Þjóðviljinn - 29.04.1954, Page 11
Fimmtudagur 29. apríl 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (11
Hugleiðingar um Ijóð
Framhald a£ 7. siðu,
öll formföst ljóð. Fornmanna-
kveðskapur var lengi án enda-
ríms, svo ekki situr á íslend-
ingum að tala um rímleysu-
kveðskap í óvirðingarskyni.
Stuðlar og höfuðstafir voru
fyrrum í öllum norrænum og
fornenskum kveðskap, en hafa
nú síðast fallið niður nema á
íslandi. Mér virðist reglubund-
ið hljóðfall og samstöfufjöldi
í vísuorði og skipuleg röðun
vísuorða í erindi, aðaleinkenni
bundinna ljóða. Nú er mér
spurn: Hvað rak*menn til þess
í öndverðu er þeir hófu að
raða orðum frábrugðið mæltu
máli og mynda hendingar og
rím? Mér skilst að ákveðin til-
hneiging til taktfestu og skipu-
lags komi víða fram í viðleitni
og háttum manna og veiti þeim
yndi á ýmsan hátt. T. d. skipu-
legar hreyfingár líkamans
skipulegir hljómar i stað ó-
reglulegra hljóða og bundið
Ijóðaform. Hljóðfallið og klið-
urinn í ljóði gefur orðum þess
aukið seiðmagn og valda sefj-
an, sem er göldrum lík og f jöl-
kynngi forneskjunnar. í sum-
um kveðskap hefur dýrleikinn
og hljómurinn borið efnið ofur-
liði, þannig var um rímurnar
oft og tíðum. Stundum hafa
niðjar bragarháttarins reynzt
hugsuninni of þröngar eins og
i dróttkvæðunum fornu. Er þó
engan veg að lasta þá tamn-
ingu sem iðkun dýrra hátta
veitir. Enn í dag er það
skemmtun margra íslendinga
að kvecfa ferskeytlur undir
dýrum háttum. Þær hafa sitt
gildi fyrir höfunda og umhverfi
þ.eirra, jafnyel þótt varanlegt
og alménnt gildi þeirra sé lítið.
Iijóð eru í 'eðli síriú gágnorð-
ári en óbunðið mál. Þeim eru
£■ ■■,
éiginleg yms margbreytt hst-
brögð til að vekja áhrif. Þau
bregða upp myndum, tala í lík-
ingum, tengja þær saman, gefa
í skyn það, sem vart verður
sagt til fulls, vekja hugboð
með undarlegu orðalagi og
hálfkveðnum hendingum, sefja
méð endurtekningum, orka
bæði á hugsun og tilfinningar
í einu og segja fyrir vini sína
það sem þeir vildu sagt hafa
en gátu ekki. Þau eru gædd
áhrifamagni likt og hljómlist
eða litir lofts og lagar. Þau
sýna okkur tengsl hluta áður
ókunn og gefa okkur næmari
skilning á sjálfum okkur og
öðrum.
Mér finnst t. d. að erindi
eftir Shelley hafi hjálpað mér
til skilnings á list Kjarvals.
Öll þessi áhrif ljóða virðast
mér sterkari í afmörkuðu formi
með klið og hljóðfall að undir-
leik. Allar geðshræringar okkar
eru skammvinnar, eiga sér
upphaf, hástig, endalok. Ljóð
er 'sámanþj appað áhrifasvið, en
öll innfjálg nautn er afmörkuð
— eins og sonnetta.
Öll mestu ljóðræn listaverk
eru stutt. Þau sem eru löng
vekja oft hjó lesanda þá hugs-
un að meiri þétting hefði gert
þau betri. Auðvitað veldur
bundna formið erfiðleikum,
það kostar að finna orð, sem
fullnægja bæði tjáningunni og
forminu. En hvaða erfiði, sem
þetta kann að hafa kostað
skáldið, þá finnst lesanda við
lestur listaverks að þetta hafi
allt komið jafn eðlilega og
laufin vaxa á tré eins og Keats
segir. Eg geri mér þó hugmynd,
þó reynslu skorti af eðlilegum
ástæðum, að átökin milli til-
finninga og hugmynda annars
vegar en formsins hins vegar
skapi fullkomnust listaverk.
