Þjóðviljinn - 15.07.1953, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 15.07.1953, Qupperneq 4
4) — ÞJÓÐVILJLNN — Miðvikudagur 15. júli 1953 Samfara því, að forustu- menn íþróttamálanna hafa igerst áfjáðir í samskiptum við setuliðið og lagst í andstöðu við öll önnur menriingarsam- tök í landinu, hafa þeir skip- að sjálfa sig í nokkurskonar óíslenzka nefnd að fyrinmynd óamerísku mefndarinnar í Bandaríkjunum. Þessi sjálf- skipaða óíslenzka nefnd er mynduð af meirihluta sam- bandsstjórnar og nánustu fylgismönnum hennar. Og nú, eftir stjómarkjörið, má vafa- laust álykta, að öll stjórn fþróttasambandsins tilheyri ó- íslenzku nefndinni. Þessir imenn hafa við ótal mörg tæki- færi misnotað ,aðstöðu sína í íþróttahreyfingunni, dregið rnenn í pólitíska dilka og reynt að kæfa alla heilbrigða ■gagnrýni. Hámarki sínu og sterkustu tökum beitti óís- lepzka nefndin á íþróttaþing- ,inu og í undirbúningi þess. VI. Það hefur yerið eitt verk- efni himiar óíslenzku nefndar að beygja til fylgis við Reykja víkurvaldið alla fulltrúa utan af landsbyggðini, en svo sem vitað er, hefur úti um land almennt ríkt heilbrigðari og þjóðiegri hugsunarháttur í þessum málum en í Reykja- vík. Fulltrúar utan af landi og aðrir ráðamenn þar hafa tíðum verið beittir bolabrögð- um og með ýmsu móti verið ofurliði bornir. Þó er sann- leikurinn sá, að Reykjavík hefur siðferðilega orðið undir x ,þeim viðskiptum og íþrótta- forustan og félagsforustan raunverulega færzt úr höfuð- staðnum út á landsbyggðina. Skal bent á eftirgreindar stað- reyndir: 1. KnattspyrnuforUstan er komin í hendur Akurnesinga. 2. í samnorrænu sundkeppn innj var hlutur fólksins úti um land og þátttaka með meiri glæsibrag en Revkvík- inga. Má nefna þess mörg dæmi. 3. í keppni milli utanbæjar- manna og Reykvikinga á ,af- ■mælishátíð fþróttalsambands- ■ins gat Reykjavík ekki full- skipað þátttakendum í öllum greinum, en utanbæjarmenn fylltu hvert rúm. Þjóðareining gegn her í iandi Oíslenzka nefndin (Framh. af greininni „Vill herrann láta bursta sína skó?“) 4. iFélagsmálastarf í sam- bandi við menningarmál og iþróttir og þjóðleg verðmæti eru í höndum ungmennafé- laganna að mestu leyti. ■5. Reykjavík hefur á undan- förnum árum fengið utan af landi mikinn fjölda af beztu íþróttamönnunum sem hafa sett svip á mót og utanfarir, methafana í langhlaupum, spretthlaupum, langstökki, stangarstökki, þrístökki, hindrunarhlaupi og auk þess marga aðra færustu menn, t. d. alla stangarstökkvara sem nokkuð kveður að, sundkappa og marga glímukappa. Og enn fleira má nefna, sem sýnir, að kringum miðstjóm íþróttamálanna í landinu er doði og ringulreið. íþróttamót sumarsins í höfuðstaðnum eru fásótt og deyfðarleg. Þessa dagana er hér í boði og kepp- ir heimsmeistarinn í sleggju- kasti, Norðmaðurinn Sverre Strandli. Það hefði einhvem tíma þótt viðburður að fá slíkan mann á íþróttavöllinn. Um 300 manns koma til þess að sjá afburðamanninn keppa. Hvar er nú áhuginn og eld- móðurinn, sem íslenzku pilt- amir báru með sér á Bislet hér um árið, mættu Norð- menn spyrja. VII. Ef að líkum lætur mun hin þjóðskaðsamlega afstaða sam- bandsstjórnar í samskiptum við setuliðið eiga eftir að verða örlagaríkust fyrir íþróttahreyfinguna, sem stend ur höllum fæti menningarlega og 'má þvi illa við gálausri og rembingslegri forustu. Málið komst á þann rekspöl eftir „japl og jaml og fuður“, að stjórn íþróttasambandsins lagði fram til málamynda á íþróttaþinginu tillögu um að þingið ályktaði „að fullrar varúðar beri ,að gæta í sam- skiptum íþróttafélaga við varnarliðið og því ekki æski- legt ,að íþróttafélögin sækist eftir slíkum samskiptum“. En það var aldrei ætlunin að láta samþykkja svon,a sjálf- sagðan hlut. Bak við tjöldin var ákveðið áður en gengið var til þings að losna við ó- þægindin af því ,yað gæta varúðar í sanaskiptum íþrótta- félaga við varnarliðið“! Og þegar Böðvar Pétursson, einn fulltrúanria frá Reykjavík, kom með breytingartillögu um að banna öll samskipti ísl. íþróttamanna við herliðið í leik eða keppni, var tæki- færið gripið og komið með frávísunartillögu, sem samin v.ar nokkrum dögum áður í Reykjavík, þess efnis „að ■íþróttaþingið ályktaði , ,að ■sömu reglur skyldu gilda um keppni við þá (þ. e. hermenn- ina) og aðra erlenda íþrótta- menn!