Þjóðviljinn - 04.12.1954, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 04.12.1954, Qupperneq 5
Laugardagur 4. desember 1954 — ÞJÖÐVILJINN — (51 Gróður í Japan er geislavirkur Hœtfa á ferSum fyrir merin og skepnur Geislaverkun frá kjarnorkusprengingum hefur nú mengað svo jaröveginn sumstaöar 1 Japan aö gróöur sem vex í honum veröur einnig geislavirkur. Skýrslur um þetta efni komu frá tveim aðilum í Japan um síðustu helgi. i Geislavirkir silkiormar. Talsmaður landbúnaðarráðu- neytisins í Tokío skýrði frá því, að vísindamenn ráðuneytisins hefðu rannsakað mórberjarunna víðsvegar um landið og silkiorm- ana, sem lifa á mórberjalaufinu. Það koma á daginn, að á stórum svæðum eru mórberja- runnarnir orðnir geislavirkir og sama máii gegnir um silki- ormana og silkið sem þeir spinna utan um sig. Þetta getur haft alvarlegar af- leiðingar fyrir útflutningsverzlun Japana, sem enn flytja út mikið af silki þótt nælon hafi á síðari árum mjög dregið úr notkun þess. Geislavirkur laukur Vísindamenn landbúnaðarráðu- neytisins telja að geislaverkunin hafi komizt í jarðveginn úr geislavirkri rigningu, sem fallið hefur víða í Japan. Sömu skoðunar er dr. Tasushi Nishiwaki, prófessor i lífefna- fræði við háskólann í Osaka. Hann segist hafa komizt að raun um að matjurtir, einkum laukur, séu geislavirkar sumstað- ar í Japan. „Við vitum að líkaminn safn- ar í sig geislavirkum efnum á sama hátt og blýeitrun“, sagði prófessorinn. „Ef geislavirkar matjurtir eða ávextir eru etin að staðaidri safnast áhrifin fyrir. Sum jarðefni verða geislavirk ár- um saman og einstöku efni öld- um saman". Kamillute eyðir pem- ingalykt Hér í blaðinu var skýrt frá því fyrir nokkru, að Esbjerg- búar í Danmörku hefðu látið í ljós svo megna óánægja yfir ódauni frá fiskimjölsverk- smiðjum að verksmiðjueig- endunum var skipað að gera ráðstafanir til að eyða fýl- unni. Þetta tókst með því að blanda kamillutekjarna í guf- una sem leggur úr þurrkurum verksmiðjanna. Árangurinn er svo góður að fiskimjölsverk- smiðjur annarsstaðar í Dan- mörku hafa tekið þennan hátt upp. Yfirvöld Reykjavíkur eru víst ekki svo röggsöm að þau skipi eigendum verksmiðjunn- ar á Kletti að hætta fýlufram- leiðslu sinni. Fimmtán ára áætlun um að hreinsa andrúmsloft Breta Hægt að útrýma hinni banvænu sótþoku eí vilji er fyrir hendi. Hin lífshættulega sótþoka, sem oft legst yfir iönaöar- borgir Bretlands, er alls ekki óhjákvæmilegt böl. Hægt er aö útrýma henni ef sú þekking sem fyrir hendi er veröur hagnýtt. Pólltiskur fangi myrtur í bandarísku fangelsi Bandarískur hagfræðingur, sem sat í fangelsi fyrir pólitískar sakir, var myrtur þar 1 síðustu viku. Nafn mannsins var William Remington og hann var embætt- ismaður í bandaríska viðskipta- rálaráðuneytinu á stjornarárum Roosevelts og Trumans. Árið 1948 vék Truiuan honum úr embætti og eftir fjögurra ára málaferli var hann dæmdur í fangelsi árið 1952. Hlægilegar sakir Remington var dæmdur fyrir tvær sakir. Önnur var að hafa neitað að deild úr sambandi ungra kommúnista hefði starfað við menntaskólann sem hann gekk í 20 árum áður. Hin sakargiftin var að hann neitaði að hafa gefið blaðamanni upplýsingar um störf viðskiptamálaráðuneytisins sem áttu að fara leynt. Rotaður í rúmi sínu Mánudagsmorguninn í síðustu viku fannst Remington liggjandi í blóði sínu í rúmi sínu í ríkis- fangelsinu í Lewisbury í Penn- sylvania. Þrír samfangar hans voru handteímir og hafa þeir játað að hafa barið hann í höf- uðið með múrsteini í sokk. Pólitiskt morð Embættismönnum í fangelsis- stjórninni ber ekki saman urrí morðástæðuna. Sumir segja að morðingjamir, sem allir eru bíl- þjófar, hafi talið að þeim myndu verða gefnar upp sakir ef þeir dræpu ' „kommúnistann". Aðrir