Þjóðviljinn - 04.11.1953, Síða 8

Þjóðviljinn - 04.11.1953, Síða 8
8) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 4. nóvember 1&53 &LFUR UTANGARÐS 29. DAGUÍ4 Bóndinn í Bráðagerði Ég borga fyrir mig, sagði bóndinn. En ég er ekkert uppá það kominn að borga fyrir það, sem aðrir éta. Ekki bauð ég honum að borða. Þjónustan sagði, að hi'in ætlaði ekki að blanda sér í það hver ihefði boðið hverjum, en pem'nga sína vildi hún fá og eingar refj- ar. Mundi hún leita aðstoðar lögreglunnar ef tregða yrði á greiðslu, en af því Jcn hafði þegar lítillega kynnst þeirri stétt manna, óskaði hann ekki eftir nánari kynnum útaf ekki þýðing- armeira máli. Því varð heldur ekki mótmælt, að hann átti þess- nm hverfula manni að þakka þann góða beina, sem hann hafði meðtekið, sá hann því þann kost vænstan að rekja seglgarnið ut- anaf buddu sinni. Lá þó við sjálft, að hann flækti fíngur sína í •umvafinu, þegar stúlkan nefndi upphæð þá, sem honum bæri að borga, því hún slagaði hátt uppí mánaðarúttekt Bráðagerðis- heimilisins. Nú dámar mér ekki, ságði Jón. Dettur þér í hug, heillin, að þú getir talið mér trú um að þetta kosti svona mikið? Stúlkan sagði, að haiin mætti þakka fyrir að sleppa með svo lítil útlát, því mat hefði hann étið ávið fjóra. Og afþvíað Jón var ekki í skapi til þess að prútta þessa stundina, og stúlkan ekki með réttu sökuð um óheiðarleika, inntí hann greiðsluna af hendi, en kumpán þeim, sem hafði séð sér leik á borði að éta á hans kostnað, hugsaði hann þegjandi þörfina ef fundum þeirra kjmni ao bera saman. Kvaddi síðan stúlkuna með handarbandi •og skildu þau með, virktum, því viðmót hennar varð óðar vin- samlegra við penínga bóndans. Hún meira að segja firrtist ekki við, þótt hann klappaði henni aftaná neðanvert við bakið að skilnaði og héti að koma þar aftur áðuren hann leitaði til heima- haganna. XI. kafli. -lón bóndi heimsækir æðstu stofnun þjóðarinnar og innleiðir kunníngsskap, er liann væntir sér mikils af. Með saddan maga yfirgaf bóndinn mathús þetta, en setti vel á sig staðinn, svo og öll nærliggjandi kennileiti, því hann hafði hug á því að gánga þar við síðar. Jafnhliða sór hann við skegg sitt, að héreftir borgaði hann áðeins fyrir það, sem færi í hans eigin maga. Hitt skyldu heimamenn í Reykjavík komast að raun um, ef leið þeirra lægi einhverntíma um hlaðið í Bráðagerði, ■aö ekki yrði spurt þar um greiðslu fyrir góðgerðir. > Dagur var þegar af léttasta skeiði og Jóni orðið mikið í mun aö komast á f jörur við hið opinbera, þvi hann hafði aldrei lifað ettir því boðorði að geyma til morguns það sem hægt var áð gtra í dag. Lagði hann því öðrusinni leið sína að því fundar- húsí, sem tignast er í þessu landi og kvaddi dyra. Birtist fljót- lega hengilmæna sú, er hann hafði hitt þar fyrr um daginn. Ekki vænti ég að þíngmenn séu í standi til þess áð tala við gesti? spurði Jón. Hengilmænan mátti ekki vera að því að svara, því svo mikið iá við að loka dyrum aftur hið skjótasta. Sagði þó að um dyr þessar geingju aðeins útvaldir, e.n óboðnum og óþvegnum væri heimilt að gánga um bakdyr. Jón lét sér þetta vel líka, þótt hann skildi ekki hverju slíkur dyramunur sætti. Hitti hann fljótlega á hinar tilvísuðu bakdyr. Þar fyrir innan var hurð og féll ekki að stöfum, en ángandi kleinulykt barst útum gættina. Gat Jón ekki stillt sig um að kíkja varlega í rifuna en í sömu svifum, var hurðinni skellt svo harkalega í lás að leingstu skegghár bóndans festust á milli stafs og hurðar og reyndist ekki sársaukalaust að losna úr gildru þessarri. Jóni þótti ekki fýsilegt að fást frekar við dyr þessar, svo hann sneri •sér að stigum, sem lágu upp til efri bústaða hússins. Lauk þeirri gaungu