Þjóðviljinn - 15.10.1954, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 15.10.1954, Blaðsíða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 15. október 1954 Stigamaðurinn Eftlr Giuseppe Berto 25. dagnr ÞaS hafði þá verið hún. Hún hafði beðið hann að skjóta ekki Giulíu Ricadi, og hann hafði afsalað sér hefnd sinni. Hún hafði látið hann hætta viö hana, með því einu að biðja hann um það. Ég gekk af stað frá henni. ,,Nino“, kallaði hún á eftir mér. Ég svaraði engu, en ég beið þangað til hún var komin að hliðinni á mér. ,,Ég fór inn í gripahúsið til að færa honum teppi“, sagði hún. „Og ef til vill rennir mamma grun í að ég hafi farið niður. En ef hana grunar það ekki, ættirðu ekki að segja henni frá því. Það er betra að þau viti ekki um það, án þess þó að ég hafi gert neitt rangt“. Aftur lagði ég af stað. „Ætlarðu að lofa því?“ spurði hún. „Af hverju fórst þú að skipta þér af Michele Rende?“ „Ég hef ekki gert neitt rangt“, endurtók hún.“ Ég ætlaði aðeins að hjálpa honum“. ,,Og hvert er hann farinn?“ „Hann er farinn burt. Ég veit ekki hvert. Hann sagð- ist þurfa að fara langt til að losna við hatrið. Enda gæti hann með engu móti verið hér í nágrenninu eins og þú veizt“. Hún horfði á mig og hún var ekki lengur óttalaus á svip eins og áður; það var eins og hún væri að sárbæna mig að vera hjá sér. Og ég sagði ekki neitt. „Vertu ekki reiöur við mig“, sagði hún. „Ég hefði gert hið sama fyrir hvern sem þurfti þéss með“. „Ég er ekki reiður við þig“, sagði ég. En það var ekki satt. Ég var gagntekinn beizkju og gremju og mig langaði mest til að gefa því útrás í tár- um og formælingum. Hann hafði hrundið mér frá sér en ekki henni — það var ein ástæðan. En þaö voru fleiri ástæður, sem voru ekki eins skýrar en saerðu mig þó enn dýpra. Það var eins og eitthvað af Miliellu hefði verið tekið frá mér, eitthvað sem ég hafði átt áður og^ annar hefði nú fengið og ég gæti aldrei öðlazt aftur. Margir dagar liðu og minningin um Michele Rende þurfti að mást áöur en ég gat litið Miliellu sömu aug- um og áður. Ekkert hafði komið fyi’ir; þetta hafði að- ' eins verið snöggur skuggi. Við gátum aftur lifað saman í sátt. og eindrægni eins og systkini sem þykir vænt hvoru um annað. En á meðan hafði stríðið farið framhjá okkur. Nýju hermennirnir höfðu komið og farið aftur innan nokk- urra daga. Þeim lá á að elta þá sem voru að flýja. Til allrar hamingju komu þeir ekki heldur fram sem óvin- ir. Þeir komu úr fjarlægum löndum, sem voru eftir öllu að dæma mjög frábrugðin landi okkar, því að þeir furðuðu sig á öllu. Þeir undruðust það að við skyldum halda áfram aö hugsa um landið og uppskeruna innan um byssur þeirra og hergögn. Hvað annað hefðum við 1 átt að gera? Ef við hefðum ekki hugsað um aö ná saman uppskerunni og undirbúa moldina undir næstu ' sáningu, hver hefði þá séð okkur fyrir fæðu? En þeir virtust ekki skilja það. Þeir horfðu á húsin okkar, fötin og matinn sem við átum og aðferðir okkar við störf okkar. Studum hlógu þeir að venjum okkar, vegna þess að þær voru svo frábrugðnar venjum þeirra. En þeir gerðu okkur ekkert mein. Ef til vill hafa þeir skilið að við vorum afkvæmi menningar sem var of gömul til þess að við gætum skilið tilgang styrjalda. Ef til vill höfðu þeir enga þörf fyrir hveitisekk okkar og olíukrús. Og þeir fóru burt án þess að hegða sér eins og óvinir. Aðeins örfáir þeirra urðu eftir í þeim