Þjóðviljinn - 13.12.1953, Page 6

Þjóðviljinn - 13.12.1953, Page 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 13. desember 1953 þlÓÐVIUINN Útgefandl: Samelntngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurlnn. Rltstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðrriundsson. ITréttastjórl: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Asmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð- jnundur Vlgfússon, Magnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Rltstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg. 19. — Sími 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 11 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Samsfarf gegn íhaldinu íhaldið hefur of lengi verið við vold í Reykjavík. Það er stórhneyksli, ef þessum sérhagsmunaflokki Kókakóla- hjörns, Bjarna Ben. og Thorsaranna tekst enn að hanga eins og mara á Reykjavík um fjögra ára skeið, enda þótt meirihluti bæjarbúa sé, og hafi löngum verið, andvígur honum. Raunar eru miklu fleiri«andvígir íhaldsstjórn á Reykja- vík en þeir sem greitt hafa andstöðuflokkum þess atkvæði við kosningar. Völd sín yfir Reykjavík misnotar íhaldið í sívaxandi mæli til hinnar bullulegustu atvinnukúgunar og skoöanakúgunar. AÖ þeim þúsundum starfa, sem bæjar- stjórnin ræður yfir er raðað mönnum sem íhaldinu eru velþóknanlegir, mönnum sem a.m.k. fást til að ganga í Óðin eða Vörð eða vera á lista gegn einingarstjórn í Dagsbrún eða vinna annað þvílíkt til. Sjálfstæðisflokkur- inn, minnihlutaflokkur í Reykjavík, er að reyna aö skapa þaö andrújnsloft, að engum manni þýði að sækja um starf eða vinnu hjá bænum, ef hann hefur aöra stjórn- málaskoðun en þessi minmhlutaflokkur heildsalabraskara og burgeisa. Með þvílíku andrúmslofti hyggst hann tryggja völd sín í bænum. Framkvæmd Sjálfstæðisflokksins, minnihlutaflokksins, á illa fengnum völdum sínum 1 Reykjavík er í sívaxandi mæli að verða þessi: Sá meírihluti borgarbúa sem ekki fylgir Sjálfstæöisflokknum skal vera réttlaus gagnvart flestum eða öllum störfum sem kostuð eru af sameigin- legum sjóði allra borgarbúa. Sjálfstæöisflokkurinn, minni- hlutaflokkur í bænum, skal reka Reykjavík eins og ákaf- lega ábatasamt flokksfyrirtæki, fylgjendur hans einir njóta fullra mannréttinda í höfuðborg íslands! Það er stórhneyksli ef hinn illa þokkaði minnihluta- . flokkur Kókakólabjörns, Bjarna Ben. og Thorsaraburgeis- . snna á að fá aö leika þennan ljóta leik enn fjögur ár. Með ávarpi til Reykvíkinga, sem stjórn Sósíalistafélags Reykjavíkur birti hér í blaðinu í gær, er vísuö leiðin til sigurs yfir íhaldinu 1 bæjarstjórnarkosningunum í janúar. Þar segir m.a.: „Eins og sakir standa, er óhugsandi að tryggja sigur íhaldsandstæðinga í næstu bæjarstjórnarkosningum nema með víðtæku samstarfi þeirra. Þetta samstarf þarf að vera lýðum ljóst fyrir kosningar. Andstæðingar íhalds- ins þurfa að koma sér saman um grundvallaratriði í bæjarmálastefnuskrá, og gera um hana bindandi samn- ing nú þegar. Um baráttuna á móti íhaldinu verða kosn- ingarnar að snúast. Almenningur í bænum á heimtingu á að fá að vita fyrir kosningar, hvernig á að stjórna bæj- arfélaginu á næsta kjörtímabili. Sósíalistafélag Reykjavífcur lýsir því yfir aö það er reiðu- búið til slíks samstarfs við öll frjálslynd öfl í bænum, ein- staklinga og samtök, þar á meðal aðra andstöðuflokka íhaldsins, um brýnustu nauðsynjamál Reykvíkinga: Húsnæðis- og atvinnumál, gerbreytta afstöðu bæjarstjórn- ar til hagsmunamála verkalýðs og annarra launþega, menningarmál æskulýðsins, heilbrigöismál, samgöngu- mál, framfærslumál, stækkun hitaveitunjiar, aukning raf- orkunnar, réttlátari útsvör, afnám fjármálaspillingar íhaldsins, og síðast en ekki sízt hin fjölmörgu aðkallandi vandamál úthverfanna, og hver þau mál önnur er sam- komulag tækist um til hagsbóta fyrir almenning og bæj- arfélagið í heild.“ Þetta er mikið alvörumál, og þetta er fœr leið. Minn- umst þess, að íhaldið er minnihlutaflokkur í Reykjavík. Missi þaö völdin, hrynur illa fengiö fylgi þess eins og spilaborg. En fólkið þarf að vita að hverju það gengur, hverskonar stjórnarstefnu þaö kýs. Þess vegna þarf nú til að komá samstarf allra þeirra afla sem vilja létta hinni lamandi íhaldskrumlu af Reykjavík, allra þeirra, sem finna að íhaldið, minnihlutaflokkur burgeisanna, hefur of lengi hangið í illa fengnum völdum, Reykvíking- um til ómetanlegs tjóns. <Sk. JðLAPLÖTURNAR KOMNAR í * DRANCEy Bezta jólagjöfin er hið klassíska albúm íslenzkra tóna Þuriður Pálsdóttir við hljóðfærið Róbert A Ottóson Blht er undir björkunum (P. Isólfsson) Hrosshár í strengjum (P. Isólfsson) Sofðu, unga ástin min (Sv. Sveinbjörnsson) Geysiórval al dansplötum, íslenzkum og erlendum DRANGEY Laugaveg 58 — Sími 3311 Guðrún Á Símonar við hljóðfærið Fritz Weissha-ppel Svanasöngur á heiQ (Sigvaldi Kaldalóns) Dicitencello Vuie (R. Falvo) Pavel Lisitsían við liljóðfærið Tatsjana Kravtsenko Rósin (Árni Thorsteinsson) Armenskt lag (Dolucanjan) ' --------------------------------------------\ Félagið Berklavörn Félagsvist og dans í Breiðfirðingabúð þriðjudaginn 15. desember klukkan 8.30 e.h. I---------------------------------------------^ ★ Teljið ekki eftir yklvur ★ nokkur spor upp ★ Skólavörðusiíginn í 3 -------- Bókabúð Máls og memtingar. Skóiavörðustig 21 — Sími 5055. \ V. Bláa drengja- og unglingabck- in í ár er komin út. Hún heitir RÚNAR og er eins og fyrri bláu bækurnar spenn- andi og bráöskemmtileg. R0NAR esr úrvals drengia- búk, h©Il og hrsssa^ái og því tlivalsn.félagíöí Sianda söskum 'áreúgfjum. Bókfellsuigáfan Símar 81860 og 82150

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.