Þjóðviljinn - 16.11.1955, Side 3
Miðvikudagur 16. nóvember 1955 — ÞJÓÐVILJINN — .3
eiirsni ? i
FramferBí útvarpssfjóra stefnir atvinnu-
öryggi allra útvarpsstarfsmanna í háska
Eins og' Þjóðviljinn sagði frá s.l. laugardag hafa stai'fs-
menn útvarpsins samþykkt einróma vítur á Vilhjálm Þ.
Gíslason útvarpsstjóra, og mun sá atburöur einstæöur hér
á landi — og kannski einsdæmi í veröldimri. VerÖur fróð-
legt að sjá hverjar ályktanir útvarpsstjóri dregur af at-
burði þessum eöa menntamálaráöherrann, yfirboðari
hans.
liflegí starf Bergf irðmgaf élagsiis'
Kvikmyndatalca — Miítnisvarii Eglls að
Bferg.—- Félagslielmili átthagaiéiagaima í
Heykfavík
r -
Borgfirðingafélagið í Reykjávík liélt nýlega aðalfund simip
Hefur mikið líf verið í starfsemi félagsins á undanförnum árum,
en þó aldrei meira en á s.l. ári, 10. starfsári félagsins.
Fundur starfsmannanna var
haldinn 7. nóvember sl. og þyk-
ir Þjóðviljanum rétt að birta
ályktunina í heild, en hún var
á þessa leið:
„Hinn 6. október sl. sagði
r f r ^ > oo r.r
fulltrúi útvarpsstjóra, Þorstemn
Egilson, upp starfi sínu vegna
móðgandi framkomu útvarps-
stjóra við hann. Að fenginni
greinargerð Þorsteins Egilsonar
og útvarpsstjóra, Viihjálms I>.
Gíslasonar, og umsögn skrif-
stofustjóra Ríkisútvarpsins, Sig-
Vegabréfaskylda
á licrðurlMum
niiurfelld l.des.
Með erindaskiptum milli ríkis-
stjórna íslands, Danmerkur,
Finnlands, Noregs og Svíþjóðar
hefur nú verið gengið frá að-
ild íslands að samkomulagi Norð-
urlandanna frá 22. maí 1954 um
að fella niður skyldu ríkisborg-
ara nefndra landa til þess að
hafa í höndum vegabréf eða
önnur ferðaskilríki við ferðalög
milli landanna.
Jafnframt er felld niður skylda
ríkisborgara hvers landsins til
að hafa dvalarleyfi við dvöl í
einhverju hinna landanna.
Island hefur einnig um leið
gerzt aðili að Norðurlandasamn-
ingi frá 14. júlí 1952 um skyldu
til að veita aftur viðtöku ólög-
lega innfluttum útlendingum.
Gildistaka aðildar fslands að
framangreindum Norðurlanda-
samningum miðast við 1. desem-
ber 1955.
(Frá utanríkisráðuneytinu.)
Pipaluk Freuchen er dóttir
hins fræga landkönnuðar og rit-
höfundar Peter Freuchen. Móðir
hennar var grænlenzk. Bókin seg-
F.I. flnttl tæplega
50 þus. farþega
á 10 mán.
Níu fyrstu mánuði þessa árs
fluttu flugvélar Fiugfélags ís-
lands alls um 49.800 farþega,
þar af 8600 í millilandaflugi.
Hefur farþegatalan með milli-
landaflugvélum félagsins aukizt
talsvert miðað við fyrra ár en
farþegar innanlands eru álíka
margir og þá.
urðar Þórðarsonar, lýsir fund-
urinn yfir eftirfarandi:
Þau ummæií, sem útvarps-
stjóri viðhaiði við Þorstein Eg-
ilson og urðu tilefni uppsagnar
hans, teiur fundurinn brigzlyrði
og ómakiega ásökun í garð
þessa starfsmanns, sem gegnt
hefur starfi sSml af fyllstu trú-
mennsku um eliefu ára skeið.
Fundurinn vítir harðlega
slíka franikomu yfirmanns, álít-
ur með öilu óviðunandi, að
starfsmaður skuii þannig
flaBmdur úr starfi, og telur, að
með þessu sé skapað fordæmi,
sem stefnt gæti atvinnuöryggi
allra starfsmanna stofunarinn-
ar í háska“.
Allmiklar umræður urðu á
fundinum og allar á eina lund;
enginn vildi verja útvarps-
stjóra. Var tillagan síðan sam-
þykkt með atkvæðum allra
fundarmanna, 36 að tölu, en
þar voru aðeins fastráðnir
starfsmenn útvarpsins. Meðal
þeirra sem að ályktuninni stóðu
voru Sigurður Þórðarson skrif-
stofustjóri, Helgi Hjörvar skrif-
stofnana.
í fyrramorgun héldu þeir fund
með stjórn og starfsmönnum
IMSÍ en sátu síðan hádegisverð-
ir frá því hvernig grænlenzki
drengurinn ívik bjargaði fjöl-
skyldu sinni frá hungurdauða
með því að berjast við bjarn-
dýr. Margar myndir prýða bók-
ina, sem Sigurður Gunnarsson
skólastjóri á Húsavík hefur ís-
lenzkað. Hún er 117 blaðsíður
á lengd.
