Þjóðviljinn - 16.04.1955, Síða 1
Innsfa klíka Sjálfsfæðisfíokksins skipuleggur
sveltitilraun við verkamenn Reykjavikur
Bjarni Ben. hlakkar yfir því hve lítið hafi safnazt í verkfallssjóð-
inn; kallar verkfallsmenn „afglapa46; hrósar sér af því að vera arf-
taki Eggerts Claessens í baráttunni gegn verkalýðshreyfingunni
Hvar er
tilboðið?
Heildsalabla.ðið Vísir kemst
þannig að orði um verkföllin
í gær: „Verkamenn gætu vafa-
laust verið búnir að semja, ef
kommúnistar og aðrir (!) há-
tekjumenn, sem nú eru i verk-
falli, hefðu ekki spillt fyrir
la.usn deilunnar."
Þessi söngur hefur heyrzt
fyrr — vegna þess að engin
rök eru til gegn réttlætiskröf-
um verkamanna. Það er þvi á-
stæða til þess að biðja Visi
að svara skýrt og skorinort:
Hvar er tilboðið til verkamann-
anna? Hvaða lausn er það
sem hefur verið spiilt?
Böndin berast að innsta hring Sjálístæðisílokksins,
ofstækisklíku, sem einnig ræður Vinnuveitendasam-
bandi íslands. Þessi klíka var sökuð um það á Alþingi
í gær, að það væri hennar sök, fyrst og fremst, að nú
er gerð tilraun að svelta verkalýð Reykjavíkur með
löngu verkfalli.
Einar Olgeirsson lét svo ummælt í þingræðu að
þjóðinni væri fyrir beztu að ekki yrði látið koma til
þeirrar hörku, sem innsta klíka Sjálfstæðisflokksins
nú stefndi að. Það mundi reynast enn sem fyrr, að
verkalýðurinn væri sá sterkari.
Einar minnti á hvernig Sjálfstæðisflokkurinn
hefði haft forgöngu um allsherjarlaunalækkunarher-
ferð, sem hefjast átti með árás bæjarstjórnarmeiri-
hluta þess á mennina í atvinnubótavinnunni haust-
ið 1932, árásina sem brotin var á bak aftur 9. nóv.
Og enn væri hernaðaraðgerðunum gegn verkalýðn-
um stjórnað af innstu klíku Sjálfstæðisflokksins.
Umræðurnar um frumvarp
Ölafa- Thórs varðandi skatt-
frelsi Eimskipafélags Islands
snerust að verulegu leyti upp
í umræður um verkfallsmálin.
Einar Olgeirsson ræddi í
ýtarlegu máli afstöðu Eim-
skipafélagsins og lýsti því
hvemig það fyrirtæki væri nú
misnotað af Sjálfstæðisflokks-
klíkunni í Jjaráttu hennar gegn
verkamönnum.
' Það væri þessi ofstækisfulla,
ofríka og of ráðamikla klíka,
sem gerði sér leik að þvi að
stöðva atvinnutækin, þar á
meðal skip Eimskipafélagsins.
★ Misnotkun „óskabarns
þjóðarinnar“.
Rakti Einar feril Eimskipa-
félagsins, hvérnig það var
stofnað með framlögum allrar
þjóðarinnar, sem uppreisn gegn
erlendri einokun og arðráni. Eh
snemma hefði borið á því að
auðmenn reyndu að ná tökum
á félaginu. Lengi hefði félagið
þó haft nokkra sérstöðu, t. d.
orðið einna. fyrst til að semja,
er reykvískir verkamenn brutu
þrælalögin, gerðardóminn 1942,
á bak aftur, og þiirfti þó að
brjóta landslög til að semja þá
um kauphækkun.
Minnti Einar á hvernig sam-
vinna verklýðsflokkanna og
nokkurs hluta Sjálfstæðisflokks
ins að myndun nýsköpunar-
stjórnarinnar hefði tryggt, að
Eimskipafélagið gat endumýjað
Verkfallssjóðurinn orð-
inn 362 þusund krónur
í gœr bœttust rúmlega tuttugu og fjögur pús-
und krónur í verkfallssjóðinn, og er sjóðurinn pá l
orðinn 362 púsund krónur.
Þessi framlög bárust í gær: Járniðnaðarmenn •
Selfossi, söfnun kr. 1105,00, Starfsfólk Tryggingar- ji
stofnunar ríkisins kr. 4173,00. Viðbótarsöfnun frá ii
verkalýðsfélögunum í Keflavík kr. 4483,00. Mál- s
fundafélag jafnaðarmanna kr. 3000,00. Af söfnun- jj
arlista í skrifstofu Dagsbrúnar kr. 6160,00. Viðbót- :
arframlag frá Bókbindarafélagi íslands kr. 3000,00. :
Það er auðséð, að fullur kraftur er enn í söfnun-
inni, og vœntanlega verður svo enn um hríð, eða s
svo lengi, sem verkfallsmenn purfa á að halda.
I
og stóraukið flota sinn eftir
stríð.
Þannig hefði í einu og öllu
4
Hann þykist eiga sultinn að
bandamanni — enda sjálfur
þriflegur!
verið að félaginu hlúð, og það
notið velvilja alþýðunnar og
hjálpar. Nú væri þetta fyrir-
tæki misnotað í þágu ofstækis-
fullrar klíku til að reyna að
kúga verkalýðinn.
