Þjóðviljinn - 04.12.1954, Blaðsíða 3
Laugardagur 4. desember 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Hvað dvel ur svör borgarstjóra?
við fyrirspurnum Sigurð&r Guðgeissonar
um húsnæðismál?
SigurSui’ Guðgeirsson ítrekaöi á bæjarstjórnarfundi í
gær fyrirspurnir sínar til borgarstjói’a um húsnæðismál.
Fyrirspurnir þessar bar hann munnlega fram í haust en
sendi borgarstjóra þær skriflega 26. þ.m.
Fyrirspurnirnar voru þessar:
1. Hve miklu fé hefur verið
varið úr bæjarsjóði á þessu ári
til aðstoða'r húsnæðislausu fólki?
2 Hve miklu fé hefur samtals
verið varið í þessu skyni síðan
bærinn tók að veita fjárhagslega
Frá Vinnumiðlun
studenta
Eins og yður er ef til vill
kunnugt, hefur undanfarin ár
starfað hér í Háskólanum
Vinnumiðlun stúdenta. Hefur
Vinnumiðlunin einkum verið
starfrækt með það fyrir augum
að útvega stúdentum, er þess
óskuðu, atvinnu yfir sumar-
mánuðina.
Sumaratvinna stúdenta er
oft það rýr, að hún nægir þeim
ekki til uppihalds yfir vetur-
inn. t>ví er það ráð margra
efnalítilla. stúdenta að vinna
með náminu eða hætta því um
stundarsakir og taka þeirri
vinnu, er gefst hverju sinni.
En eins og kunnugt er, þá
erú íslenzkir stúdentar flestri
algengri vinnu vanir, þar sem
meginþorri þeirra hefur orðið
að kosta nám sitt af eigin
vinnu. Þá hafa flestir stúdent-
ar sérkunnáttu á ýmsum svið-
um bæði af námi sínu og fyrri
störfum.
Nú fer í hönd nokkur anna-
tími í atvinnulífinu — í sam-
bandi við jólin — og þurfa þá
margir atvinnurekendur að
bæta við sig starfsmönnum.
Þéss vegna leitum við nú ásjár
yðar, í trausti þess að þér séuð
máli þessu velviljaðir og verðið
okkur hiiðhollir með vinnuveit-
ingar — bæði nú um jólin og
síðar — ef þér hafið þörf á
vinnukrafti og aðrar ástæður
leyfa.
Við væntum þess að þér sjáið
yður fært að svara okkur mjög
fljótlega, þar sem afar áríð-
andi er fyrir okkur að vita
undirtektir yðar.
Skrifstofa Vinnumiðlunarinn-
ar er í herbergi Stúdentaráðs
og er opin kl. 11—12 á mánu-
dögum, miðvikudögum og
föstudögum. Sími 5959.
Með fyrirfram þakklæti.
Virðingarfyllst,
Vinnumiðlun stúdenta.
fyrirgreiðslu i sambandi við
húsnæðisvandræði, það er frá
1950?
3. Hvað hefur af hálfu bæjar-
ins verið gert til að leysa vand-
ræði þeirra 20 fjölskj'ldna sem
borgarstjóri skýrði frá á bæjar-
stjórnarfundi 7. okt. s. 1. að
væru húsnæðislausar?
4. Hve miklu fé hefur verið
varið úr bæjarsjóði á yfirstand-
andi ári tii viðhalds og endur-
bóta á íbúðarbröggum?
5. Hvað líður undirbúningi að
úthlutun þeirra íbúða scm bær-
inn er að reisa í Bústaðahverfi?
Borgarstjóri kvaðst ekki
reiðubúinn til þess að svara
fyrirspurnunum, — og hefur
hann þó haft umhugsunartíma
um flestar þeirra siöan í haust!
Kópavogsbúar!
Þeir sem fengið hafa til
sölu happdrættisblokkir frá
Þjóðviljanum eru vinsam-
lega beðnir að gera skil fyrir
klukkan 12 í kvöld annað-
hvort í skrifstofu Þjóðvilj-
ans, Skólavörðustíg 19, eða
á skrifstofu Sósíalistaflokks
Reykjavíkur, Þórsgötu 1.
Sósíalistafélag
Kópavogshrepps
Haía strætísvagnastjórarnir samið
af sér samnings- og verkfallsrétt?
