Þjóðviljinn - 14.07.1954, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 14.07.1954, Blaðsíða 8
8) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 14. júlí 1954 Frá HÓTEL Veitingasalimir eru opnir allan daginn Tekið á móti samkvæmum- Fyrst um sinn verður fyrirkomulag þannig: Heitur matur daglega um hádegið og að kvöldi klukkan 7 til 10 Eftir pann tíma kaldir réttir til klukkan 11.30 Hljómsveit leikur sígild lög alla daga klukkan 7.30 tU 10.30 að kvöldi. LOKUM Lokað vegna sumarleyfa frá og með 19. þ.m. til 6. ágúst. Efnalaugm Glæsir Hafnarstræti 5 — Laufásvegi 19. Auglýsingar sem birtast eiga í sunnudagsblaði Þjóðviljans, þurfa að hafa borizt skrifstofunni fyrir kl. 6 föstudagskvöld. Fakturumenn Mása í málpípu Framhald af 6. síðu. veslings Vísir upp til handa og fóta þegar hann heyrir að ungt fólk hafi verið að syngja um friðinn og lífið. Þeir sem hera ósigurinn hið innra með sér eru ævinlega svona ógur- lega viðkvæmir. Það verður fróðlegt að hlusta á óp fakt- úrufalsaranna um það bil sem dvöl innrásarhersins á ís- landi lýkur. Það verður gam- an í Vísi þegar sósíalistar ta.’ra völdin á Italíu, svo að dæmi sé nefnt. Vísir er að verða skemmtilegt blað fyrir andstæðinga þess. Og er ekki séð fyrir endann á því hve skemmtilegt það verður um það er lýkur. B.B. vegna sumarleyfa frá 15. júlí — Opnum aftur þann 3. ágúst að Ingólfsstræti 6. UÖSMYNDASTOFAN LOFTUR H.F. FJALLFOSS fer héðan miðvikudaginn 14. þ. mánaðar til Vestur- og Norður- lands. Viðkomustaðir: Keflavík Patreksfjörður ísafjörður Siglufjörður Húsavík Akureyri. H.f. Eimskipafélag íslands. KR VANN ÞROTT 1:0 á >a _ mðeoleiká tll aS ná EFTIR ÞÓFKENNDAN LEIK rnarkinu en a!!t rann útí sand Það mun hafa komið nokkuð á óvart að Reykjavíkurmeistar- arnir skyldu ekki eera fleiri mörk gegn Þrótti. Yfirleitt lá heldur meira á Þrótti en KRing- um tókst aldrei að skapa sér opin tækifæri. Þróttur átti líka áhlaup við og við, og eitt sinn bjargar Hreiðar Ársælsson á marklínu. Þetta ein mark gerði Sigurgeir Guðmannsson um miðjan fyrri hálfleik. Var undar- legt hvað vörn Þróttar var stöð við þetta 'ítækifæri og það hefði átt að takást að hindra Sigur- geir í tæka tíð. Þróttur lék nú ekki með sama krafti og móti Val, enda var völlurinn blautur óg allþungur en liðinu er alltaf að fara fram. Ef ýmsir menn liðsins temdu sér að leita að næsta manni í stað þess að einleika, mundi mun betur takast. Þeir sem sagt syndg- uðu gegn þessari sjálfsögðu reglu, því að samleikurinn er aðall knattspymunnar, en einleikurinn á að vera undantekningin. Það sem af er þessu móti hefur frammistaða þeirra verið með á- gætum. Knattmeðferðin er alltaf að batna og liðið er alltaf að verða heilsteyptara og heilsteypt- ara. Með betri knattmeðferð á Hörður Guðmundsson að geta orðið sterkur, en hann hefur ekki náð þeirri leikni sem góður miðherji verður að hafa. Vinstri útherji, Himir Skúlason, er efni- viður en vantar meiri leik- reynslu. Gunnar Pétursson er duglegur 02 sterkur en hann leyfði sér að brjóta mjög gegn félögum sínum með tíðum og ó- tímabærum einleik. Drýgsti mað- ur liðsins er William, hann kann bæði að taka þátt í vörn og byggjá upp. Markmaðurinn ungi, Jón Ás- geirsson sýndi enn að hann er góður efniviður. KR-liðið náði oft samleik þar sem knötturinn gekk nokkuð frá manni til manns, en það vantaði tilgang í þennan samleik, sem inn áður en þessi þráði mögu- leiki kom. Til að byrja með virt- ist sem KRingar ætluðu að knýja fram úrslit strax en Þróttarar stóðust storminn. Einhvernveginn finnst manni sem þessir menn, ef maður at- hugar hvern einstakan, fái ekki eins mikið út úr leik sínum og efni eiginlega standa til, hvað sem því veldur. Það 'merkilega er að manni finnst að þeir hafi verið betri á vorleikjunum en það s'örh af ér þessu móti. Liðið er jafnt, hvergi göt, og stórkarlar heldur ekki. Bezta leikinn mátti sjá milli þeirra Sigurgeirs og Atla. Þorbjörn er oft hreyfanlegur, fljótur og vel með en hann fær of lítið útúr striti sínu. Dóm,ari var Ingi Eyvíndsson. Áhorfendur fáir og veður gott. Mansafster og JLaiftly keppa í VaiieeiiveF í sasesta ssiáiifiéi f samtali við U. P. sagði Bann- ister þegar hann frétti um met Landys: „Þá er bara að bíða þangað til ég reyni við hann í sama hlaupi.