Þjóðviljinn - 15.10.1954, Blaðsíða 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 15. október 1954
,,Hverjir svöruðu fyrir
sig, að þeir mundu eigi
gera, — að tapa svo
frelsi landsins.“
Nú er í annan stað frá Loðni
að segja . . . fóru þeir herra
Jón lögmaður yfir landið með
boðskap Eiríks konungs og
Hákonar hertoga og létu sverja
þeim !and og þegna, hvar sem
þeir fóru . ... Á þessu hausti
og um veturinn höfðu menn
séð bók þá, sem herra Jón fór
með. Fannst mönnum svo, sem
margir hlutir væru í henni
ffreldr mjög, um óbótamái og
aðra hluti, þá sem óhentir voru
tandsbýinu. Biskupi þóttu og
margir hiutir í henni á móti
guðslögum. Var það þá ráðs
tekið, er hún var skoðuð, að
lögtaka hana eigi alla. Bituðu
þá sér hvorir það, sem eigi
vildu sæma né játa.
Voru í einn stað biskup og
klerkar og vinir biskups, í öðr-
um stað handgengnir menn, í
þriðja stað voru bændur . . .
gengu menn til lögréttu, og iét
hver upp það, sem ritað liafði.
ílerra Loðinn varð við þetta
mjög heitur, að búkarlar gerðu
sig svo digra, að þeir hugðu
að skipta lögurn í landi, þeim
sem konungur einn saman átti
að ráða. I>ar næst krafði hann
aimenning að játa allri bók
greinarlaust.
Hverjir svöruðu fyrir sig, að
þeir mundu eigi gera, — að
tapa svo frelsi landsins. Loðinn
svarar að móti, að Jieir áttu
fyrst að já bókinni og biðja
síðan miskunnar um þá hluti,
sem nausyn þætti til standa,
konunginn og hans ráð.
(Úr sögu Árna biskups
Þorlákssonar).
1 dag er föstudagurinn 15.
október. — 288. dagur árs-
Ins. — Gallusir.essa. — Tungl
ó. hásuðri kl. 14:59. — Árdegis-
háflæði kl. 8:02. — Síðdegis-
háflæði kl. 20:26.
75 ára
er í dag Elías Líndál kaup-
maður, Njálsgötu 23.
Kvöld- og næturvörður
er í læknavarðstofunni, Austur-
bæjarskólanum. — Sími 5030.
Frá klukkan 18-8 í fyrramálið.
Næturvarzia
í Lyfjabúðinni Iðunni. — Sími
7911.
Gætið að yður, þér þjáist af
alvarlegri minnimáttarkennd.
Félagið Berklavörn
í Reykjavík
byrjar starfsemi sína með fé-
lagsvist og dansi í Skátaheimil-
inu laugardaginn 16. þm. Veitt
verða verðlaun hverju sinni og
heildarverðlaun að auki.
Millilandaf lug:
Hekla, milli-
landaflugvél
Loftleiða, er
væntanlega til
Reykjavíkur kl. 19:30 í dag frá
Hamborg, Khöfn, Ósló og Staf-
angri. Flugvélin fer til New
York kl. 21:30.
Gullfaxi fer til Kaupmanna-
hafnar kl. 9.30 í fyrramálið. —
Innanlandsflug: I dag eru áætl-
aðar flugferðir til Akureyrar,
Fagurhólsmýrar, Hólmavíkur,
Hornafjarðar, Isafj., Kirkjubæj
arklausturs og Vestmannaeyja.
— Á morgun er ráðgert að
fljúga til Akureyrar, Blöndu-
óss, Egilsstaða, ísafjarðar, Pat-
reksfjarðar, Sauðárkróks og
Vestmannaeyja.
' ^****mam\
Kl. 8:00 Morg-
unútvarp. 10:10
Veðurfr. 12:10
Hádegisútvarp.
16:30 Veðurfr.
19:10 Þingfréttir. 19:25 Veður-
fregnir. 19:30 Tónleikar. 19:40
Auglýsingar. 20:00 Fréttir. —
20:20 Útvarpssagan: Gull, eftir
Einar H. Kvaran; II. (Helgi
Hjörvar). 20:50 Einsöngur:
Erna Sack syngur (pl.) 21:10
Úr ýmsum áttum. Ævar Kvar-
an leikari velur efnið og flytur.