tilgangi að stjórna landinu. En það hafði alltaf einhver stjórn- að okkur, og það skipti okkur ekki miklu máli að þess- ' ir menn töluðu framandi tungumál, fyrst þeir voru réttlátir og rændu okkur ekki matvælum og kvenfólki. Og þá var stríðið farið framhjá og við gátum aftur litið í kringum okkur eins og eftir þrumuveður. Við þökkuðum guði fyrir að húsin okkar stóöu enn ó- skemmd og fjölskyldurnar gátu safnazt kringum eldinn, 1 og matvælin sem við höfðum viöað að okkur með svo 1 mikilli fyrirhöfn voru enn ósnert, þar sem við höfðum falið þau. Við höfðum fulla ástæöu til að færa guði þakkir. Vín, fíkjur, kastaníur, korn — öllu var borgið. Og olívurnar voru líka að verða þroskaðar. Nú þegar mátti heyra um allan dalinn að lurkum var slegið í trjá- greinarnar og frá morgni til kvölds bogruðu konm’nar við að tína upp ávextina. í skógunum og sögunar- | myllunum var næg atvinna, vegna þess aö nýju her- irnir þurftu á timbri að halda og gömlu lögin um verndun skóga voru ekki lengur í gildi. Þaö tók okkur alllangan tíma að átta okkur á því að jafnvel þetta stríð hafði skilið eftir sig fátækt sem var enn illbærilegri. Að vísu þurfti maður sem átti sitt eigið land ekki að hafa miklar áhyggjur. Hann hafði ekki aflögu peninga til að kaupa skó eða föt, en hann þurfti þó ekki að kvíða hungri, og jafnvel leigulið- arnir, sem höfðu jarðir á leigu, voru ekki mjög illa settir. Afurðirnar seldust vel og leigan hafði ekki hækk- að enn. En hve margir smájarðeigendur og leiguliðar voru í þorpinu okkar? Flestir voru verkamenn eða skógarhöggsmenn sem fengu daglaun. Og þegar þeir fóru meö laun sín til að kaupa matvæli, komust þeir að raun um að peningarnir hrukku ekki til. Með hverri viku sem leið var minna hægt að fá fyrir peningana og launin hækkuðu ekki. Og svo voru fátæklingarnir, sem höfðu alltaf dregið fram lífið á smádútli og gjöf- um; en því meir sem fátæktin jókst, því minna varð um gjafir og smádútl til að firra þá hungri. Og svo var heimilislausa fólkið, sem komið hafði úr borgun- um eftir loftárásirnar og var um kyrrt í þorpinu okkar af því að það hafði ekkert annað að fara. Það var fá- tækara en fátæka fólkið okkar, en hjá því bjó það, þjappað saman í litlum kofum, innan um svín og hænsni í þröngum, óhreinum ranghölum. Og jafn- vel þetta stríð sem farið hafði framhjá okkur án eyði- legginga og blóðsúthellinga, skildi eftir eymd. Og eng- um datt í hug að reyna að bæta ástandið. Stóru land- eigendurnir voru langt í burtu í fjarlægum borgum og þeir gátu ekki komið vegna þess að stríðið hindraði það. Og þeir höfðu aldrei haft mikinn áiiuga á okkur og ekki við að búast að þeir hefðu það núna heldur. Yfirstéttin sem bjó í nágrenninu, í hinum fáu stór- hýsum viö aðalgöturnar í hinum ýmsu hverfum þorps- ins, var eigingjörn og duglaus og hún þurfti jafrível líka að heyja leynda baráttu gegn skorti. Hinir áttu ekki annars úrkosta en gefast upp. Fátækt fólk á okkar slóðum hefur aldrei getaö flúið á náðir annars en uppgjafarinnar. Sjálf vorum við ekki fátæk, til allrar hamingju Landið okkar var ekki stórt, en við áttum það sjálf; við ?TTT Persianskinn EFTIR hina langvarandi tízku í leóparðaskinnum lítur út fyrir að persíanskinn sé að ryðja sér til rúms. Það er notað til að brydda allt mögulegt, allt frá höttum til hanzka. Á kápur og draktarjakka virðist eðli- legt að nota persíanskinn, þótt það geti litið dálítið skringilega út .