Þjóðviljinn - 27.10.1955, Side 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Fixruntudagur 27. október 1955
^S. - - -
'irir t dag er fimmtudagurinn
27. október. Sem. — 300. dag-
ur ársins. — Tungl í hásuðri
ki, 22:21. — Árdegisháflæði
kl. 2:16. Síðdegisháflæði kl.
14:38.
GÁTAN
. Hver er sá einhyrndi uxi,
sem beíur eina tönn,
kjaftinn á kviðnum,
rassinn á miðju baki,
, og tekur sína fæðu
á tíðum gangi?
Ráðning síðustu gátu: Rokkur.
Ársliátíðin feliur niður
Árshátíð Félags járniðnaðar-
manna, sem halda átti að Hótel
Borg n.k. laugardagskvöld,
feiiur niður vegna deilu veit-
ingahúseigenda og Félags ísl.
hljóðfæraleikara.
Haligrímsmessa
Hátíðamessa verður í Hall-
grímskirkju í kvöld kl. 8 :átí á
dánardegi Hallgríms Péturs-
son^r. Séra Sigurjón Þ. Árna-
eon : prédikar, séra Jakob Jóns-
son þjónar fyrir altari. Krist-
inn Hallsson syngur ásamt
kirkjukór.
Jírossgáta nr. 713
Lárétt:
1 minnast á 4 þessi 5 átt 7 r
9 tími 10 hvert einasta 11 skst
13 forsetning 15 tilvísunarfor-
nafn 16 áhugi.
Lóðrétt:
1 núna 2 skip 3 gan 4 færa
sönnur á 6 veiðir 7 ennþá 8
vot 12 kvennafn 14 ekki mörg
15 ekki.
Lausn á nr. 712
Lárétt:
1 SB 3 vera 7 tía 9 lóm 10
úlfa 11 RE .13 en 15 Leví 17
nem 19 lök 20 tind 21 KA.
Lóðrétt:
1 stúdent 2 bíl 4 el 5 rór 6
Ameríka 8 afi 12 fel 14 nei
16 vök 18 rnn.
Daqskrá Alþingis
Efrideild
kl. 1.30 e.h.
Tekjuskattur og eignaskattur,,
— 1. umr.
Neðrideiíd
Jafnvægislánadeild við Fram-
kvæmdabanka íslands. Framh.
1. umr. (Atkvgr.).
Verðtrj'ggingarsjóður. — Frh.
1. umr. (Atkvgr.).
Verðlag, verðlagseftirlit og
verðlagsdómur. Frh. 1. umr.
Hvíldartími háseta á botn-
vörpuskipum. — 1. umr.
Olíuverzlun ríkisins. — 1. umr.
Fiskveiðalandhelgi íslands. —
— 1. umr.
Olíueinkasala. — 1. umr.
Tollskrá o. fl. — 1. umr.
Iðnláiiasjóður. — 1. umr.
Næturvarzla
er í Laugavegsapóteki, sími
1618.
L Y F i A B C Ð * R
Holtn Ap/itek j Kvoldvarzia ti!
lífkF* | kl. 8 áíla áagf
Apóteb Austur- | nema lauaar
Hæjar j dava tP kJ.. 4 |
ir: iiðir eins
og venjulega. Kl.
15-30 Miðdegisút-
varp. .16.30 Veð-
urfregnir. 18.00
Dönskukennsla; II. fl. — 18.25
Veðprfregnir. 18.30 Ensku-
kennsla; I, fl. 18.55 Tónleikar:
Þjóðlög frá ýmsum löndum,
19.10 Þingfréttir. — 19.30 Les-
| in dagskrá næ.stu viku. 20.30
| Útvarpshljómsveitin; Þórarinn
Guðmundsson stjórnar: Ballett-
músik úr óperunni Faust eftir
Gounod. 20.50 Biblíulestur:
Séra Bjarni Jónsson les og
skýrir Postulasöguna; I. lestur.
