Þjóðviljinn - 21.05.1955, Side 5
Laugardagur 21. maí 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (5
MM
' • v • .. . ■.
Nazistar móta
nýþýzka Kerinn
Undirbúningurinn undir stofnun hins nýja vesturþýzka
hers hófst fyrir alvöru, þegar eftir komu Adenauers for-
sætisráðherra frá Atlanzbandalagsfundinum í París, segir
vesturþýzka fréttastofan DPA.
Fréttastofan segist hafa góð-
ar heimildir fyrir því, að hinn
62 ára gamli hershöfðingi Lud-
wig Criiwell, sem 1 síðari heims-
styrjöldinni var um skeið yfir-
maður Afríkuhersins þýzka,
eigi að verða yfirhershöfðingi
alls herafla Vestur-Þýzkalands:
landhers, flughers og flota.
Yfirmaður landhersins verð-
ur Walther Wenck hershöfð-
ingi, sem stjómaði síðustu til-
tilraun þýzka hersins til að
verja Berlín vorið 1945.
Yfirmaður flughersins verður
Adolf Galland, sem var yfir-
maður orustuflugsveita Þjóð-
verja á stríðsárunum,
Von Gehlen yfirmaður njósna-
deildarinnar.
Talið er víst, að von Gehlen,
sem á stríðsárunum var yfir-
maður ,,erlendra herja á aust-
urvígstöðvunum", muni taka
við stjórn njósnaþ.iónustu hins
nýja hers. Hann hefur nú um
árabil veitt forstöðu óháðri
njósnaþjónustu, sem Banda-
ríkjamenn hafa stutt,
Á fyrsta stigi endurhervæð-
ingarinnar verða teknir í þjón-
ustu 40 hershöfðingiar, 250 of-
urstar og 600 undirofurstar.
Nefnd sem þingið kýs mun ráða
þessa menn til þjónustu í hern-
um.
Norskir leik-
sfjórar i Sovéf
Nefnd norskra leikhúsmanna
hefur verið boðið í heimsókn til
Sovétríkjanna í þessum mánuði.
Verður nefndin þriggja vikna
tíma þar austur frá og kynnir
sér leiksýningar, söngleiki og
leikdans, og kynnir jafnframt
sovézkum starfsbræðrum sín-
um norska leiklist og leikhús-
mál.
Leggur nefndin af stað 27.
maí og verða í henni m.a. leik-
hússtjórarnir Fritz von der
Lippe frá Þjóðleikhúsinu, Hans
Heiberg frá útvarpsleikhúsinu
og Nils Sletbak frá Norska
leikhúsinu.
Alræmdir nazistar.
Allir þeir hershöfðingjar, sem
DPA nefnir í þessu skeyti, eru
alræmdir nazistar. Bonnstjórn-
in hefur meira að segja hingað
til neyðzt til þess að bera til
í baka fréttir um að sumir þeirra,
| þ.á.m. Gehlen og Galiand,
mvndu verða ráðnir til þjónustu
i í hinum nýia her, vegna hinnar
i nazistísku fortíðar þeirra.
Ludwig Criiwell, sem á að
; verða yfirmaður alls hins vest-
! urþýzka herafla, stóð fyrir
skipulagningu hins svonefnda
„svarta ríkisvarnarliðs“ eftir
fyrri heimsstryjöldina. Honum
tókst þá að sniðganga takmark-
i anir þær sem settar höfðu verið
; fyrir herafla Þýzkalands, sem
samkværat ákvörðun Banda-
manna máttu aðeins. vera 100.
000 manns. .Nú á svo að heita
að vesturþýzki herjnn eigi ekki
að vera fjölmennari en 600.000
manns, en fyrri reynsla Crú-
wells við up-'byggingu leyni-
hers mun sjálfsagt koma í góð-
ar þarfir, ef Átlanzríkin ætla
Jsér að halda fast við að vestur-
býzki herinn verði takmarkað-
ur við 600.000 manns.
Galland, sem var yfirmaður
oru stufl u gsve.ita þýzka flug-
hersins á stríðsárunum, flýði
til Argentíu ‘ stríðslokin til að
slenna við málsókn fyrir stríðs-
giæni.
Geþjen var á stríðsárunum í
herforingjaráði þýzka hersins.
