Þjóðviljinn - 21.05.1955, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 21. maí 1955
Lífið litln Immcsð
Jóhann Gunnar Ólafsson heit-
ir maður, sem verið hefur á
umrenningi austur á Fljótsdals-
héraði sl. sumar. Hann fer að
gerast vísindamaður, eins og
Sölvi Helgason, og reynist
honum allt að því jafnsnjall.
Hann kemur á hinn sögufræga
stað, Gálgaásinn í Egilsstaða-
landi, þar sem enn sér merki
hins dapra tíma er menn voru
teknir af lifi fyrir sakferli.
í»ar kemur andinn yfir hann,
og nú er hann það meiri mað-
ur en Sölvi Helgason að hann
hefur 1 jósmyndavél; og hon-
um tekst af verkkunnáttu, sem
Sölvi var líka frægur fyrir, að
taka mynd af svokölluðum
Gálgakletti, en þar voru saka-
menn hengdir. Nú byrja vísind-
in. Þarna áfast við klettinn
er lítil upphækkun, þar stóð
sá dæmdi rólegur með snöruna
um hálsinn og beið eftir því að
böðullinn hrinti honum fram
af, svo að snaran gæti verkað
á hálsinn og hinum göfuga
dómi yrði fullnægt. Það var
frægt um Sölva, hve hann gat
verið órökvís í vísindunum, eins
og þegar hann reiknaði börn í
konur; og eins fer þessum kol-
lega hans á Héraðinu sl. sum-
ar. Hann heldur að þessir vesa-
lingar, sem þann veg voru
leiddir til slátrunar, hafi stað-
ið á fótunum, rólegir í vísinda-
legum hugleiðingum eins og
hann, og það er varla von að
hann hafi verið að hlusta eftir
þvi alþýðumáli, „að draga menn
á gálgann,“ sem segir þessa
scgu alveg vísindalega. Eftir
þessu fara svo önnur visindi
hans í hengingarfræðum, og er
tnér sagt að þennan mann notl
Varnarmálin
Framhald af 7. síðu.
matur, ef til styrjaldar kemur.“
Aðspurður hvort mikil vörn
væri í loftvarnabyrgjum, sagði
Peterson:
„— Já vissulega. Einföld og
ódýr loftvarnabyrgi veita fólki
því nær fullkomna vörn gegn
geislaverkun og hitanum sem
leggur frá vetnissprengingu.
Hinsvegar stoðar ekki að grafa
loftvarnabyrgi undir stórborg-
•uhum því að sprengjur þær
sem nú eru búnar til grafa sér
svo djúpa gröf í jörðina að ó-
gerningur er að gera sprengju-
held skýli svo djúpt að að
gagni geti komið. (Ástandið
hvað það snertir er mikið
breytt frá því á dögum Hiro-
shima sprengjunnar sem var
loftsprengja sem gróf sér ekki
dýpri gr,öí en það að mað-
ur sem var staddur í 16 feta
djúpum kjallara undir staðnum
sem sprengjan lenti á lifði ó-
sköpin af án þess að honum
yrði meint af.)
Segjum sem svo að sprengju
yrði varpað á Washington og
okkur tækist að koma milljón
manna út fyrir versta hættu-
LIGGUB LEIÐIN
ísfirðingar fyrir sýslumann.
Eftir að þessu sleppir, og
alveg upp úr þurrru, gerir
maður þessi svo þá vísindalegu
uppgötvun að Benedikt frá
Hofteigi hafi eigi lesið það, sem
Magnús á Hnappavöllum skrif-
aði um Valtý á grænni treyju.
Það er sjálfgefið, að ég á
margt ólesið, en ég hélt að
það kæmi vísindastarfsemi
þessa Sölva-kollega ekkert við;
og það mun fara hér sem fyrri
daginn, að heldur þyki þetta ó-
rökvíslegt og mér verði trúað
til þess að hafa lesið eigi öllu
minna í íslenzkum fræðum en
þessi hlaupari sem hér um ræð-
ir. Eg er orðinn vanur svona
narti, og læt mig litlu skipta,
enda votta þau slíkt það er ég
má vel við una. En af því að
þetta er sýslumaður er rétt að
kenna honum það ■ í lögum
þessa gamla tíma, að mann-
dráparar, eins og sagan segir
(að Valtýr á grænni treyju
, hafi verið álitinn, voru háls-
höggnir, en þjófar hengdir;
og er þetta hrapallegasta mis-
sögnin í sögu Magnúsar á
Hnappavöllum um Valtý á
grænni treyju, og svo örlaga-
rík að söguna verður að endur-
skoða, og rengja, í veigamiklum
atriðum. Þetta hefi ég gert,
þótt enn hafi eigi birzt á
prenti nema lítill hluti þess sem
á daginn hefur komið. Verður
þá og enn minna úr mynda-
vísundum sölvans, þeim er hann
birti í Eimreiðinni og ég rakst
á af tilviljun fyrir eigi löngum
tíma.
