Þjóðviljinn - 13.12.1953, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 13.12.1953, Blaðsíða 12
Sjálístæðisíiokkuímn á pn ■' Nýlega var braggi sem stór barnafjölskylda bjó í flutt sunnp an frá Öskjuhlíð og inn í Laugames. Myndin hér að ofan er af bragga þessum, þar sem honum hefur í þann veginn verið kom- ið fyrir á gömlum braggagrunni. í Öskjuhlíðinni (sem góður Sjálfstæðismaður hefur gefið nafn- ið Gort-hill, sbr. Snobb-hill í öðru bæjarhluta) eru fínir menn að byggja við hina nýju götu, Boulevard Bingo, og er ekki nema að vonum að þeim leiðist að hafa braggahverfið necan hlíðarinnar fyrir augunum, enda skiljanlegt að slíkt geti sært fegurðarsmekk tiginna gesta þeirra. Er uppi sterkur orðrómur um að $jálfsfcæðisflokkurinn ætli að bjarga málinu með því að flytja þetta braggahverfi, svo og nokkra aðra bragga, inn í Laugarnes og hafa þar einskonar einkagrafreit ílialdsins fyrir braggaskrifli þess. Að sjáJfsögðu verður það ekld framkvæmt fyrr en eftir kosningar! Flutningur fyrmefnds bragga er skýrð- ur með því að hann hafi verið fyrir byggingu menntaskólans. Háteigssöínnður lær fimi i iiátfðasal SJámannaskólans E.ns og áður hefur verið skýrt frá, hefur svo um samizt, að Háíeigssöfnuður fái til bráða- blrgða afnot hins fyrirhugaða há- tíðasals í Sjómannaskólanum, til kirkjulegrar starfsemi. Hingað til hefur þessi salur verið ófullgerð- ur og ekki tek'nn í notkun. Nú undanfarið hefur verið unnið við bráðabirgðaaðgerð á honum, svo að hann mætti nota til hinnar fyrirhuguðu starfsemi. Því verki er nú lokið. Hinsvegar eru ekki tök á þvi í bili, að gengið verði frá salnum á þann hátt, sem gert er ráð fyrir síðar. Að öðm leyti hefur verið leit- elkorka komin út Komið er út nýtt hefti af Mel- korku, tímariti kvenxia; og er það lokahefti 9. árgangs. Flytur heffð margvíslegt eíni og fróð- Iegt. Birt eru minningarorð um Ing'.björgu Benediktsdóttur, á- samt kvæði Jóhannesar úr Kötl- um. Nanna C'afsdóttir ritar við- tal við húsmóður í bragga: Verst hvað erfitt er að hafa böm í þessum húsakýnnum. Björn Th. Björnsson listfræðingur skrifar greln'na Málað fyrir börn, og fylgja nokkrar myndir. Margrét Indriðadðttir skrifar viðtal við Kristínu Thoroddsen: Ég man ckki eftir auðu rúmi L Lands- spítalanum. Þ. V. ritar um Heimsþ'ng kvenna í Kaupmanna- höfn. Inga Þórarinsson skrifar i’m ritstjórann Elsu Nyblom. Birt er kínversk saga eftir Jou ;§h:h: Móðir í ánauð. Sitthvað fleira er í heftinu. Svava Þórleifsdóttir lætur nú ■af ritstjóm Melkorku, og annast þær tv.ær áfram ritstjórnina: Nanna Ólafsdóttir og Þóra Vig- íúsdóttir. azt við að búa starfseminni sem bezt skilyrði. Fyrir um það bil ári hófust messur safnaðarins í kirkjumí bæjarins. Síðar varð miðstöð alls safnaðarstarfsins i kennslustofu í Sjómannaskólanum. Fóru þar saman guðsþjónustur og barna- samkomur. Kirkjukór var stofn- aður síðari hluta vetrar. Hann hefur. síðan sungið við allar messur safnaðarins undir stjórn Gunnars Sigurgeirssonar. Nú hefst nýr þáttur í starf- semi Háteigssafnaðar, við bætt skilyrði á nýjum stað. Fyrsta messan þar. er i dag kl. 2 e. h. En fyrir hádegi, kl. 10,30 verður bárnasamkoma. Gengið er um aðaldyr móti suðri, og er salur- inn í austurálmu hússíns. Forgaiigsréttur iuar manna Athygli skal vakin á aug- lýsingu frá Dagsbrún, á öðr- um stað í blaðinu, þar sem stjórn Dagsbrúnar heitir á fé- lagsmenn að liafa félagsskír- teinin á sér, svo þeir geti sann- að forgangsrétt sinn, þar sem búast má við töluveríu að- streymi utanfé'agsmanna nú fyrir jólin. Jafnframt áminnir stjórn Dagsbrúnar verkstjóra og vinnuve'tendur að brjóta ekki forgangsrétt Dagsbrúnar- manna. 53 mættu -114 gengu inn að sögn Morgunblaðsinsl Á Heimdallarfund'num s.l. föstudag, þar sem fjárhagsáætl- un Reykjavikur var lögð fram og rædd áður en hún er birt bæjarráði og bæjarstjórn, mættu ekki nema 53 sálir þegar flest var og var ekki hægt að hefja fundinn fyrr en löngu eftir til- settan fundartíma. í frásögn Morgunblaðsins er þess hinsvegar getið að 114 manns hafi gengið í félagið á fundinum og hann einkennzt af áhuga unga fólksins fyrir því að gera sigur íhaldsins sem mestan í bæjarstjórnarkosningunum. Virðast hinir nýju meðlimir ekki sérlega áhugasamir fyrir félag- inu og málum þess þar sem fæst- ir þeirra hafa séð ástæðu til að sækja fyrsta fund sem þeir eiga rétt til að sitja, eða þá að grun- semdir hljóta að vakna um að tala nýju meðiimanna sé ekki sem ábyggilegust. En eftir þetta vita Reykvíking- ar a. m. k. hvað Morgunblaðið kaliar „vel sóttan“ fund og hve marga þarf til þess að fundir í halds'ns einkennist af áhuga unga fólksins fyrir sigrj þess í kosn- inguin. H16ÐVH1IMIÍ Sunnudagur 13. desember 1953 — 18. árgangur — 282. tölublað Verkfall 4oo.ooo brezkra járn- hrautarverkamanna á sunnudag Fjölmennustu samtök brezkra járnbrautarverkamanna, National Union of Railwaymen, hafa boöaö sólarhrings verkfall um næstu helgi. Járnbrautarverkamenn hafa eins og aðrir brezkir_ verkamenn undanfarna mánuðl borið fram með sívaxandi þunga kröfu um stórfelida kauphækkun, eða um 15% til að vefa upp á móti sívaxandi dýrtið, sem ekki sízt er að kenna ráðstöfunum íhalds- stjórnarinnar. Fyrir nokkru lagði gerðarnefnd, sem sklpuð hafði verið til að finna lausn á kaup- deilunni, t’l að iámbrautarverka- menn fengju 4 shillinga kaup- hækkun á viku. Stiórn hinna þjóðnýttu járnbrauta féllst á þessa tillögu. Stjórnir sambandsfélaga NUR höfnuðu í fyrradag einróma þessu boði og í gær tilkynnti forseti samtakanna, Campbell, að sam- bandsstjómin hefði. ákveðið að boða sólarhrings verkfall sunnu- daginn 20. þ. m. Er þetta í fyrsta s:nn í rúman aldarfjórðung, sem brezkir járnbrautarverkamenn gera verkfall_ en síðast var það í allsherjarverkfaninu mikla 1926, en við það hefur hlnum miklu átökum milli verkalýðsfé- laga og atvinnurekenda, sem nú eiga sér stað í Bretlandi, verið líkt. V iimingsnúmer í happ- ans Eins og áður hefur verið tilkynnt var dregið í Happ- drætti Þjóðviljans að kvöldi hins 5. desember sl. — Eftir- farandi númer hlutu vinning: Nr. 3610 dagstofuhúsgögn Nr. 75096 svefnherbergishúsgögn Nr. 20433 útvarpsgrammófónn Nr. 52307 sfcofuskápur Nr. 93986 hrærivél Nr. 8729 ryksuga Nr. 22606 myndavél Nr. 40022 ritvél Nr. 51553 reiðhjól Nr. 47789 íslendingasögur Vinninganna skal vitjað í skrifstofu Þjóðviljans Skóla- vörðustig 19. Um leið og Þjóðviljinn birtir númer yfir vinninga í