,,GullhelIirinn“ er myndskreytt
saga frá frumskógum Suður-
Ameríku, og segir frá ævintýr-
um svertingjadrengsins Mikka
og hóíta drengsins Tomma í
frumskógunum. Frú Gunnhildur
Snorradóttir Lorensen þýddi
bókina, sem er 166 blaðsíður á
lengd.
Báðar bækurnar eru prent-
aðar í prentverki Odds Björns-
sonar á Akureyri.
stofustjóri, dr. Páll ísólfsson
tónlistarstjóri, Jón Magnússon
fréttastjóri, Þorsteinn Ö. Step-
hensen leiklistarstjóri, Sigurð-
ur Sigurðsson innheimtustjóri,
Jón Alexandersson forstöðu-
maður, Þórarinn Guðmundsson
hljómsveitarstjóri, Jón Þórar-
insson fulltrúi, Baldur Pálma-
son fulltrúi og Högni Torfason
fréttamaður, formaður starfs-
mannaféiagsins.
1. gr. Fiskveiðalandhelgi fs-
lands tekur til alls landgrunns-
ins.
Landgrunnið takmarkast 'af
línu, sem dregin er 50 sjómíl-
um utan yztu nesja, eyja og
skerja við landið. Þar sem 200
metra dýptarlína landgrunnsins
nær út fyrir 50 sjómílna línuna,
takmarkast landgrunnið af henni.
2. gr. Með reglugerð skal kveða
á um framkvæmd löggæzlu inn-
an fiskveiðalandhelginnar, svo og
um stærð gæzlusvæðisins. Þó
skal það í samræmi við tilskipun
frá 13. maí 1682 og síðari tilskip-
anir eigi vera minna en 12 sjó-
mílna belti utan við friðunar-
arboð stofnunarinnar. Síðdegis
sama dag héldu gestirnir fund
með aðal- og varastjórn Félags
ísl. iðnrekenda og Landsambands
%
iðnaðarmanna. Skýrðu þeir
Skogen og Rasmussen ýtarlega
frá störfum framleiðnistofnan-
anna í þágu iðnaðar, svo og
hvernig sambandinu milli þeirra
og félagasamtaka iðnaðarins væri
háttað. Chr. Gudnason tálaði
einnig.
í gær voru þeir í boði stjórn-
ar Félags íslenzkra iðnrekenda,
skoðuðu ýmsar verksmiðjur svo
sem Fiskiðjuverið og Áburðar-
verksmiðjuna, en um kvöldið
mættu þeir á almennum félags-
fundi hjá FÍI, fluttu þar erindi
og sýndu skuggamyndir og kvik-
myndir til skýringar efninu,
f dag verða gestirnir á vegum
Landsambands iðnaðarmanna,
sem mun sýna þeim m.a. bygg-
ingaframkvæmdir í Reykjavík. Á
morgun munu þeir skoða verzl-
anir hér í boði verzlunarsam-
takanna og mæta á fundi Félags
matvörukaupmanna annað kvöld.
Þeir halda heimleiðis á laugar-
f dag.
Starfsemi félagsins hefur ver-
ið með svipuðu sniði og áður.
Kvikmyndatökunni af Borgar-
fjarðarhéraði hefur verið hald-
ið áfram, en sökum ótíðar á
s. 1. sumri var minna unnið
við hana en til stóð. Bráðlega
mun þó verða hægt að sýna
kvikmyndina, að vísu ekki full-
gerða. Félagið mun á sínum
tíma afhenda væntanlegu
byggðasafni Borgarfjarðar frum-
línuna frá 19. marz 1952. Á því
svæði sé öllum erlendum fiski-
skipum bannað að stunda hvers-
konar fiskveiðar.
Þar. til ákveðið verður, að ís-
lenzk lögsaga, að því er varðar
fiskveiðar, taki til allrar fisk-
veiðalandhelginnar, skal ríkis-
stjórn íslands tilkynna stjórnum
þeirra ríkja, er fiskveiðar stunda
við landið, um víðáttu þess svæð-
is, sem löggæzlan er látin taka
til á hverjum tím.a samkvæmt
grein þessari.
3. gr. Lög þessi öðlast gildi
17. júní 1956.
í greinargerð ræðir flm. um
nauðsyn skýrra lagaákvæða um
þetta efni. „Ákvæði um víðáttu
fiskveiðilandhelginnar við ís-
land er aðeins að finna í göml-
um tilskipunum þar að lútandi,
og má eigi lengur við það una,
að ákvæði í lögum kveði ekki
skýrt á um rétt íslenzku þjóð-
arinnar til að búa ein að auð-
lindum þeim, lífrænum sem ólíf-
rænum, sem finnast í hafi um-
hverfis landið“.
