Þjóðviljinn - 11.02.1955, Side 9

Þjóðviljinn - 11.02.1955, Side 9
Föstudagur 11. febrúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN •— (9 A ÍÞRÖTTIR RITSTJÓRl FRlMANN HELGASON Japanskir sundmenn æf ðir þannig að þeirverða nijúk- ir eins og fiskar í vatni Á s.l. sumri ferðuðust þeir Knud Gleie sundkappi og Jac- ob Gjerding báðir frá Dan- mörku til Japans eða 40000 km leið. Gjerding skrifar í jóla- blað íþróttablaðsins danska um þessa „ævintýraferð" sem þeir svo kalla og segir nokkuð frá ,,sonum sólarinnar“ sem eru heimsþekktir sundmenn. Er grein Gjerdings á þessa . leið: — Leiðin lá yfir hálfan hnöttinn og við tókum þátt' í sundmótum í Japan (Tökió og Osaka) Þýzkalandi (Augs- burg) og Italíu (Torino) Á þessari 40.000 km löngu leið sáum við næstum alla þá sundmenn sem sett hafa heims met á s.l. eins árs tímabili, Ameríkana, Japana og Evrópu- menn. Af öllum þessum eru Japan- ir sterkastir, því að þeir eiga að mínu áliti flesta úrvalssund- menn, og mesta „breidd“. Með eftirfarandi dæmum sérstak- lega frá Tokíó og Osaka, vil ég reyna að sanna lesendum, að skoðun mín er rétt, Auk okkar tóku þessir banda rísku meistarar þátt í mótun- um í Japan: Ford Konno, bandarískur meistari í 1500 m og 200 m sundi, Bill Woolsey, bandarísk- ur meistari í 400 m suudi, Dick Cleveland, bandarískur meist- ari í 100 m sundi og Dick Fad- gen, bandarískur meistari í 200 m flugsundi. Tapaði fyrir 4 Japönum. Um vorið 1954 setti Dick Cleveland nýtt heimsmet á 100 m á hinum frábæra tíma 54,8 sek. I byrjun ágúst varð hann bandariskur meistari á sömu vegalengd, og fékk fyrir það boð til Japans, (eins og Knud Gleie okkar) um.þátttöku í jap- anska meistaramótinu. Dick tók boðinu, en yarð að láta sér lynda 5. sæti á eftir 4 Japönum. í keppni þessari var þátttak- an mikil (56) — og afrek manna svo góð að til þess að komast í úrslit urðu menn að synda á 59 sek sléttum, eða þar undir. Þannig komust þrír sundmenn sem syntu á 59,1 ekki í úrslit! Til samanburðar má geta þess að danska metið hans Lars Larsen er 59,3 og sett í 25 m laug. Áhuginn fyrir sundi þar austurfrá er ákaflega mik- ill, sem m.a. má sjá af fjölda útisundlauga í Tokíó. Rétt er það að borgin hefur 8 millj. íbúa en þar eru 55 útisundstað- ir og þar af 8 með 50 metra laugum. Sjáum Kaupmanna höfn sem með sína milljón í- búa á ennþá ekki almennilegan stað þar sem sundmenn geta æft og keppt á sumrum. Stærsta sundmannvirkið í Tokíó rúmar 15.000 áhorfendur og er í full- komnum nútímastíl. Þó er glæsilegasti sundleikvangurinn í Osaka sem byggður var vegna OL sem halda átti í Japan 1944 og rúmar 35.000 áhorf- endur eða sama fjölda og „Idrættsparken"! Þarna eru fullsetnir nallar oft á ári og það gefur peninga sem sambandið getur svo ráðstafað. Þessi mörgu og stóru mót hafa gefið leikni og stundvísi svo allt stenzt uppá mínútu. Og bak við ráspallana er óviðkom- andi mönnum bannaður að- gangur. 1 200 m skriðsundi vann bandaríski meistarinn Bill Woolsey í bæði skiptin sem hann keppti. Þessi tvö sund eru það æðisgengnasta sem ég hef séð í keppni, og eru þar allar íþróttir meðtaldar. Japanir lögðu hart að sér og sá bezti þeirra var á 59 sek 100 m, og var Bill þá 5-6 m á eftir En hann synti rólega og virtist óþreyttur. Þessi hraði var auðvitað of mikill og það jafnvel fyrir hina þrautþjálf- uðu Japana, og við snúningimi eftir 150 ,m var Bill enn 4 m á eftir, en þá átti hami gnægð krafta eftir og nú óð hann á eftir þeim og saman dró sentí- metra fyrir sentímetra. 10 m frá marki en hann kominn á hlið við þá fremstu og þeir neyta allrar orku en árangurs- laust. Ómótstæðilega rennur þessi bandaríski meistari fram- úr þeim og kemur í mark 1 m á undan á hinum frábæra tíma 2,08. Konno undirbýr sig vel-undir 1500 m. Skemmtilegasti viðburðurinn og það sem Japönum finnst eftirsóknarverðast er meistara- titill á 1500 m, enda eru þeir taldir þeirra sérgrein. I ár vann hinn japansk-fæddi Bandaríkjamaður Konno banda ríska meistaratitilinn. Hann var nú hér þirðja árið í röð. Frá mótum þessum þekkti hann ágætlega getu Japana á 1500 m qg íagði þessvegna sér- lega mikið að sér við undirbún- ing undir úrslitin, hvíldi sig vel og gætti þess sem sagt að koma til leiks með þá krafta sem hægt var. Þegar eftir und- anúrslitip varð honum ljóst að baráttan yrði hörð, 3 sund- menn undir 19 mín og margir á 20 mín. Bezta tíma náði Shoji sem var á nokkurum tíundu hlutum úr sek betri tíma en landi hans eða 18,50. Maður skilur því vel að Konno var ákafur í að safna kröftum fyrir úrslitin þar sem hugsanlegt var að hann gæti skreytt sig með titlinum „japanskur" meistari. (Framh). Myndin er af Þjóðverjanum Heinz Giinter Lehmann, en hann er talinn vera einn af beztu skriðsundsmönnum álfunnar í dag. Gunnar M. Magnúss: Bömin frá Víðigerði Kristján leit allt í einu glottandi upp frá skyr- diskinum. ,,Á allur þessi.fans heima hérna?