Þjóðviljinn - 14.04.1955, Blaðsíða 10
10)1 — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 14. apríl 1955
1395
Kaup - Sala Nýja sendibílastöðin
Sími 1395
Muntð kalda borðið að Röðli. — RöðulL Lj ósmyndastof a yf\
Nýbakaðar kökur með nýlöguðu kaffi. —
Röðulsbar. Laugaveg 12.
Fyrst til okkar Húsgagnaverzlunin Þórsgötu 1
Viðgerðir á rafmagnsmótorum og helmilistækjum. Raftækjavinnustofan Skinfaxi Klapparstíg 30. — Sími 6484.
Munið Kaffisöluna
Hafnarstræti 16. Ragnar Ölafsson hæstaréttarlögmaður og lög- giltur endurskoðandi. Lög- fræðistörf, endurskoðun og fasteignasala, Vonarstræti 12, sími 5999 og 80065.
UKlSBSBEÉ
Sendibflastöðin Þröstur h.f. Sími 81148
✓
niaCElSLRHITUNll
Sendibílastöðin h.f. Ingólfsstræti 11. — Sími 5113. Opið frá kl. 7.30-22.00. Helgi daga frá kl. 9.00-20.00, Garðarstræti 6, sími 2749 Almennar raflagnir, raflagna- teikningar, viðgerðir. Rafhita- kútar (160 1.). Hitunarkerfi fyrir kirkjur.
' Saumavélaviðgerðir Skrifstofuvélaviðgerðir Sylgja. Laufásveg 19, sími 2656. Heimasími: 82035.
U tvarpsviðgerðir Radió, Veltusundi 1. Sími 80300.
Enskar dragtir
MARKAÐURINN
Laugaveg 100
Jersey-kjólar
MARKAÐURINN
Hafnarstræti 11.
■
■
■
■
■
■
■
■
■
■
Tvær stúlkur
■
■
■
■
■
■
óskast í eldhús Vífilsstaðahælis. Önnur vön bakstri. |
Upplýsingar gefur ráðskonan. — Sími 9332.
■
■
■
Skrifstofa ríkisspítalanna.
m
m
m
* •
1
Hætt við 3 verkamannakonnr
Framhaid af 6. síðu.
þannig er það a. m. k. í þeirri
iðngrein sem maður minn vinn-
ur, það kann að vera eitthvað
öðruvísi í léttari iðngreinum.
Nú getur hver sanngjarn mað-
ur sem er sagt sér það sjálfur
að það er ekki hægt að leggja
þau laun, sem bráðduglegir
menn á bezt aldri geta haft í
ákvæðisvinnu, til grundvallar
launum iðnaðarmannastéttar-
innar í heild og segja svo að
sú stétt sé hátekjumenn og
þurfi ekki launahækkun. Það
er jafn ranglátt og að telja
verkamanninn sæmilega settan
af því að meðan mikil er at-
vinna geti hann unnið 12 tíma
á dag og haft sæmilega lífs-
afkomu. Nei, 8 stunda vinnu-
dagur er það sem við eigum að
fá, og fyrir hann eigum við að
fá svo sæmilegt kaup að við
getum lifað af því, án þess að
slíta okkur út á of löngum
vinnudegi eða óhæfilega erfiðri
vinnu“.
• Yngsta kynslóðin
Síðasta konan er 19 ára, hún
er að klæða eins árs snáða úr
útifötunum.
„Þið hjónin eruð í verkfalli,
er það ekki heilmikil lífsreynsla
fyrir svona ungt fólk?“
„Jú, það má heita það. Þó
held ég ekki að ég sé rétta
manneskjan til að tala við, ef
þú ætlar að fá einhvem sem
verkfallið hefir bitnað mikið á,
við höfum unnið bæði hjónin,
og við lifum tiltölulega vel enn
sem komið er. Við verðum auð-
vitað að hætta við að fá okkur
innanstokksmuni sem við ætl-
uðum að kaupa í vor, en við
höfum svo sem nóg að bíta og
brenna um skeið“.
„Þér hefir þá e. t. v. fund-
izt hreinasti óþarfi að gera
verkfall?“
„Nei, langt frá því. Þegar
maðurinn minn hefir lokið iðn-
náminu eftir tvö ár vil ég að
hann hafi svo góð laun að ég
þurfi ekki að vinna utan heim-
ilis. Eg er svo gamaldags í mér
að ég get ekki hugsað mér neitt
eftirsóknarverðara en að eiga
gott heimili, nokkur börn og
að hafa tíma til að hugsa um
það. Og umfram allt vil ég ekki
að maðurinn minn þurfi að
leggja á sig svo langan og erf-
iðan vinnudag að hann komi
heim á kveldin þreyttur og geð-
vondur og slitni svo og verði
gamall fyrir aldur fram. Þetta
finnst mér ekki svo háar kröf-
ur að nein sanngirni sé að vera
á móti þeim, mér finnst það
satt að segja frumstæðustu
kröfur sem við getum gert til
lífsins á 20. öldinni.’’