Bæjarbúum til mikillar ánægju virðist nú tryggt að
strætisvagnarnir gangi og ekki komi til stöðvunar um
jólin. — En strætisvagnastjórarnir virðast hafa selt af
hendi samnings- og verkfallsrétt sinn fyrir einhverjar
smávægilegar kjarabætur.
Nornin í Hans og Grétu.
fslenzkt brúðuleikhús hefur
starfsemi á niorgun
Sýnir íyrst Hans og Grétu og Rauðhettu
Á sunnudagimi hefur starfsemi sína íslenzkt 'brúöu-
leikhús á vegum Jóns E. Guðmundssonar, listmálara.
lítokkunnnf
Greiðið flokksgjöld ykkar skil-
víslega í skrifstofu félagsins,
Þórsgötu 1. Allir ársfjórðungar
eru nú fallnir í gjalddaga.
Minningarsjóður
ísienzkrar alþýðu um
Sigfús Sigurhjartarson
Tjarnargata 20
Munið að gera skil á greiðslu
loforðum til sjóðsins.
Jón hefur unnið að undirbún-
ingi síðustu tvö árin og sjálfur
búið til allar brúðurnar og leik-
tjöldin. Fyrstu leikritin sem
sýnd verða eru Hans og Gréta
og Rauðhetta, en siðar hyggst
Jón taka til sýningar önnur leik-
rit, bæði iimlend og erlend. Æv-
ar R. Kvaran leikari hefur þýtt
leikritin.
Þeir sem stjórna brúðunum
eru auk Jóns Eyvör Hólmgeirs-
dóttir og Baldur Georgs. Fyrsta
sýningin verður kl. 5 á morgun
í kjallara Alþýðuhússins, og eru
sýningarnar fyrst og fremst ætl-
aðar börnum og sniðnar við
þeirra hæfi.
Tónleikar Tón-
listarfélagsins
Á tónleikum fyrir styrktarfé-
laga Tónlistarfélagsins í Austur-
bæjarbíói n. k. þriðjudag og
miðvikudag leika tveir Þjóð-
verjar, Gerhard Taschner fiðlu-
leikari og Martin Krause píanó-
leikari. Þeir leika saman sónöt-
ur eftir • Hándel, Brahms og
Beethoven (Kreutzersónatan), en
auk þess leikur Taschner einn á
fiðluna Chaconne eftir Bach.
Þetta eru 10. tónleikar Tónlist-
arfélagsins fyrir styrktarfélaga
á þessu ári.
Borgarstjóri skýrði frá því á
bæjarstjórnarfundi í gær að
samningar hefðu sama sem
tekizt milli strætisvagnadeild-
ar Hreyfils og bæjarins um að
vagnstjórarnir yrðu opinberir
starfsmenn í 10. launaflokki,
þ.e. sama launaflokki og lög-
regluþjónar og brunaverðir er
myndi nema 15% launahækk-
un, auk nokkurra fríðinda.
Hefði nú náðst samkomulag um
hin smærri atriði er samning-
ar hefðu staðið um undanfarna
daga, og væri ekkert annað
eftir en samþykkja það sam-
komulag á fundi strætisvagna-
stjóra og í bæjarráði.
Hannes Stephensen, formað-
ur Dagsbrúnar kvaðst telja
það mjög varhugaverða leið af
verkalýðsfélögum að ganga inn
á þá braut að gerast opinber-
ir starfsmenn og selja þannig
af hendi bæði samningsrétt
sinn og verkfallsrétt. Til þess
að slíkir samningar gætu stað-
izt þyrfti stjórn strætisvagna-
deildarinnar, eða jafnvel félag-
ið sem deildin er hluti úr, að
samþykkja þetta skref.
Hannes kvað það alltaf hafa
verið stefnu verkalýðsfélaganna
að bærinn semdi við þau um
kaup og kjör. En með því að
gera sem flesta að opinberum
starfsmönnum stefnir bærinn að
því að svipta seni flesta rétti
til þess að gera verkfall til
stuðnings því að fá lagfæringar
iá kaupi og kjörum.
Og það er óumdeilanieg
staðreynd, að kjarabætur þær
sem opinberir starfsmenn fá
byggjast fyrst og fremst á
þeiin árangri sem verkalýðs-
félögin ná hverju sinni.
