Þjóðviljinn - 14.07.1954, Blaðsíða 12
í gær — Síld á stóru svæði én
reitmgsafli — Norðmenn og Finnar saita
Raufarhöfn. Frá fréttaritara Þjóðviljans
í gær var landao hér 4000 málum og heíur síldar-
verksmiðjan hér þá tekið á móti samtals 6000 mál-
um. Bræðsla hóíst í gærkvöld.
Mestallur ílotinn er kominn hingað austur og
veioist síldin á stóru svæði, en er stygg, og yfirleitt
reitingsafli.
<s>-
Skipin byrjuðu að koma hing-
að til Raufarhafnar um kl. 6
í gærmorgun, voru þau yfirleitt
með 200—300 mála afla, sum
minna. og aflahæst mun Björg
frá Norðfirði hafa verið með 750
mál.
Flotinn flykkist austur
Mikill hluti síldveiðiflotans er
kominn hingað austur og þau skip
er voru á vestursvæðinu í gær-
morgun munu flest hafa lagt af
stað austur.
Reitingsafli á stóru svæði
Sílöin veiðist mest á' Sléttu-
grunni og allt inn í Öxarfjörð
og Þistilfjörð. Er síldin dreifð
og stygg og fá skipin engin stór
köst, heldur yfirleitt reitingsafla.
Fjöldi Norðmanna og Finna
Mikill fjöldi útlendra skipa er
Freðfiskur flutlur
át fyrir 150 millj.
Tímabilið jan.—maí 1954 var
mest flutt út af eftirtöldum ís-
lenzkum afurðum: Freðfiskur
150:2 millj., þurkaður saltfiskur
44.8 millj., fiskimjöl 24.4 milj.,
skreið 23 millj., ókaldhreinsað
þorskalýsi 20 milljónir. Minnst
var flutt út af söltuðum görnum
eða fyrir 15 þús. kr. og loðskinn
fyrir 33 þús.
Á þessu sama tímabili var
mest flutt inn af þessum vöru-
tegundum: Garn, .álnavara, vefn-
aðarvara o. þ. h. 52 milljónir kr.,
eldsneyti, smurningsolíur og
skyld efni 41.2 miillj., vélar aðrar
en rafmagsvélar 33.9 millj., tilbú-
inn áburður 20.7 millj. og raf-
magnsvélar og áhöld 20.5- milj.
kr. Af kjöti og kjötvörum var
flutt inn á tímabilinu fyrir 706
þúsundir króna og fiskur og fisk-
meti var flutt inn fyrir 75 þús.
krónur.
Kena dæmd
m hengmgar
Brezkur nýlendudómstóll í
Nýeri í Kenya í Austur-Afríku
dæmdi í gær svertingjakonu til
dauða fyrir þátttöku í leyni-
hreyfingunni Má má. Er það
fyrsta konan sem Bretar í
Kenya dæma til dauða en karl-
menn hafa þeir dæmt og héngt
hundruðum saman síðustu tvö
árin.
Skeiðará heldur
áfram að Vaxa
Samkvæmt upplýsingum frá dr.
Sigurði Þórarinssyni heldur
Skeiðará stöðugt áfram að vaxa,
cn þó fremur hægt. Undanfarna
tíaga hafa málmar orðið dökkir.
nú á sömu miðum og íslenzku
skipin, einkum ber mikið á Norð-
mönnum og Finnum. Fjöidi út-
lendra skipa er einnig að veiðum
austar og dýpra í hafinu en ís-
lenzku skipin.
Norðmenn og Finnar salta
Söltun hefur ekki verið leyfð
hér enn. Fitumagnið var mælt
í fyrradag og var meðalfitumagn
13%, en allt upp í 17% — í
einstökum prufum.
Norðmenn og Finnar sem fiska
hér fyrir austan hamast þegar
við að saita aflann.
Veður var ágætt á veiðisvæð-
inu í gærkvöld.
Ný flóðbjdgja er á leið niður
Dóná og var í gærkvöld við
Passau, þar sern áin rennur úr
Þýzkalandi inn í Austurríki.
