Þjóðviljinn - 02.08.1953, Síða 10
10) — Þ.JÓÐVILJINN — Sunnudagur 2. ágúst 1S53
3&
aU^elmllisþátÉiir
ðETiO
' I
eftir MARTHA OSTENSO
1. dagur
Hafmagnstakmörkun
Sunnudagur 2. ágúst
KI. 10.45—12.15:
Vesturbærinn frá Aðalst.r., Tjarn-
argötu og Bjarkargötu. Melarnir,
Grímsstaðaholtið með flugA'allar-
svæðinu, Vesturhöfnin með Örfir-
lsey, Kaplaskjól og Seltjarnarnes
fram eftir.
Kl. 11.00—12.30:
Hafnarfjörður og nágr. Keykjanes.
★
Mánudagur 3. ágúst
Kl. 9.30—11.00:
Vesturbærinn frá Aðalstr., Tjarn-
argötu og Bjarkargötu. Melarnir,
Grímsstaðaholtið með flugvallar-
evæðinu, Vesturhöfnin með örfir-
tsey, Kaplaskjól og Seitjarnarnes
fram eftír.
Kl. 10.45-12.15
Hafnarfjörður og nágr. Reykjanes.
Kl. 11.00-12.30
Nágrenni Reykjavíkur, umhverfi
Elliðaánna vestur að markalínu
frá Flugskálavegi við Viðeyjar-
Bund, vestur að Hlíðarfæti og það-
an til sjávar við Nauthóisvík í
Fossvogi. Laugarnes, meðfram
Kleppsvegi, Mosfelissveit og Kjal-
•rnes. Árnep- "g Rangárvallasvslur.
KI. 12.30-14.30
Hlíðarnar, Norðurmýri, Rauðarár-
holtið, Túnin, Teigarnir, íbúðar-
hverfi við Laugarnesv. að Klepps-
vegi og svæfiið þar norðaustur af.
Kl. 14.30-16.30
Austurbærinn og miðbærinn milli
Snorrabr. og Aðalstrætis, Tjarnar-
götu, Bjarkargötu að vestan og
Hringbrautar að sunnan.
★
Þriðjudagur 4. figús.t
Kl. 9.30-11.00
Hafnarfj. og nágrenni, lieykjanes.
Kl. 10.45-12.15
Nágrenni Reykjavíkur umhverfi
Eiliðaánna vestúr að markalínu
frá Flugskálavegi við Viðeyjar-
eund, vestur að Hlíðarfæti og það-
an til sjávar við Nauthóisvík í
Fossvogi. Laugarnes, meðfram
Kleppsvegi, Mosfelissveit og Kjal-
arnes. Árnes- óg Rangárvallasýslur.
Kl. 11.00-12.30
Hiíðarnar, Norðurmýri, Rauðarár-
hoitið, Túnin, Teigarnir, íþúðar-
hverfi við Laugarnesveg að Klepps
va«h oft syæðið bar norðaustur af.
12.30- 14.30
Austurbærinn og miðbærinn milli
Snorrabr. og Aðaistrætis, Tjarnar-
götu, Bjarkargötu að vestan og
Hringbraut að sunnan.
14.30- 16.30
Vesturbærinn frá Aðalstr. Tjarn-
argötu og Bjarkargötu. Melarnir,
Grímsstaðaholtið með flugvaliar-
svæðinu, Vesturhöfnin með Örfir-
isey, Kaplaskjól og Seltjarnarnes
fram eftir.
Það hljómar ekki sérlega hug-
vitsamlega að segja ,að göngu-
búningurin sé hentugur, þar sem
hann er bæði kjóll og dragt, en
samt er það satt. Tilfellið er, að
margar okkar hafa ekki efní á
að eiga dragt, vegna þess að
þær fara yfirleitt ekki vel nema
þær séu saumaðar af klæðskera.
Göngubúningurinn hefur þann
kost að venjuleg saumakona, og
þær konur sem eru handlagnar,
get.a auðveldega saumað hann.
Hér eru sýndar myndir af
tveim gönguþúningum frá sama
firma. Þeir eru báðir mjög lát-
lausir en þó snotrir. Sá fyrri er
með bogadregnum línum, hornin
og axlaskrautið jakkanum og
hálsmálið á kjólnum. Þetta er
fallegur búningur, sem áreiðan-
Framhald á 8. síðu.
FYRSTI KAFU
I.
