpum 2 millj. atkvæða. en
stjórnarsamsteypan tapaði tæp-
um 3 millj.
Gauti Arnþórsson, 6. B.
Minningarsjóður Jóhannesar
Sigfússonar yfirkennara: Borg-
hildur Thors, 6. C, og Gústa
I. Sigurðardóttir, 6. A.
íslenzkusjóður: Sveinbjörn
Bjömsson, 3. B.
Meðal þeirra
sem tóku til
máls á fundi
Heimsfriðar-
ráðsins í Búda-
pest í gær, var
þýzki kenni-
maðurinn
heimskunni,
séra Martin
Niemuller.
Hann ræddi
m.a. um end-
urfæðingu hemaðaxandans í V-
Þýzkalandi og þá hættu sem
heimsfriðnum stafaði af honum.
Fiisidiariiiii i
IjJaiialst Mé
Framhald af 1. síðu.
í Reykjavík þekkja, Erla Egilson,
fulltrúi íslenzkna kvenna i bar-
áttu gegn hernámi og eymd,
unigi Dagsbrúnarmaðurinn Ragn-
ar Gunnarsson; Gunnar IM.
Magnúss, forvíigismaður hreyf-
inigarinnar þjóðareining gegn her
í landi, — hvert og eitt kom
með sín.a reynslu og þung rök
fyrir nauðsyn^ fylgis við Sósíai-
istaflokkinn í þessum kosningum.
Hámarki sínu náði fundurinn
er Stefán Ögmundsson flutti mjög
áhrifaríka ræðu til þeirra seni
hafa kosEúngaréít og með ræðu
Einars Olgeirssonar er sýndi
fram á að kosninigasigur Sósíal-
istaflokksins hlyti að gerbreyta
stjómmálaástandLnu, fella hina
hötuðu ríkisstjórn hernámsflokk-
anna.og skapa möguleika á far-
sælli stjórnarstefnu.
1 ræðuhléi kom svo hinn af-
burðasnjalli upplestur Gerðar
Hjörleifsdöttur á ættjarðarkvæð-
um.
Fundur þessi ber glæsilegt
vitni sókn Sósíalistaflokksins í
Reykjavik og boðar gott um
kosningaúrslit.
Minningar- og verðlaunasjóð-
ur dr. phil. Jóns Ófeigssonar
yfirkennara: Gústa I. Sigurðar-
dóttir, 6. A, Þorsteinn Sæ-
mundsson, 5. X.
Verðlaunasjóður 40 ára stúd-
enta frá Latínuskólanum i
Reýkjavík 1903: Ingvi M.
Árnason, 6. B.
Minningarsjóður Páls Sveins-
sonar yfirkennara: Sigríður
Jónsdóttir, 6. C, og Valdimar
Örnólfsson, 6. B.
Við skólauppsögn voru stadd
ir fulltrúar eldri árganga, og
fluttu þeir skólanum árnáðar-
óskir og gjafir. Fyrir hönd 60
ára stúdenta talaði séra Frið-
rik Friðriksson. Færði liann
skólanum lieillaóskir, endaði
ræðu sína á latínu og bað
drottinn að blessa ungu stúd-
entana. Gísli Sveinsson fyrrv.
sendiherra hafði orð fyrir 50
ára stúdentum. Afhenti liann
heiðursskjal, ritað á latínu.þeim
stúdent, sem hlaut beztu eink-
unn í latínu, en 40 ára stúd-
entar frá Latínuskólanum i
Reykjavík 1903 liöfðu stofnao
sjóð í þessu skyni. Voru verð
laun veitt úr þessum sjóði nú
í fyrsta sinn. Verðlaun. þess:
hlaut Ingvi M. Árnason. Fyrir
hönd 25 ára stúdenta færði dr.
Óskar Þ. Þórðarson skólanum
að gjöf málverk af Jóhannesi
Sigfússyni, fyrrverandi yfir-
kennari, málað af Ásgeiri Bjarn
þórssyni.
Skrá yfir nöfn nýju stúdent-
anna verður birt í næsta blaði.
Frá Verzlunar-
skólanum
Lærdómsdeild Verzlunarskól-
ans var slitið kl. 2 í gær að
viðstöddum kennurum, aem-
endum lærdómsdeildar og all-
mörgum gestum. Sextári stúd-
entar brautskráðust. Hæstu
einkunn á stúdentsprófi að
þessu sinni hlutu: Örn Arnar
Rvík, 7,31 (Örstedskerfi). —
Önnur í röðinni var Anna
Soffía Sturlaugsdóttir Rvík,
7,05 og þriðji Þorvarður Al-
fonssoa frá Hnífsdal, 7,00. Hér
fara á eftir nöfn hinna nýju
stúdenta: Anna Soffía Stur-
. laugsdóttir, Álfþór Brynjar
Jóhannsson, Bergur V. Jónsson,
Guðjón Þorvarðsson, Guðlaug-
ur Sæmundsson, Guðmundur
Gíslason, Halldór Sigmundsson,
Hervör Hólmjárn, Sigurður
Ásmundsson, Sólrún Kjartans-
dóttir, Þorkell Valdimarsson,
Þorvarður Alfonsson, Þórir Sig-
urðs,son Gröndal, Þórunn B.
Gröndal, Örn Arnar, Emil
Páisson (utanskóla).
Niemúller
Fær Hannibal borgað samkvæmt
ákvæðisvinnutaxta?
