Þjóðviljinn - 24.06.1954, Síða 11
I
Fimmtudagur 24. júní 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (11
Stjórna árásinni á Giatemala
Framhald af 6. síðu.
kvæmilegt að nokkru af lend-
um þess yrði skipt.
Þá var það sem Spruile Brad-
en, fyrrverandi aðstoðarut-
anrikisráðherra Bandaríkjanna
í málum rómönsku Ameríku,
uppgötvaði það að Guatemala
væri kommúnistiskt og ógnaði
öryggi Panamaskurðarins. Brad-
en er nú blaðafulltrúi United
Fruit. Það sem kom verst við
þá akfeitu blóðsugu var þó
ekki landamissirinn í Guate-
mala, einungis óræktuðu landi
var skipt. Voðinn var að for-
dæmi alþýðunnar í Guate-
mala var farið að spyrjast út
um Mið-Ameríku. Eftir alda-
langa áþján undir spönskum
og bandarískum herrum höfðu
indíánarnir og kynblendingarn-
ir, sem eru mikill meirihluti
íbúanna. komið fram á sviðið
sem sjálfstæður, sterkur aðili
og tekið að berjast fyrir hags-
munum sínum. Með stuðningi
ríkisstjórnarinnar tókst félagi
landbúnaðarverkamanna í
Guatemala að knýja United
Fruit og aðra plantekrueigend-
ur til að hækka daglaunin upp
í 20 krórfur. Það sýnast ekki
nein ósköp, en þess ber að gæta
að í Honduras, hinumegin við
landamærin, eru daglaunin til
plantekruverkamanna fjórar
krónur. Þar í landi eru engin
verkalýðsfélög levfð og ekki
heldur í næsta riki fyrir sunn-
an, Niearagua. Þessum ríkj-
um báðum ráða einræðisherrar
á mála hjá United Fruit.
Nokkru áður en vopnaskipið
fræga kom til Guatemala gerð-
ust þau fáheyrðu tíðindi að
verkfall brauzt út á plantekr-
um United Fruit í Honduras í
héruðunum næst landamærum
Guatemala. Verkamenn kröfð-
ust hærri launa og brottrekst-
urs verkstjóra, sem lögðu það
í vana sinn að misþyrma ein-
örðum verkamönnum, sem ekki
vildu láta fara með sig sem
þræla.
Þegar lífæð buddunnar í
brjósti Dullesbræðranna
tók kippinn mikla fyrir mánuði
síðan var látið í veðri vaka að
því ylli vopnasendingin frá Pól-
landi, en. það er eins og hver
önnur fjarstæða. Að sögn John
Foster Dulles voru það 2000
tonn af vopnum sem sænska
skipið Alfhem flutti til Puerto
Barrios og þegar þess er gætt
að Guatemalastjórn hafði engin
vopn getað keypt þrjú næstu
ár á undan vegna viðskipta-
banns Bandaríkjanna er ó-
mögulegt að telja magnið um-
fram þarfir rikis, sem á annað
borð hefur her. Verkfallið í
Konduras var langtum alvar-
legra fyrir hluthafa United
Fruit. Það sýndi að fordæmið
frá Guatemala var hættulegt.
Ef alþýðu eins bananalýðveldis
héldist uppi að bæta kjör sín,
krefja blóðsuguna miklu um
hluta af arði vinnu sinnar,
myndu aðrir fara á eftir. Þá
yrði ekki lengur um að ræða
arðgreiðslur eins og árið 1950,
þegar gróði United Fruit af
200 .milljón dollara höfuð-
stól var 66 milljónir eða 33
af hundraði. Margur hefur
tryllzt út af að sjá minna sjóði
ógnað.
A lkunna er, hvað á eftir fór.
Dullesbræðurnir fram-
kvæmdu sínar samræmdu að-
gerðir af leikni fenginni við
langa æfingu. í janúar síðast-
liðnum birti Guatemalastjórn
hvíta bók, þar sem þvi var
lýst hvernig verið væri að
vopna og æfa lið til innrásar
í Guatemala í nágrannaríkjun-
um Honduras og Nicaragua fyr-
ir reikning United Fruit og með
aðstoð bandarísku leyniþjón-
ustunnar. Milton Bracker,
fréttaritari New York Times í
Honduras, hefur lýst því ýtar-
lega í skeytum í blaði sínu 18.,
19. og 20. þessa mánaðar,
hvernig innrásarliðið var dreg-
ið saman við landamæri Guate-
mala. Hver flugvélin eftir aðra
frá Sahsa, dótturfélagi Pan
American Airvvays, kom úr suð-
urátt, frá Nicaragua og súður-
hluta Honduras, fullhlaðin
vopnuðum, einkennisbúnum
mönnum. Castillo Armas og
aðrir innrásarforingjar ræddu
fullum fetum við blaðamenn
um það sem til stóð. Banda-
ríska leppstjórnin í Honduras
svaraði fyrirspurnum urn, hvað
hún ætlaði að aðhafast, á þá
leið að menn hefðu fullt frelsi
til að leigja sér flugvélar og
ferðast hvert sem þá lysti þar
í landi.