Þegar Canaris, yfirmaður
njósnaþjónustunnar, glataði
trausti Hitlers, hækkaði stjarna
Gehlens. Hann varð yfirmaður
njósnadeildar þýzka hersins í
Austur-Evrópu og hafði sem
slíkur nána samvinnu við ör-
yggisþjónustu stormsveitanna.
Bandaríkjamenn tóku hann
höndum í stríöslok, en hann
vann sig í álit hjá þeim, með
því að útvega þeim njósnagögn,
sem hann liafði í fómm sínum
um Sovétríkin og Rauða herinn.
iBandaríkjamenn réðu hann í
sína þjónustu og veittu honum
5 milljón dollara á ári tií njósna-
starfsemi.
I öllum löndum Banda- i
manna úr heimsstyrjöldinni i
hefur endurhcrvæðingu V-;
býzkalands verið mótmælt. j
.— Myndin hér að ofan er af j
fundi gegn Parísarsamning- ;
unum um endurhervæðingu j
I
þýzku herjanna, er haldinn j
var í marz. í súlnasal Verka- j
i
lýðsfélagahússins í Moskvu. |
Áletr-unin á veggnum þýðir: |
Lifi alþjóðasamhjálp vinn- j
andi fólks um heim allan. j
ntoSmælir
Iffirgcingi S.H.S.
í sambandinu eru 57 ílugfélög með 500
flugvélum
Framkvæmdanefnd samtaka, sem nefnast Alþjóðasam-
band óháö'ra flugfélaga (FITAP), samþykkti á fundi í Osló
13. þ.m. ályktun, sem felur í sér mótmæli gegn „tilraunum
S.A.S. aö útiloka litlu einkaflugfélögin frá öllum flugsam-
göngumV,
I nefndinni eru fulltniar frá Svíþjóð og Noregi, en í sam-
Englandi, Frakklandi, íslandi, bandinu eru 57 flugfélög sem
eiga samtals 500 flugvélar.
I ályktuninni er það talin
skammsýni að „halda hinum ó-
háðu flugfélögum utan reglu-
legra loftsamgangna, eins og
gert er í sumum löndum.“
Talið er með öllu ástæðulaust
að aftra því að þessi félög
fljúgi eftir leiðum sem hin
stóru flugfélög sinna ekki um.
Refsivert að biia
samanógift
1 Noregi eru í gildi lög, sem
leggja refsingu við því að karl
og koría búi saman sem hjón
án þess að vera gift.
Frumvarp um afnám þeirra
laga hefur legið fyrir Stór-
þinginu undanfarið, og urðu
úrslit málsins þau, að þingið
felldi að nema lögin úr gildi
með 63 atkvæðum gegn 49.
Að vísu hefur engum verið
refsað fyrir brot á þessum
lögum í hálfa öld, en þeir sem
vildu halda lögunum við rök-
studdu það með því að með
afnámi laganna væri óbeint
verið að gefa í skyn að sambúð
i án hjónavígslu væri lögmæt.
¥erkam$mg?afEokkuristn krefsf
banns kgarnorkuvopna
Fjölmennur íundur í Osló með Gerhardsen
og Trygve Lie meðal ræðumanna
Á fundi í Oslo 10. þ.m., er Alþýöuflokkurinn og fulltrúa-
ráö verkalýösfélaganna þar í borg boöuöu til, var einróma
samþykkt ályktun, þar sem krafizt er aö kjarnorkan verði
notuö til friöarþarfa og þaö tryggt meö alþjóðlegri sam-
vinnu.
Segir ennfremur í ályktuninni Meðal ræðumanna á fundin-
að allt hugsandi fólk krefjist | um voru 'Einar Gerhardsen
þess, að liin ægilega ógnun forsætisráðherra og Trygve Lie,
kjamorkuvopnanna sé kveðin fyrrverandi framkvæmdastjóri
niður og komið verði á banni Sameinuðu þjóðanna.
við þeim. Stofnað verði alþjóð- ~ ” ”
Vesfrænt frelsi
í framkvæmd
Enska rithöfundinum og rit-
stjóranum Cedric Belfrage, hef-
ur verið vísað úr íandi í Banda-
ríkjunum, og er sök hans talin
„samskipti við Kommúnista-
flokkinn."
