Þjóðviljinn - 15.10.1954, Blaðsíða 8
/S> — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 15. október 1954
Sovétríkin og England keppa í
knattspyrnu í október 1955
Ritari enska knattspyrnusam-
bandsins, Stanley Rous, hefur
skýrt frá því að samkomulag
hafi orðið milli fulltrúa beggja
landanna, Englands og Ráð-
stjórnarríkjanna, um það að
löndin keppi landsleik í knatt-
spyrnu. Er ákveðið að leik-
urinn fari fram í London í
október næsta ár. Það sem eft-
ir er að gera er að finna dag
sem hentar. Rous upplýsir enn
fremur að áætlanir liggi fyrir
um leik í Moskva 1956. Þá
segir frá því að Tom Whittak-
er hafi frá því skýrt að samn-
ingar standi yfir um það að
Arsenal og Dynamo keppi ár-
lega; það sem á stendur er það
að brezka knattspyrnusamband-
ið samþykki að fresta einum
deildarleik svo að Arsenal fái
meiri tíma til ferðarinnar til
Moskvu. Hann sagði að liðið
þarfnaðist lengri tíma, þannig
að það þyrfti ekki, eins og nú
var, að leika daginn eftir að
komið var til Moskvu.
Þess má líka geta, að Spart-
ak kemur til Lundúna í nóvem-
ber nk. og hafa forráðamenn
Arsenal óskað eftir að gjalda
gestrisni þá er þeir nutu í Sov-
étríkjunum, er Spartak kem-
ur.
Bandarískir þjálfarar kenndu á
námskeiði fyrir íþróttakennara
Þann 8. sept. sl. komu hing-
að til Reykjavíkur frá Banda-
ríkjunum Róbert J. H. Kiphuth
forstöðumaður allra íþrótta við
Yale-háskóla og Philip E. Mori-
arty aðstoðarmaður hans. R.
Kiphuth hefur meðal annars
verið landssundþjálfari banda-
rískra sundmanna fyrir fimm
olympíuleika, en P. Moriarty er
kunnur fyrir kennslu í dýfing-
um.
Dagana 9. til 11. sept. ferð-
uðust þeir um landið til þess
m.a. að kynnast sundaðstöðu
hér á landi. Þann 12. sept.
hófu þeir að leiðbeina sund-
fólki úr Reykjavík og nágrenni,
en þann 16. sept hófst nám-
skeið fyrir íþróttakennara.
Kennarar á námskeiðinu voru
Sigríður Þ. Valgeirsdóttir og
Karl Guðmundsson, auk þeirra
Kiuhuth og Moriarty.
í sambandi við námskeiðið
héldu kveníþróttakennarar fund
og nemendasamband íþrótta-
kennaraskóla Islands aðalfund
sinn.
Námskeiðið sóttu alls 70
kennarar víða að af landinu.
Að meðaltali mættu 43 kenn-
arar til starfa á hinum 5 starfs-
tímabilum hvers dags.
Námskeiðinu lauk 24. sept.
Skilnaðarhóf fyrir leiðbeinend-
ur og kynningarkvöld fyrir
íþróttakennara fór fram við
lok námskeiðsins að Hlégarði
í Mosfellssveit.
Hinir erlendu kennarar létu í
Ijós aðdáun sína á því hve sund
mennt stæði hér á háu stigi
og hve byrjunarsundkennsla
væri framkvæmd hér af mikilli
nákvæmni. íslenzku íþróttalífi
og þá sérstaklega sundíþrótt-
inni verður áreiðanlega mikill
fengur að komu þessara önd-
vegis sundkennara.
Jónas Halldórsson sundkenn-
ari var aðstoðarmaður hinna
erlendu kennara hér, en túlkun
önnuðust Sigríður Þ. Valgeirs-
dóttir og Inga Rúna Ingólfs-
dóttir.
(Frá færðslumálaskrifst.)
% ÍÞRÖTTIR
RÍTSTJÓRl. FRtMANN HELGASON
Svíar urðu Norðurlanda-
meistarar í knattspyrnu
Þó eftir sé einn leikur í keppni
Norðurlandanna fjögurra um tit-
ilinn Norðurlandameistari 1954,
varð séð eftir leik Svia og Dana
á Rásunda á sunnudaginn, að
Svíþjóð hlýtur þann titil. Sá
leikur fór þannig að Svíar unnu
með 5 mörkum gegn 2 (4:2) í
viðurvist 36.700 áhorfenda. Svíar
léku mjög vel, voru í betri þjálf-
un en Danir og skutu betur.
