Þjóðviljinn - 16.04.1955, Blaðsíða 5
Laugardagur 16. apríl 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Hernámiiiu létt af Austur
i adur eri ario er lidid
Ausfurriki lofar i sfaSinn aS veifa
engu riki hersföSvar i landinu
Hernáminu verður létt af Austurríki þegar eftir að und-
irritaður hefur verið friöarsamningur á grundvelli þess
samkomulags, sem varö í viðræöunum í Moskva milli
stjórna Sovétríkjanna og Austurríkis og hernámsliðin
verða á brott úr landinu eigi síðar en 31. desember 1 ár.
Frá þessu var skýrt í sameig-
inlegri ýfirlýsingu um viðræð-
urnar, sem stjórnir Sovétríkj-
anna og Austurríkis gáfu út í
gær.
Sovétstjórnin hefur gert
margar tilslakanir til að sam-
komulag gæti orðið um að veita
Austurríki fullt sjálfstæði og
létta af því hernáminu.
Hún hefur þannig fallið frá
kröfum sínum til fyrirtækja og
olíulinda sem voru í þýzkri eigu
Algild regla
í Kenya
„Það virðist vera aigild regla
í öiium þessum fangabúðum að
fangar séu beittir ofbeidi til að
fá þá tii að játa á sig þátt-
töku í má má félaginu," sagði
dómari í Thika í Kenya fyrir
nokkru þegar hann kvað upp
dóm yfir Afríkumanni úr hjálp-
arsveitum brezka nýlenduhers-
ins, sem var ákærður fyrir að
hafa húðstrýkt Kíkújústúlku til
dauða. Sakborningurinn var
sýknaður af morðákæru en
dæmdur í 18 mánaða fangelsi
fyrir manndráp.
ðiæll 8i m f jór-
veldafund
McMillan, hinn nýi utanríkis-
ráðherra Breta, hefur boðað
Pinay, utanríkisráðherra Frakk-
lands til London í næstu viku og
munu þeir rteða um ýms mál,
sem bæði ríkin varða. Talið er
víst að á dagskrá þeirra muni
einnig verða fundur stórveldanna
fjögurra.
Nu, Sjú, Nehru,
Nasser á fundi
Forsætisráðherrar Kína, Ind-
lands, Egyptalands og Burma,
þeir Sjú Enlæ, Nehru, Nasser og
U Nu sátu í gær á fundi í Rang-
oon, höfuðborg Burma, en þaðan
munu þeir allir fara á ráðstefnu
25 Afríku- og Asíurikja sem
hefst í Bondoeng í Indonesíu á
mánudaginn.
Nehru sagði við brottförina frá
Delhi að ráðstefnan væri vottur
um hinn nýja anda sem nú ríkti
í Asíu.
í ritstjórnargrein um ráðstefn-
una i indverska blaðinu Hindu-
stan Standard var komizt svo
að orði í gær, að þetta væri í
fyrsta sinni sem þjóðir Asíu og
Afríku kæmu saman á fund að
eigin frumkvæði til að ráða mál-
um sínum. Asía hefði til skamms
tíma verið leikvangur evrópskra
stjórnmála og þjóðir Afríku leik-
soppar i höndum evrópskra ný-
lenduvelda. Ráðstefnunni væri
beint gegn erlendri yfirdrottn-
un og stríðsundirbúningi.
fyrir hernámið og hún hafði
fengið ráð yfir sem skaðabætur
fyrir það tjón sem þýzki herinn
og bandamenn hans ollu í Sovét-
ríkjunum á stríðsárunum.
Eltír síldartoríur
í kafkúlu
Fiskifræðingar í Sovétríkjun-
um eru farnir að nota kafkúlu
við fiskirannsóknir. Er þetta
kúla úr þykku stáli, búin sterk-
um ljóskösturum.
Kafkúlunni er sökkt djúpt
niður í sjóinn með vísindamenn
innanborðs. I birtu kastljós-
anna athuga þeir svo fiskana
og annað sjávarlíf.
