Þjóðviljinn - 29.08.1953, Page 12
i gær — esm er
salÉa itema hluta aflaits vegtta sntæðar
Bezti síldveiðidagurinn sem komið heíur hér við
Suðurland í sumar var í gær.
Fréttaritari Þjóðviljans í Sandgerði símaði að
síldin sem barst þar á land í gær haíi verið bæði
stærri og feitari en áður og mun söltun þar hafa
staðið fram á nótt.
Hafnarfjarðarbátarnir öfluðu einnig ágætlega í
gær
Afli Sandgerðisbátanna í gær
var yfijeitt ágætur eða frá 100
og uppí .200 tunnur á bát. Sjó-
menn líta nú bjartari augum
á veiðarnar en áður vegna þess
að síldin var í gær bæði stærri
og feitari en áður. ;
Saltað var af kappi í Sand-
gerði í gær og mun hafa verið
nokkur skortur á fólki. Hús- \
mæðurnar hlupu því frá börn-
SöStun Eiéfst í
Grindavik í gær
Grindavík.
Frá fréttaritara Þjóðviljans. I
■Síldveiðibátarnir í Grindavík
öfluðu ágætlega í gær eða lallt
uppí 120 tunnur. Hafa þeir
einnig liaft ágæta veiði undan-
farið.
iSíldarsöltun hófst í Grinda-
vík í gær.
Þótt söltun hæfist í gær er
mikið af síldinni enn smátt svo
um það bil helmingur gengur
úr þegar saltað er. Þó er afli
bátanna nokkúð misjafn hvað
stærð síldarínnar snertir.
Enn hefur ekki veiðzt sí'ld
í Grindavíkursjó, hafa bátarn-
ir stundað veiðarnar við Eldey
og í Miðnessjónum.
um og eiginmönnum í síldar-
söltunina og nnm hafa verið
saltað fram á nótt.
Auk Sandgerðisbátanna lögðu
lá land þar í gær bátar frá
Keflavík, Garði, Hafnarfirði,
Vestmannaeyjum og Akranesi.
Hefur sú orðið raunin á undan-
farin haust að á síldveiðunum
sunnanlands er Sandgerði mest
eftirsótta höfnin.
I sumar var byrjað á leng-
ingu bryggjunnar þar um 30
metra og er enn ólokið við að
steypa plötu ofan á þá leng-
ingu, en þegar því vérki hefur
verið lokið batnar að mun að-
staða bátanna sem leggja upp
þar.
Léleg veiði Ves1-
mannaeyjabáta
Þótt í gær væri bezti afla-
dagurinn hér við Faxaflóa var
aðra sögu að segja frá Vest-
mannaeyjum. Fréttaritari Þjóð-
viljans í Eyjum skýrði svo frá
að tvo síðustu daga hafi afli
Vestmanmaeyjabáta verið mjög
lítill, allt niður í ekki neitt,
mestur afli í gær 60 tunnur.
12 bátar stunda nú rekneta-
veiðar frá Vestmannaeyjum.
Nokkrir Vestmannaeyjabátar
stunda þorskveiðar með drag-
nót og afla sæmilega.
Hafnarbótunum
ekki lokið
Grindavík.
Frá fréttaritara Þjóðviijans.
Loltið !er nú við að steypa í
fulla liæð kerið sem gökkt var
í höfnina í sumar.
Er nú aðeins eftir að fylla
það grjóti og steypa plötu
ofan á það og er unnið við að
fullgera þessa hafnarbót. Lönd-
unarbryggjan lengist um 14
metra og mun löndunarpléssið
því ekki aukast nema fyrir ca.
3 báta, svo mikið þarf enn áð
gera í höfninni, þetta er aðeins
ibyrjunin. Þykir sjómönnum til-
finnanlega vanta viðlegupláss
fyrir bátana í höfnixmi. <
Svavar Guðnason hjá einu málverka sinna.
Sýning Svavars Goðnasonar opnnð í
dag kl. 21 Listvinasalnum
Um 50 myndir em á sýningimm,
máiaðar á tveim síðustu árum
í dag kl. 2 e.h. opnar Svavar Guðnason málverkasýn-
ingu í Listvinasalnum við Freyjugötu. Sýnir hann þar
um 50 myndir er hann hefur gert á síðustu tveim árum.
Þótt Svavar hafi haldið margar sjálfstæðar sýningar og
tekið þátt í öðrum erlendis á undanförnum árum er þetta
íyrsta sjálfstæða sýningin er hann heldur hér heima í
fimm ár, og munu margir því fara með eftirvæntingu á
þessa sýningu hans.
Á sýningu þessari eru um 50'
myndir en aðeins 26 þeirra hafa
verið settar á skrá. Eru þetta
oliumálverk, vatnslitamyndir,
linoleumprent, svartlistarmynd-
ir. Þær sem á skríá eru hafa
hlotið hin fegurstu og óvenju-
legustu nöfn margar hverjar,
svo sem Munhöll, Hrímeik,
Stuðla, Marblik, Dverga, Hríma,
Þeyr osfrv. — en rnálarinn tek-
ur fram að þeim séu aðeins
gefin nöfn til aðgreiningar.
Hefur sýnt í 7 löndum
Svavar hefur sem fyrr seg-
ir haldið fjölda sýnkiga, sýnt
í Danmörk, Sviþjóð, Noregi,
Belgíu, Hollandi og Frakklandi,
og e.t.v. víðar, auk hér á ís-
landi. í Kaupmannahöfn hefur
hann haldið svo margar sýn-
ingar sjálfstæðar eða tekið þátt
í sýningum, að hann segist ekki
muna lengur hve oft hann hafi
sýnt. Hann tók þátt i samnor-
rænu sýningunni í Osló bæði
1946 og 1953 og einnig i sýn-
ingunni í Brússel.
„Finnst manni frekar vera sjó-
maður cg eiga að fara í
reiðann . . . “
Svavar hefur lengst af dval-
ið erlendis síðan hann fór að
mlála, en hann fór utan rúmlega
tvítugur. Hér heima hefur hann
Framhaid á II. siðu.
Brengur verður
fyrir feíl
1 gær varð dreogur fyrir bíl
á mótum Þverholts og Lauga-
vegar. Skarst hann á höfði og
fékk eymsli í baki. Meiðsli hans
voru þó ekki talin alvarleg.
Var hann fluttur í Landspital-
ann og þar gert að meiðslunum,
en síðan fékk hann að fara
heim.
Athyglisverð
kvikmýnd sýnd í
Tjarnarbíó
r f •
n
A
Tjarnarbíó sýnir nk. sunnu-
dag kl. 2 e.h. nýja kvikmynd,
The New Sign Language, en
efni hennar hefur S:r Riehard
Paget, Bart samið.
'Myndin ér nýtt táknmál fyrir
heyrnarlausa og miállausa. Á
undan myndinni mun pteóf.
Alexander Jóhannesson skýra
efni hennar.
Allir skólastjórar, kennarar
og a'ðrir, sem láta sig þetta
miáf varða eru velkomnir á sýn-
inguna meðan húsrúm leyfir.
VÓÐyiiIINN
Guðmuadur Jónssen éperusöngvari
syngur íslenzk lög í danska útvarpið
Syngur einuig í Tivolí á „Ruitd-
skuedag" danskra blaðamanna
Guömundur Jónsson óperusöngvari syngur íslenzk lög
í danska útvarpiö 3. n.m. Á laugardaginn 5. nim. syngur
hann á ,,Rtmdskuedagen“ í Tivolí.
Þegar norrænu blaðamennim-
ir voru hér á aðaiíundi Norræna
blaðamannasamibandsins í sumar,
söng Guðmundur Jónsson nokk-
ur lög fyrir þá í kveðjulhófinu,
sem Blaðamannaféiag íslands
hélt þeim. NorrænU blaðamenn-
imir urðu svo hirifnir af söng
Guðmundar, að þeir báðu hann
að syngja fyrir sig á „Rundskue-
dagen“ isvonefndum, sem dansk-
ir blaðamenn halda í Tivoli ár-
lega.
Þá hefir danska útvarpið sam-
ið við Guðmund að syngja í út-
varpið og syngur hann íslenzk
lög í danska útvarpið 5. næsta
mánaðar.
Þessi eftirsókn eftir sön'g Guð-
mundar er ekki nema í alla
Simdhöll Hafnar-
f jarðar 10 ára
í dag eu liðin 10 ár síðan
Sundhölj Hafnarfjarðar var opn-
uð alnienningi til afnota. 308.800
gestir hafa sótt Sundhöllina á
þessum 10 árum.
iLengst af starfstima sínum hef-
-ur sundtoöUin verið útilaug en
hafizt v,ar handa um yfirbygg-
iogu í okt. 1951 og henni lokið
13. júnií s. 1. Hefur aðsókn að
Bundhöllinni verið tvöfalt meiri
síðan byggt var yfir hana en
meðan hún var opin.
staði makleg og er söngur hang
góð kynning á íislandi. — Guð-
mundur fer utan með Heklu,
flugvél Loftleiða, á þriðjudaginu
kemur.
Eldsvoða afstýrt
í gær ltviknaði í á þakhæð
hússins við Sundlaugaveg 28,
en slökkviliðinu tókst, að
slökkva eldinn áður en
skemmdir yrðu teljandi.
Slökkviliðið var kallað að
húsinu kl. 5.50 síðdegis í gær.
Var þá töluverður reykur á
þakhæð hússáns og eldur í eihu
herbergi. Hafði eldurinn læst
sig upp eftir þekjunni og varð
að rifa þakið til þess að kom-
ast að eldinum, en síðan var
eldurinn fljótlega slökktur.
Nokkrar skemmdir urðu því á
þekju hússins, en ekkert í her-
berginu sem eldurinn var í
brann, nema útvarpstæki er
stóð undir þekjunni þar sem
eldurinn var. Er líklegt að eld-
urinn hafi kviknað frá útvarps-
tækinu.
Slökktí sviðaeld.
Slökkviliðið var einnig kall-
að inná Kirkjusand I gær, en
þar hafði kviknað í hjá manni
er var að svíða svið. Sú íkveikn
un var mjög lítilvæg.
,,Ovíst í hvaða átt verður ■
skotið úr frönskum og
ítölskum fallbyssum44
Vesturþýzkir sósíaldemókratar leggjast
gegn þátttöku í hernaðarbandalögum
Sósíaldqmokrataflokkur Vestur-Þýzkalands sendi í gær
út ávarp í tilefni af kosningunum, sem þar fara fram,
sunnudaginn 6. september.
í þessu kosningaávarpi skora
sósíaldemókratar á Adenauer
kanzlara að láta enga samn-
inga um aðild Þýzkalands að
Evrópuhemum öðlast gildi,
fyrr en eftir að stórveldin
fjögur hafa komið saman á
fund til að ræða Þýzkaland.
Einn af m'ðstjórnarfulltrúum
flokksins sagði í Bonn í gær, að
Vestur-Þýzkaland ætti aldrei
að gerast aðili að neinum
hemaðarbandalögum, heldur
treysta einung:s á að SÞ kæmu
því t:l aðstoðar er á það yrði
ráðizt.
Hana sagði, að Þjóðverjar!
gætu auk þess ekki treyst á,
að þau önnur ríki sem mundu
gerast aðilar að fyrirhuguðum
Evró’pulier yrðu þeim til mikils
stuonings, ef þeir þyrftu hans
með. „Það er alveg óvíst í
hvaða átt skotið verður úr fall-
byssum og skriðdrekum Italíu
og Frakklands, ef til styrjald-
ar kemur, þegar það eru -komm
únistar sem halda um g!kkinn“.
Hann sagði, að Vesturveldin
ættu að veita Sovétríkjunum
tryggingu fyrir því, að samein-
að Þýzkaland mundi ekki ger-
ast aðili að tieinu hernaðar-
bandalagi. Þá væri von til, að
þau féllust á að kosningar
færu fram í öllu landinu, áður
en friðarsamningar verða gerð-
ir og alþýzk stjórn mynduð.
Svari seinkar
Skýrt var frá því í London
í gær, að líklegt væri, að svari
Vesturveldanna við tveimur
orðsendingum sovétstjómarinn-
ar varðandi Þýzkaland og fjór-
veldaráðstefnu um það mundi
seinka. Erfitt væri að segja,
hvenær svarið yrði sent. Sér-
fræðingar fjórveldanna hafa
lokið uppkasti að svarinu og
liggur það nú fyrir ríkisstjórn-
um þeirra.