Belfrage hefur átt heimili í
Bandaríkjunum í 25 ár. Hann
er ritstjóri vinstrisinnaðs blaðs
í New York, National Guardian,
Tékkneskir kirkiumenn
heiðraðir
Forseti Tékkóslóvakíu, Ant-
onin Zapotocky, hefur sæmt
þrjá leiðtoga kaþólsku kirkj-
unnar í Tékkóslóvakíu „lýðveld-
isorðunni.“
Þeir eru dr. Joseph Carsky,
fulltrúi. páfa; Antonin Elsch-
ner, biskup í Praha, og Antonin
Stehlik, prófastur klerkáféiags-
ins í Praha.
Sjámanna vant
Dögum saman hafa norsk
fiskiskip sem ætla að stunda
þorskyeiðar við Vestur-Græn-
land leitað eftir áhöfnum.
Hefur verið auglýst í blöðum
um. endilanga Noregsströnd, en
enginn maður boðizt.
legt eftirlit innan Sameinuðu
þjóðanna er eigi hvarvetna
frjálsan aðgang.
I ályktuninni segir að sam-
fara eftirlitinu með kjarnork-
unni yrði að vera almenn af-
vopnun undir alþjóðlegu eftir-
liti.
Póstþjóíiíiinn fékk
nýjapípn __
Kanslari Austurríkis, Julius
Raab, sendi um daginn póst-
þjóni í Slésvík krítarpípu.
Póstþjóninum varð svo mikið
um þegar hann heyrði að undir-
rita ætti friðarsamning við
Austurríki að hann missti krít-
arpípu sína út úr sér og möl-
brotnaði hún.
Hann skrifaði Raab og
spurði hvort ekki væri hugsan-
legt að fá tjónið bætt úr
Slysasjóði ríkisins. Raab svar-
aði, að þar sem hann gæti ekki
hugsað sér að þessi atburður
yrði til að valda póstþjóninum
fjártjóni, leyfði hann sér að
senda pípu í stað hinnar sem
brotnaði.
Lét kanslarinn þá von í ljós,
að nýja píþan væri svo óbrot-
gjöm, að ekki yrðu stórtap af
þó eigandi hennar heyrði öðru
sinni góðar fréttir í útvarpinu.
Adenauer
Raab, forsætisráðherra Aust-
urríkis, sagði á fimmtudag, að
austurríska stjórnin væri fús
til að ræða við vesturþýzku
stjórnina um skaðabætur fyrir
þýzkar eignir í Austurríki. Það
var fyrsta verk vesturþýzku
stjórnarinnar eftir að V-Þýzka-
land varð sjálfstætt ríki að
mótmæla ákvæðum í ríkissamn-
ingnum við Austurríki, sem
takmarka skaðabótagreioslur
fyrir þýzkar eignir í Austurríki,
VazafoEstjóri hjá Sam-
einuðu þjéðunum
Dönsk blöð skýra svo frá
að íslendingurinn Ivar Guð-
mundsson, sem í fjögur ár hafi
starfað í aðalbækistöðvum Sam-
einuðu þjóðanna í New York
taki um miðjan júní við em-
bætti varaforstjóra Upplýsinga-
skrifstofu Sameinuðu þjóðanna
fyrir Norðurlönd, sem hefur
aðsetur í Kaupmannahöfn.
Sænskir verkalýðsfor-
ingjar í Sovétríkjunum
Nefnd fulltrúa sænsku verka-
lýðsfélaganna er á ferð um
Sovétríkin. Fonnaður hennar ef
G. Norman, varaforseti sænska
alþýðusambandsins.
Fær-vofan
sitt?
Vofa á hestbaki birtist á
dögunum fimm mönnum í
þorpin Pulau Tikus nærri
Penang samtímis í draumi.
Hún skýrði þeim frá því að
hæsti vinningur í happdrætti
í Singapore myndi koma á
miðann númer 1.018. Fyrir
vikið vildi hún láta fóma
sér barni.
Þorpsbúar komu saman og
ákváðu að vofan yrði að láta
sér nægja mannshjarta í
fórn, keyptu miða númer
1.018 og biðu þess að dreg-
ið væri í happdrættinu. Þeg-
ar það hafði verið gert kom
í ljós að þeir voru orðnir
hálfri milljón Singaporedoll-
ara ríkari. Þorpsbúar brjóta
nú heilann um, hvað muni
ske ef þeim takist ekki að
útvega mannsh jartað sem
þeir lofuðu.
(Orðrétt eftir fréttaritara
brezku fréttastofunnar Reut-I
ers í Penang á Malakka-
skaga).