21.15 Tónleikar: Sónatína í g-
moll fyrir fiðlu og píanó op.
137 nr. 3 eftir Schubert (Is-
olde Menges og Arthur de
Greef leika). 21.30 Útvarpssag-
an: Á bökkum Bolafljóts eftir
Guðmund Daníelsson; VI.
(Höf. les). 22.10 Sinfónískir
tónleikar: Sinfónía nr. 4 í e-
móll eftir Brahms (NBC-sin-
fóníuhljómsveitin í N.Y. leikur;
A. Toscanini stjórnar),.
Millilandaflug
Saga var væntan-
leg til Reykjavík-[
ur kl. 7 árdegis j
frá Nýjú Jórvík.
Átti að halda áfram kl. 8:00
áleiðis til Gautaborgar, Kaup-
mannahafnar og Hamborgar.
Sólfaxi er væntanlegur til R-
víkur kl. 18.15 í kvöld frá
Hamborg, Kaupmannahöfn og
Ósló.
Innanlandsflug
í dag er ráðgert að fljúga til
Akureyrar (2 ferðir), Egils-
staða, Kópaskers og Vest-
mannaeyja. — Á morgun er
ráðgert að fljúga til Akureyr-
ar, Fagurhólsmýrar, Hólma-
víkur, Homafjarðar, ísafjarð-
ar, Kirkjubæjarklausturs og
Vestmannaeyja.
Gen"isslcráninsf s
GengissUr&ning- Csölugengi)
1 sterlingspund ........... 45.70
1 bandariskur dol'.ar----- 16.32
1 Kanada-dollar ........... 16.90
100 danskar krónur ....... 236.30
100 norskar krónúr ...... 228.50
100- sænskar krónur , ...... 315.50
100 finnsk mörk 7.09
1000 franskir frankar 46.63
100 belgískir frankar' 32.75
100 svissneskir frankar .. 374.50
100 gyllini .....i,.i.. 431.10
100 tékkneskar krónur .... 226.67
100 vesturþýzk mörk ...... 388.70
1000 lírur ................ 26.12
100 belgiskir f rankar .. 32,65 —
100 gyllini ........... 429,70 —
100 vestur-þýzk mörk 387,40 4*-
Kaupgengi
sterlingspund ......... 45.55
bandarískur dollar .... 16.26
Kanada-dollar ......... 16.50
100 svissnesk-ir f rankar .. 373.30
100 gyliini .............. 429.70
j 100 danskar krónur ...... 235.50
; 100 sænskar krónur .......314.45
j 100 norskar krónur ...... 227.75
j 100 belgískir frankar .... 32.65
L00 tékKneskar krónur .... 225.72
100 Vesturþýzk mörk ;..... 387:40
1000 franskir f rankar ....... 46.4Í
1000 lírur ................ 26.04
Sextugsafmæli j
Jens Runólfsson húsvörður,
Köldukinn 7 Hafnarfirði, er
sextugur í dag.
Verzlunartíð-
indin hafa bor
izt, 4. tbl. 6.
árgangs. Þar
er fremst
greinin Lána-
stofnun verzlunarstéttarinnar.
■ 4-5; fi'"' •. • !•'. •
Grein er um Verzlunarskóla
íslands 50 ára. Þá -er sagt frá
sjálfsafgreiðsluverzluninni Liv-
erpool. Hvað er SÍS að gera í
Reykjavík ? er "spufiL Þá er
þátturinn Yfir búðarborðið, og
sitthvað fleira smávegis.
Emma, hvar er hárfeitin mín?
RIKISINS
E s j a
vestur um land í hringferð hinn
1. nóv. Tekið á móti fiutningi til
áætlunarhafna vestan Akureyr-
ar í dag og á morguh. Farseðl-
•' ar seldir á mánudag. •
Tekið á móti flutningi til Vest-
mannaeyja daglega.
voru sjo-
mannasmn-
ingarnir
Frásögnin í blaðinu í gær af
uppsögn samninga í Sandgerði
gæti valdið misskiiningi, og skal
því fram tekið að það voru að-
eins sainningamir um sjómanna-
kjörin sem.félagið sagði upp, en
ekki samningamir um verka-
mannavinnu.