Eins og kuimugt er er AB-blaðið mjög sjaldséð í
Reykjavík, og er helzt keypt af mönnum sem áhuga
hafa á sjaldséðum hlutum og skringilegum. Hefur sá
lesendahópur ekki þótt sigursírangleg'ur rétt fyrir kosn-
ingar, og hefur Hanníbal nú gripið til þess ráðs að
láta bera Alþýðublaðið í hvert hús, auk þess sem stór-
um hlöðum er kastað imi á vinriustaði, og skulu menn
neyddir til þess að sjá blaðið. Ault þess ganga böm
um götumar með mikla bunka og hrópa: „Alþýðublað-
ið ókeypis“!!
En það er einnig athyglisvert að eftir að farið var
að gefa þannig margar þúsundir eintaka liefur efni
blaðsins svo til eingöngu verið þvaður um Sósíalista-
flokkinn, mestmegnis skáldverk eftir Hannibal, af sömu
gerð og sagan fræga um Egil rauða. Sýnir þetta efnis-
val vel hvert cr lilutverk þessa blaðs, hvaða verk hinni
„ábyrgu stjórnarandstöðu“ er ætlað að viima af yfir-
boður'unnm: Það er vandfundin í blaðinu nokkur gagn-
rýni á ríkisstjórniiia og barátumál á það engin til nema
upprifjun á elztu hugsjómnn flokksins, sem nú eru löngu
útbrunnar.
En það er athyglisverð staðreynd að um leið og þessi
elfda „barátta gcgn komniúnismanum“ hófst, voru hafn-
ar gjafir á blaðinu. Eins og rakið var í Þjóðviljanum í
gær, hefur bandaríska sendiráðið milljónir handa á milli
til þess að nota til áróðurs hér á landi. Skrif Alþýðu-
hlaðsins virðast benda á að greiðslan til Ilanníbals fari
fram samkvæmt ákvæðisvinnutexta, liann fái ákveðsð
ií dálk. Enda er senn allt blaðið undirlagt!
Ný skáldsaga Haiiníbals í
f
Hannibal birti nýja skáldsögu í blaði sínu í gær. í þetta sinn
var hún ekki um Egil rauða heldur kaffistofuna Miðgarð. Fjall-
ar skáldskapur Ilannibals um „endurtekin samningrof og neit-
nn forstöðumannanna (Miðgarðs) að leiðrétta samningsrofin"!
Til aðstoðar við skáldsagna-
gerðina fékk Hanníbal að þessu
sinni Þorstein Pétursson starfs-
mann. Fulltrúaráðsins — og
þarf engan að fræða á því
hvernig sá m.aður umgcngst
sannleikann.
Enda þótt flestir Reykvíking-
ar viti nú orðið að þegar Hanni-
bal æpir sem hæst er ekki orð
af samnleika í fullyrðingum
hans, þá leitaði ÞjóíViljinn sér
upplýsinga í máli þessu í gær.
Staðreyndirnar í málinu eru
þessar: Engin samnmgsrof hafa
átt sér stað, hinsvegar var til
staðar lítilsháttar misskilning-
ur um frídaga, misskilningur
sem var Ieiðréttur.
Það eina sem vikið hefur
verið frá kjarasamningum
stiilknanna er unnið hafa á
Miðgarði er að flestum þeirra
hefur verið greitt hærra kaup
en samningar segja til um. Slík
eru þau , endurteknu samnings-
rof“ sem l(verkalýðsforinginn“
Hanníbal fárast yfir!!
Ástæðan til þess að stúlk-
urnar fóru voru fyrst og fremst
persónulegar ástæður og að
þeim bauðst hærra kaup á
Keflavikurflugvelli:
Það er uppspuni frá rótum
að þvottakonan hafi verið rek-
in, eins og meðfylgjandi vott-
orð sýnir:
„Ég undirrituð votta hérmeð
að það eru tilhæfulaus ósann-
indi að ég hafi sl. vor verið
rekin úr atvinnu minni við
ræstingu hjá veitingastofunni
Miðgarði.
16. júní 1953.
Lousia Eiríksdóttir“.
Rósenhergmáli 3
Framhald af 1, síðu,
Iiower forseta bréf í gær, þar
sem þau báðu hann um að þyrma
lífi sínu. í bréfinu ítreka þau
sakleysi sitt, þau biðja íorsetann
um að koma í veg' fyrir að „þessi
glæpur sem væri verri en morð“
verði franiinn.
Það hefur vakið athygli um
allan heim, að Herriot, forseti
frianska þjóðþingsins, skarst í
leikinn í 'gser og sendi Eisenhow-
er skeyti þar sem hann biður
hann í nafni mannúðarinnar að
þyrma lífi Rósenbergshjónanna.
Tilboð pólsku stjórnarinnar um
griðastað til lianda Rósenbergs-
hjónum og börnum þeirra mun
vafalaust verða þungt á metun-
um, þegar Eisenhower tekur
ákvörðun sína.
í "útvarpsfréttum í gær var,
sagt frá þvi, -að hópur þekktra
■franskra og brezkra rithöfunda
hefðu sent Eisenhower skeyti, en
nöfn þeirra voru ekki tilgreind.
Indverska nefndin á fundi
friðarráðsins í Búdapest sendi í
gær Nehrú forsætisráðherra
Indlands, sem nú dvelst í Sviss,
skeyti, og bað hann um að beita
úhrifum sínum til að bjarga
Rósenbergshjónunum.
Égaskriístofa SósíaSistaflokksÍ!
Þórsgötu 1 — Sími 7510
Skrifstoían gefur allar upplýsingar varðandi kosningarnar
Kjörskrá liggnr frammi
Flokksfélagar og aðrir, sem þurfa upplýsingar varðandi kosningarn-
ar, eru beðnir að hafa sem fyrst samband við skrifstofuna.
Skrifstofan er opin frá kl. 10—10. — Sími 7510.