Þjóðviljinn - 02.07.1954, Síða 10
ao)
ÞJÖÐVIUINN
t'östudagur 2. juli 1954
INNAN
VIÐ
MÚRVEGGINN
EFTTR A. J. CRONIN
39.
„Já .... það gerði ég.“ Hún varp öndinni léttar og
fékk sér sopa úr glasinu. „Það er bara það að ráðsk....
að herra Oswald er afskaplega nákvæmur með ýmsa
hluti. Hann er svo mikill hugsjónamaður. Þú hlýtur að
hafa heyrt minnzt á hann? Hann er eitthvert mesta góð-
mennið í Wortley. Hann gefur fleiri hundi*uð á ári til
spítalanna og á veturna úthlutar hann kaffi fyrir ekki
neitt .... En hann er afskaplega strangur og siðavand-
ur. En hann hefur alltaf komið fram við mig eins og
hefðarkonu, annars hefði ég ekki verið þarna kyrr.“
„Þú ert þá búin að vera þarna lengi?“
Hún kinkaði kolli.
„Ég var ekki nema átján ára þegar ég kom þangað.
Þú trúir mér kannski ekki?“ spurði hún, krosslagði
holdug hnén og lagfærði pilsið sitt.
„Auðvitað.“ Honum datt í hug að hún ætlaði að ljúga
til aldurs síns. „En þú ert svo ungleg.“
„Já er það ekki?“
„Hvernig stendur á því að þú ert ógift?“
Það lék ánægjubros um varir hennar.
„Oswaldsfólkið hefði gjarnan viljað að ég giftist. Það
er áreiðanlegt. Þau eru alltaf að tala um að ég ætti að^.
giftast og komast í örugga höfn með einhverjum, eins og
til dæmis Frank sem dyttar að hjá okkur eða Joe Davies,
mjólkurpóstinum. Það eru auðvitað ágætis náungar, en
þeir eru báðir komnir yfir fimmtugt. Geturðu hugsað þér j
mig og þá? Jæja, samt er aldrei að vita, hvað fyrir getur
komið. En þessa dagana hugsa ég bara um að skemmta
mér. Finnst þér það nokkuö ski*ýtið?“
„Nei, alls ekki,“ sagði hann og þrýsti hönd hennarr
Þetta var allt farið að skýrast fyrir honum: mannvinur-
inn Oswald hafði tekið þessa ólánsömu og villuráfandi
stúlku upp á arma sína, gert sitt bezta til þess að halda
henni á réttri braut, jafnvel stundum upp á giftingu
við dugandi og áreiðanlegan mann. En samt sem áður
var beizkja í hug hennar, gremja í garð alls og allra.
Og allt í einu varð honum ljóst hvernig hann gæti not-
fært sér það sjálfum sér 1 hag og veitt upp úr henni
það sem hann vildi. Hann duldi æsinginn sem vaknaði
i huga hans og tautaði: „Mér finnst undarlegt að svcna
skynsöm og glæsileg stúlka skuli ekki hafa fengið betri
vinnu.“
„Þú segir nokkuð,“ sagði hún með gremjusvip og
kinkaði kolli. „En það get ég sagt þér, að ég hefðí aldrei
tekið að mér heimilishald, nema af því að ég var plötuð
til þess.“ Meðan hún talaði hvarf sjálfsánægja hennar og
sjálfsaumkvunartár komu í augu hennar. „Ef satt skal
segja, elskan, þá hefur verið farið svínslega með mig
Eftir allt sem ég var búin að þola.“
1 Hann setti upp vantrúarsvip. „Enginn gæti farið illa
með stúlku eins og þig.“
„Þú heldur það. Og allt var þetta vegna þess að ég
geröi það sem rétt var, — göfugt mætti meira aö segja
kalla það.“
Hann hélt aftur af sér eftir mætti og tautaði samúðar-
fullur:
„Fólk verður oft að líða fyrir góðverk sín.“
„Það er nokkuð til í því. En þetta var allt í lagi fyrst.
Þeir settu mig í öll blöðin .... myndir og hvað eina ....
á forsíöu .... rétt eins og ég væri drottning.“
Hún leit á hann útundan sér eins og til að kanna á-
hrif orða sinna, og hann hló rétt hæfilega tortrygginn.