uppi undir þaki þarsem lágt var til lofts. Fáein gamalmenni hímdu þar á lélegum setgögnum og teygðu fram Loldlausar álkurnar. Jón skákaði sér inná einn bekktnn og tók nð blína í sömu átt og þeir er fyrir voru. Sá hann þá oní sal einn viðan og skrautlegan. Hafðist þar við strjálíngur manna og var samkunda sú með litlum glæsibrag. Einn maður stóð þar iipþréttur og suðaði eitthvað framum nefið en einginn hlustaði á mál hans. I öndvegi sat sléttleitur öldúngur og dró ýsur og þurfti ekki að tvíla aflabrögðin eftir útliti mannsins að dæma. thfrá honum hafði einn lekið framá borðið og skar hrúta af mikilli elju. Innum dyr á hliðarvegg sá Jón inní afhýsi hvar mannsfætur hölluðu undir flatt uppi á borði og samkvæmt eðiilegri afstöðu þeirra mundi hinn endi líkamans eigi lángt frá SÓ,fí- X Jón hnippti í sessunaut sinn. Getur sambandsráðsfundur svipt ISÍ tekjustofnum, sem það hefur áður tileinkað sér, og fórnað þeim fyrir íinynd- aðan ágóða af getraunum? Eitt af þeim málum, sem t:l umræðu var á síðasta sam- bandsráðsfundi ÍSl, voru fjár- mál sambandsins. Er það ekki nema eðlilegt því án fjármagns er ómögulegt að starfrækja sambandið. Það hefur líka verið rauður þráður gegnum a.m.k. tvo tugi ára í umræðum allra stærri funda íþróttasambands- :ns (ársþinga og sambandsráðs- funda). Á tímabilinu hafa verið kosnar margar nefndir til að' géra tillögur til úrbóta, og fjöldi tillagna um fjáraflanir verið gerðar. Þrátt fyrir allar þessar nefndir og tillögur, var fjárhagur íþróttasambands Is- lands þannig að það hefur orð- ið að fá lán úr sjóðum sam- bandsins til að standast kostnað við daglegan rekstur, Er sam- bandið þar af leiðandi kom ð í skuldir. Enn er gripið til sama ráðs- ins og áður að skipa nefnd til að gera thlögur til úrbóta. Við skulum vona að þessari nefnd takist betur en fyrirrennurun- um, en á pappírnum líta þessi nöfn hvorki betur né ver út en önnur sem skráð hafa verið í sama tilgangi. Furðuleg tillaga. Það undarlega skeður í lok fundarins að e:nn úr fjárhags- nefndinni ber fram tillögu sem samþykkt er nær samhljóða, og gæti orðið ærið afdrifarík ef hún á að takast alvarlega. Þar er sem sagt lagt bann við fjár- öflunum til handa ÍSÍ, „sem byggjast á framtaki íþróttafé- laga og héraðssambands", ef samkomulag næst um hundraðs- tölu (%) þá er ISl fengi af nettó ágóða af getraunastarf- seminni. Virðist sem héi- sé um að ræða fyrstu aðgerð e:ns néfndarmanna í fjáröfluaum fyrir ÍSÍ, og tillagan fellur í góðan jarðveg. Sjálf stjórn sambandsins, að einum undan- teknum, samþykkir. Varla munu menn, sem svo einróma fylgja þessu máli draga í efa að ekki takist samningar um hundraðs hluta ágóðans af getraununum. Þar með hafa þeir líka varpað frá sér þeim möguleika að afla sér tekna til að losna úr skuld- um, hafa fyrir daglegum rekst- urskostnaði, eða afla fjár til annarra málefna samb., t.d. hús byggingar, eftir þeim leiðum, sem venja hefur verið og venja er hjá hliðstæðum samtökum. Því miður blæs ekki byrlega fyrir getraununum og ekki tíma bært að reikna með ágóða úr þeirri átt. Það verður því ekki annað séð en með tillögu þess- ari sé verið að svipta ISl þeim tekjuöflunarleiðum, sem farnar hafa verið. Sambandsráð bannar að far.’ð sé í fjáraflanir „sem byggjast á framtaki íþróttafélaga eða héraðssambanda“. Þetta sér- kennilega orðalag má skilja svo að ekki megi fara inná þær leið- Samþykktin Sambandsráðsfundur ÍSÍ haldinn 24. og 25. okt. 1953 samþykkir að mæla með framkominni tillögu um sölu útfylltra getrauna seðla (happdrættisform) og mun hvetja alla sam- bandsaðila sína að veita forráðamönnum íslenzkra getrauna alla þá aðstcð við framkvæmd hennar sem lienni. er unnt að veita og heitir á alla aðila ISÍ að leggja þeim alla þá aðstoð sem á þeirra valdi stendur. Þá samþykldr fundurinn einnig að óska þess að áð- ur en til framkvæinda kemur, verði gengð frá þeirri hundraðstölu (%) sem ÍSL myndi h’jóta af nettóágóða, enda gangist ÍSÍ ekki fyrir happdrætfi eða öðrum fjáröflunum seni byggjast á framtaki íþróttafélaga og héracs- sambanda (íþróítabanda- laga). ir sem félög'n hafa farið til fjáröflunar eða framtak fé- lagsmanna megi ekki 'nota til þess að afla Iþróttasambandi Isl. fé til reksturs síns. Þetta er í eðli sínu fráleit kenning og furðulegt að hún skuli koma frá stjóm samtakanna. Það er eins og þessir menn viti ekki að Iþróttasambandið er til orð- ið fyr’r atbeina félaganna, það eru þau sem mynda sambandið, það er þeirra eigið óskabarn. Það eru félögin eða þing þeirra sem verða að gera sér ljóst hverja þjónustu þau vilja fá hjá samband:nu, og leggja því til það fó sem til þess þarf. Því miður verðum við að horf- ast í augu við þá staðreynd að ekkert ársþing hefur veitt for- svaranlegt fé til daglegs rekst- urs sambandsins m'ðað við þá kröfu sem gerð er til þjónust- unnar. Þau verða að gera upp við sig hvort þau vilja mikla þjónustu og leggja þá mikið fé til starfs sambands'as, en vilji Fyrirspurn Sigurbergur Elísson hefur beð- ið Íþróttasíðuna að koma á fram- færi við rétta a'ðila fyrirspurn um það hvort heimilt sé að framlengja í sama móti einn leik um 2x5 m:n. en annan um 2x15 mín. SVAR: Íþróttasíðan sneri sér til Ólafs Jónssonar formanns K. R. R. með framanskráða fyrirspurn og gaf Ólafur eftirfarandi uppiýsingar: Varðandi mót það er nú stend- ur yfir hefur K. R. R. samþykkt að framlengja skuli leikjum, éf með þarf í 2x5 mín. þeir hinsvegar leggja lítið til verður auðvitað að draga sam- an þjónustuna. Andinn sem ríkt hefur. Andi þessarar tillögu er ná- kvæmlega sá sami og ríkt hef- ur gagnvart ISÍ í fjármálun- um um fjölda ára. Á hverju ársþkigi eru samþykkt fjár- hagsáætlun sem ekki getur staðizt, og það sem á vantar verða þessir 5 menn sem í stjórn sitja að afla með illu eða góðu, og þá hefur oftast verið rekizt á sama múrinn og í tillögunni kemur fram: fé- lögin hafa nóg með sig, okkur kemur ykkar fjárhagur ekkert við. Svona berlega hefur skref- ið þó aldrei verið stigið fyrr og að það skuli gert af sjálfri stjórn sambandsins er næsta furðulegt. / Hefur sambandsstjórn heimild til að afsala sér tekjustöfnum ? Ef taka á tillögu þessa al- ‘ varlega getur Iþróttasamband Islands ekki farið út í happ- drætti, merlcjasölu, skemmtan- ir ekki beðið.. velunnara íþrótt- anna a'ð styrkja sambandið með. gjöfum eins og gert var á tímabili til að bjarga fjárhagn- um það og það árið, því fjár- Framh. á 11. síðu Enska deildakeppnin Úrsiit s. 1. laugardag: I. deild: Arsenal 4 — Sheffield Wed. 1 Aston Villa 2 —- Boiton 2 Biaekpool 4 — W. B. A. 1 Cardiff 5 — Charlton 0 Chelsea 5 — Liverpool 2 Huddersfield 0 — Manch. Utd 0 Manch. City 3 —- Bumley 2 Portsmouth 0 —• Middlesbro 2 Sheffield Utd 3 — Newcastle 1 Sunderland 4 — Tottenham 3 Wolves 1 -—Preston 0' W.B.A. 16 12 2 2 45-21 26 Wolves 16 10 4 2 41-23 24 Huddersfield 16 10 3 3 32-17 23 Burnley 16 10 0 6 36-29 20 Bolton 15' 7 5 3 26-21 19 Cardiff 16 7 5 4 20-18 19 Chariton 16 9 0 7 39-33 18 Blackpool 15 7 3 5 '30-24 17 Framhald á 11. síðu Getrausraspá Portsmouth 1 x 1 Bolton Charlton — Huddersfield Liverpool — Manch. City Manch. Utd. Arsenal Middlesbro — Wolves Newcastle — Cardiff 1 Preston —• Blackpool 1 Sheffield — Wed.-Aston V. Leeds Doncaster 1 Nottingham — Derby 1 Plymouth-Bristol Rov 1 Stoke — Everton Kerfi 32 raðir. Mts5 ' • M M M M X

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.