Áður var flóðið farið að sjatna
og fólk tók í gær að flytja
aftur í hús sem það hafði flú-
ið í Linz og öðrum austurrísk-
um borgum.
1 Austur-Þýzkalandi er flóð-
ið tekið að réna en þó var
borgin Dessau við Saxelfi enn
í hættu í gærkvöld. Þar höfðu
10.000 manns yfirgefið heimili
sín.
Söngskemmtun í
Hornafirði
Höfn.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Menningarfélag Austur-Skafta-
fellssýslu hélt skemmtanir hér á
Höfn s.l. laugardag og sunnu-
dag.
Fékk félagið Guðmund Jónsson
óperusöngvara hingað austur til
og syngja. Fritz Weisshappel lék
undir. Var húsfyllir bæði kvöldin
og fögnuðu menn mjög söng Guð-
mundar og komu þeirra félaga
hingað.
Sœnskt
kgarnorkuver
Fyrsta kjarnorkuver Svía var
sett af stað í gær. Það er búið
að vera í smíðum síðan 1951.
Verið er lítið, byggt í tilrsuna-
skyni og til að þjálfa staríM'ólk.
Það mun þó geta framleitt r.okk-
uð af geislavirkum efnum til
vísindarannsókna.
Verið er að undirbúa byggingu
annars og miklu stærra kjarn-
orkuvers í Svíþjóð.
Bætur fyrir
brottrekstar
Alþjóðadómstóliinn í Haag úr-
skurðaði í gær að þing SÞ gæti
ekki riftað þeim úrskurði gerðar-
dóms, að 11 bandarískum starfs-
mönnum beri 1.880.000 króna
skaðabætur fyrir brottvikningu
úr starfi hjá SÞ. Tryggve Lie,
fyrrverandi aðalritari, rak fólk
þetta frá störfum er það neitaði
að svara eftirgrenslunum einnar
af rannsóknarnefndum Banda-
rikjaþings um stjórnmálaskoð-
anir þess.
Bandarikjastjórn hefur haldið
því fram að Allsherjarþingið
geti ónýtt úrskurð gerðardóms-
ins og því var málinu skotið til
dómsins í Haag.
séra Jóiimiiiidar
Útför séra Jónmundar Hall-
dórssonar verður gerð frá Stað
í Grunnavík næstkomandi laug-
ardag 17. þm, og hefst hún kl.
3:30 síðdegis. Þann dag verður
ferð að Stað frá ísafirði, og
verður lagt af stað frá Bæj-
arbryggjunni kl. 1 síðdegis.
Séra Sigurður Kristjánsson,
sóknarprestur á ísafirði, jarð-
syngur.
Hér syðra verður minningar-
athöfn í Fossvogskirkju á
morgun kl. 11 og flytur séra
Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason
minningarræðu.
Miðvikúdagur 14. júií 1954 — 19. árgangur — 154. tölublað
O-
Eiiis og þfóðÉK eigi í siyrjöld:
Aðallega kornsr. börn og
gamalmennl
• s
Raufarhöfn. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Kvenfólkið setur nú mestan svip á síldarvinnuna hér
á Raufarhöfn og er það farið að vinna allskonar verk
við síldina. Auk kvennanna ber mest á gamalinennum og
unglingum, og hafa menn við orð hér að það sé einna iík-
ast því að þjóðin eigi í mannfrekri styrjöid og verði
því lronur, gamalmenni og börn að taka að sér verlt
karlmannanna.
Fyrstu dagana sem trygging var í gi'.di hjá verk-
smiðjunni hér voru drengir að aka kolum, \ oru þrír pilt-
ar um söm'u hjólbörurnar og handleggsbrotnaoi einn
þeirra.