Énginn minntist á það, en fjölskyldan var að
bíða eftir Caleb Gare. Jafnvel Linda Archer,
nýja kennslukonan, sem hafði komið síðla dags
með póstvagninum alla leið frá Yellow Post og
hlaut því að vera svöng, var að bíða. Amelía
Gare, eiginkona Calebs var að sýsla í eldhús-
iou eins og hún ætti eitthvað ógert, en þó tókst
henni ekki að draga úr eftirvæntingunni. Júdit
og Kail voru að mjólka kýrnar og komu inn
hvað eftir annað af engri sýnilegri ástæðu.
Marteinn, sem ævinlega var seiim og silalegur,
var búina að hreinsa fjósið svo vandlega að
það var næstum óeðlilegt. Elín, tvíburasystir
Marteins, var að spila á orgelið, en það var
eins og hún væri jafnvel búin að gleyrna þeim
lögum sem hún spilaði að ötaðaldri. Elín spilaði
allsæmUega „eftir eyranu.“
Kennslukonan sat hógvær í rauða ruggu-
stólnum og hlustaði á marrið í honum meðan
hún ruggaði sér fram og aftur. Hún minntist
með nokkrum óhug hinna óljósu svara, sem hún
hafði fengið í Yellow Post daginn áður við
spurningum sinum um Garefjölskylduna. Hún
mundi líka hvernig John Tobacco, bréfritari,
hafði hnussað, þegar hún reyndi að hafa upp úr
honum, hvers kcnar maður Caleb Gare væri.
Nú gleymdi hún, hvað hún var svöng, þegar
hún hlostaði á marrið í stólnum. Það var eins
og hann segði: „Caleb! Caleb! Caleb!“ í aðra
röndina var henni skemmt.
Svo opnuðust útidyrnar. Júdit var komin aft-
ur. Daufur bjarminn frá ljóskerinu við eld-
húsdyraar féll á hana. Líkami hennar var þrek-
inn og ögrandi, brjóstkassinn hár og breiður
eins og á dreng; hárið svart og hrokkið og sló
á það bláleitri slikju; nú voru augu hennar
hálflukt og þrjózkuleg; varirnar þykkar en
munnsvipurinn ólundarlegur. Hún var í nan-
kinsbuxum og þykkri peysu. Stóð fast í fæt-
urna eins og hún væri viðbúin að gefa eða
mæta höggi
Júdit gekk föstum skrefum til Lindu. Lindu
fannst hún aldréi hafa augum litið jafn grózku-
mikla fegurð.
. „Ertu svöng?“ spurði stúlkan hana stutt-
aralega.
„Dálítið “ viðurkenndi Linda.
Elín hætti að spila í miðju kafi. Svipur
hennar var álasandi þegar hún leit á Júdit. En
yngri stúlkan gaf systur sinni engan gaum,
heldur stikaði fram í búrið. Hún kom þaðan
aftur með bakka, sem á voru tvær smurðar
brauðsneiðar og mjólkurglas.
Elín varð enn þungbúnari. Hún reis á fætur.
„Júda, þú veizt að pabbi —“
„Þeíta tekur ekki frá þér lystina á kvöld-
matnum — ef þú færð liann þá nokkum tíma,“
sagði Júdit við kennslukonuna og lét eins og
hún heyrði ekki til Elínar. Linda tók við matn-
um og kunni ekki við að afþakka hann.
Eliu rétti úr sér og gekk fram í eldhúsið án
þess að segia orð,. Linda haði hugboð um að
hún væri að hvíslast á við móður sína.
Kennslukonan nartaði vandræðalega í brauðið
og dreypti á mjólkinni.
Júdit hafði verið að vinda seglgarn upp á
spýtu og nú settist hún á gólfið við fætur
Lindu
„Það er rétt að þú vitír að hann reynir að
kúga þig,“ sagði húa blátt áfram. „Hann
byrjar á þvx að koma of seint í kvöldmatinn.
Ilann gerir ævinlega hið sama þegar nýr kenn-
ari kemur. Hann gerir ráð fyrir að þú sért
karlmaður. Kennararnir hérna hafa alltáf ver-
ið karlmenn hingað til. Hann á eftir að verða
hissa. En þú skalt standa fast á þínu, ungfrú
Archer. Láttu hann ekki kúga þig.“
Um leið heyrðist rödd Amelíu:
,,Júdit“!
