Þjóðviljinn - 13.12.1953, Blaðsíða 8
S) — ÞJÖÐVILJINN — Sunnudagur 13. desember 1953
ALFUR UTANGARÐS
63. DAGUR
Bóndinn í Bráðagerði
Jón gaf vonina um undankomu uppá bátinn í svipinn og
fylgdi verði laganna eftir inná milli húsanna. Alltíkríng göptu
skúmaskot og kjallarahálsar, hin ákjósanlegustu athvörf fyrir
menn, sem töldu'sig hafa ástæðu til þess að forðast samborg-
ara sina.
Ðölvað ólán, að ég skyldi endilega rekast á þig í þessari götu,
sagði lögregluþjónninn. Hann leit út fyrir að vera viðræðugóður
maður.
Ég segi það sama, ikunníngi, sagði Jón. Ég hefði ekki grátið,
þótt við hefðum farist á mis.
Það er hægt að sjá í gegnum fingur við mann, þótt hann
fremji glæp, hélt vörður laganna áfram. Það sem máli skiptir
er það, að glæpamaðurinn velji til þess rétta götu. Að drýgja
glæp í vitlausri götu er glæpsamlegra helduren að drýgja sjálfan
glæpinn. Það er lóðið!
Nú hætti ég að skilja, sagði Jón. Hingaðtil hefi ég haldið
að glæpur væri bara glæpur, púnktum og basta!
Það er uppá skýrsluna, sagði lögregluþjónninn. Allt sem gerist
á vaktinni verður að skrifast í skýrsluna. Ég get trúað þér fyrir
þvi, lagsmaður, að það er ekki hrist framúr erminni að skrifa
skýrslu.
Það ætti varla að vera svo erfitt að klóra eina skýrsluóveru fyr-
ir svo faungulegan mann og þú ert, góðurinn, sagði Jón. Annars
get ég ekki skilið, að það komi þessu við með glæpinn og götuna
Það kemur því einmitt við, sagði félagi Jóns. Það er uppá
stafsetnínguna. Rekist maður á glæp, verður maður að skrifa
stund og stað í skýrsluna, og umfram allt má ekki gleyma
götunafninu. Þessi staðreynd virðist hafa farið fyrir ofan garð
og neðan hjá þeim, sem skírðu göturnar, því jafnvel láng
skólagengnum mönnum getur orðið hált á stafsetníngunni þegar
þeir eiga að skrifa sum götunöfnin hér í Reykjavík.
Getum við ekki sæst á það, að hér hafi einginn glæpur verið
framinn, sagði Jón, og þarafleiðandi sleppurðu við að skrifa
skýrslu í þetta skipti.
Kemur ekki til mála, sagði lögregluþjónninn. En hvernig væri
að skrifa, að ég hafi rekist á þig I næstu götu í staðinn fyrir
þessa?
Segðu bara kunníngi, að þú hafir rekist á mig í miðju Ódáða-
hrauni, ef þú þarft endilega að skrifa eitthvað, sagði Jón og
sýndi götuvandamáli fylgdarmanns síns lítinn skilníng.
Maður brallar þetta stundum, hélt lögreglumaðurinn áfram
drýgindalega. Hugkvæmni er bráðnauðsynlegur eiginleiki hjá
mönnum í minni stöðu. Það er lóðið! Ég minnist þess leingi, þegar
ég fann líkið í Fissersundi!
Fannst bara lík, sagði Jón. Margur hefur gert sig ánægðan
með að finna minna. Sagðirðu að það hefði verið á sundi?
1 Fissersundi, leiðrétti lögregluþjónninn. Gatan heitir sko, þessu
ónefni. Og ekki nóg með það heldur verður að skrifa þetta bann-
sett Fissersund öðruvísi en það er talað. Það er lóðið!
Og var líkið dautt? Ég á við í alvöru? spurði bóndinn.
Já, sá hafði áreiðanlega ekki dáið uppá grín, sagði finnandinn.
Ég var á næturvakt og átti þama leið um í þessu kola-sótsvarta
myrkri. ög heldurðu að hann hafi ekki þurft að flækjast fyrir
mér með aðra löppina, svo fyrren ég veit af. ligg. ég endilángur
við hliðina á honum. Það hefði farið um kjarklitla við ákomu af
því tagi.
Þú varst lánsmaður, kunníngi, að hann var dauður í alvöru,
sagði Jón því það er aldrei að vita uppá hverju menn taka
hálfdauðir. Og þú mátt prísa þig sælan, að liann hafði ekki fyrir
því að gánga aftur. Afturgaungur eru ekki lömb að leika sér
við, kunningi!