Hún brá við skjótt.
„Heldurðu að ég sé að Ijúga, eða hvað? Það sýnir
bara hvað þú þekkir lítið manneskjuna sem þú ert að
tala við. Þér þætti ef til vill gaman að vita að einu sinni
.... “ hún þagnaði.
„Æ, ég vissi að þú varst að gera að gamni þínu.“
Hann brosti og hristi höfuðið.
Hún varð eldrauð í framan. Hún leit allt í kringum
sig, hallaði sér síðan fram á borðið.
„Er það nokkuð spaug að koma manni næstum í
gálgann?“
„Nei, öðru nær,“ hrópaði hann hrifinn og hneykslað-
ur mm leið. „En ekki hefur þú gert það?“
Hún kinkaði kolli með hasgð; drakk síðan í botn úr
öðru glasinu.
„Það er einmitt það sem ég geröi.“
„Var það fyrir morð?“ sagði hann agndofa.
Hún kinkaði kolli með hreyknisvip, hélt glasinu frál
sér, og hann gaf þjóninum merki um að hella í þaö. ,
„Og hefði ég ekki komið til skjalanna hefðu þeir aldrei
náð í hann. Ég var stóra númerið í málinu.“ ■
„Nei, nú er heima,“ sagði hann hrifinn. „Ég er alveg
steinhissa. Mér hefði aldrei dottiö í hug .... “
„Láttu þér þetta að kenningu verða“ — hún naut,
hinnar augljósu hrifningar hans — „í sambandi viö,
kvenmanninn sem nú situr andspænis þér. Og ég gæti •
komið þér enn meira á óvart ef ég vildi.“ 4
„Gerðu það þá.“
Hún leit á hann undirfurðulega og í senn ástleitnuj
augnaráði.
;,Þá væri ég orðin lausmálg, herra Forvitinn. En, þú
ert mér að skapi. Þú berð það utaná þér að þú ert af
betra taginu. Og það er svo ,langt síðan að það kemur
ekki að sök. Jæja þá .... út með sprokið. Setjum nú
svo að hún vinkona þín héma hefði eitthvað í poká-
horninu sem gæti komið öllu á annan endann. Til dæmis
.... hefurðu nokkum tíma heyrt talað um grænt reið-
hjól?“
„Grænt reiðhjól?"
„Já, elskan. Skærgrænt.“ Hún fór að flissa. „Grænt
eins og gras.“
„Aldrei á ævi minni.“
„Þetta sögöu líka allir 1 réttinum. Þeir skellihlógu
þegar einhver gamall fauskur sór að hann hefði séð
manninn stíga á svoleiðis hjól. En ég hefði getað látið
þá hætta að hlæja. Ég var með á nótunum þegar ég
var stelpa .... ég þekkti göturnar hérna. Ég vissi allt
um græn reiðhjól."
Þegar hún þagnaði hló Páll vantrúaður.
Þegar börn vilja ekki Eáfa
þve> sér
Litlum börnum
finnst fjarska
gaman að sulla
í vatni, og samt §
sem áður and-
mæla þau á-
kaft, þegar
þeim er þvegið.
Það lætur í eyr-
um eins og
mótsögn, en í
rauninni er
þetta ekki
óeðlilegt þegar
það er athug-
að nánar.
Vatnssullið er
leikur, barnið
lætur vatnið |
renna eða s:glir
skipum og leik j
ur skemmtileg
ævintýri í hug-l!
anum. VÍ3su-
lega er það skemmtilegt. En
það er hreint ekki gaman að
láta þvo sér; verst er það á
kvöldin þegar barnið hefur
verið úti allan daginn og er
búið að ata sig allt út og er
auk þess orðið þreytt. Þá finnst
því afle'tt að láta trufia sig
í spennandi leik fyrir hundleið-
inlegan þvott. Auk þess veit
bamið að það á að fara í rúm-
ið, þegar það er búið að þvo
sér og síðast en ekki sízt eru
allir eftir sig eítir útivist heD-
an dag.