21:30 Tónleikar (pl.) :■ Sinfón-
ískir dansar eftir Gríeg (Ríkis-
ópersuhljómsveitin í Berlín leik
ur; Dr. Weissman stjórnar.)
21:45 Frá útlöndum (Axel
Thorsteinsson). 22:10 „Brúð-
kaupslagið“. 22:25 Dægurlög:
Gene Autry syngur (pl.).
Bridgekeppni kvenna
Ásgerður 'Einarsdóttir og Lauf-
ey Arnalds sigruðu glæsilega í
parakeppni Bridgefélags kvenna
með 427.5 stigum.
Síðastliðið mánudagskvöld lauk
parakeppni Bridgefél. kvenna.
Spilaðar voru fimm umferðir í
þrem 14. „para“-riðlum. End-
anleg röð efstu paranna er
þannig:
Ásgerður Einarsdóttir — Lauf-
ey Arnalds 427.5, Ingibjörg
Oddsdóttir — Margrét Jens-
dóttir 416, Guðríður Guðjóns-
dóttir — Ósk Kristjánsdóttir
407, Eggrún Arnórsdóttir —
Kristjana Steingrímsd. 406,5,
Soffía Theódórsdóttir — Vikt-
oría Jónsdóttir 405, Guðríður
Guðmundsdóttir — • Júlíana
ísebarn 404, Nanna Ágústsótt-
ir — Þórunn Jensdóttir 403.5,
Ásta Flygenring — Ásta Ing-
varsson 400.5, Margrét Ólafs-
son — Sigríður Bjarnadóttir
396.5, Elín Jónsdóttir — Jóna
Rútsdóttir 396, Ásta Möller -—
Eyþóra Thorarensen 395.5,
Hanna Jónsdóttir — Sigríður
Jónsdóttir 394.5, Arína Aradótt-
ir — Laufey Þorgeirsdóttir 394,
Hugborg Hjartardóttir — Vig-
dís Guðjónsdóttir 387 stig.
Frá Stjörnubíói.
Að gefnu tilefni viljum við
taka fram að aðgöngumiðar að
sýningu myndarinnar „Ég sá
dýrð hans“ í Stjörnubíó n.k.
sunndag eru uppgengnir. Hins
vegar verður sýningin endurtek-
in sunnudaginn 24. okt. kl. 14,30
og eru til niiðar að þeirri sýn-
ingu.
Mlunlngarspjöld Krabbamelna-
félags Islands
fást í öllum lyfjabúðum i Reykja-
rík og Hafnarfirði, Blóðbankan-
um við Barónsstíg og Remedíu.
Ennfremur í öllum póstafgreiðsl-
um á landinu.
• ÚTBREIÐIÐ
• ÞJÓÐVHJANH
Bókmenntagetraun
Síðast var birt Maríuvers úr
Lilju Eysteins Ásgrímssonar
munks, en hana „vildu allir
kveðið hafa.“ — Hér kemur
annað úr kaþólskri tíð:
Xotungar kirkjuna brutu,
kvalarar byssum skutu.. .
meiddu mennina marga,
mun þá fátt til bjarga.
111 eru áhlaup varga.
Þeir leiddu hann út um stræti,
kvaddi hann fólk með kæti.
Hélt á helgum krossi
herrann, prýddur hnossi,
fór með flýti og greiðslu
fagnandi sem til veizlu.
Biskup blessaði alla,
en bragnar á kné falla.
Leit eg hans líkan valla.
Námskeið í dönsku.
Háskóli Islands mun hafa nám-
skeið í dönsku fyrir almenning
í vetur. Kennt verður í tveim
flokkum tvær stundir á viku
hvor flokkur. Kennslan fer
fram á þriðjudögum kl. 8—10
e. h. (málfræði) og föstudög-
um kl. 8—10 e.h. (bókmennta-
saga). Kennslan er ókeypis.
Kennari dr. phil. Ole Widding
sendikennari. — Væntanlegir
nemendur eru beðnir að koma
til viðtals föstudag 15. október
kl. 8.15 í háskólanum II.
kennslustofu.
Krossgáta nr. 488
L X 3 V S. f.
