Þjóðviljinn - 16.04.1955, Page 4
'4.) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 16. april 1955
SS3
Kaup - Sala
Samúðarkort
Slysavarnafélags íslands
kaupa flestir. Fást hjá slysa-
-.-arnadeildum um allt land. í
Keykjavík afgreidd í síma
4897.
Murnð kalda borðið
að Röðli. — RöðuU.
Nýbakaðar kökur
með nýlöguðu kaffi. —
Röðulsbar.
Fyrst til okkar
Húsgagnaverzlunin
Þórsgötu I
Munið Kaffisöluna
Hafnarstræti 16.
Sendibílastöðin
Þröstur h.f.
Sími 81148
(É
GEISLRHITUN
Garðarstræti 6, sími E749
Almennar raflagnir, raflagna-
teikningar, viðgerðir. Rafhita-
kútar (160 1.). Hitunarkerfi’
fyrir kirkjur.
1395
Nýja sendibílastöðin
Sími 1395
Lj ósmyndastof a
Laugaveg 12.
Viðgerðir á
rafmagnsmótorum
og heimilistækjum.
Raftækjavinnustofan Skinfaxl
Klapparstíg 30. — Sími 6484.
Ragnar ölafsson
hæstaréttarlögmaður og lög-
giltur endurskoðandi. Lög-
fræðistörf, endurskoðun og
fasteignasala, Vonarstræti 12,
sími 5999 og 80065.
Sendibílastöðin h.f.
Ingólfsstræti 11. — Sími 5113.
Opið frá kl. 7.30-22.00. Helgi-
daga frá kl. 9.00-20.00.
O tvarps viðger ði r
Radíó, Veltusundi 1.
Sími 80300.,
Saumavélaviðgerðir
Skriístoíuvélaviðgerðir
S y 1 g j a.
Laufásveg 19, sími 2658.
Heimasími: 82035.
NIÐURSUÐU
VÖRUR
Þjéðviljann vantar krakka
til að bera blaðið til kaupenda við
HÁTEIGSVEG
Talið við afgreiðsluna. — Sími 7500
Mótorbátar til söfu
130 ionna bátur,
byggður úr stáli, meS nýrri 480 ha. General Motors-
vél.
50 tonna bátur,
byggður úr eik, með 150 ha. Bolindervél.
Hagstœðir greiðsluskilmálar, ef samið er strax.
INGI R. HELGAS0N, lögfræðingur,
Skólavörðustíg 45 — Sími 82207.
*!■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■!
I
a
m
%
m
a
Trésmiðir! Trésmiðir!
Allsberjaratkvæðagreiðsla
um skiptingu Trésmiðafélags Reykjavíkur fer fram
í skrifstofu félagsins mánudaginn 18. og þriðjudag-
inn 19. þ.m. frá kl. 10 árdegis til kl. 8 síðdegis báöa
dagana.
KJÖRSTJÓRNIN
Orðsending frá Múrarafélagi Reykjavíkur
OLaMM»MMMMMMMM«l
Hr. ritstjóri.
Að undanförnu hafa sum af
dágblöðum bæjarins deilt á þá
iðnaðarmenn, sem eru aðilar að
yfirstandandi vinnudeilu, og
talið að þeir ættu ekki samleið
með verkamönnum í verkfalli,
þar sem tekjur þeirra væru
margfalt hærri.
Hefur einkum verið ráðizt á
múrarastéttina og endurvakinn
gamall áróður frá þeim tíma er
stéttin fór almennt að vinna
í ákvæðisvinnu, en sá áróður
náði hámarki sínu í „verðlags-
stjóradeilunni“ sumarið 1943.
Þótt nefnd blaðaskrif séu
varla svaraverð, álítur Múrara-
félag Reykjavíkur þó rétt að
mótmæla’ þeim, þar sem hinn
ósvífni áróður virðist gjörður
til þess að sverta stéttina í
augum almennings og skapa óá-
nægju meðal þeirra, er að verk-
fallinu standa.
Það er almennt viðurkennt,
að ákvæðisvinna eigi rétt á
sér og sé að mörgu leyti hag-
kvæmari en tímavinna, bæði
fyrir launþega og vinnuveitend-
ur. Hafa líka margir atvinnu-
rekendur fremur kosið þá
vinnutilhögun og jafnvel Vinnu-
veitendasamband íslands vill
vinna að því að koma á ákvæð-
isvinnu í sem flestum atvinnu-
greinum. Með ákvæðisvinnu
hafa líka að jafnaði skapast
meiri vinnuafköst, þar sem
dugnaður og hagsýni einstakl-
ingsins fær betur notið sín.
Vinnulaunin fara eftir afköst-
um en ekki tímafjölda, og hinn
duglegi og iðjusami ber meira
úr býtum.
Múrárar voru fyrstir iðnaðar-
manna til þess, að taka upp á-
kvæðisvinnu og er ákvæðis-
vinnuverðskrá þeirra sú elzta
hér á landi, enda þótt hún
hafi að sjálfsögðu tekið mikl-
um breytingum með breyttri
vinnu og vinnuaðferðum.
T I L
LIGGUR LEIÐIN
Allskonar
fatnaður
á börn og
fullorðna.
Toledo
Fischersundi
Sá áróður, sem nú er hafinn
gegn þeirri verðskrá virðist
bygður á því, að múrarar hafi
óeðlilega hátt kaup og séu jafn-
vel meðal tekjuhæstu stétta
þjóðarinnar. Sé svo, hlýtur
múrsmíði að vera orðinn óeðli-
lega hár liður í byggingarkostn-
aði og hafi farið ört hækk-
andi eftir að unnið er í ákvæð-
isvinnu. í ljósi staðreyndanna
verður þó reyndin önnur eins
og opinberar tölur sýna.
Hagstofan hefur í mörg ár
reiknað út byggingarkostnað í
Reykjavík, sem hafður er til
grundvallar að byggingarvísi-
tölu, er m. a. brunabótamat
húsa hér í bæ er miðað við.
Þeir útreikningar eru hin tölu-
lega staðreynd um það hve mik-
ið múrsmíði hefur hækkað mið-
að við kostnaðarverð húsanna,
Og eru sterkustu vökin gegn
nefndum áróðri eítis' og eftir-
farandi dæmi saWtihr:
Árið 1939 er múrsmíði 14,1%
af heildar byggingarkostnaði,
en árið 1954 13,9%. Lækkun
0,2%, er þó fyrra árið miðað
við tíinavinnu, en hið síðara
ákvæðisvinnu. Þótt hér séu að-
eins nefndar tölur úr Hagtíð-
indum tveggja ára, er saman-
burður sízt óhagstæður þótt
fleiri ár séu tekin, enda hefur
hlutur múrsmíðis lækkað að til-
tölu, síðan farið var að vinna
í ákvæðisvinnu.
Eins og fyrr segir er það eðli
ákvæðisvinnunnar að vinnu-
launin fari eftir afköstum og
þvi eðlilegt að duglegir og
kappsamir múrarar beri meira
úr býtum en gildandi tíma-
vinnu. Þá má geta þess að eft-
ir verðskránni vinna menn á
ýmsum aldri, með misjafnt
vinnuþrek, eða frá 20 ár.a til
gamals aldurs og ekki óeðli-
legt að aldursmunurinn skapi
misjafnar tekjur. Aðstaðan við
vinnuna er líka misjöfn. Kemur
þar til greina hiti og þurrkur
við innivinnu, en útivinnan er
jafnan háð veðurfari. Auk þess
sem húsin eru misjöfn til
vinnslu. Eru þess líka dæmi, að
ákvæðisvinnan gefi minna en
gildandi tímakaup. Enda miðr
ast ákvæðisvinnuverðskráin við
meðalafköst og vinnuskilyrði.