Flest börn eru örþreytt þeg-
ar þau eru þvegin í rúmið. ’
En hvað eiga veslings foreldr-í
arnir að gera? Ekki er hægt
að sleppa þvottinum því að oft
hefur maður furðað sig á því
hvemig bömin fari að því að
óhreinka sig svona gífurlega á
einum degi.
Skynsamlegast er að taka
þetta allt sem leik. Segið ekki
við þtr'ggja eða fjögra ára
snáða: „Nú áttu að koma inn
að þvo þér," segðu heldur:
„Komdu og hjálpaðu mér í
skipaleik". Það gerir ekkert til
þótt eitt eða tvö smáskip séu í
vaskinum og þau hafa lokk-
andi áhrif á litla kútinn. Með-
an baminu er hjálpað til að
hátta er hægt að tala um vænt-
Jóhann vinur minn hafði mik-
inn áhuga á læknisfræðilegum
viðfangsefnum. Hann keypti sér
lækningahandbók fyrir a’menn-
ing og las hana vandlega spjald-
anna miili og það oftar en
einu sinni. Síðan leið nokkur
tími svo, að ég sá ekki Jó-
hann vin minn. Einn dag skaut
honum þó aftur upp, og ég
sagði við hann:
Hvar hefur þú haldið þig?
Eg hef verið í rúminu mest —
haft lungnabólgu, brjósthimnu-
bólgu, liðagigt og fleira.
Eg stóð undrandi og kom ekki
upp orði — nei, getur þetta
verið? sagði ég að lokum.
Jú jú, ég las lækningabókina
mina, og sjúkdómslýsingarnar
komu alveg heim og saman;
en svo þegar ég virtist vera
kominn með jóðsótt þá þótti
mér þetta ganga of iangt. Eg
kastaði bókinni.
Verkfræðingur stóð fyrir vegar-
lagningu yfir mýri. Einn dag
heimsótti hann forstjórann og
sagði: Þetta er ekki hægt,
mennirnir sökkva á kaf í fenin.
Hvaða þvættingur, sagði for-
stjórinn, gerið bara skrá yfir
það efni sem þér þurfið á að
halda.
Daginn eftir kom verkfræðingur-
inn með listann. Hann hafði
skrifað á hann meðaí annars:
Tuttugu menn, þriggja metra
langa.
anlegan leik, hver á að vera
skipstjóri eða hvert sk:pin eigi
að sigla. Aðalatriðið er að tala
og rabba svo barnið sé háttað
áður en það veit af. Leyfið
svo baminu að leika sér lítið
eitt pg notið fyrsta vatnið sem
skolvata. Þegar það er orðið
óhreint •— er rétt að skipta
um váfn, auðvitað aðallega
vegna skipanr.a. Þegar hér er
komið er hugsanlegt að barnið
sé komið í skap til að láta þvo
sér. En gieymið ekki skipun-
um, þau eiga að vera með í
leiknum allan tímann, og fyrst
og fremst þarf að þvo Pésa
litla til þess að hann chreinki
ekki skipin sín. , .
Því m'ður verða útötuð börn
ekki hrein af einu saman vatni:
sápu þa’rf til. En notið hana í
hófi. Sápa í augun eða eyrun er
oft ástæðan til þess að mörg
böm vilja ekki láta þvo sér.
Látið barnið þvo sér hendumar
sjálft úr sápu, það finnst því
skemmtilegt, en farið varlega
þegar þið þvoið barni með sápu
framaní. Ef barnið er mjög
þreytt og í slæmu skapi er
hægt að láta sér nægja að þvo
barninu með sápulausum
svampi í framan. Því óþekkara
sem barnið er, því meiri hætta
er á að það fái í augun og við
þelckjum sjálf hvað það er and-
Btyggilegt. Þegar bamið er í
góðu skapi er hægt að nota
tækifærið og þvo andlit:ð yel
með sápu, en gætið þess að
segja baminu að opna ekki
augun fyrr en búið er að skola
af því sápuna.
Og síðast en ekki sízt: ver-
ið ekki sjálfar óþolinmóðar og
skapstirðar, þegar þið þvoið
barninu. Gremjan berst fljót-
lega til barnsins sjálfs og
þetta endar allt í gráti og
gnístran tanna.