“ spurði hann. Og krakkarnir í Efri-bænum fundu nú, að þau þurftu að útskýra þetta fyrir Kristjáni, svo að þau fengu málið mörg í einu og byrjuðu að benda á krakkana úr Neðri-bænum: „Ekki þessi, ekki þess, ekki þessi og ekki þessi —.“ En krakkarnir úr Neðri-bænum höfðu ekkert við þessu að segja. Þeir fóru að tínast út, einn eftir annan þangað til eftir voru sex heimakrakk- ar. Og Efri-bæjar-krakkarnir voru búnir að fá málið. Smátt og smátt lifnaði betur yfir hópn- um, og eftir nokkrar hnippingar, smáglettur og hvískur fóru þau að smáskella upp ún og létu eins og þau væru líka nokkur fyrir sér. Einn drengurinn hrinti öðrum minni dreng fram á gólfið og sagði: „Þennan langar í skyrið af diskinum þínum“. Sá litii, sem kominn var fram á gólfið, brá .við, snöggur og snar, og réðst á bróður sinn, tók undir fætur hans og kútvelti honum upp í rúmið. Hinir. krakkarnir flissuðu og hlupu til strák- anna, klipu í þá og hjálpuðust við að velta þeirn fram á gólfið. Brátt var allt komið í eina þvögu á gólfinu með háváða og látum. Loks, þegar pabbi þeirra skipaði þeim að hætta þessum ólátum, greiddist úr bendunni og börnin tylltu sér aftur á rúmstokkinn, þrútin af hlátrinum og ólátunum. Þau litu til Kristjáns. Hann hallaði undir flatt, gaut hornauga til krakkanna, glotti háðslega út í annað munnvik- ið og rak út úr sér skyruga tunguna, Tillaga Karls Guðjónssonar Framhald a£ 7. síðu. ins séu beittir klækjum fyrir tilstuðlan ríkisvaldsins, þá gefst í þessu máli gott tækifæri til að sanna góðan vilja og raun- hæft mat á gildi sjómannastétt- arinnar. Það tækifæri ætti ekki hvað sízt að vera kær- komið þeim alþingismönnum og ráðherrum, sem jafnan liggja undir nokkrum grun um að tala fagurlegar á tyllidögum um sjómannastéttina en svar- að geti til þess, sem þeir unna henni að njóta í lífskjörum.“ Tillagan fékk enga endanlega afgreiðslu á siðasta þingi. Fjár- veitinganefnd, sem hafði hana til meðferðar, skilaði tveim á- litum um hana. Minni hlutinn (HV og LJós) lagði til, að til- lagan yrði samþykkt. En meiri- hlutinn, þ, e. allir stuðnings- menn rikisstjórnarinnar í nefndinni, vildi víkja henni frá afgreiðslu með svofelldri dag- skrártillögu: „Með því að ágreiningi þeim um bátagjaldeyriságóða, sem hér um ræðir, hefur verið skot- ið til úrskurðar dómstólanna, en endanlegur dómur í málinu hefur enn ekki verið kveðinn þtW HTeitiwi* GrcUiijetv 3.iiw 60360. ——--------------- upp, telur Alþingi ekki tíma- bært að taka mál þetta til með- ferðar og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá." Hæstiréttur hefur nú kveðið upp dóm í þessu máli og sta£- fest í einu og öllu dóm þann, er upp var kveðinn í héraði. Er þess því að vænta, að Alþingi1 telji nú tíma til þess kominn að láta málið til sin taka, og því flyt ég það hér að nýju. „Amerískt tákn“ Framhald af 6. síðu. önnur viðhorf hans gegn mönnum. Og þess vegna get- ur hvorki hún, né nokkur annar bjargað Nelson Dyar, því að honum er ekki bjarg- andi. Ekki af því, að hann sé svo gegnum spilltur maður, heldur af því að hann er ekki'í neinum skilningi mað- ur. Hann er handan við markalínur ills og góðs, blátt. áfram af því, að þó hanái borði, hreyfi sig, tali og haf- izt að, er hann ekki lifandi í neinum mennskum skilning!. Hvað er hann þá? Hann er hið fullkomna lokastig í þeirri vestrænu afmönnunarþróun, sem orðið hefur fylgifiskur og afleiðing þess lífsforms og þeirra lífsmiða, sem gerðu brjálað kapphlaup um pen- inga, þægindi og vald að þungamiðju og inntaki lífa- ins. Otkoman, kristölluð í hinni voðalegu deiglu, er Nel- son Dyar.“ Svipall.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.