á tweeddragt. I kjólabryddingar er það mik- ið notað og aðalástæðan fyrir vinsældunum er sú, að nú er farið að búa til gervipersían- skinn, sem er mjög ódýrt en er svo líkt ósviknu persían- skinni að ekki geta nema fag- menn séð muninn. Gerviskinnið er auk þess léttara og því enn hentugra í bryddingar á kjóla og liatta, þegar skinnið má ekki vera mjög þungt. Gervi- skinnið er þó ekki nærri eins sterkt og ósvikna skinnið en það skiptir ekki svo miklu máli í svona bryddingar, sem ekki mæðir mjög mikið á. Era henduraar snefrar? ÞAÐ er ágætt ef hendurnar eru rauðar að nudda þær upp úr handáburði eða mögru kremi og halda olnboganum niðri í köldu vatni nokkrar mínútur, stendur í Femínu. Þegar búið er að þurrka olnbogann er höndunum lyft upp fyrir höf- uðið andartak — t.d. eina mín- útu. Reynið þetta eitthvert kvöldið, ef þið ætlið út. . . . og forðizt iíka heita rétti og sterka drykki. Nudd er mjög gagnlegt fyrir hendurnar. Núið báðar hendur vel með kremi, grípið síðan höndunum saman — hafið þum- alfingurinn ofan á handarbak- inu en fingurna í lófanum. — Nuddið hvern fingur neðan frá og fram á góm með þumal- fingrinum og síðan handarbakið niður að úlnlið. OC CAM^N A: Þarna fer herra Sharp, oft hef ég undrazt hvernig hann hefur komizt yfir alla sína peninga. B: Ja, það veit guð. A: Nú, það er líklega þess vegna, sem hann er alltaf svona áhyggjufullur . M. Kendell, sem var á æsku- árum sínum einkaritari Theo- dors Roosevelts Bandaríkja- forseta, segir frá því í sjálfs- ævisögu sinni, að forsetinn hafi ávallt leiðrétt öll bréf með eigin hendi eftir að einka ritarinn hafði skrifað þau. Kendell furðaði sig á þessu og spurði forsetann loks um ástæðuna, hvort heldur væri að hann skrifaði bréfin allt- af vitlaust eða forsetinn vildi leiðrétta það, sem hann hefði sjálfur lesið fyrir. Roosevelt svaraði, að hvorugt þessa væri ástæðan, heldur- hitt, að fólk geymdi bréf frá forsetanum sem dýrgrip, ef hann hefði skrifað eitthvað í- þau með eigin hendi. Jæja, drengur minn, sagði móðirin alvarlega við son sinn, það voru tvær kökur í þessari skál í morgun en nú er hér aðeins ein, hvernig get- ur staðið á því? Sonurinn svaraði iðrunarfull- ur: Það veit ég ekki mamma, en það var svo dimmt, að ég hef sjálfsagt ekki séð hina kökuna. Ull ssm ekki kzypplast Fyrir nokkru var í London sýnd aðferð til að gera ullarefni þannig úr garði að þau kryppl- ist ekki. Þessi nýja aðferð sem gengur undir nafninu ,,Dylan“ er fólgin í því að ullin er með- höndluð með ýmiss konar efn- um. Hægt er að nota þessa að- ferð við hráull, ullarefni og ull- arflíkur. Þegar þessi aðferð er notuð við prjónavörur áður en þær eru litaðar er minni hætta á að þær hnökri við litun. En aðferð þessi dugar einungis við ull. Og ullarfatnað, sem með- höndlaður hefur verið á þennan hátt, má þvo í venjulegum þvottavélum. UUarþráðu? og benzín- þvottur ÞAÐ er ekki óvenjulegt að prjónapeysur og treyjur séu þvegnar úr hreinsuðu benzíni, ekki sízt nú orðið, þegar prjóna jakkar, peysur og húfur hafa verið mjög í tízku. En þessa aðferð ber að nota í hófi. £ nokkur skipti er óhætt að þvo ullarprjónaföt úr benzíni, eti ef það er gert að staðaldri er hætt við því að þráðurinn í húf- unni eða peysunni verði stökk- ur. Benzínið eyðir smátt og smátt fitunni úr ullinni og þræðimir verða stökkir og ó- nýtir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.