Eimsldp
Brúarfos.s er, í Reykjavík. Detti-
foss fer frá Kotka í dag til
Húsavíkur, Akureyrar r og
Reýkjavíkur. Fjállfoss fór frá
Akureyri í gær til Aðalvikur,
tsafjarðar • og Reykja\ík-ur.
Goðafoss kom til Keflavíkur á
miðnætfci í nófct frá Reyðarfirði;
fer þaðan> til Akraness og
R,eykjavíkur. Gullfoss fer frá
Kaupmannahöfn á laugardag-
inn til Leith og Reykjavikur.
Lagarfoss fór frá Reykjavik í
gærkv. til Keflavikur. Reykja-
foss fór frá Hull á mánudaginn.
til Reykjavíkur. Selfoss :fór
frá Rotterdam í gær til Reykja-
víkur. Tungufoss fór frá Reyð-
arfirði 14. þm til Napólí, Genúa,
Barselónu og Palamos. Dranga-
jökull fer frá Ant.yeriier. á.
laugardaginn, ;ítil , Reyjtjayíkur.
Skipadeild SlS
Hvassafell er væntanlegt til
Ábo í dag. Árharfell er vænt-
aniegt til New Ýork á mánu-
cTa'gÝ' JÖkulfell er í Álaborg.
Dísarfell fór frá Rotterdam
í gær til Reykjavíkur. Litlafell
er í olíuflutningum í Faxaflóa..
Helgafell er á Seyðisfirði.
Skipaútgerð ríkisins
Hekla fer frá Rvík kl. 11 ár-
degis í dag austur um land í
hringferð. Esja er á Austfjörð-
um á suðurleið. Herðubreið er
á Austfjörðum á suðurleið.
Skjaldbreið er á Húnaflóa á
leið til Rvíkur. , Þyrill verður
væntanlega í Frederikstad í
Noregi í dag. Skaftfellingur fór
frá Rvík í gærkvöld til Vest-
mannaeyja..
.BÆJARPÓSTURINN gat þe.sS.
nýlega, að honum hefðu borizt
frásagnir af ýmsum óþokka-
brögðum, sem greinilega virtust
unnin undir sterkum áhrifum ■
frá glæpasögum og glæpamjmd-
um. Einkum virtist hin fræga
Gregorí-saga, sem lesin var í
útvarpið, hafa orðið áhrifarík,
Qg gæli maður af því dregið
þá ályktun, að útvarpið hefði
með henni einni saman lagt
fram drjúgan skerf til vaxandi
skrilmenningar. Nú fer því víðs
fjarri, að ég gruni forráðamenn
útvarpsins um að hafa nokkra
löngun til að efla þá tegund
menningar, þótt svona hafi tek-
izt til, og þeim er að því leyti
mikil vorkunn, að álitlegur
fjöldi hlustenda hefur ótrúiega
gaman af sögum á borð Við
Gregorí-söguna. En á hinn bóg-
inn er það staðreynd, að jarð-
vegurinn fyrir óholl og skaðleg
áhrif slikra sagna, hefur undan-
farið verið rækilega plægður.