Þá ræðir flm. um nauðsyn
þess að gera greinarmun á fisk-
veiðalandhelgi ög friðunarsvæð-
um, en allmikið beri á því, jafn-
vel í ummælum opinberra að-
ilja, að þessu sé- ruglað saman
eða ekki gerður nógu ljós grein-
armunur á þessu tvennu. „Mis
munurinn keraur hvað ljósast
fram i því, að samkv. eðli máls-
ins getum við leyft fiskiskipum
okkar að stunda hverskonar-
veiðar innan landhelgi, en slíkt
kemur hinsvegar ekki til greina
um friðunarsvæðið."
Bent er á, að alþjóðadómstóll-
inn í Haag hafi í deilu Norð-
manna og Breta staðfest það, að
friðunarsvæðið við Noreg skyldi
teljast landhelgi og sé tilgangur
frumvarpsins .að koma í veg
fyrir, að nokkur slíkur úrskurð-
ur verði felldur um íslenzka
landhelgi,
„Öllum má ljós vera nauðsyn
þess, að íslenzka þjóðin búi
ein að auðlindum sínum í haf-
inu umhverfis landið, en aðrar
þjóðir haía einnig gert sér grein
fyrir hagsmunum sínum að
þessu leyti, og hafa sumar þeirra
helgað sér landgrunn sitt, nú sið-
ast eitt brezku samveldanna,
Ástralía".
myndina til varðveizlu og eign-
ar.
MINNISVARÐI
EGILS
í skýrslu sinni drap formað-
ur félagsins á nokkur mál, sens
stjórnin teldi æskilegt að félag-
ið beitti sér fyrir. Félagið gæti
m.a. að nokkru leyti sýnt hug
sinn í verki til byggingar Hali-
grímskirkju í Saurbæ, t.d. með
því að gefa klukkur í kirkjuna.
Ennfremur væri æskilegt að
koma . til. móts við héra.ðsmenn
og stuðla að fjársöfnun, svo
unnt yrði áður en langt um liði
að reisa minnisvarða um Egil
skáld Skallagrímsson að Borg
á Mýrum. Slíkt minnismerki yrði
að vera vandað og myndi því
kosta mikið fé svo að fjársöfn-
unina yrði að undirbúa vel.
SAMEIGINLEGT
FÉLAGSHEIMILI
Þá kom það fram að rætti
hefur verið um það milli nokk-
urra forystumanna átthagafélag-
anna í Reykjavík að æskilegfi
væri að félögin gæt*. sameirlast
um að byggja sarthiginlegt fé-
lagsheimili, en um 20 átthaga-
félög munu nú vera í Reykja-
vík.
Fundarmenn voru sammála
um að vinna að öllum þessunx
málum eftir því sem geta félags-
ins og ástæður leyfðu.
Stjórn félagsins var endui>
kosin.
SkeifimÉt-
fimdur Ferða*
félagsfus
Ferðafélag ' íslands heldic
skemmtifund í Sjálfstæðishv .-
inu i kvöld og hefst hann klukk-
an 8.30.
Það verður sýnd litkvikmyr.d„
sem Árni Kjartansson verzlunar-
stjóri hefur tekið á ferðalöguitTi
um Vatnajökul, og munu þeic
Jón Eyþórsson og Sigurður Þóx'-
arinsson skýra myndina. Einnis
verður sagt frá Grímsvötnum o@
fleiri náttúrufyrirbærum á
Vatnajökli.
Ávarp
vegna slyssins
í SkíSadal
Við undirritaðir viljum ein-
dregið mælast til þess, aS
Reykvíkingar, og alveg séc-
staklega Svarfdælingar og aðr-
ir Eyfirðingar, sem búsettb?
eru í bænum, leggi af mörkura,
hver sinn skerf til aðstoðar vtð
ungu konuna á Másstöðum I
Skíðadal, Ester Jósavinsdóttr o,
er missti mann sinn og fyrio
vinnu fimm ungra bama þeirra
í slysi nú fyrir skömmu.
Framlögum veitt mótta :*
hjá öllum dagblöðunum s
Reykjavík.
Nokkrir Svarfdælingai
í Reykjavík. j
Tvær nýjar bamabækur
Frá Bókaforlagi Odds Björnssonar á Akureyri hafa Þjóðviij-
anum borizt tvær barnabækur: ívik bjarndýrabam eftir Pipahik
Freuchen og Gullbellirinn eftir Frances F. Neilsson.
Þríí* itorræiiÍF gesflr komnir
Mngað á vegnm IcMeS.fi.
Um s.l. helgi komu hingað til lands á vegtim IMSÍ þeir
Olav Skogen, framkvæmdastjóri norsku framleiðnistofn-
unarinnar, Werner Rasmussen, framkvæmdastjóri fram-
leiönistofnunar Danmerkur og Christian Gudnason,
danskm- verkfræðingur. Munu þeir dveljast hér í tæpa
viku og kynna sér starfsemi og rekstur fyrrgreindra
Hannibal Valdimarsson flytur 1 þriðja sinn frumvarp til
laga um fiskveiðilandhelgi íslands. Er frv. svohljóðandi: