Þjóðviljinn - 23.10.1953, Blaðsíða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 23. október 1953
Villigœsir
eftir MARTHA OSTENSO.
W
72. dagur
KmseY-skYrslurnar
eru uísindalegt kák
Einn af starfsmönnum dönsku
Mæðrahjálparinnar, dr. Hearik
Hoffmeyer hefur skrifað grein
í nýútkomið hefti af „Vér kon-
ur“, þar sem hajin segir næst-
um með hreinum orðum að
nýju Kinsey-skýrslurnar um
kynhegðun kvenna séu kák, og
hann varar fólk við því að að-
hyllast skoðanir Kinseys í
•þeirri trú, að þær túlki hið
ýtrasta frjá’slyndi.
1 upphafi greinarinnar getur
dr. Hoffmeyer þess, að það sé
ekki hægt að skrifa ritdóm
xim bókina í venjulegum skiln-
ingi, vegna þess að hún sé
ekki komin út á dönsku —
þrátt fyrir mikið blaðaumtal.
ÖU skrifin um bókiiia eru
byggð á viðtölum, sem höfð
voru við Kinsey mörgum mán-
uðum fyrir útkomu bókarinnar,
og blaðamennirnir skuldbundu
sig til að skrifa ekkert fyrir
hinn 20. ágúst.
Aðeins það sem allir vita.
Ef skýrslurnar eru lesnar
vandlega, heldur dr. Hoffmeyer
áfram,. á.n þess að maður Iáti
hinn æsandi stíl hafa áhrif á
sig, verður maður að taka und-
ir orð franska b'.aðsins Le
Monde — að þar standi ekki
mikið framyfir það sem allir
vita tiú þegar — áð konur
hallizt ekki að glæsimennum,
konur séu stundum ótrúar
mönnum sínum o. s. frv. Af
fyrstu Kinsey skýrslunni er
manni ljóst, að hinar vísinda-
3egu aðferðir eru engan veginn
fullnægjandi.
Grimdvallarvanþekldng
Kinseys.
Eins og kunnugt er, er Kins-
ey dýrafræðingur og tilganguh
hans hefur verið að sýna,
■hvemig hægt er með fljótvirk-
iim staðtölulegum aðferðum
sem fengnar eru að láni úr
skordýrarannsóknum að rann-
saka í skyndi læknisfræðileg,
sálfræðileg og þjóðfélagsleg
fyrirbrigði, og það sé ástæðu-
laust að sitja lengi með vanga-
veltur eins og læknar, sálfræð-
kigar og þjóðfélagsfræðingar
hafa lagt í vana sinn. Þessi
grundvallarvariþekking um hinn
sálræna þátt í kynferðislífi
mannsins og um hinn félags-
Jega uppruna mannlegrar vit-
undar veldur því að niðurstöð-
nr hans verða villandi.
Og dr. Hoffmeyer heldur á-
f ram:
Skýrslur Kinseys innihalda
sennilega einhverjar raunhæf-
ar upplýsingar, sem koma ef
til vill því fólki að gagni, sem
hefur vit á að meta þær og
takmarkað gildi þeirra. Sem
metsölubækur uppfy.lla bækur
hans engar þær kröfur, sem
hægt er að gera til upplýsinga
og vísindarita- fyrir almenning.
■Það er þvi engin ástæða til að
fara frekar út í innihaldið. Frem
'jW' væri ástæðá til að táká fyr-
irbrigðið Kinsey og skýrslur
hans ásamt öllum æsingaskrif-
unum til rannsóknar, sem dæmi
um undarlegt tímabil í menn-
ingarsögunni, og til þess að at-
huga nánar hvers vegna slíkt
sé gert, gefið út og blásiö upp
og hvaða áhrif það hefur á
mannfólkið og samtíðina.
Hvað á þunguð 15 ára stúlka
að gera?
Kinsey kemur fram sem vis-
indamaður — og har.n notar
aðstöðu sína til að koma fram
með margar mjög svo óvísmda-
legar umbótatiHögur. Á dálítið
loði.nn og óljósan hátt ræðst
hann á gildandi siðferðislög-
gjöf og siðgæði og mæ’ir með
kynferðissamböndum ungltnga.
Eh hann skrifar ekkert um,
hvað 15 ára stú’ka á að taka
til bragðs. ef hún verður þung-
uð eins og stundum vill verða,
hversu miklar upplýs'ngar sem
henni eru látnar í té ......
Kynferðisleg léttúð á ekkert
skylt við frelsi.
Nú á Ameríka heimsmet i
,,póla“hverfum og kvniðnáður-
inn að meðtálinm Hollywood
er eitt mesta gróðafyrirtæki
sem dæmi eru til — og það er
því s'zt að furða, þótt börn
fari að standa í kynferðissam-
bandi hvert við rnnáð, meðan
augunum er lokað f.yrir afleið-
ingunum með ólöglegum fóstur-
eyðingum.
Ástandið hériendis er ekki
svona slæmt, en við verðum að
vera á verði, því að tilhneiging-
ar beiriast í sömu átt. Og þótt
Kinsey sveipi um sig frelsis-
hjúpi í árásum sínum á kredd-
ur og borgaralegt siðgæði, þá
ætti enginn að láta te'ja sér
trú um aö leiðin til raunveru-
legs frelsis liggi gegnum kyn-
ferðislega léttúð cg ábyrgðar-
Ieysi.
Litlum telpum finnst mjög
gaman að skrautlegum belt.im
og það er hægt að útbúa handa
þeim be'ti með tiltölulega litl-
um kostnaði. Ef til viU á telp-
an gamalt teygjubelti, sem far-
ið er að láta á sjá, og þá má
lífga það upp með því að
sauma á þaö útklipptar mynd-
ir, eins og sýnt er á myndinni.
Einnig má saúma f’auelsbelti
úr afgöngum eða kaupa dálít-
inn, .flauelsren.ning og gera úx
.hpnjipp, mynd^ib^ti. Svon.a bélti
geta verið skeiúiritilegt skráut
á kjól, sem telpunni finnst ef
til viu alltof hversdágslégur:
Eftir nokkrar vikur yrði línið skorið, þreskt
og selt fyrir sunnan góðu verði. Já, já, allt
gekk að óskum, allt gekk að óskum.
TUTTUGASTI OG FYRSTI KAFLI
Tvær tilkynningar voru festar upp í verzlim
Jóhannesson. Önnur var þess efnis, að nú mætti
veiða fisk í vatni Bjamasonanna. Allir lásu það
með samblandi af lotningu og ótta, því að þeir
vissu hvað á bakvið lá. í hinni tilkynningunni
var sagt frá uppskeruhátíð sem halda átti í
Latt skólanum og grímudansleik í sambandi við
hana.
Karl flutti f jölskyldunni þessar fréttir. Caleb
sinnti engu fréttinni um uppskeruhátíðina, en
hann varð fýlulegur á svip, þegar hann frétti
að Bjamasynir hefðu loks fund'ð það seiri þeir
höfðu leitað að í heilt ár.
„Ég hefði getað haft.fisk á borðum allt ár-
ið , ef ég hefði getað sent einhvern með bein í
nefinu eftir honum“, sagði hann.
Þegar systkinin voru háttuð um kvöldið, sett-
ist Caleb við að lesa búnaðarritið. Amelía sat
og prjónaði; hún var að hugsa um uppskeruhá-
tiðina og komst að þe'rri niðurstöðu að ekkert
barnanna gæti farið þangað, því að hún gat ekki
með góðri samvizku neitað Júdit einni um farar-
'leyfi.
Caleb le't upp. „Ertu að hugsa um að panta
eittbvað fyrir grímuhallið ?“ sagði hann blíð-
Tega.
„Nei“, svaraði Amelía. „Þau fara ekki þang-
að“.
Caleb horfði rannsakandi á hana. Svo breidd-
ist bros um andlit hans. Hann lyfti brúnum.
„Fara þau ekki? Hvers vegna ekki?“
Amelía sá að honum var skemmt. Henni varð
samstund's ljóst að henni hafði skjátlazt. „Jæja,
ef þú leyfir það —. Ég hélt ef til vill að v:ð
hefðum ekki efni á því“.
Hún rýndi í handavinnu sina, svo' að hann
tæki eikki efitr kvíða hennar. Tók hann afsökun
hennar glda, eða hélt hann að hún treysti
Júdit eins vel og hann sjálfur? Húai beið með
öndina í bálsinum eftir svari hans.
„Jæja“, sagði hann og geispaði. „Við sjáum
t:l. Það er nægur tími til stefnu. Og við skul-
um fara að hátta. Ég er farinn að verða gamsdl
— farinn að verða gamall“.
Amelía fór í rúmið og óskaði þess að hann
neitaði þeim um fararleyfið. Hún vissi í hjarta
sínu, að það var ekki hægt að treysta Júdit.
Það bjó eitthvað uadir stillingu hennar og fá-
læti, sem Amelía gat ekki áttað sig á. Hún
var alltaf á varðbergi og notaði hvert tæki-
færi til að minna Júdit á hvað biði hennar, ef
hún reitti Caleb aftur til reiði. En Júdit myndi
ökki hugsa sig tvisvar um ef hensii gæfist færi
á að sleppa burt. Hún óskaði og vonaði að
Cáleb bannaði þeim að fara.
CaJeb saeri sér til veggjar og hló með sjálfum
sér. Svona smáglettur gáfu lífinu gTdi.
Uppi á loftinu töluðu Linda og Júdif saman,
svo lágt að Elín heyrði ekki til þeii ra. Þær höfðu
dregið n'ður í lampanum og sátu á rúmi Lindu.
