Þjóðviljinn - 22.12.1954, Qupperneq 1
ILIIN
Skiptið
við þá sem
auglýsa í
ÞJÓÐVILJANUM
Miðvikudagur 22. desember 1954 — 19. árg .— 292. tölublað
Snntaka V-Þýzkalands setur
irásarbragá A-bandalagíð
Forlngi Gaullista varar Wð landvinn-
ingastefnu vesturþýzku stjórnarinnar
Formaður þingflokks Gaullista, Jaques Soustelle, réöi
1 gær franska þinginu frá því að fullgilda samningana
um hervæðingu Vestur-Þýzkalands og upptöku þess í A-
bandalagið.
Ræða Soustelle var sú, sem
mesta athygli vakti á öðrum
degi umræðna þingsins um full-
gildingu samninganna.
l'tiíokar samninga.
Soustelle kvað það ekki ná
nokkurri átt að leyfa hervæð-
ingu Vestur-Þýzkalands án
þess að gerð væri minnsta til-
raun til að semja við Sovét-
rikín um lausn Þýzkalandsmál-
anna sem öll hernámsveldin og
Þjóðverjar geti sætt sig við.
Engum blöðum er um það að
fletta, sagði hann, að fullgild-
Járnbrauta-
verkfall
Stjórn sambands járnbrautar-
starfsmanna í Bretlandi ákvað í
gær að boða vinnustöðvun við
járnbrautirnar frá og með 9.
.janúar. Stjórn járnbrautanna hef-
ur hafnað kröfu verkamanna um
bætt kjör og ríkissíjórnin hefur
neitað tilmælum um ,'að láta
gróða af járnbrautum frá fyrri
árum ganga til að standa straum
~af kauphækkun.
Bandarísk herseta
á svæði Frakka
Ilitséff, stjórnarfultrúi Sovét-
ríkjanná í Austurríki, mótmælti
í gær setu bandarísks herliðs á
hernámssvæði Frakka í landinu.
-Kvað hann þetta brot á fjórvelda-
samningnum um Austurríki.
StjómarfuIItrúi Bandaríkjanna
svaraði því til, að herliðið væri
fámennt og dvöl þess á franska
hemámssvæðinu hefði viðgengizt
lengi athugasemdalaust.
ing myndi gera útaf við aHa
möguleika á samkomulagi við
Sovétríkin.
Hafa ástæðu til tortryggnL
Einnig liélt Soustelle því
fram, að innganga Vestur-
Þýzkalands í A-bandalagið
myndi breyta því úr vamar-
bandalagi í rikjasamtök í sókn-
arskyni. Því má ekki gleyma,
sagði Soustelle, að Vestur-
Þýzkaland gerir kröfur til
landa, sem liggja utan yfir-
ráðasvæðis ríkisstjórnarinnar í
Bonn. Adenauer forsætisráð-
herra hefur lýst því skýlaust
yfir, að stjórn sín geri tilkall
til allra þeirra landa, sem til-
heyrðu Þýzkalandi árið 1937.
Sumir ráðherrar lians gera enn
víðtækari kröfur. Innganga
Vestur-Þýzkalands í A-banda-
5nt írá V
lagið vekur þvi réttmæta tor-
tryggni í Austur-Evrópu.
Gætu snúið við blaðinu.
Soustelle er fyrir þeim 60
Gaullistaþingmönnum, sem enn
halda tryggð við de Gaulle
hershöfðingja. Framsögumaður
hins flokksbrotsins, sem telur
um 30 þingmenn, Billotte hers-
höfðingj, tók eimiig til máls
í gær. Hann lagðist einnig
gegn fullgildingu hervæðingar-
samninganna en af öðrum á-
stæðum. Engin leið væri að
hindra það að Vestur-Þýzka-
land sneri baki við Vesturveld-
unum þegar búið væri að her-
væða það, tæki upp samninga
við Sovétríkin á eigin spýtur
og gengi jafnvel í bandalag við
þau.
Kertasníkir meðal farþega Flugfélagsins.
(Ljósm. P. Thomsen). ;
Millilandaflugvéí Fl vænianleg í dsg
Hin nýja millilandaflugvél Flugfélags fslands er vænt-
anleg til Reykjavíkur kl. 2 e.h. í dag. Jóhannes R. Snorra-
son, yfirflugstjóri hjá F.Í., flýgur flugvélinni hingað til
lands í þessari fyrstu ferð.