Maður var nú kannski ekki leingi að ltoma fyrir sig fótum og
átta sig á hlutunum, hélt lögregluþjónninn áfram upptendraður
af sinni eigin hugkvæmni. Það lá strax í augum uppi, að hér var
um glæp að ræða. 1 fyrsta lagi vegna þess, að menn leggja sig
tæpast úti á götu til þess að geispa golunni, nema þeim sé hjálpað
til þess, í öðru lagi var það glæpur að bregða fæti fyrir mig
undir þessum kringumstæðum, jafnvel þótt maðurinn væri dauð-
ur. Og þriðji og stærsti glæpurinn var sá að liggja þarna stein-
dauður í þessu bölvaða Fissersundi, sem er skrifað öðruvísi en
það er talað.
Viljiö þið eignazt BÓNDANN í BRÁDAGERÐI í
bóJcarformi? Komi nœgilega margir áskrifendur verð-
ur hann sérprentaður. Sendið nafn og heimilisfang
til Þjóðviljans, Skólavörðustíg 19, Reykjavík, merkt:
BÓNDINN.
Aðaliundur
glímudeildar Ármanns
Aðalfundur Glímudeildar
Glímufél. Ármanns var haldinn
s.l. föstudag. Formaður Rúnar
Guðmundsson skýrði frá félags-
starfinu, sem var með miklum
blóma. Ármenningar kepptu í öll-
um kappglímum á árinu með á-
gætum árangri, t. d. unnu þeir
íslandsbeltið (Rúnar Guðmunds-
son) og alla fullorðnu flokkana
í Landsflokkaglímunni. Þá fóru
þeir margar sýningarferðir um
nágrenni Reykjavíkur. Stjórnar-
kosning fór þannig: Formaður
Hjörtur Elíasson, meðstjórnend-
ur: Guðm. Ágústsson, Gísli
Guðmundsson, Grétar Sigurðsson
og Anton Högnason. Rúnaí'- Guð-
mundsson, fyrrv. formaður baðst
undan endurkosningu, þar sem
hann væri á förum af land burt.
Mikill áhugi og samhugur
ríkti á fundinum um að gera
þetta næsta glímuár sem glæsi-
legast, enda heldur félagið upp
á 65 ára afmæli sitt á þessu
starfsári.
★ Þjóðviljinn biður lesendur
íþróttasíðunnar að afsaka
að hún hefur enn orðið að
víkja fyrir jólaauglýsingum.
★ Teljið ekki eftir ykkur
★ nokkur spor upp
ir Skólavörðustíginn í
Bókabúð
Máls og menningar
Skólavörðustíg 21 — Simi 5055
Sófasett
og einstakir stólar, margar
gerðir.
Húsgagnabólstrnn
Erlings Jónssonar
Sölubúð Baldursg. 30, opin
kl. 2—6. Vinnrstofa Hofteig
30, sími 4166,________
Jólatrésseriur
— Amerískar —
3IJÖG VANDAÐAR
OG ÓDÝRAR
,,Ungar"
raftœkin
eru ltomin aftur
Tekin upp um helgina — 1‘ant-
anir óskast sóttar
sem fyrst
Lampinn
Laugaveg 63 — Sími 81066
Teljið ekki eftir ykkur
i( nokkur spor upp
A Skólavörðustíginn í
Bókabúð
Máls og menningar
Skólavörðustíg 21 — Sími 5055
Forá
Viðskiptavinir okkar athugi
að símanúmer okkar verður
framvegis
82295
(tvær línur)
Fordumboðið
Kr. Kristjánsson h.f.,
Laugaveg 168—170, Reykjavík.
A
karla
Jólaskór
Kvenskór
glœsilegt úrval. — Nýjasta tízka.
Bomsur
kvenna — barna. — Fjölbreytt úrval
Barna gúmmístígvél
Stefán Gunnarsson h.f.
Skóverzlun — Austurstræti 12.
Hinir sterku
Sísaldreglar
Höfum ávallt til okkar viðurkenndu og sterku
Sísal-dregla í 70-80-100 cm breiddum —
einnig nýja gerð í 70-90 cm. breiddum,
í ljósum og björtum litum. Saumum og földum.
Öll vinna framkvæmd af fagmönnum.
Islenzk vinna. — Styðjið íslenzkan iðnað.
GÓLFTEPPAGERÐÍN h.f.
. Barónsstíg — Skúlagötu — Sími 7360.
Símanúmer vort er
82300
T rv ggingarstofnun ríkisins
IÐJA, Lækjargötu 19
'
5 gerðir af vönduðum ryksugum.
Bónvélar, strauvélar og kæli-
skápar með hagkvæmum
greiðsluskilmálum.
Lampar og Ijósakrónur
IÐJfl, Lækjargötull