Svíarnir beinlínis léku sér að
Dönum tímum saman. Vörn
Dana virtist ruglingsleg og svip-
að var um framherjana að
segja og þeir gátu auk þess ekki
skotið.
Danir settu þó fyrsta markið
á 6. mín. Svíar jöfnuðu eftir 3
mín. Á 12. mín. skorar Sandell
fyrir Svíþjóð en B. Sörensen
jafnar fyrir Dani á 17. mín.
Svíar taka forustuna á 36.
mín. Sandell skallar í mark og
tveimur mín. síðar gera Svíar
fjórða mark sitt. Síðasta mark
sitt gera Sviar (Sandell) á 59.
mín. leiksins, og var það eina
mark sett í öllum síðari hálf-
Er sú forusta...
Framhald af 6. síðu.
Með þetta að leiðarljósi verða
Alþýðusambandskosningarnar
háðar til enda og með þessum
hug munu fulltrúar alþýðunnar
mæta til Alþýðusambandsþings
í næsta mánuði, ráðnir í að
binda endi á valdatíma íhalds
og atvinnurekenda og hefja
samtökin að nýju til þess vegs
og virðingar sem þeim ber og
hagsmunir verkalýðsins krefj-
ast.
leiknum. Sandell miðherji, Thill-
berg hægri innherji og hægri
útherjinn Hamrin, voru beztu
menn vallarins.
Noregur og Danmörk eiga eft-
ir að keppa en það breytir engu
því að þótt Norðmenn vinni eru
þeir jafnir Svíum að stigum því
Svíar og Norðmenn gerðu jafn-
tefli, en mörkin standa 16:4 fyrir
Svía en 4:2 fyrir Norðmenn í dag.
B-landsleikur Dana og Svía
fór fram sama dag í Esbjerg og
unnu Svíar þar líka 2:1 (0:0).
Unglingalandslið Dana tapaði
líka 3:1 en sá leikur fór fram í
Randers í Danmörku. Sluppu
Danir vel að fá ekki fleiri mörk
á sig í báðum þessum leikjum.
Neitar fundi
Framhald af 4. síðu.
sífellt vaxandi á vinnustöðun-
um. Við teljum tilgang félagsins
að standa í hvívetna á verði um
hagsmuni okkar og réttindi.
Núverandi stjórn hefur brugðist
þessari skyldu enda studd til
valda af svörtustu afturhaldsöfl-
unum. Ég held að þessi óánægja
fari ekki fram hjá „forustunni“
og henni sé ljóst að halla tek-
ur undan fæti á valdaferlinum.
Sú mun ástæðan til þess að
félagsfundur fæst ekki haldinn,
þrátt fyrir lögmæta kröfu fé-
lagskvenna og að ekki er enn
farið að kjósa fulltrúa á sam-
bandsþing þótt auglýstur kjör-
tími sé að verða útrunninn.
Stjórninni er sjálfri Ijóst að
hún hefur brugðist þeim trún-
aði sem henni var sýndur og
að hún er búin að glata öllu
trausti í félaginu.“
Rudolf Harbig-
mót i Dresden
Um síðastliðna helgi fór fram
í Dresden í Austur-Þýzkalandi
mót til minningar um hinn
glæsilega hlaupara Þjóðverja,
Rudolf Harbig, en hann féll í
síðasta stríði. — Voru margir
snjallir íþróttamenn þátttak-
endur í móti þessu og náðust
margir góðir árangrar.
800m vann Gunnar Nielsen
Danm. á 1;50.2, næstur varð
Stracke, V-Þýzkal. á 1;50.5, og
þriðji St. Jungwirth, frá Tékkó-
slóvakíu, á 1;50.8.
SVERRE STRANDLI
Sverre Strandli, Nor., kast-
aði sleggju 60,15m og næstur
honum varð Dale frá Tékkósl.
Austurþýzka konali Gisela
Koehler vann 80m grind. á 11.0
sek., önnur varð Fanny Blank-
ers Koen, Hollandi á 11.1.
Peukert frá A-Þýzkal. setti
austurþýzkt met í stangar-
stökki, 4,20m.
• /■
/fv* /N* /^v* /
*«/*v»/Jv*
1V0TIÐ
V E R Ð
69 krónur dósin
Áfylling
49 krónur
lilk minute make up
MARKADURI
Bankastræti 11