í gærmorgun vildi það slys til hér í bænum að fuilorðinn mað-
ur, Magnús Ásmundsson að nafni, fannst meðvitundarlaus í
íbúð sinni, en í liana hafði lagt reyk af eidi er varð laus í hús-
inu; var hann fluttur í Landsspííalann, en lífgunartilraunir
báru ekki árangur. j
Eldur kom upp í húsinu
Framnesvegi 19. Er húsið 1
hæð og kjallari. Er verzlun í
kjallaranum, og hafði eldurinn
komið upp í einhverju rusli er
henni tilheyrði. Magnús heitinn
bjó einn á hæðinni fyrir ofan.
Slökkviliðið var kvatt á vett-
ang er eldsins varð vart. Varð
hann slökktur þegar í stað, og
olli hann litlu tjóni. Hins veg-
ar varð reykur allmikill, og er
slökkviliðsmenn ltomu upp á
hæðina til að ganga úr skugga
um að ekkj leyndist eldur þar,
fundu þeir Magnús liggjandi á
gólfinu. Var hann hálfklæddur,
og hafði sýirlega ætlað að
komast út, en hnigið niður á
miðri leið.
Var hormm þegar ekið í
Landsspítalann og gerðar á
honum lífgunartilráunir, en þær
báru ekki árangur eins og að
ofan segir.
Líkið verður krufið til að
rannsalca nánar dánarorsökina.
Hainar stjórn USA aðild aó
friðarsamningi í Indó Kína?
Fundurinn i Paris getur orð/ð afdrifa-
rikur fyrir sambuS Vesfurveldanna
Utanríkisráðherrar Vesturveldanna komu saman. á
fund í París í gær. Tilefni fundarins er það að Dulles,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, neitar að sækja ráð-
stefnuna í Genf um frið í Indó Kína.
<M
Eden og Mendés-France komu
til Parísar eftir hádegið í gær frá
Genf, til móts við Dulles sem
kom flugleiðis frá Washington.
Skiptast
á klögumálum
Lange, utanríkisráðherra
Noregs, afhenti í gær sendi-
herra Sovétríkjanna í Osló orð-
sendingu, þar sem norska
stjórniri sakar starfsmenn
sendiráðsins um að hafa stund-
að njósnir í Noregi ásamt As-
björn Sunde, sem nýlega var
dæmdur.
Sendiherrann kvað þennan á-
burð ekki hafa við neitt að
styðjast og kvartaði yfir að
norska lögreglan væri tekin að
ofsækja sendiráðsstarfsmenn,
svo að þeir gætu vart gegnt
störfum sínum.
Sátu þremenningarnir á fundi
langt frameftir kvöldi og var tal-
ið að viðræðurnar myndu standa
frameftir nóttu ef tilefni þætti
til.
Situr á svikráðum
Fréttaritari Reuters í París
segir að Mendés-France sé mjög
Framhald á 11. síðu.
SetiB fyrir
oliuskipum
Talsmaður stjórnar Sjang
Kaiséks á eynni Taivan sagði
í gær að flotanum þar hefði
verið skipað að gera nauðsyn-
legar ráðstafanir til að hand-
sama tvö sovézk olíuskip, sem
fóru í fyrradag frá Singapore
fullhlaðin olíu. För skipanna
er heitið til Kína og er farm-
ur þeirra samtals 11.000 tonn.
Jiíií með 240 lestir
Júlí, einn af togurum Bæjarút-
gerðar Hafnarfjarðar kom af
veiðum í gær með 140 tonn af
karía. Mun hann stoppa eitt-
hvað, en Ágúst er enn á veiðum.
Júní hefur verið í slipp.
<?>—----------<-----------<»
<s>
Smíðagalli á
Halasijörnsnni
Fund:zt hefur smíðagalli
á Halastjörnunni, brezku
þrýstiloftsflugvélinni til
farþegaflutninga. Er tal-
ið að þessi galli hafi vald-
ið flugslysunum, sem urðu
til þess að allar Hala-
stjörnur voru teknar úr
umferð. — Gallinn lýsir
sér i því að vélarnar þola
ekki mikinn þrýsting. Á
tilraunastöð brezka flot-
ans hefur Halastjörnuvél
verið sökkt í vatn og þeg-
ar þrýstingurinn var orð-
inn mikill sprakk bolur-
inn.