,,Vertu róleg, mamma. Eg segi ekki annað
en sannleikann.“
Elín kom aftur inn og setti vatnskönnu á
borðið með þungum dynk eins og henni hefði
sýnzt borðið vera fjær en það var í raun og
veru. Hún hnyklaði brýnnar kvíðandi. Elín var
með gleraugu, sem voru ekki ætluð henni í
.upphafi. Og því voru ljósopin í augum hennar
alltof stór og hvarmarnir rauðir og rakir. Hún
stóð andartak kyrr við borðið og leit með
gremjusvip á Júdit. Svo gekk hún hratt út úr
lierberginu aftur.
Linda Archer lauk þegjandi við mjólkina og
brauðið. Það var einhver- óhugnanlegur blær
þarna inni, sem engar samræður gátu rekið
á flótta.
Júdit virtist hafa mikinn hug á að kvelja
Elínu systur sína. Iiún blístraði að hundinum
sem lá í stigakróknum. Hundurinn leit upp.
, Caleb,“ sagði hún snöggt. Hundurinn hrökk
við og sperrti eyrun.
Júdit brosti illgirnislega til Elínar sem gekk
um í eldhúsinu eins og hún hefði ekkert heyrt.
„Þarna sérðu —“ sagði Júdit og bætti síðan
við. „Honum þykir svo gamaa að aka um í
vagninum til að sýna íslendingunum hvað hann
á margar frístundir um mesta annatimann,
meðan við hin vinnum baki brotnu frá morgtii
til kvölds.“
Linda var farin að finna til kvíða. Ævintýra-
ljóminn sem hún hafði hjúpað þennan af-
skekkta stað í huga sínum, var smám saman
að hverfa. Hún hafði aldrei fyrr séð hatur í
allri sioni nekt. Nú sá hún það í augum
sautján ára gamallar stúlku.
Að utan heyrðist vagnskrölt. Elín settist aft-
ur við orgelið og andlit hennar var hörkulegt
og alvarlegt eins og á roskinni, reyndri konu.
Linda fór að velta fyrir sér, hvað gæfi tilefni
. v /
til þessarar hörkulegu alvöru.
, Júdit, þú ættir að kalla á Martein,“ sagði
Elín mjóróma. „Pabbi er kominn.“
Júdit reis á fætur án þess að segja orð.
Frammi í eldhúsiau flýtti Amelía sér að
hreinsa vaskinn og setti í hann hreina skál
með heitu vatni. Hún tók handklæðið niður og
setti annað hreint í þess stað. Svo leysti hún
af sér svuntuna, lagfærði á sér kjólinn og
greiddi sér fyrir framan sprunginn spegilinn
á veggnum.
Svo opnuðust dyrnar. Við fyrstu sýn virtist
Caleb vera risavaxinn maður. En þegar hann
var kominn inn í eldhúsið sá Linda, að senni-
lega var hann ekki nema meðalmaður eða
tæplega það, en það vora þreknar axlir og stórt
höfuð sem gáfu honum jænnan kempusvip.
Neðri hluti líkamans virtist allur miklu rýrari.
Hann var með strítt, grátt hárí rytjulegt, tó-
baksflekkað yfirskegg og kynlega svartar brún-
ir sem voru samvaxnar yfir stóru, ógnaodi nefi.
Augu hans voru eins og litlar gljáandi perlur
og þau.skimuðu í áttina til Lindu sem sat und-
G&tJ&r OC CAMW4
— Eg1 get ómögulega skilið hvernig ])ú getur
alltaf fenglð peninga h.já manninum þínum.
— Það er ofur einfalt. Eg segist bara vera að
fara aftur til mömmu og þá gefur hann mé’r
undir elns fyrir fargjaldinu.
Lítlll drengur var a3 fara með kvöldbænirnar
sínar í mjög lágum hljóðmn.
— Eg heyri ekki til þín væni, livíslaði móðir
hans.
— Var ekki heldur að tala víð þig, svaraðl sá
stutti.
Drengur er uppi í eðlisfræði og þessi spurning
er lögð fyrir hann:
— Ilvaða raunur er á eldingu og rafmagni?
Og liann svarar: — Eldingin er ókeypis eni
rafniagnið ekki.
Prófessor í læknisfræði: lívað mynduð þér gera,
ef maður æti eitraða sveppi?
Stúdentinn: Fyrirskipa breytt mataræöi. j