Þing Indlands setur
lög um þjóðnýtingu
Indverska þingið samþykkti í gær með miklum meiri-
hluta þá stefnu Nehrus forsætisráðherra aö þjóðnýta
smátt og smátt allan stóriðnað í landinu.
Tilkynnt var í Austur-Berlín i
gær, að það sem af er þessu ári
hefðu 90.000 manns flutt búferl-
um frá Vestur-Þýzkalandi til
Austur-Þýzkalands. Af þessum
hóp höfðu 44.000 áður yfirgefið
Austur-Þýzkaland vegna þess að
þeir trúðu sögum um gull og
græna skóga í vesturhluta lands-
ins en urðu fyrir vonbrigðum við
kynnin af veruleikanum.
Vesturþýzk yfirvöld báru ekki
brigður á tölurnar frá Austur-
Berlín en sögðu. að á yfirstand-
andi ári hefðu 210.000 manns
flutt frá Austur-Þýzkalandi til
Vestur-Þýzkalands.
--------------------------—
Jólakveðjur Sjálfstæðisflokksins
til reykvískra kvenna
Það er gainall íslenzkur sið-
ur að senda jólakveðjur. Sjálf-
sta-ðis.flokkurinn sendi fyrir
nokkrum döguin jólakveðjur
sinar til reykvískra kvenna.
Reykjavikurbær hefur ekki
talið sér stætt á öðru en að
Lejígja nokkra upphæð fram til
þess að mæður frá barnmöiK-
um o(f fátækum heimiliun gætu
dvalið nokkra daga á sumri
úti í syeit sér til hvíldar, en
líldega er engum liegnum
þjóðíélagsius meiri þörf á
hiíld en einmitt mæðrum frá
barumörgum fáta kum heinii!-
um.
Þótt allt annað hafi hækkað
miin upphæð þessi hafa siaðið
óbreytt á fjárhagsáaitlun baij-
arins í 8 ár. Við afgreiðsiu
f járhagsáætlunar Reykjavíkur,
s. 1. fimmtudag lögðu sósfal-
istar til að framiag bæjartns
va-ri nú loks hækkað úr kr.
löh þús. í kr. 194 þús.
Það varð nafnakall um þessa
tíliöjtu. Þessir felldu að
hækka framlagið til sumar-
dvalar fátækra mæðra og
barna:
Auður Auðuns,
Gróa Pétursdóttir,
Gunnar Thoroddsen,
Þorbjörn Jóhannesson,
Geir Hallgrímsson,
Guðmundur H. Guðmundsson,
Björgvin Frederiksen,
Guðbjartur Ólafsson.
Á í'ima fundi f'utti Petrina
Jakobsou bæjar'ulltrúi Sósía!-
istaflokksins, ti|]önru um uð
bæjarstjóra héti að beita sér
fvrir samþykktmn þeini er
Banda'ag kvenna gerði á
þessu iiausti og styðja ]iau á-
iuigamál kvennanna á alþingi
og í rfkisstjórn. I»að voru
sömu fulltrúar SjállVtaðis-
flokkslns sem fe!du þá tiilÖKu.
Þannig eru jólakveðjur Sjálf-
sla'ðisflokksins 111 kvemiauna
er greiddu lionum atkv. Slíkar
eru jólakveðjur S.jálfstæðis-
flokksins til reykvíslcra kveiuia
og fáta-kra mæðra sérstaklega.
Samþykkt var stjórnarfrumvarp
um stofnun ríkisbanka og um að
greiðsla fyrir þjóðnýtt fyrirtæki
skuli ekki fara eftir markaðs-
verði heldur þóðhagslegu verð-
mæti þeirra. Fyrri eigendur fá
ekki að skjóta máli sínu til dóm-
stólanna þótt þeir séu óánægðir
með grelðsluna sem þeim er úr-
skurðuð.
Sósíalistískt þjóðfélag.
Nehru forsætisráðherra sagði í
ræðu fyrir frumvarpinu, að mark-
mið stjórnar sinnar væri að koma
á sósíalistísku þjóðfélagi í Ind-
landi. Það yrði gert með þvi að
þjóðnýta stórvirk framleiðslutæki.
Einkarekstur ætti fullan rétt á
sér á sumum sviðum en með hon-
um yrði haft strangt eftirlit til
þess að tryggja að almennings-
heill en ekki gróðasjónarmið sæti
jafnan i fyrirrúmi í atvinnulíf-
inu.