Harður árekstur
I gær varð harður árekstur á
gatnamótum Skúlagötu og
Snorrabrautar Rákust þar á
vörubifreiðin R 140 og fólks-
bifreiðin R 3831. Skemmdist fólks
bifreiðin mikið. Þar sem ágrein-
ingur er um með hvaða hætti
áreksturinn hafi orðið óskar lög-
regian eftir að sjónarvottar geíi
sig fram.
Um klukkan 5 í gær var ekið
á fólksbifreiðina R 2265, þar
sem hún stóð fyrir framan húsið
á Klapparstíg 16. Varð bifreið-
in fyrir nokkrum skemmdum og
óskar lögreglan þess að sá sera
skemmdunum olli gefi sig frara
og einnig aðrir sjónarvottar.
Dtsvör hækka í 98,4 millj.
Framhald af 1. síðu.
breytingar. Fjármálastefna I-
kenni frumvarpsins væru litlar
haldsins væri óbreytt: aukn-
ar álögur á almenning, án þess
a.ð farið væri út í auknar fram-
kvæmdir, hvorki í húsnæðis- né
atvinnumálum. Þannig væri
framlag til gerðar nýrra gatna
óbreytt.
Borgarstjóri gerði í framsögu
Útsvör hækka
grein fyrir útsvarshækkuninni
á síðustu árum. 1951 voru út-
svörin 64.8 millj., 1952 83
millj., 1953 86.5 millj. og 1954
86.4 millj. að viðbættum 4
millj. álögðum í júlí eða sam-
tals 90.4 millj.
Framlög til íbúða-
bygginga lækka
Ingi R. Helgason gerði í sinni
ræðu samanburð á framlögum
til íbúðabygginga á síðustu ár
um, en bygging nýrra íbúða
er nú brýnasta vandamál
Reykvíkinga .
Árið 1950 var áætlað til í-
búðabyggina 8 uiillj. kr.
1951: 5 millj. 1952 : 2 millj
og 1953: 2 millj. Fram-
kvæmdin hefur þó ekki ætíð
verið samkvæint áætlun því
1950 var varið til íbúða-
bygginga 5.7 millj. í stað 8
en 1951 varið 7.4 millj. í
stað 5. En 1952 voru það
1.2 millj. í stað 2 og 1953
aðeins 0.5 millj., eða 500
þús. í stað tveggja millj.
1 frumvarpi næsta árs eru
áætlaðar 4.5 millj. til íbúða-
bygginga — en um framkvæmd
getur brugðið til beggja vona
að vanda.
19 millj. kr.
auknar álögur
Á s.l. hausti var rafmagns-
verðið hækkað um sem nemur
10 millj. _ kr. auknum álögum
á bæjarbúa og heitavatnið um
1 millj. Nú á að hækka út-
svörin um 8 millj. og er þetta
allt til samans 19 millj. kr. í
auknum álögum .
Að lokinni umræðu var
fjárhagsáætlunarfrumv. vísað
til annarrar umræðu, sem ráð-
gerð er 16. þ.m.
Púdovkin í aðal-
hlutverki
í dag kl. 3 og á morgun ki.
1 sýnir Filmía fyrir félaga sina
kvikmynd, sem gerð var árið
1929 í Berlín undir stjórn
rússneska leikstjórans Fedor
Ozep. Kvik-
myndin kali-
ast Lifandi lik
á íslenzku og
er gerð eftir
leikriti To'-
stojs.
Aðalhlut-
verk myndar-
innar er leikið
af Púdovkin,
hinum fræga
rússneska
kvikmyndastjóra (Móðirin,
Stormur yfir Asíu, Fall Péturs-
borgar), sem lézt fyrir nokkr-
um mánuðum. Hann hafðí
einnig hönd í bagga með stjóra
myndarinnar. Skömmu áður en
Pudovkin lézt liafði hann lok-
ið töku kvikmyndarinnar Upp-
skeran, sem er talin ein bezta
kvikmynd, sem gerð hefur ver-
ið í Sovétríkjunum að undaa-
förnu.
Sovétlœhnar !
í Bretlandi
Tiu sovézkir læknar, þ. á. m.
þrjár konur, komu í gær iii
London og munu dveljast þrjár
vikur í Bretlandi í boði brezkra
lækna. Munu þeir kynna sér
sjúkrahús og aðrar heilbrigðis-
stofnanir í landinu. Fyrir
skömmu fóru brezkir læknar i
svipaða kynningarferð til Sovét-
\
ríkjanna.
10 vinningar áhappdrættinu eru ERIKA-ferðoritvétar