Einum vísindamanni hefur
tekizt að láta draga sig í kúl-
unni og verða þannig samferða
síldartorfum á leið þeirra um
sjóinn. Hefur hann ljósmyndað
og kvikmyndað hreyfingar torf-
unnar út um kúlugluggana.
skapið kætir“
Norskir læknar hafa rann-
sakað áhrif kaffidrykkju á
fólk og birt niðurstöður síu-
ar. Þeir hafa látið 88 karla
og konur drekka kaffi og
fylgzt með. öllu hátterni
fóiksins. Þegar 10-20 mínút-
ur eru liðnar frá þvi kaffi-
drykkjan héfst fer að verða
var fjörgandi áhrifa kaffis-
ins og þau ná hámarki eftir
1-2 kiukkutíma. Síðan taka
þau að hjaðna og eru með
öllu horfinn eftir 5-6 klukku-
tíma.
Kaffið varð þess valdandi
að þreyta, deyfð og ólund
liurfu og í staðinn urðu
menn málgefnir og ímyndun-
araflið fékk byr undir vængi.
Greina mátti að rithönd
flestra breyttíst við kaffi-
drykkjuna og blóðþrýstíng-
urinn hækkaði.
Austurríka stjórnin fær ó-
skoraðan yfirráðarétt yfir
Dónárskipafélaginu mikla,
skipasmíðastöðvum þess og
hafnarmannvirkjum. Ennfrem-
ur fær hún alla stjóm olíu-
linda og olíuhreinsunarstöðva i
austurhluta landsins, sem
sovétstjórnin hafði áður áskilið
sér að starfrækja í eigin þágu
í 30 ár. 1 staðinn heitir stjórn
Austurríkis því að selja Sovét-
ríkjunum hráolíu úr þessum
lindum samkvæmt nánari
samningi.
Sovétstjórnin heimilar Aust-
urríki að greiða 150 millj. doll-
ara skaðabætur, sem voru á-
kveðnar í friðarsamningsupp-
kastinu frá 1949, í vörum í stað
dollara og stjórnirnar lýsa yfir
þeirri ákvörðun sinni að koma
verzlunarsambandinu milli
landanna í eðliiegt horf.
Þá lofar sovétstjórnin að allir
austurrískir þegnar sem af-
plána refsingar í Sovétríkjunum
verði sendir heim þegar eftir að
friðarsamningurinn hefur verið
undirritaður. Þeir munu vera
um 1500 talsins.
Loforð austurrísku stjórnar-
innar.
Austurríska stjórnin lýsir því
hins vegar yfir, að Austurríki
muni aldrei gerast aðili að
hernaðarbandalögum né heimila
erlendum her setu í landinu. I
uppkastijiu frá 1949 var austur-
ríski herinn takmarkaður við
53.000 manns.
Mikill fögnuður í Austurríki.
Mikill fögnuður ríkir í Aust-
urríki yfir þessum málalokum,
enda virðist nú óhætt að full-
yrða, að landsmenn öðlist aftur
sjálfstæði sitt og fullveldi eftir
17 ára ófrelsi, 7 ár undir oki
nazista og 10 ára hernám stór-
veldanna fjögurra.
Myndin er tekin á síöasta skákmótinu sem haldið var
í Hastings í Bretlandi. Smisloff situr við borðið, en pýzki
skákmeistarinn Unzicker rœðir við hann um skákstöðuna.
Hætti við að fara til USA er
hann frétti að þar eru skólar
Rússneski strokupiltuTinn Lisikoff varð
fyrir vonbrigðum með frelsið í
„hinum frjálsa heimi” '
Laugardaginn fyrir páska tilkynnti bandaríska her-.
stjórnin í Berlín að rússneski pilturinn Valerí Lisikoff, sem
lýst hafði veriö yfir að veitt yrði landvist í Bandaríkjun-
um vegna þess aö hann væri pólitískur flóttamaður, hefði
veriö afhentur sovézkum heryfirvöldum.
Lisikoff er 16 ára gamall ogl að strákur hefði orðið svo hrif-
einkasonur ofursta í sovézka
flughernum- Bandaríska her-
stjórnin skýrði frá því seint
í marz að hann hefði strokið
frá Austur-Berlín og yrði veitt
landvistarleyfi í Bandaríkjunum
þar sem strokið stafaði af
stjórnmálaástæðum.
