Þjóðviljinn - 17.06.1953, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 17.06.1953, Blaðsíða 8
£)' _ ÞJÓÐVILJINN _ Miðvikudagur 17. júní 1953 ✓------------------------------------:--------' N Kosningasknfstofur Sósíaiistaflokksins utan Reykjavíkur eru á eftirfarandi stöðum: Hafnaríirði Góðtemplarahúsinu, simi 9273 Kópavoqshreppi Snælandi við Nýbýlaveg, simi 80468. Keflavík Garöavegi 8, opin kl. 1-10 daglega Siglufirði Suðurgötu 10, sími 194. Akureyri Hafnarstræti 88, simi 1516. . Vestmannaeyjum Vestmannabraut 49, sími 296. Auk þess gefa trúnaðarmenn flokksins á öðrurn stöðum allar upplýsingar varðandi kosningarnar. i._______:________________________________________✓ A ÍÞRÓTTIR RITSTJÓRl. FRÍMANN HELGASON Akranes - KR keppa á morgun Á morgun keppa til úrslita í A-riðli íslandsmótsins Akra- nes og KR.Það er aðeins tæpt ár síðan þessi félög áttust við síð- ast og KR tók Islandsmeistara- titilinn frá Akranesi. Það er þvi ástæða til að ætla að þetta. verði leikur þar sem barizt verður af kappi og fjöri hverja sek- undu meðan leikur stendur og úthald leyfir. í fyrra tókst KR að halda smni fyrirframgerðu „hernað- aráætlun" sem fyrst og fremst beindist að því að gera þá Þórð og Ríkarð sem áhrifaminnsta. Hæpið er að sú áætlun mundi takast í ár. Fyrst og fremst vegna þess að lið Akraness er mun jafnara en í fyrra bæði í sókn og vörn. Auk þess er ekki ótrúlegt að Rikarður geri ráð fyrir að þetta verði reynt aft- ur. Að sjálfsögðu varðveita KR- ingar öll sín hernaðarleyndar- mál fyrir þennan leik. Eitt er víst að KR-ingar munu berj- ast og gera sem þeir geta til að halda titli og bikar. Á sama hátt munu Akranesingar gera allt til að sigra KR og hefna fyrir tapið í fyrra. Eftir leikjum beggja í vor virðist manni að Akranes ætti áð standa nær sigri með ó- breyttu liði. 1 knattspyrnu get- ur samt allt skeð, líka það að sá lakari sigri. Lið KR er þannig skipað: Bergur Bergsson, Hreiðar Ár- sælsson, Guðbjörn Jónsson, Hörður Felixsón, Steinn Steins- son, Steinar Þorsteinsson, Ólaf- ur Hannesson, Þorbjörn Frið- riksson, Hörður Óskarsson, Gunnar Guðmannsson og Sig- urður Bergsson. Lið Akraness mun verða það sama og leikið hefur hér í tveim leikjum und- anfarið. Fjórði ílokkui KR vann 6:1 á Akranesi Um s.l. helgi fór IV. fl. KR til Akraness til að keppa við jafnaldra sína þar og fóru leik- ar svo að KR vann með 6 mörk um gegn 1. Preston og Austria fra Aust- ríki gerðu jafntefli 2:2 í leik er þau léku í Luxemburg. Preston hafði forustu 1:0 í hálfleik. Austria er eitt fræg- asta lið Vínarborgar. Dagskrá hátíðahaldanna 17. júní 1953 Hátíðahöldin heijast: kl. 13,15 með tveim skrúðgöngum. — I Vesfurbænum heíst gangan við Melaskólann en í Austurbænum á Njarðargötu við Skólavörðutorg. Við Ausiurvö!!: kl. 14.00 Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. kl. 14.30 Forseti íslands hr. Ásgeir Ásgeirsson, leggur blómsveig að minnisvarða Jóns Sigurðssonar. kl. 14.40 Ávarp Fjallkonunnar. kl. 14.45 Forsætisráðherra, Steingrímur Stemþórsspn, ílytur ræðu. kl. 15.00 Lagt aí stað írá Alþingishúsinu suður á íþróttavöll og staðnæmzt verður við leiði Jóns Sigurðssonar. Á íþréttavellinum: kl. 15.30 Skrúðganga íþróttamanna. — Mótið sett. — Vikivaka- og þjóðdansasýning. — Bændaglíma. — Skylm- ingar. — Áhaldaleikfimi karla. — Leikfimi: 55 telpur —Handknattleikur karla og kvenna. — Frjálsar íþróttir. Á árnarhólstúni: kl. 16.00 Útiskemmtun fyrir börn.— Lúðrasveitin Svanur leikur. —Síra Friðrik Friðriksson ávarpar börnin. — Kórsöngur. Stjórnandi: Frú Guðrún Pálsdóttir. — Gestur Þorgrímsson skemmtir. — Vikivakar og þjóð- dansar, 9-12 ára börn. — Einsöngur: Anný Ölafsdóttir, 12 ára. — Baldur og Konni skemmta. Tivolí: kl. 16.00 Skemmtigarðurinn Tivoli opinn. — Aðgangur ókeypis. Kvöidvaka á Arnarhóli kl. 20.00 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur. kl. 20.30 Kvöldvakan sett. — Karlakór Reykjavíkur og Karlakórinn Fóstbræður syngja. kl. 21.00 Borgarstjórinn í Reykjavík, Gunnar Thoroddsen, flytur ræðu. — Reykjavíkurmars eftir Karl 0 Runólfs- son leikinn í fyrsta sinn opinberlega. kl. 21.15 Einsöngur og tvísöngur (ef veður leyfir): Hjördís Schymberg, konungieg hirðsöngkona, Einar Kristjánsson og Guðmundur Jónsson óperusöngvarar. Þjóðkórinn syngur. Stjórnandi: Dr. Páll ísólfsson. Dansað til kl. 2.00 Á Lækjartorgi: Hljómsveit Aage Lorange. Á Hófel íslands-lóðinni: Hljómsveit Björns R. Einarssonar. Á Lækjargöfu: Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar. kl. 22.45 verða dansaðir þjóðdansar á Lækjartorgi með þátttöku almennings. — Gamanvísur o.fl. verðasungnar á dansstöðunum. kl. 02.00 Hátíðahöldunum slitið frá Lækjartorgi. v I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.