Að lokum má benda á þá
; staðreynd, að eftirsókn manna
um að komast í þessa „hálaun-
uðu iðngrein“ er ekki meiri
en svo, að síðustu sex árin hef-
ur aldrei fengist full tala múr-
aranema, sú er leyfð hefur ver-
ið á hverjum tíma.
Með þökk fyrir birtinguna.
F. h. Múrarafélags Reykja-
víkur
Eggert G. Þorsteinsson
Sig. Guðm. Sigurðsson
Guðberg Kristinsson
Guðjón Benediktsson
Júlíus G. Loftsson
ósúirtnn
Magga eignast útvarp — Morgunútvarp sem vaggar
sveín — Áheyrileg kvöldvaka.
manni i
MAGGA skrifar:
„Kæri Bæjarpóstur. Um langt
skeið hefur það verið draumur
minn að eignast útvarp og
rættist sá draumur minn fyrir
stuttu, mér til mikillar gleði,
en þó er sú gleði min engan
veginn óblandin. Eitt af því
sem ég hlakkaði einna mest til
í sambandi við þessa nýju fast-
eign var að láta fjöruga morg-
unmúsík vekja mig til dáða á
hverjum morgni, þannig að öll
morgunleti væri úr sögunni
framvegis ijg upprífandi tónar
gerðu það að verkum að ég
mætti fjörug og ósyfjuð til
vinnu minnar klukkan 9 á
morgnana. En þessi von mín
og tilhlakk reyndist aðeins
vindbóla, því að morgunmúsík-
in þjónar engan veginn þessum
tilgangi, fremur væri hún til-
raun til þess að láta hlustend-
ur snúa sér á hina hliðina og
draga sængina.upp yfir höfuð.
Við morgunlata fólkið þurfum
að fá fjöruga og dillandi morg-
unmúsík, sem kemur okkur á
ið og neyðir okkur framúr. Og
ekki tekur betra við þegar
fréttalestur hefst, því að frétta-
röddin er eitt það syfjulegasta
sem nokkur maðúr hefur heyrt,
að ég nú ékki tali um leiðinleg-
heit þess sem röddin flytur,
laiigar þulur um veðurfar í
Englandí og heilsufar brézku
konungsfjölsk.Vldunnar.
í öllum bænum fjörgið dálítið
upp á morgUnútvárpið, þið sem
vald hafið tií þess! Reyhið að
.UlfJÍ
setja ykkur í spor svefnþunga
fólksins sem reynir að fá
hvatningu til dáða út úr morg-
unútvarpinu! Ef þið gerið það
í fullri alvöru þá ætti að vera
von nokkurra úrbóta og þá er
tilganginum náð.
Vinsamlegast
Magga“.
VEL á minnzt útvarpið! Eg ætla
að bæta nökkrum útvarpsorðum
við, ekki skömmum, heldur
hrósi. Fimmtudagskvöldvakan
var að mínu viti mjög skemmti
leg og áheyrileg. Frásögnin sem
sr. Jón Skagan flutti af Sölva
Helgasyni var mjög skemmti-
leg og gaf góða mynd af þess-
um smáða heimspekingi. Frá-
sögn Stefáns Júlíussonar af
hinum víðförla sjómarini var
ennfremur mjög fróðleg og
vakti áhuga og löngun í meira
og Ævar Kvaran hefur með út-
varpsþáttum sínum í vetur
skipað sér í flokk allra vinsæl-
ustu útvarpsmanna. Loks voru
sinfónískir tónleikar, fiðlukon-
sert eftir Katsjatúrían, sem Da-
víð Oistrak lék einleikinn í og
Goossens stjórnaði. Það er ekki
vonum fyrr að hlustendur fái
að heyra eitthvað annað eftir
Katsjatúrían en Sverðdansinn,
og þótt verk þetta léti ekki
stórkostlega í eyrum leik-
manns sem heyrir það í fyrsta
sinn, var yfir því seiðandi aust-
urlenzkur blær sem naut sín
fyllilega í snilldartúlkun ein-
leikarans.