Júdlt var að greiða sitt og mikið hárið á
kennslukonunai.
„Þú veiður að halda áfram að vinna, Júdit,
og gæta þess að þau gruni ekkert", hvíslaði
L'nda. „Ef þau leyfa þér að fara á grímudans-
leikinn verðurðu að halda áfram þa.igað til þú
Ikemur til Siding. Ég hitti Svein á morgun og
segi honum allt af. létta. Þau fyrirgefa þér,
þegar allt er um garð geng'ð. Þau geta ekki
gert nei.tt, þótt hanu sé með þessar .hótaiur.
Og ég býst ekki við aö haim þori að gepa^,
alvöru úr hótunúm sinum. Hann veit að ég
myndi vitna gegtt honum. Þú verður að eiga
það á hættu, vina min“.
Linda le:t á Júdit og það komu tár í augu
hennar þegar hún hugsaði um þá breytingu,
sem á henni var orðin. Hin óstýrláta fegurð
hennar var horfin. Hún var föl og deyfðar-
leg og hið eina sem minnti á hið ólgandi skap
hennar var vottur af þrjózkusvip í augnaráð-
inu.
„Þú ert þreytt, Júdit. Farðu nú að sofa, og
á morgun tala ég við Svein“, sagði Linda blíð-
lega.
Júdit reis á fætur. „Hana leyfir olkkur ekki
að' fara á dansleikinn“, tautaði hún kæruleysis-
lega. „Þetta verður að gerast á einhvern annan
hátt“.
Svo fór hún í rúmið þungt hugsandi og gagn-
tekin ótta og kviða. Þau yrðu að fara á brott
áður en mánuðurinn væri á emda. Hún gat
ekki lengur búið yfir leyndarmáli líkama síns.
Caleb talaði lítið um grímudansleikinn néma
morgunina eftir deplaði hann augunum framan
í Elínu við morgunverðarborðið og sagði glað-
lilakkalega: „Elín finnur sér sjálfsagt biðil á
uppskeruhátíðinni".
En allir biðu eftir endanlegri ákvörðun hans,
ekki sizt Amelía. Hún þorði ekki að minnast
á málið við hann, af ótta við að hann yrði
var við kvíða liennar. Hún vissi að hann ætiaði
sér að draga þau á þessu þangað til daginn sem
hátíðin færi fram. Það var venja hans. Þau
hefðu engan tíma til að búa til búninga. Amelía
reyndi að finna sér eitthvað til að gera; það
dró úr áhyggjiun hennar og beindi athygli
hennar að verlkefninu.
Skólinn hætti snemma og Linda reið til
Yellow Post á hesti Sandbo systkinaima og
keypti litskrúðug léreft og bönd. Hún og Mark
notuðu tækifærið og voru samferða þangað,
því að hann þurfti að kaupa vistir. Þau fóru
til Jóns gamla Tóbaks og Ikeyptu slrinn og
fjaðrír handa Mark og búricig handa Lindu,
skreyttan perium og fjöðrum.
Þegar þau riðu heimleiðis um kvöldið töluðu
þau um Júdit og Svein.
„Það er glæpsamlegt að liann skuli kúga
stúlkuna svona“, sagði Linda. „Og mér flnnst
alveg sjálfsagt að hvetja hana til að strjúka.
Þótt hann elti þau, verður það henni til góðs
að lo!kum“.
Mark samsinnti því að ástandið gæti tæplega
orðið verra en það væri. Svo töluðu þau um
Klovaczfjölskylduna og Mark sagði henni, að
frænka Antons ætlaði að verða hjá börnunum
um veturinn. Mark var undraadi yfir því að
Caleb skyldi ekki hafa reynt að gera eitthvað
til að lxefna sín á honum fyr:r nýafstaðna
mógðun. En Linda var óróleg bg óttaðist að
liann fyndi upp á einhverju til að eyðileggja
sambandið milli Marlks og hennar. Húa horfði
á traustlegan hliðarsvip Marks og reyndi að
S
UULT OC CAMMsl
Tommi litli kemur heim eftir fyrsta daginn
sinn í skólanum.
Hvað gerðist í skólanum, Tommi minn? segir
mamma.
Eklcert, svárar Tommi. Það kom einhver kona
inn og spurði mig hverníg ætti áð stafa orð-
ið köttur — og ég gerði það.
Kennarlnn: Hjálpaðl pabbl þlnn þér ekki eitt-
livað með þessi dæmi ’
Siggi: Nei, kennari.
Kennarinn: Ertu vlss um að liann hafi eklci
hjálpað þér?
, ,Siggi; J£,- hann relknaði ,|>a^ elmu
Hvért ér öruggasta 'raÍSÍð til 'að 'for'ða 'mjólk
frái því að • súrna?
Látá, haná v’era áfram í kúnni. '■*,