En hvað er þá að segja um
óbundin ljóð eða „atómljóð“
sem svo hafa verið kölluð fá-
tæklegu nafni af andstæðing-
um. Að minu viti skapast gildi
þeirra á sama hátt og annarra
ljóða. Þau hafa oft reglulegt
hljóðfall á köflum en í þeim
er þó sífelld tilbreytni. Á þann
hátt eignast þau oft fjölbreytt-
an klið sem fellur vel við efnið
hverju sinni og orkar mjög á
lesandann. Þessi tilbreytni í
gerðinni gefur óbundnum
ljóðum sérstaka töfra og ýmsa
möguleika aðra en fasta form-
ið hefur. Óbundin Ijóð eru
hvert öðru mjög frábrugðin,
að byggingu og meðferð efnis.
Og mér finnst jafn erfitt að
skilgreina í hverju veruleg list
er fólgin í því formi eins og
hinu. Sum kvæði taka mig
þeim tökum að ■ ég hef ekki
frið fyrir þeim fyrr en ég er
búin að læra þau, önnur sé ég
að vísu að eru vel gerð en ég
er hlutlaus gagnvart þeim, en
ekki gagnvart hinum og get
því ekki dæmt á milli þeirra.
Það er mjög auðvelt að setja
téetingslegar setningar hingað
og þangað á blaðsíðu með
þankastrikum og upphrópunum
og kalla þetta Ijóð. En orða-
samstæður eru heldur ekki
listaverk vegna þess að vera
rímaðar, þótt þær hafi reyndar
þann kost að hægt er að raula
þær og læra.
Eg held að' þvl vérði .’ékki
neitað að Sorg og Landslag eft-
ir Jóhann Jónsson, Ash Wédn-
esday eftir T. S. Eliot eða
White Symphony eftir J. G.
Fletcher séu listaverk. Og séu
það sem ljóð en ekki sögur,
ritgerðir eða eitthvað annað.
Og listaverk eiga alltaf rétt á
sér.
Hvort formið sem skáld
nota, þá er ég viss um að sann-
ur skáldskapur kostar mikla
þjálfun og átök meðvituð og
ómeðvituð, stranga hnitmiðun
og afmörkun. En hvort sem
þau átök eru meiri eða minni
er það eingöngu árangurinn
sem gildir. Eg met ljóð eftir
áhrifum þeirra á sjálfa mig og
er þakklát fyrir nýstárlegt,
sterkt og áfengt ljóð, hvernig
sem form þess er.
Þórunn H. Guðmundsdóttir.
■-------------------*—~ ’s
Clorox
, Fjólubláa blævatnið
„Clorox“ inniheldur ekkert
klórkalk né önnur brenni-
efni, og fer því vel með
þvottinn. Fæst víða.
KHAKI-efni,
maigir lifiir
HOLT,
Skólavörðustíg 22
**>!*
ttoi 616010
5i&uumcutrauðoiL
Minningarkortin ern til
sölu í skrifstofu Sósíalista*
flokksins, Þórsgötu 1; af-
greiðslu Þjóðviljans; Bóka
búð Kron; Bókabúð Máls
og menningar, Skólavörðn-
stíg 21; og í Bókaverzlun
Þorvaldat Bjarnasonar 5
Hafnarfirði
Þjóðviljann vantar nngling
um næstu mánaðamót til að bera blaðið til
kaupenda við
KáisnesbrauL
Talið við aigieiðslima, sími 7500
Sjn Enlæ
Framhald af 12. síðu.
Einnig krafðist Sjú fyrir hönd
Kína að Bandaríkjamenn hættu
að birgja nýlenduher Frakka í
Indó Kína að vopnum og létu af
þeirri ætlun sinni að hervæða
Japani á ný.