“ Og þess er ekki langt að bíða því að ákveðið er að þeir taki þátt brezku sam- veldisleikjunum sem fram fara í Vancouver í brezku Kólumbíu í ágúst. „Ég hlakka til að keppa við hann“, — segir Bannister ennfremur. „Það verður hörð meistarakeppni, — ef ég get gef- « \ ■ -■ mMmmæmmmm Akranes vann Víking 4-0 í rigningu og á blautum velli Rigningardemban sem kom í byrjun leiksins átti ábyggilega sinn stóra þátt í því að skentma heildaráhrifin af leik þessum. Völlurinn var ein leðja og knötturirin háll og þungur og erfitt mjög að hemja hann. Til að byrja með veittu Víkingar all- harða mótspyrnu og áttu oft góð áhlaup sem sum enduðu með skotum. Á 5. mín. eiga þeir skot rétt framhjá marki Akraness og á 9. mín. skaut Reynir í fang Magnúsar. Á fyrstu mínútunní höfðu Ak- urnesingar átt skot framhjá og yfir. En á 10. mín. leika þeir saman, Þórður og Ríkarður, sem sendir síðan knöttinn út til Hall- dórs sem fylgdi vel með og skor- ar óverjandi. Víkingar sækja enn og er Bjamí þar harður í sókn- inni, vel studdur af hinum nýju innherjum Magnúsi og Garðari, sérstaklega Magnúsi. Á 19. mín. er dæmd víta- spyrna á Víking en Ríkarður spyrnir beint á markmanninn, sem ver. Víkingar hefja nú sókn og "munar stundum litlu að mark verði, en Magnús ver það sem vörnin ekki tekur. Á 31. mín. taka Akurnesingar upp samleik milli 6—7 manna fram og aftur gegnum vöm Víkinga áf> þess þeir fái að gert og lokasparkið framkvæmdi Ríkarður og hafn- aði knötturinn í neti Víkings. Þannig endaði hálfleikurinn. Rigningin óx og aðstaðan til að leika knattspyrnu versnaðj. Víkingar voru nú ekki eins harðir og í fyrri hálfleik og eykst þá sóknarþungi Akurnesinga; eiga þeir f jölda tækifæra en tekst ekki að skora. Meira að segja Ríkarður er á 20. mín fyrir opnu marki en skaut á markmann en minútu síðar leika þeir Halldór, Þórður og Ríkarður fram hægra megin. Endar samleikurinn með sendingu frá Halldóri yfir til Guðmundar Jónssonar sem var þar fyrir og skorar. Síðasta mark- ið kom eftir ágætan einleik hjá Þórði, sem hefur tækifæri til að skjóta en sér þá að Ríkarður er enn betur staðsettur fyrir opnu marki og gefur honum knöttinn, en Ríkarður skorar auðveldlega. Akranes sýndi mikla yfirburði og lék oft vel. Halldór, Guðjón og Pétur voru ágætir. Annars er orðið erfitt að gera upp á milli manna liðslns. í Víkingsliðinu var Bjarni at- hafnasamasti maðurinn. Hann hefur enn ekki þá stoð í Reyní sem áður því hann hefur ekki náð sér að fullu eftir meiðslið í vetur. Aftur á móti hafa Vík- ingai fengið góða innherja þá Magnús Guðmundsson sem oft sýndi ágætan leik, og enda Garð- ar Hinriksson. Helgi Eysteinsson var bezti maður varnarinnar. Gunnlaugur Lárusson lék nú útherja og gerði því allgóð skil. Dómari var Hannes Sigurðs- son. Áhorfendur voru um 1000. Nú verður nokkurt hlé álands- mótinu. Næsti leikur verður ekki fyrr en 12. ágúst og það verður milli KR og Akraness. John Landy ið honum nýtt met til að reyna sig við þá geri ég það.“ Bannist- er ætlar ekki að gera neina til- raun til að bæta met Landys á mílunni fyrr en í Vancouver. Landy er enn í góðri þjálfun; hljóp t. d. 1500 m á móti í Gauta- borg í byrjun þessa mánaðar á 3,43,2, sem var nýtt vallarmet þar. Hann virðist ekki hafa tapað hraða sínum enn og er því spáð að hann verði ekki á eftir Bann- ister á samveldisleikjunum. Millitímar Landys á þessum 1500 m voru: 400, 52,5 — 800, 1,56,0. Landy gerði nýlega til- raun tll að setja nýtt heimsmet í tveggja mílna hlaupi en það tókst ekki. Eigi að síður setti hann þar ástralskt met á 8,42,4. Gamla metið átti hann sjálfur: 8,55, sett í jan. 1953. í 3000 m hlaupi setti hann einnig nýtt ástralskt met á 8,09,5, eldra metið var 8,25.0.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.