„Eg er þér sammála um þetta
en hvað hefir þú nú fyrst og
fremst lært af að vera í verk-
falli?“
„Eiginlega hefi ég lært heil-
mikið af því. Eg hefi farið að
hugsa um ýmislegt sem mér
hefir aldrei dottið í hug annars.
Þegar maður hefir verið mest-
an hluta ævi sinnar á skóla-
bekk, og þó að maður hafi
unnið á sumrin hafa málefni
vinnandi stéttanna verið manni
svo undarlega fjarlæg. Maður
hefir ekki gert sér grein fyrir
því að öll þessi skólamenntun,
sæmilegt sumarkaup og allt
þetta sem nú er lagt upp í
hendurnar á okkur, er árangur
baráttu, árangur þess að lægri
stéttirnar hafa staðið saman
eins og þær gera einmitt nú
í þessu verkfalli. Ennfremur
hefi ég lært hverjir það eru
sem taka undir kröfur alþýð-
unnar núna og hvaða dagblöð
bæjarins það eru sem dag eftir
dag reyna að læða inn í les-
endur sína lævíslegum lygum
og blekkingum um kjör okkar
og kröfur. Og ég er fegin að
ég fékk þessa lífsreynslu. Það
hefir hvorugt okkar hjónanna
haft mikinn áhuga á stjórn-
málum og vel gæti það hafa
komið fyrir okkur að kjósa
flokk „allra stétta", Sjálfstæðis-
flokkinn við næstu kosningar,
ef við hefðum ekki séð rétta
andlit hans í okkar garð nú í
þessu verkfalli. En hér eftir
munum við áreiðanlega vita
hvaða flokki við eigum að
greiða’ atkvæði okkar á kjör-
degi og hvaða flokkur það er
sem líklegastur er til að gæta
hagsmuna okkar í framtíðinni".
María Þorsteinsdóttir
VINNA
Einn matreiöslumaður, tvær stúlkur til fi-am-
reiðslustarfa og tvær stúlkur til eldhússtarfa ósk-
ast frá 1. maí eða fyn- að Hótel Tryggvaskála, Sel-
fossi.
Upplýsingar gefnai’ á staönum og hjá Gísla
Gíslasyni, Hofteig 12, Reykjavík, kl. 5—9.
Mlnningarorll
Framhald af 4. síðu.
Persónuleg kynni af Símoni
Guðmundssyni hafði ég ekki
nema síðasta áratuginn af
ævi hans. En vissulega verður
hann einn þeirra manna er
ég síðast gleymi og valda því
fyrst og fremst hinar fögru
og heilsteyptu trúarskoðanir
hans. Símon fann guð í öllu
sem gott var og hægt var að
treysta. Alveg sérstaklega var
Símoni það ljóst að samstaða
og samhjálp þess starfandi
fjölda í löndunum væri eina
lækningin er treysta mætti
við öllum meinum mannlegs
lífs.
Með öðrum orðum sagt:
Símon Guðmundsson sá og
skyldi það manna bezt að
hreinn og ómengaður sósíal-
ismi er sú höfn friðar og far-
sældar sem hannkynið hlýtur
óhjákvæmilega fyrr eða síðar
að lenda í. Fyrir hinar á-
kveðnu og rökföstu skoðanir
Símonar á þessum málum man
ég hann lengst.
Elías Guðmundsson.
■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■,
TMLLEMGU
.
er hús Iönaðaimannafélagsins viö Lækjargötu
(gamli Iðnskólinn). Leigutilboð í allt húsiö að und-
anskilinni rishæð, sendist til gjaldkera félagsins,
j Ragnars Þórarinssonar, Túngötu 36, eða Laufás-
veg 8 fyrir 20. þ.m.
j FÉLAGSSTJÓRNIN.
Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför
KKISTJÁNS þórarins einarssonar.
Sigríður Hafliðadóttir
Jóliann J. Kristjánsson
Sigurliði Kristjánsson
Hér með tilkynnist vinum og vandamönnum að mað
urinn minn, faðir og tengdafaðir,
STEINÞÓR ALRERTSSON,
lézt 13. apríl.
Ragnheiður Árnadóttir
börn og tengdabörn
Bróðir okkar,
ÁRNI EGILSSON
frá Lambavatni,
andaðist 12. þ.m. Jarðað verður frá Fossvogskirkju
föstudaginn 15. þ.m. kl. 10.30.
Valdimar Egilsson
Gunnlaugur Egilsson