Sorptímarit eru auglýst af miklu
kappi og boðin til sölu í öllum
sjoppum og bókabúðum, jafnvel
í matvörubúðum; og hasarblöð
og myndir eru sú dægrastytting,
sem unglingunum er boðið upp
á fyrst og fremst. Að þessu
athuguðu virðist manni, að for-
ráðamenn útvarpsins hefðu bet-
ur hugsað sig um tvisvar, áður
en sú ákvörðun var tekin að|
Kveðja frá Gregori — Orsök og afleiðing — Hvað erj
hægt að gera? — „Vilji er allt sem þarf”
hefja lestur giæpareyfara. En
hér fara á eftir tvær af þeim
frásögnum, sem Bæjarpóstinum
hafa borizt, af ódæðisverkum,
er sýna ’nvert stefnir ■. í þessum
.efnum,
Á EIN.UM ■ ,stað fannst kött-
ur hengdur í staur, og í snör-
una var fest-ur miði með áletr-
uninni: Kveðja frá; Gregorí. Á
öðrum stað var fórnarlambið
dúfa, og fylgdi þar einnig kveðja
frá sama aðila. Hér verða ekki
nefnd fleiri dæmi, en þeim sem
virðast þetta hversdagslegir
hlutir, er ekki sé orð á gerandi,
skal bent á, að ef þessu heldur
áfram, er aðeins tímaspursmál,
hvenær viliimennskan kemst á
það stig að velja sér önnur og
dýrmætari fómariömb. En hvað
á að gera, segir fóik. Okkur
vantar stærri og fleiri le-ik-
velli fyrir börn á öllum .aldri,
okkur vantar vinnustofur í skól-
unupij þar sem böm og ungl-
ingar gætu unnið að áhugaefn-
um sínum undir handleiðslu
velviljaðra kennara; okkur vant-
ar lesstofur, þar sem bömunum
væri leiðbeint um val og lest-
ur bóka; og hvar eiga börn
og unglingar þessa bæjar aðgang
að skemmtistöðúm, sem hafa
vipp á að bjóða holl og göfgandi
skemmtiatriði við þeirra hæfi?
Hvar sjást þess yfirleitt merki
af hálfu opinberra aðila, að
bömunum sé ætlað göfugra
hlutverk í lífinu en að komast
e.t.v. í sæmilega borgaða her-
námsvinnu, þegar þau hafa ald-
ur og þroska til? þetta þykja
kannski hörð orð og ósanngjörn,
en ég spyr: Er hægt að viðhafa
of hörð orð um vanrækslusynd-
ir í því efni að ala yngstu kyn-
slóðina upp á menningarlegan
hátt? Það vantar ekki, að spill-
ing æskulýðsins þykir nógu góm-
sætt umræðuefni meðal eldri
kynslóðarinar, en orsakir þessar-
ar spillingar eru ekki eins góm-
sætt umræðuefni. f>að er
heimskulegt að velta vöngum.
yfir afleiðingum meinsemdar, án
þess að reyna að grafast fyrir
um orsakir hennar, og það er
reginheimska að kenna æsku-
lýðnum um margumrædda spill-
ingu, í stað þess að viðurkenna
heiðarlega, að við höfum látið
það allt of afskiptalaust að
svikizt væri aftan að honum
með siðspillandi lestrarefni og
glæpakvikmyndum. Þeir sem.
hafa löngun til að hagnast á
því að gefa út glæpatímarit
og sýna hasarmyndir, fá að
reka áróður fyrir þeirri starf-
semi sinni að mestu leyti • ó-
áreittir. Og það ér athygiisverð
staðreynd, að það hefur aidrei
staðið á því að þyngja skatt-
ana á almenningi, ef forríkir
útgerðarmenn og aðrir milliliðir
hafa farið fram á ríflegri vasa-
peninga, en eigi að koma upp
leikvelli handa yngstu kynslóð-
inni, standa ráðamennirnir uppi
ráðþrota gagnvart þeim vanda
að afia fjár til framkvæmdanna.
f þéssu efni eins og öðrum
eiga við þessi orð Einars Bene-
diktssonar:
„— Vilji er allt, sem þar£“.
Og hver vill hafa það á s.am-
vizkunni, að hann skoj-ti. yilja
til að berjast gegn spiliihgunni
ög forða æskuiýðnum frá því
að verða henni að bráð?
XX X
NfiNKIN
jlr ik.it
KHflKl