Nehru sagði að iðnaðarfram-
leiðsla í Indlandi hefði e.ukizt um
þriðjung síðan 1950. Þetta væri
þó ekki nógu hröð aukning. Ríkis-
stjórnin hefði sett sér það mark
að fjórfalda stálframleiðsluna á
næstu fiinm árum. Vinnufærum
Indverjum fjölgaði um tvær millj-
ónir á ári hverju og þeim yrði að
sjá fyrir vinnu.
Einn af ráðherrum Nehru sagði,
að eitt þýðingarmesta hlutverk
nýja ríkisbankans setti að vera
að losa bændastétt Indlands úr
klóm okurkarla.
Við komu flugvélarinnar til R-
víkur fer fram móttökuathöfn í
flugskýli F. 1. sunnan við Tivó’í.
Þá mun flugvélinni einnig verða
gefið nafn við þetta tækifæri
Meðal farþega með hinni iiý.ju
flugvél frá Kaupmannahöfn verð-
ur jólasveinninn Kertasníkir,
sem fór utan með Gullfaxa s. 1.
laugardag. Hefur hann síðan ver-
ið i heimsókn hjá dönskum börn-
um, og m. a. skemmt á barna-
spítala í Kaupmannahöfn. Kerta-
sníkir mun nú sennilega segja is-
lenzkum börnum ferðasögu sína
í dag við komuna til Reykjavik-
ur, og ekki er ólíklegt, að hann
ta.ki með þeim lagið.
Öll börn, sem ætla að taka á
móti Kertasníki í dag, eru áminnt
um að vera vel klædd svo þeini
verði ekki kalt.
Saga Akureyrar gefin úi á
100 ára afmœli bœjarins
Akureyri. Frá fréttaritara Þjóðviljans. •)
Akureyrarbær verður 100 ára 1962.
Á síðastliðnu ári var kjörin af bæjarstjórn nefnd til að
undirbúa ritun sögu Akureyrar og hefur sú nefnd nú skil-
aö áliti.
Nefndin gerir ráð fyrir að saga
bæjarins verði skráð til ársins
1962, en þá eru 100 ár liðin frá
því Akureyri fékk kaupstaðar-
réttindi.
.Sögunefndin hefur nú ráðið
nokkra sagnaritara til að rita
einstaka þætti verksins, hafa
þessir verið ráðnir: Brynleifur
Tobíasson, Jónas Rafnar, Friðrilc
Rafnar, Áskell Snorrason, Árni
Jón=son, Steindór Steindórssson,
Ólafur Jónsson og SigurlaUgur
Brynjólfsson, en nriklum hluta
verlcsins er enn óráðstafað.
Fær Ákureyri 6 millj. kr. lán í Þýzka
landi fil fiystihfisbyggingar?
Bæjasstjórn hefur samþykk! ábyrgðar-
heimild fáisi trygging fyrir innlendu láni
Akureyri. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Fyrir síðasta bæjarstjórna rfundi lá erindi frá tltgerðarfélagi
Akureyrar þar seiu farið er framá bæjarábyrgð fyrir allt að
ti inillj. kr. láni til frystihússbyggingar, eli horfur eru taldar á
að slíkt lán sé nú fáanlegt í Vestur-Þý/.kalandi.
Fáist lán þetta verða lánskjör-
in þau að vextir verða 6% o»
lánstíminn 5 ár, en aug’jóst er að
Útgerðarfélagið getur ekki greitt
lánið á svo skömmum tíma og
verður því að fá tryggingu fyr-
ir innlendu láni upp í hluta af-
borganr. og.vaxta. þannig að láns-
tími fé'agsins verði 10—15 ár.
— ‘ Það er G'sli Sigurbjörnsson
sem haft hefur eftirgrennslanir
um iántöku þessa í Vestur-Þýzka-
landi undanfarið.
Gervintungi
undirhitið
Bandaríska landvarnaráðu-
neytið játaði í gær, að réttar
væru fregnir um að á vegurn þess
væri unnið að undirbúningi að
því að smíða gervitungl úti í
geimnum. Sagði ráðuneytið, að
vísindamenn og tæknisérfræð-
ingar hefðu lengi starfað á laun
við að gera þessa hugmynd að
veruleika.