nýafstöðnu happdrætti, vottar hann þakklæti sitt öllum þeim mörgu vinum sínum og stuðningsmönnum nær og fjær, sem unnu að sölu happdrættisins og stuðluðu á annan hátt að því að góðum árangri varð náð. Verður gaumgæfi- lega athuguð TASSfréttastofan skýrði í gær frá því, að Charles Bohlen, sendi- herra Bandaríkjanna í Moskva, hefði á mánudaginn skýrt Molo- toff frá efni ræðu þeirrar sem Eisenhower forseti hélt daginn eftir á þingi SÞ. Molotoff sagði, að sovétst.iórnin mundi íhuga gaumgæfilega þær tillögur um kjamorkueftirlit, sem forsetinn kom með í ræðunni, á sama hátt og hún hefði jafnan áður í- hugað tillögur um sama efni. Miiiiið skemmtuii sósialista í kvöld Sósíalistafélag Reykjavíkur efnir til spila og skemmti- kvölds í kvöld kl. 3,30 í sam- komusalnum Laugaveg 162. Er þetta fyrsta skemmtunin af mörgum sem félagið hyggst efna til í vetur. Og því æski- legt að allir verði með frá byrjun. Til skemmtunar verður fé- lagsvist, stutt ávarp og Karl Guðmundsson leikari skemmt- ir með upplestri o. fl. en auk þess verður spilað canasta og bridge af þeim sem það vilja og dansað að lokum. Fjöl- mennið í kvöld. Skemmtinefndin. v- » Kynningarkvöld Listvinasalarins Listvinasalurinn heldur annað kynningarkvöld sitt á vetr- ioum mánudagskvöldið 14. þ.m. í Þjóðleikhúskjallaranum, og hefst það kl. 8.30. Að þessu sinni verður efnis- skráin á þá letð, að Magnús Pálsson lelktjaldamálari flytur erindi um Leiksvið og leiktjöld, þar sem hann mun rekja helztu nýjungar í þróun leiksviðslistar. Með er'ndinu verða sýndar skuggamyndir. Annað atriðið er það, að þýzka tónskáldið Hans Ulrich Engel- mann mun leika frumsamda són- ötu, fyrir píanó, opus 5. Dr. Eng- elmann er meðal hinna þekktustu af yngri tónskáldum Þjóðverja, og byggir hann á hinu svonefnda 12 tóna kerfi. Hann hefur samið allmörg hljómsveitarverk og ó- perur, oí var hin síðasta, Hei- för dr. Fausts, frumsýnd í Ham- borgaróperunni 1951. Sem stend- ur hefur hann aðra óperu í sm'ð- um, einn'g fyrir Hamborgal’óper- una, og nefnist hún porgin svefnlausa. Einnig hefur hann í smíðum tónverk, sem byggt er á ljóðum negraskáldslns Langs- ton Ilughes, einskonar frelsisóð svertingja. Af öðrum verkum má nefna kantötu, er verður frum- 'eik'n á þýzku tónlistarliátiðinn' næsta ár. Dr. Engelmann er tónlistar- fræðingur en ekki þjálfaður pía- nóleikari, þótt hann hafi látið til- leiðast að flytja verk sinn sjálf- ur að þessu sinni. Að loknu veitingah’éi verður sýnd litkvikmynd um bama- teikningar. Að vanda er aðgang- ur ókeypis fyrir a’la styrktarfé- laga Listvinasalar'ns, og skulu skírteini sýnd við innganginn. ' Sýn'ngin á málverkum Þorvalds Skúlasonar í Listvinasalnum hefur verið frábærlega sótt og hafa sjö myndir selzt. Þessari merku sýningu lýkur í kvöld kl. 23. Svwmcf baroaáeslldai Myndlisiaskélaiis Sýning 4 verkefnum barna- deildar Myndlistarskólans i Reykjavík verður opin í dag i skólanum, Laugavegi 199, frá kl. 1—4 e. h. Aðgangur er ókeypis. og er fólk hvatt til að koma og' kynna sér getu yngstu borgar- anna á sviðj myndlistar. Kennari barnanna er Valgerður Á. Haf- stað. Ný námskeið hefjast í skólan- um í byrjun janúar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.