“ Þar með voru rök- ræður skornar niður og and- stæðingar hernaðarsamvinn- unnar sviptir málfrelsi. En svo var í pottinn búið, að tveir Reykjavíkurfulltrúar, ekki óliprir þjónar óíslenzku mefndarinnar, Gísli Halldórs- son formaður íþróttabanda- lags Reykjavíkur og Sigurður Magnússon framkvæmdastjóri íþróttabandalags Reykjavík’- ur, höfðu samtals 11 atkvæði á þinginu eða 1/4 hluta at- kvæða þingfulltrúa, en aðrir fulltrúar aðeins eitt atkvæði hver. Þannig hafði óíslenzka nefndin með baktjaldasamn- ingum sölsað undir þjóna sína meiri hluta atkvæða, drepið hina þjóðlegu varnarrödd þingsins, en settu svo kórónu á verknað sinn með þvi að fella úr stjórúinni Þorgeir Sveinbjarnarson, sundhallar- stjóra, sökum þess að hann hafð; aldrei gengið á mála hjá hernámsliðinu. Frímann Helgason, sem einnig er and- stæðingur samskiptanna við herinn, hefði vafalaust hlotið sömu örlög, en hann varð fyrri til og lýsti yfir, að hann tæki ekki endurkosningu, en hann hefur setið í samb.ands- stjórn undanfarin 15 ár. Allt var með pólitískum ráðum gert og í stjórnina settur Heimdellingur og annar til. Hin þjóðlega stefna stjórnar íþróttasambandsins hefur því algjörlega verið brotin niður um sinn. Timinn mun leiða í ' ljós hversu farsæl sú skipan verður, en engu góðu spáir hún. VIII. Ég gat þess í fyrri grein minni um þessi mál, að sam- fara þjónustunni ■ við hernáms- öflin er rekinn leynt og ljóst pólitískur áróður innan íþróttahreyfingarinnar til ó- þurftar landi og lýð. Ég hef nefnt dæmið um pólitíska laumuspilið á íþróttaþinginu. Skal þá nefna eitthvað fleira til áréttingar. Sigurður Magnússon, sem hér hefur nefndur verið, er Heimdellingur og gegnir skyld um sínum eftir beztu getu í anda þess félagsskapar. Hann hefur verið gerður fram- kvæmdastjóri íþróttabanda- lags Reykjavíkur, en gegnir auk þess íleiri störfum. Á út- breiðslufundi Heimdallar fyrir kosningar var Sigurði teflt fram sem ræðumanni. Þar var hann ekki kynntur verzlunar- stjóri Blöndu við Bergstaða- stíginn, ekki heldur forstjóri dansklúbbs eða danshúss, heldur framkvæmdastjóri íþróttabandalags Reykjavíkur, — skiljanlega. Ræðan var birt í Heimdalli og hófst með þessum orðum: „í einu af snilldarljóðum Davíðs Stefánssonar frá Fagra skógi segir svo: í hennar kirkju helgar .stjörnur loga, og hennar líf er eilíft kraftaverk. Þessar fögru og kjarnyrtu setningar skáldsins frá Fagra- skógi lcoma mér oft í hug, þegar ég hugsa um starf og ■stefnu Sjálfstæðisflokksins fyrr og síðar. Stafar ekki viss logi af starfi Sjálfstæðisflokksins, og er ekki þáttur flokksins og Sjálfstæðismanna í hinum margþættu umbótamálum ís- lenzku þjóðarinnar á undan- fömum árum í vissum skiln- ingi kráftaverk." (Leturbr. hér). Æjá, við skulum ekki halda lengra. Ég tek þetta ekki sem háð um Sjálfstæðisflokkinn frá hendi Sigurðar, hann hef- ur sýnt m. a. á íþróttaþing- inu, að honum er alvara að vinna eft-ir beztu getu gegn æskulýð landsins í anda hernaðarstefnunnar. Mætti nú spyrj.a íþrótta- forustuna hversu marga tugi þúsunda króna Gísli Hall- dórsson, (sá sem rogaðist með atkvæðafjöldann á þinginu) hefur fengið fyrir aukastörf hjá íþróttahreyfingunni á undanfömum misserum? Eða hefur Gísli aðalstarf sitt hjá íþróttahreyfingunni? Sé svo, að hann hafi aðalatvinnu hjá íþróttafélögunum, hvernig get- ur það þá samrýmst, lögum samkvæmt, að hann fari með atkvæði áhugamanna og r-áði þannig með mörgum atkvæð- um úrslitum i örlagaríkum málum svo sem á íþróttaþing- inu? Á hvaða forsendum vinnur hann