Benti. Einar á, að. það væri
varla tilviljun að einmitt nú
nýlega hefðu tök innstu klíku
Sjálfstæðisflokksins á Eimskip
verið hert með því að Bjarna
Ben. var troðið þar í stjórnina.
Með skírskotun til fyrri
framkomu Sjálfstæðisflokksins
leiddi Einar rök að því, að
miðstjórn Sjálfstæðisflokksins,
eða klíka innan hennar, hefði
ákveðið, að gera verkfallið að
aflraun milli auðmannastéttar-
innar og verkamanna í Reykja-
vík.
En auðstétt Reykjavíkur
mun aldrei takast að svelta
Framhald á 3. síðu.
Skemmtun fyrir
verkfallsmenn
I dag kl. 2 e.h. hefur verk-
fallsstjórnin skemmtun fyrir
verkfallsmenn í Austurbæjar-
bíói. Söngfélag verkalýðssam-
takanna syngur, Þorsteinn Ö.
Stephensen leikari les upp, Guð-
mundur Jónsson óperusöngvari
syngur, Hjálmar Gíslason syng-
ur gamanvísur, Hallfreður Ei-
ríksson kveður rímur og Guð-
mundur J. formaður verkfalls-
stjórnarinnar flytur frásögu af
verkfallinu.
Aðgöngumiðar verða afhentir
hjá verkfallsstjórninni í Al-
þýðuhúsinu í dag gegn framvís-
un félagsskírteina — ef eitt-
hvað kynni að verða eftir, og
eru ókeypis fyrir verkfallsmenn.
Tveir Bögregluþjónar staðnir að þvi að
geyma sifiyglbenzín á lóð íbúðarhúss
Annar þeirra kvaS jboð notað i sina þágu
— og lögreglunnar i Reykjavik!!
í gær voru tveir lögregluþjónar staðnir aö því að geyma
benzíntunnur á lóð rétt hjá einum stærsta leikvelli bæjar-
ins. Lýsti annar yfir við verkfallsverði að benzín þetta væri
notað í sína þágu og — lögreglunnar í Reykjavík.
Lögregluþjónamir höfðu svo fataskipti og komu aftur
í lögreglubúningi og var annar þeirra þá með óviður-
kvæmilegar aðdróttanir í garð fyrirliða verkfallsvarðanna.
Síðdegis í gær var verkfalls-
nefndinni tilkynnt að benzín
væri geymt á lóðinni nr. 96 við
Grettisgötu, en sem kunnugt er
þá er einn af stærstu leikvöll-
um bæjarins þar skemmt frá.
I
Faldar aftan á vörubíl
Fjórir verkfallsverðir voru þá
sendir, á vettvang og fór einn
þeirra upp á bíl sem stóð á fyrr-
nefndri lóð. Undir segli á bíl-
pallinum voru faldar 4 benzín-
tunnum, 2 fullar og 2 tómar.
I
Notað í þágu hans
og — lögreglunnar!
Þegar verkfallsvörðurinn var
kominn niður af bilnum og til
félaga sinna kom maður á grá-
um fötum út úr húsinu og spurði
verkfallsverðina hvað þeir væru
að gera við „sínar eignir“! Þeir
sögðust vera sendir frá verkfalls-
stjórninni. Maðurinn á gráu föt-
unura sagði þá að hann ætti
benzínið og væri það einnig
notað í þágu lögreglunnar í
Reykjavík! Þeir mættu ekki
snerta það!
Hafði fataskipti!
Verkfallsverðirnir sendu mann
eftir nánari fyrirmælum verk-
fallsstjórnarinnar og liðsauka,
hinir biðu við vörzlu benzínsins.
Gráklæddi maðurinn fór hins-
vegar inn í húsið, en kom aftur,
ásamt öðrum manni — og voru
báðir þá klæddir einkennis-
klæðnaði lögreglumanna. Bar
annar númer 94 en hinn 97. Nr.
97 ók bifreið að vörupallinum og
byrjaði að losa um seglið yfir
benzíntunnunum.
Fær tækifæri síðar . . .
Meðan hann var að þessu sneri
hann sér að fyrirliða verkfalls-
varðanna og kallaði hann þjóf!■
Verkfallsvörðurinn spurði hverju
hann hefði stolið. Svaraði sá
fyrrum gráklæddi en nú borða-
lagði að á bilnum væru . verk-
færi 7 þús. kr. virði op benzín og
væri verkfallsvörðurinn þjófur.
Vafalaust verður nr. 97 gefið
tækifæri til að standa við þessi
orð sín.
Út á Seltjarnarnes!
Rétt á eftir kom bæði lögregla
og liðsauki til verkfallsvarðanna.
Lögregluþjónarnir sem komu
kváðust taka benzín þetta i sína
vörzlu, en verkfallsverðirnir mót-
mæltu því, þar sem þeir hefðu
geymslu fyrir ólöglegt benzín,
sem væri viðurkennd af bruna-
málastjórn. Lögregluþjónarnir
tóku benzín félaga sinna og fóru
með það út á Seltjarnarnes.
Framkoma fyrrnefnds lög-
reglumanns er með öllu ósæm-
andi manni i hans stöðu.
I fyrsta lagi er geymsla
benzíns skýlaust brot á
brunamálasamþykkt Reykja-
Framh. á 8. síðu.
Iteykvíhingar! Leggið ailir fram fé til aðstoðar rerkfaiísmönnum!