halda því fram að um ránmorð sé að ræða. Þetta er ekki í fyrsta skipti; sem pólitískir fangar í bandarísk- um fangelsum verða fyrir árás- um. Síðasta ár var Robert Thompson, framkvæmdastjórj kommúnistaflokksins í NeW York, höfuðkúpubrotinn þegar annar fangi réðst á hann með vatnsleiðslubút. Morðnefndír í Viet Nam Fyrrverandi yfirhershöfðingi stjórnarinnar á yfirráðasvæðí Frakka í Viet Nam, Nguyen Van Hinh, er nú staddur í París. Hef- ur hann sakað keppinaut sinn um völdin, Ngo Dinh Diem for- sætisráðherra, um að setja á laggirnar „morðnefndir“ til þes3 að ryðja úr vegi liðsforingjum og öðrum, sem styðja Van Hinh. Framhald á 11. síðu. <- •b Þetta eru niðurstöður stjórn- skipaðrar, brezkrar sérfræðinga- nefndar, sem í síðustu viku skil- aði áliti um.óhreinkun andrúms- lofts. Varð 4000 að bana Nefndin var skipuð eftir þoku- vikuna miklu í London í desem- ber 1952. Þá hækkaði dánartal- an í borginni skyndilega. Læknar komust að þeirri niðurstöðu, að þokan hefði orðið að bana 4000 manns, sem létust umfram eðli- lega dánartölu. Banamein þessa fólks voru lungnasjúkdómar. Lofthreinsunarráð Nefndin komst að þeirri niður- stöðu, að á 15 árum væri hægt að minnka óhreinkun andrúmslofts- ins í Bretlandi um 80% „og tryggja með því milljónum manna hamingjuríkari og heilsu- samlegri lífsskilyrði". Til að koma þessu í verk vill hún að löggjöf verði sett og loft- hreinsunarráð stofnað til að framfylgja lögunum. „Óhreinkun andrúmsloftsins í þeim mæli, sem viðgengizt hefur hér á landi, er félagslegt böl sem ekki ætti að þola lengur“, segir nefndin. Kostar þjóðina 11.250 milij. kr. á ári Þótt ekki sé tekið tillit til mannsláta og vanheilsu af völd- um óhreinkunar andrúmsloftsins, nemur annað tjón sem hún veld- ur Bretum hvorki meira né minna en 11.250 milljónum krónaj á ári hverju. Kostnaður við' hreinsunarráðstafanir yrði aðeins brot af þessari upphæð. Bandankin undir- búa árás á Kína — segir einn ai ráðherrum Sjangs Kajséks Einn af raöherrunum í stjórn Sjangs Kajséks á For- mósu sagði í gær, aö haldiö yrði áfram undh*búningi árásar á meginland Kína. í fyrradag var undirritaður samningur milli Bandaríkja- stjórnar og Sjang Kajséks um hernaðarbandalag. Hefur verið látið í veðri vaka, að með þess- um samningum hefði Banda- ríkjastjórn neytt Sjang til að hætta við árásarfyrirætlanir sínar á hendur Alþýðu-Kína. Utanríkisráðherra Sjangs lýsti því yfir í gær, að ekkert slíkt hefði komið til tals, það væri enn sem áður fyrirætlun Formósustjómarinnar að ráð- ast á meginland Kína strax og færi gæfist og berjast aftur tilj valda í Kína. Hann sagði, að hemaðar-! bandalagið við Bandaríkin hefði, engin áhrif á þessar fyrirætl-j anir og undirbúningi stríðsins yrði haldið áfram af sama kappi og áður. Samkvæmt þessari j*firlýs-} jngu hefur Bandaríkjastjórn! með samningi sínum við Sjangl Kajsék gerzt aðili að fyrir-! hugaðri árásarstyrjöld. i „Lifandi Búddar66 í Peking Á fyrsta þjóðkjömu þingi Kina í haust voru auðo- vitað fulltrúar íyrlr þjóðemlsminnihlutana á úto- jöörum ríkisins, þar á meöal Tíbetbúa. Meðal þine«- manna frá Tíbet voru æðstu menn landsins í and- legiun og veraldlegum máliun, þeir Pantsén Lama og Dalai Lama. Tíbetbúar trúa því að þessir ungw menn séu endurholdgaöir Búddar, sömu sálimae hafi búið í líkömum ailra þeirra, sem gegnt hafa> þessum stöðum um aldaraðir. — Á myndinni hér við hliðina sjást höfðiugjar Tíbets á gangi á götift í Peking. Sá til hægri er Pantsén Lama. Að ofant er mynd af því, er Dalai Lama afhenti Maó Tse- túng, forseta Kina svonefndan „hata“, tibetskaat viðhafnartrefil, sem Tíbetbúar gefa þegar þeir < ilj% sýna einhverjum sérstakan heiður.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.