Hafði hlustað á
áróðursútvarp
Áróðursdeild bandariska
hersins í Berlín skýrði svo frá
Síld lyftir bát
úr hafi
Á síldarvertíðinni við Nor-
eg í vetur sökk einn bátur-
inn vegna þess að síldin
drapst í barmafullri nótínni
svo að hún sökk tíl botns
og dró bátinn á eftir sér.
— Áhöfnin bjargaðist með
naumindum.
En ekki leið á löngu að
nótin kom upp aftur og
fleyttí nú bátnum með sér
upp á yfirborðið. Honum
varð bjargað og yfir 100
tonn af síld náðust úr nót-
inni.
Kosningar í Bret-
Eandi 26. maí n.k.
Anthony Eden forsætisráðherra tilkynnti
þetta í útvarpsræðu í gærkvöld
Anthony Eden, hinn nýi forsætisráöherra Bretlands, til-
kynnti í útvarpsræöu í gærkvöld, aö þing yröi rofið og
kosningar látnar fara fram 26. maí n.k.
Þegar tilkynnt var siðdegis í
gær, að Eden ætlaði að tala í út-
varp um kvöldið, var enginn
vafi talinn á að tilefnið væri að
stjórnin hefði ákveðið að rjúfa
þing. Þingið verður rofið 6. maí,
kosningarnar haldnar 26. maí
og nýtt þing kemur saman 7.
. júní.
! Kemur ekki á óvart.
Það hefur lengi verið búizt
| við því, að íhaldsflokkurinn
efndi til kosninga í ár, einu ári
áður en kjörtimabili núverandi
! þings lýkur. Háværar kröfur um
þingrof hafa lengi verið uppi
( i brezka Ihaldsflokknum og
eru þær ástæður helztar, að leið-
I togar flokksins hafa viljað nota
sér ágreininginn í Verkamanna-
flokknum og neyta færis með.an
enn árar vel í atvinnulífi lands-
ins. Allar horfur eru á að efna-
hagur brezka ríkisins muni fara
stórversnandi í sumar og næsta
vetur og íhaldsflokknum þykir
því vissara að tryggja sér strax
völdin næstu fimm árin.
Engu spáð um úrslit.
Engu verður spáð um úrslit
kosninganna, en margir telja að
litlar breytingar muni verða á
styrkleikahlutföllum íhalds
flokksins og Verkamanna-
flokksins. A.m.k. virðast allar
aukakosningar sem fram hafa
farið á undanförnum árum til
þingsins hafa borið það með sér.
inn af því sem hann heyrði í
bandarisku áróðursútvarpi á
rússnesku að hann hefði ákveð-
ið að yfirgefa foreldra sína og
föðurland og gerast Banda-
ríkjamaður.
Þegar tilkynnt hafði verið
að Lisikoff væri farinn heim
aftur sagðist fréttaritara
brezku fréttastofunnar Reuters
í Berlín svo frá, að hann
hefði tekið sinnaskiptum eftir
að honum varð ljóst að hann
hafði ekki lagt allskostar rétt-
an skilning í vígorð áróðursút-
varpsins um „hinn frjálsa
heim“ í vestri. Taldi drengur-
inn að þar þyrfti enginn að
gera neitt nema það sem hann
langaði mest til, m.a. væri
börnum og unglingum í sjálfs-
vald sett, hvort þau gengju í
skóla eða ekki. Þegar hann
frétti að hann yrði að ganga
í skóla eftir sem áður þótt
hann færi til Bandaríkjanna
féll honum allur ketill í eld
og hann bað um að verða send-
ur heim.
KrafIzé
bóta
Rúmenska stjórnin hefur sent
stjórn Sviss enn eina orðsend-
ingu þar sem hún krefst skaða-
bóta vegna árásarinnar á rú-
menska sendiráðið í Bern í fe-
brúar s.l. Þegar vopnaðir bófar
tóku sendiráðsbygginguna á sitt
vald og háldu henni í nokkra
daga. I viðureign þeirra við
sendiráðsstarfsmenn særðist bíl-
stjóri sendiráðsins til ólífis.