Lárétt: 1 kjaftur 7 sérhlj. 8
karlnafn 9 draup 11 skst 12
band 14 ákv. greinir 15 hug-
myndir 17 fæði 18 nýtni 20 á
sjófuglum
Lóðrétt: 1 stræti 2 á Akureyri
3 flatmagaði 4 kristni 5 elski
6 þjónustugildi 10 söngflokkur
13 láð 15 fæddu 16 ofanaf ruðn-
ingur 17 dúr 19 ending
Lausn á nr. 487
Lárétt 1 kasta 4 nú 5 fá 7
Oxo 9 rót 10 REU 11 arf 13
ar 15 EA 16 ærnar
Lóðrétt: 1 kú 2 sax 3 af 4
narra 6 átuna 7 ota 8 orf 12
Rín 14 ræ 15 er
E I M S K I P :
Brúarfoss fór frá Hull 11. þm.
til Rvíkur. Dettifoss fór frá R-
vík 5. þm. til N.Y. Fjallfoss
fór frá Vestmannaeyjum í
gærkv. til Siglufjarðar, Ólafs-
fjarðar, Dalvíkur, Húsavíkur,
Norðfjarðar, Eskifjarðar og
Akureyrar. Goðafoss kom til
Keflavíkur 13. þm. frá Ham-
borg. Gullfoss kom til Rvíkur
í gærdag. Lagarfoss kom til
Hamina 13. þm. Fer þaðan til
Helsingfors. Reykjafoss kom
til Hamborgar 12. þm. frá
Rotterdam. Selfoss fór frá
Leith 10. þm. til Rvíkur. Trölla
foss kom til Rvíkur 10. þm.
frá N.Y. Tungufoss kom til R-
víkur 11. þm. frá Gibraltar.
Fer frá Reykjavík kl. 22:00 í
kvöld til N.Y.
Sambandsskip
Hvassafell fer væntanlega frá
Stettin í dag áleiðis til Aust-
fjarða. Arnarfell fór frá Vest-
mannaeyjum 12. þm til ítalíu.
Jökulfell fór frá Keflavík 13.
þm til Leníngrad. Dísarfell er í
Keflavík. Litlafell er í Hval-
firði. Helgafell fer frá Keflavík
í dag til New York. Baldur fór
frá Álabirg 13. þm til Akur-
eyrar. Magnhild er í Reykjavík.
Sine Boye lestar í Póllandi.
Esbert Wagenborg fór frá
Amsterdam 13. þm.
Bíkisskip
Hekla er á Austf jörðum á norð-
urleið. Esja fer frá Rvík kl. 20
í kvöld vestur um land í hring-
ferð. Herðubreið kom til Rvík-
ur í gærkvöld að austan. Skjald
breið fer frá Rvík kl. 19 í
kvöld vestur um land til Akur-
eyrar. Þyrill er í Rvík. Skaft-
fellingur fer frá Rvík í kvöld
til Vestmannaeyja.
Dagskrá Alþingis
Sameinað þing
Fjárlög 1955, -— 1. umr. (út-
varpsumræða).
• ÚTBREIÐIÐ
• ÞJÓÐVILJANN
Ekki eitt orð meira, skepnan þín, hvæsti
yfirvaldið Lummi. Farðu bölvaður, sagði
Ugluspegill. Hafðu vit á að refsa þeim,
sem eitthvað hafa til saka unnið. En nú
var Lumma nóg boðið og hann þaut að
JJgluspegli með reidda hnefana.
— O sláðu bara, sagði Ugluspegill. Ég
er reyndar fangi þinn, en ekki vitund
hræddur. En nú dróg Lummi fram rýt-
inginn og mundi örugglega hafa drepið
Ugluspegil, ef Þrílangur aðmíráll hefði
ekki stöðvað hann.
— Hugsaðu áður en þú framkvæmir,
sagði Þrílangur. Hann er ungur og
hraustur og hefur reyndar ekkert brot-
ið af sér. Lummi gretti sig og svaraði
dræmt: Hann skal þó að minnsta kosti
biðjast afsökunar. En Ugluspegill stóð
teinréttur og svaraði: Það mun ég aldr-
ei gera.
— Segðu þá að ég hafi haft rétt fyrir
mér, þrumaði Lummi. Ég kyssi ekki á
vönd kúgarans, svaraði Ugluspegill ró-
legur. — Reisið gálgann, hrópaði
Lummi, flytjið hann burt og hafið allt
tilbúið.