gegn æskulýð landsins í anda hernaðarstefn- unnar? Ég hef áður getið þess að forseti íþróttasambandsins setti á nokkurskonar svartan lista alla þá íþróttamenn, sem skrifuðu undir Stokkhólms- ávarpið svonefnda, en það var áskorun til allra þjóða að beita sér fyrir friði í heimin- um. Kommúnismi, tautaði forsetinn og setti feit svört Framh. á 11. síðu. i Ií*. Eo' 0 ’ji • 5 **• SPURULL skrifar: „Kæri Bæj- arpóstur! — Eg vona, að þú fyrirgefir lítilfjörlegt tilskrif, og vík svo að erindinu. Hefur þú ekki ráð á neinum íslenzku- fræðingi, sem hægt væri að ■ beina til ýmsum spurningum . um íslenzkt mál svipað og til þáttarins í útvarpinu, sem nú er í sumarfríi. Ennfremur gæti hann fordæmt helztu mál villumar í ræðu og riti, birt lista yfir þær vikulega og bent . á hin réttu orð í staðinn. — Hér er ég með eina spurningu: Hver skollinn er þetta „á næstunni“, sem allir eru með á vöruaum og lekur úr hverj- um penna ? Er þetta nokkur ís- lenzka? Eg sé æ sjaldnar orð- in bráðlega, skjótlcga, innan skamms o.s.frv. fyrir þessu. Það væri gott að fá dóm um þetta og þar með rétt til að ráð ast gegn því. Slíkum drauga- gangi ætti annars ekki að vera vært í bjartnættinu. — Spuruir. Orðíæð almennings vex — Rangar beygingar og tökuorð ryðja sér til rúms — Venjum okkur á að nota góð og gömul orð úr ritmálinu í daglegu taii. ÉG ÞAKKA þér fyrir tilskrif þitt, Spurull. Vissulega hef cg ráð á íslenzkufræðingi, jafa- vel fleiri en einum. Eg hef oft þurft á því að halda að hringja í þá og spyrjast fyrir um haldgæði eða uppruna orða og orðasambanda í daglegu eða rituðu máli. Þeir hafa yfir- leitt tekið spurningum mínum vel og leyst úr þeim eftir beztu getu, enda held ég þeim hljóti að þykja vænt um það, ■þegar þeir eru spurðir, því nógu margir yirðast alls eng- an áhuga hafa fyrir tungu feðranaa og þykjast jafnvel upp úr því vaxnir að leita sér fróðleiks um hana. — En svo ég svari þér nánar, þá er það fyrst að segja, að Bæjarpóst- urinn er í þann veg að skipta um starfsmann, sökum brott- farar þess af landinu, sem hér heldur á penna. Hvort sá, sem við tekur, mun hafa þann sið að fjalla að staðaldri um ís- lenzkt mál, get ég því miður ekkert sagt um. En ég geri ráð fyrir því, og vil því hvetja bæði þig og aðra að senda Póstinum fyrirspurnir um ís- lenzku, rétt eins og hvað ann- að sem þér kann að detta í hug og þú heldur hann geti leyst úr. ÞEGAR ég uadirbý þennan Bæj arpóst, virðist enginn af ís- lenzkusérfræðiugum landsins vera tiltækur til að spyrja hann um orðalagið ,,á næst- unni“. Eg verð því að svara þér upp á eindæmi, eftir því sem ég er maður til. Og ég held mér sé óhætt að fullyrða að orðasamband þetta sé ný- komið inn í máiið, varla eldra en 15 til 20 ára. En það hef- ur unnið sér hefð, svo að jafn- vel útvarpið notar það að stað aldri. Næstan er alveg nýtt nafnorð í málinu, og satt að segja finnst mér það ekki fal- legt. Eg myndi reyna eitthvað til að útrýma því, ef ég teldi ekki nauðsynlegt að leggja megináherzjuna á að útrýma ýmsu öðru úr málinu, sem á- reiðanlega er ennþá hættulegra en það. Sem dæmi vil ég nefna þágufallssýkina og leifarnar af dönskunni (fyrir nokkru síð- an) o.s.frv. — Geymirar seg- ir fólk í staðinn fyrir geyinar, komustum í staðinn fyrir komumst, mér langar í staðinn fyrir mig langar, mér hlakkar til í staðinn fyrir ég hlakka til, auk þess sem allskonar óþörf skrípaorð eru að ryðja sér til rúms í daglegu tali, mikið fyr- ir amerísk áhrif. Sú andlega deyfð, sem amerísk ómenning elur upp i þjóðinni, gerir hana áhugalitla um menningu sína og varnarlausa fyrir hvers- kyns úrkynjun, svo í meðferð móðurmálsins sem öðru. Þetta sýgur sig jafut og þétt inn í þjóðarlíkamann, fyrst þar sem hann er veikastur fyrir, í þétt- býlinu, breiðist síðan út um svéitir og inn í rithátt henn- ar, sé ekki fyrir það tekið í tæka tíð. x

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.