Benedikt Gíslason
frá Iloíteigi.
og Framsókn
svæðið. Stærð hættusvæðisins
fer auðvitað eftir stærð
sprengjunnar og í rauninni veit
ýg ekki til þess að nein tækni-
leg vandkvæði séu á því að
hægt sé að búa til hvað stóra
sprengju sem er, — en segj-
um að það væri tiltölulega lítil
sprengja sem varpað yrði á
Washington, t. d. sprengja sem
jafngilti 10 milljónum tonna af
tundri. Gereyðingarhringurinn
út frá þeim stað er hún félli á
væri þá 4 mílur. Allt það er á
því svæði væri splundraðist og
færi í mola, eða réttara sagt
duft.
Sprengjan myndi grafa sér
170—200 feta djúpa holu í
jörðiná. Holan myndi að öllum
líkindum verða ein míla í þver-
mál.
Þegar ég tók við stjórn varn-
armála árið 1952 var skipu-
lagning þeirra sniðin eftir
reynslu brezkra og þýzkra
borga af ógnum loftárása og
miðuð við að kjarnorkusprengj-
ur þær er notaðar yrðu í stríði
væru ekki kröftugri en Hiro-
shima og Nagasaki sprengj-
urjnar, 'en þær voru ígildi
50.000—160.000 tonna af tundri.
Svo kom vetnissprengjan til
sögunnar og þar með urðu all-
ar ríkjandi varnarráðstafanir
úreltar. Hún jafngilti 10 millj.
tonnum af tundri og gróf sér
170 feta djúpa holu í jörðina.
Sú hola hefði hæglega getað
rúmað allar hinar háu og
voldugu byggingar er húsa her-
Engin fiskbúð í Vogum — Andlegur sýklahernaður
VOGABÚI skrifar: „Það er svo-
lítið skrýtið hjá okkur núna
hér innfrá: við getum ekki
lengur fengið fisk. Hér var
lengi vel fiskbúð á heldur góð-
um stað, og er ekkert sérstakt
um það að segja, nema hún
naut viðskipta okkar allra. Svo
var henni allt í einu lokað
„vegna breytinga“ eins og sagt
var á miða sem límdur var á
hurðina. En það virðast vera
meiri breytingarnar sem þarf
að gera á aumingja búðinni,
því margar vikur eru liðnar og
alltaf stendur miðinn á lokaðri
hurðinni. En þetta veldur því J
að við sem ekki höfum efni á j
að borða kjöt í alla mata ■— !
og mundum kannski verða leið j
á þvílíkum lúksus — þurfum j
að sækja fiskinn alla ieið út j
í Kleppsholt, og er það allt frá :
10 mínútna upp í 20 mínútna :
gangur. Það sem mig undrar j
mest er að enginp Vogabúi
skuli hafa í sér framtakssemi
til að reyna að græða á fisk-
sölu, en fisksala er allarðvæn-
legur atvinnuvegur eins og
kunnugt er. Eg er nú ekki
nema veslings kona, en ef ég
væri karlmaður og ætti hægari
heimatök, þá mundi ég vissu-
lega aumkvast yfir mína kæru
granna í Vogunum og koma
upp fisksölu með nýrri lúðu,
hausuðum þorski og gómsætum
steinbíti á hverjum morgni. En
nú má ég ekki vera að þessu
lengur; ég þarf sem sé að
skreppa út í Kleppsholt að ná
mér í ýsu fyrir hádegið".
hefur útgáfa glæparita verið
arðvænlegastur atvinnuvegur
hér á landi undanfarið ár eða
litlu léngur. Þessi starfsemi
var látin óáreitt fyrsta kastið,
en er Þjóðviljinn hafði riðið
á vaðið og veitzt að henni í
fyrravetur eitt sinn tóku ýms-
ir undir orð hans, og voru
hneykslaðir. Sú hneykslun kom
þó fyrir lítið, og þessi útgáfa
stendur enn með sama blóma
og fyrr; enda er hún af því
tagi að spillt stjórnarvöld eins
og okkar munu fremur telja
sér hag í henni en hitt. Nú vill
Pósturinn vekja athygli á því
að nokkrir menn, sem gegna
uppeldis- og menningarstörfum
í þjóðfélaginu, hafa samið bréf
til menntamálaráðherra og
krafizt þess að hér yrði tekið
í. taumana. Segir í bréfinu að
þessi útgáfustarfsemi sé „eins
konar sýklahernaður, sem
stefnir öllum, og þó einkum
börnum og unglingum, í beinan
voða“. Krefjast þeir þess síðan
að bönnuð sé útgáfa sorp- og
klámrita hér á landi og stöðv-
aður innflutningur samskonar
rita frá útlöndum. — Þetta er
athyglisvert frumkvæði, og
verður fróðlegt að sjá hvern
árangur það ber. En kannski
væri heppilegra að annar
menntamálaráðherra hefði tek-
ið við slíku bréfi en sá sem nú
situr.
41meniiur dansleikur
í kvöld klukkan 8.30
Hljómsveit Svavars Gests
Leiksystur skemmta.
Aðgöngumiöar seldir klukkan 6 til 7
Þýzki samkórinn
SINGGEMEINSCHAFT DES STADTISCHEN
GYMNASIUMS BEBGISCH GLADBACH
s
amsongu
ÞEGAR FISKsala er undanskil-
in, ítem hermang og þvíumlíkt,
málaráðuneyti Bandaríkjanna.
Eftir vetnissprengjutilraunina í
Enivetok í Kyrrahafi varð sýnt
að eina vörnin fyrir borgarana
í kjarnorkustríði væri að flytja
fólkið úr öllum borgum Banda-
ríkjanna í styrjaldarbyrjun.
— Yrði ekki miklum vand-
kvæðum bundið að tæma New
York af fólki?
— Jú við ráðgerum að flytja
milljón manna þaðan sjóleið-
ina og að sjálfsögðu yrði járn-
brauta- og vegakeifið út frá
borginni notað til hins ýtrasta.
í kjarnorkustríði getur auðvit-
að ekki verið um það að ræða
að bjarga öllum en viðleitnin
verður að vera í þá átt að
bjarga eins mörgum og kostur
er á. Allir bílar og farartæki í
einstaklingseigu yrðu tekin til
almenningsnota og allt veltur
á því að ýtarleg áætlun um
skipulagðan burtflutning sé fyr-
ir hendi.“
Peterson varnamálastjóri
Bandaríkjanna segir ennfrem-
ur:
„Við höfum umgirt Banda-
ríkin viðvörunarkerfi sem nær
frá Havai yfir Alaska til Kana-
da, Grænlands og íslands.
Strax og við fáum veður af
hættunni sem nálgast verður
hafizt handa um að flytja fólk-
ið frá 95 stærstu borgum
Bandaríkjanna. Því ómögulegt
verður að vita hverja þeirra
óvinurinn muni vélja sér að
skotmarki."
í Austurbæjarbíói í kvöld kl. 7.
Aðgöngumiöar seldir í Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar og í Austurbæjarbíói.
miiimimuMHiHUiiiHiuiiiiiiinMiiiiiiiiiiMaiiimiHMimiiiuiiuaiifMRiiMmii
s
/ -.Ú :/ ■
TÉKKÓSLÓVAKÍA S
framleiðir
allskonar
dælur:
^ ■
Handdæiar,
véldælur
o.s.frv.
F~Ji % ■&?■■■'*!&&
i.,. | f "j
Leitið
upplýsinga
hjá
Kristján G. Gíslason & Co. h.f.
Umboðsmenn fyrir:
Strojexpoxt Ltd., Prag
MHIUIHHIHHIinilSMIIIIIIIIIIIMIIlMliiiiaaiiaiiiiaiMniiiiiiiiaiiilllHlllinillHlllM