IVrátt fyrir þessar frásagnir
* fréttaritara kunnasta borg-
arablaðs Bandaríkjanna og ann-
arra banöarískra fréttastofnana,!
hefur utanríkisráðuneytið í
Washington tekíð þá afstöðú að
innrás hafi ekki verið framin
í Guatemala heldur sé um að
ræða uppreisn innanlands. Þeg-j
ar Kóreustríðið hófst var Ör-
yggisráðið látið fyrirskipa hern-
aðaraðgerðir án þess að mála-j
vextir væru athugaðir hið
minnsta Pg var þar þó óum-
deilanlega borgarastyrjöld á
ferðinni. En innrás í Guate-j
mala frá Honduras er tekið^
af mesta tómlæti. Bandaríkin (
og fylgiríki þeirra verða ásátt
um að vísa málinu undir úr-
skurð árásarseggjanna. Og þeg-
ar Guatemalastjóm endurnýjar
kæru sína og krefst aðgerða
af Öryggisráðinu svarar Henry
Cabot Lodge, hinn bandaríski j
forseti ráðsins, skætingi ein-
um. Vera má að Dullesbræð-
urnir fái stevpt Guatemala-
stjórn, sem þeir hafa afvopn-
að og neitað um benzín og
aðrar nauðsynjar nútímahern-
aðar. En það er nú þegar ljóst
að peningagræðgin hefur í
þetta skipti farið með þá i
gönur. Þióðir heimsins hafa
orðið áhorfendur að því, að
helzta stórveldi auðvaldsheims-
ins skinuleggur opinskátt inn-
rás í lítið nágrannaríki til þess
að steypa frá völdum ríkis-
stjórn, sem hefur gerzt svo
djörf að skerða gróðamögu-
leika bTndarisks auðfélags.
Bandaríkjastjórn naut ekki svo
mikils álits eftir vetnis-
sprengjuhótanir Dulles og fram-
komu hans á ráðstéfnunni í
Genf að 'hún mætti við slíkum
álitshnekki. M. T. Ó.
ÆGISBÚD
Vesturgötu 27,
tilkynnir:
Camelsigarettur pk. 9,00 kr.
Úrv. appelsínur kg. 6,00 kr,
Brjóstsykurspk. frá 3,00 kr.
AtsúkkuJaði frá 5,00 kr.
Avaxta-heildósir frá 10,00 kr
Ennfremur allskonar ódýrar
sælgætis- og tóbaksvörur,
Nýjar vörur daglega.
Æ 61 S B ÚD •
Vesturg. 27
____________
Hversoi lengi verðuz
Framhald af 7. síðu.
og getum því ekki staðið við
tilboð okkar, hljóta viðskipta-
vinimir að leita til annarra
þjóða sem öðruvísi hugsa um
atvinnulif sitt. Þetta er því
vandamál sem getur haft áhrif
á íslenzkt atvinnulíf og efna-
hagslegt fullveldi um langa
framtíð. Það má segja að þjóð-
in standi á krossgötum, hún á
um það að velja að tryggja
sér efnahagslegt sjálfstæði eða
lifa á lítillækkandi vinnusnöp-
um hjá erlendri þióð sem hefur
rænt okkur landi og fullveldi.
Þjóðin er ekki í 'miklum vafa
um hvorn kostinn á að velja —
en hversu lengi verður ríkis-
stjórninni þá þolað að leggja
togaraflotanum í þágu her-
námsvinnunnar?
Æskulýðsfylklngin gengst fyrir
í Botnsdal í Hvalfírði um Jónsmessuna 26. og 27. þ.m.
Á laugardagskvöld vezður dansleikur á palli.
A sunnudag verður útiskemmfun með fjölbreyttum
skemmfiatriðum, t.d.:
þjóðdönsum, söng, upplesiri, gamanþætti, hand-
knattleik (íslandsmeistaramir gegn Æskulýðsíylk-
ingunni)- lúðrablæstri (Lúðrasveit verkaiýðsins) og
D A N S I
Séð verður
íyrir
góðum tjaldstæðum
Sætafe-rðir verða
fram og til baka á
laugardag og sunnudag
Um helgina liggur leiðin upp í Hvalfjörð!
• 'iy
:Öííp
!Vl feh
' l