I
Asía fyrir Asíumenn
Tími er kominn til þess, sagði
Sjú, að Asíuríkin sjálf taki vald-
ið í málum álfunnar í eigin
hendur. Allt erlent herlið á að
verða á brott úr Asíulöndum og
erlendar herstöðvar þar ber að
leggja niður. Öll ríki Asíu þurfa
að koma saman á ráðstefnu til
að taka ákvörðun um að tryggja
öryggi sitt með gagnkvæmum
skuldbindingum. Hann kvaðst
harma það að mál Asíu skyldu
rædd í Genf án þess að fulltrúar
Asíuríkja emg 'þg Iijdiands, Tndó-
nesíu og Burmá fehgju^nærri að
kom'a. .
í dag tala Molotoff og Casey,
utariríkisráðherra Ástralíu, í
Genf.
Bilieiðastöðui banuaðai
Bæjarráð samþykkti á fundi
sínum 27. þ. m. að mæla með
því við bæjaratjórn að bifreiða-
stöður verði eftirleiðis bannað-
ar við sunnanverða Vestur-
götu frá Garðastræti að Ægis-
gÖtU. ’i &
I*
M.s. Dronning
Alexandrine
fer frá Kaupmannahöfn 15.
júní til Færeyja og Reykjavík-
ur (en ekki 4. júní til Græn-
lands). Ennfremur mun m.s.
Dronning Alexandrine koma í
stað áður auglýstrar ferðar s.s.
Frederikshavn frá Kaupmanna-
höfn 1. júní.
Skipaafgreiosla Jes
Zimsen
— Erlendur Pétursson —
5 ö£RGt>. GAJA ÞORSTEINN ÁSGRÍMUR
-r
NJÁLS gatá: •GíiiLSMIBIR-
o 1 Sj 1 VIIA L7, \ GATA . NJÁiSG.«-SÍMI 81526 [.L
ly' ' i | IAUGA | VfSUR
Frá Skóla Isaks lénssonar
(Sjálfseignarstofnun)
Ákveðið hefur verið að hefja kennslu í hinu
nýja skólahúsi stofnunarinnar við Bólstaðahlíð
á komandi hausti.
Vegna aukins húsrýmis er hægt aö innrita
nokkur börn til viðbótar.
Þeir, sem eiga börn, fædd 1948, og ætla að láta
þau sækja skóla n.k. vetur, þurfa að láta innrita
þau nú þegar.
Viðtalstími daglega frá kl. 5-7 e.h. í Grænuborg
og heima eftir kl. 8.30 e.h.
Skéfasfjéri
i
Auglýsing
Fra og með í. maí 1954 ber ölium umsækjend-
um um, lóðir úr landi ríkisins í Kópavogshreppi að
snúa sér tirtrúnaðarmanns Jarðeignadeildar rík-
isins, Hátroð 9, Kópavogshreppi.
Skrifstofan veröur opin í Hátröð 9 mánudaga,
miðvikudaga og föstudaga, kl. 5-7 síðdegis.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytiö
— Jarðeignadeild ríkisins —
hefur ávallt reynzt húsmóðurinni bezta hjálpin, enda
hin fullkomnast, sem völ er á. Skálar og öll hin marg-
víslegu áhöld er henni fylgja eru framléidd úr ryðfríu
stáli og aiuminium og eykur það kosti þessarar einstöku
heimilisvélar, því húsmóðirin þarf ekki að hafa áhyggj-
ur af brotaskemmdum á skálum og öðrum áhöldum vél-
arinnar.
Munið að hið bezta verður ávallt ódýrast.
Skoðið „ROBOT“ heúmlisvéiarnar hjá
Járnvöruverzlun
Jes Zimsen li J.
R. JóhannessoBi h.f.
NÝJA BIÓ-HÚSINU, SlMI 7181
Karlakórinn Fóstbræður
KVÖLDVAKA
í Sjálfstæðishúsinu annað kvöld kl. 9.
Gamanþœttir. Eftirhermur. Gamanvísur. Söngur
o. fl. — Dansað til kl. 1.
Aðgöngumiðasala 1 Sjálfstæðishúsinu í dag kl. 4-7.
Borð tekin frá um leið. — Sími 2339.
Bezta shemmtiM ársins